Morgunblaðið - 22.03.2007, Page 24
neytendur
24 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Bónus
Gildir 22. mars – 25. mars verð nú verð áður mælie. verð
Bónus hamborgarhryggur ..................... 898 998 898 kr. kg
KS lambahryggur, frosinn ...................... 999 1.298 999 kr. kg
Holta fersk kjúklingalæri ....................... 363 544 363 kr. kg
Holta ferskir kjúklingaleggir ................... 363 544 363 kr. kg
Frosnar danskar kjúklingabringur ........... 1.098 1.498 1.098 kr. kg
NF reyktur lax ...................................... 1.125 1.501 1.125 kr. kg
NF grafinn lax ...................................... 1.125 1.501 1.125 kr. kg
Myllu heimilisbrauð, 770 g ................... 129 159 167 kr. kg
Chiquita ávaxtasafar, 2 ltr ..................... 198 229 99 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 22. mars – 24. mars verð nú verð áður mælie. verð
Nautagúllas úr kjötborði ....................... 1.328 1.595 1.328 kr. kg
Roastbeef í neti úr kjötborði .................. 1.698 1.998 1.698 kr. kg
Ali hamborgarhryggur ........................... 1.255 1.673 1.255 kr. kg
Ali partyskinka..................................... 1.329 1.773 1.329 kr. kg
Kjúklingalæri frá Matfugli...................... 457 609 457 kr. kg
Pepsi max í dós, 500 ml....................... 59 85 118 kr. ltr
Grillaður kjúklingur ............................... 568 750 568 kr. stk.
4 stk. hamborgarar m/brauði +2ltr coke 548 648 548 kr. stk.
Fersk jarðarber, 250 g .......................... 249 298 249 kr. stk.
Andrex wc pappír, 9 rl........................... 589 609 65 kr. stk.
Hagkaup
Gildir 22. mars – 25. mars verð nú verð áður mælie. verð
Nautafilet úr kjötborði .......................... 1.998 3.143 1.998 kr. kg
Svínakótilettur úr kjötborði .................... 998 1.399 998 kr. kg
Svínalundir.......................................... 1.443 2.438 1.463 kr. kg
Underground banana, 850 ml............... 600 750 707 kr. ltr
Underground jarðarberja, 850 ml .......... 600 750 707 kr. ltr
Underground karamellu, 850 ml ........... 600 750 707 kr. ltr
Underground súkkulaði, 850 ml ............ 600 750 707 kr. ltr
Underground vanilla, 850 ml ................ 600 750 707 kr. ltr
Krónan
Gildir 22. mars – 25. mars verð nú verð áður mælie. verð
Kjötb. sælkerabuff í raspi...................... 459 655 459 kr. kg
Kjötb. grísasnitsel í raspi ...................... 989 1.499 989 kr. kg
Gríms plokkfiskur ................................. 299 375 748 kr. kg
Gríms gratineruð ýsa m/broccolí ........... 299 372 748 kr. kg
Gríms gratineruð ýsa Mexíkó ................. 299 372 748 kr. kg
Odense skógarberja/marsipan.............. 369 655 738 kr. kg
Krónu hrískökur ................................... 249 295 2.075 kr. kg
HM lífrænt spaghetti flax....................... 267 314 785 kr. kg
Shop R. súkkulaði skúffukökumix .......... 159 187 306 kr. kg
Nóatún
Gildir 22. mars–25. mars verð nú verð áður mælie. verð
Ýsuflök, roðlaus og beinlaus ................. 798 1.219 798 kr. kg
Rauðsprettuflök ................................... 798 1.129 798 kr. kg
Þorskflök, roðlaus og beinlaus .............. 899 1.229 899 kr. kg
Ýsa í suðrænni sósu ............................. 899 1.129 899 kr. kg
Plokkfiskur .......................................... 677 1.129 677 kr. kg
Grísahnakki, úrb. sneiðar...................... 889 1.498 889 kr. kg
Grísakótilettur...................................... 998 1.398 998 kr. kg
Fine taste baguette m/hvítlauk ............. 199 234 100 kr. stk.
Göteborg Café Mini Brownie.................. 299 399 1.246 kr. kg
Merrild, lífrænt kaffi.............................. 399 549 998 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 22. mars–25. mars verð nú verð áður mælie. verð
Goða kjötbollur.................................... 319 506 319 kr. stk.
Ný svínasíða úr kjötborði ...................... 459 655 459 kr. kg
Borgarnespylsur/franskar ..................... 619 885 619 kr. kg
Matfugl kjúklingaleggir, magnkaup ........ 395 609 395 kr. kg
Goða ofnsteik m/rauðvínsblæ............... 1.239 1.777 1.239 kr. kg
Haust hafrakex, 250 g.......................... 164 119 476 kr. kg
Ömmubakstur lasagnablöð, 250 g ........ 169 206 824 kr. kg
Egils 7up 2 ltr. ..................................... 99 167 50 kr. ltr
Agúrka íslensk ..................................... 89 116 89 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 22. mars–28. mars verð nú verð áður mælie. verð
Borgarnesbjúgu ................................... 438 548 438 kr. kg
BK kindakæfa, 200 g ........................... 216 270 1.080 kr. kg
BK folaldakjöt, reykt ............................. 468 585 468 kr. kg
Kexsmiðjan Kanilsnúðar, 400 g............. 209 379 523 kr. kg
Kexsmiðjan Hjónabandssæla, 350 g ..... 209 339 314 kr. kg
Kelloggs Corn Flakes, 500 g ................. 259 309 518 kr. kg
Maxwell House kaffi, 500 g................... 379 459 758 kr. kg
Anton Berg Islagskaka, 825 g ............... 1.199 1.619 1.453 kr. kg
7-Up 2 ltr. ........................................... 99 199 49 kr. kg
helgartilboðin
Kjötmeti og fiskur í helgarmatinn
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
T
ransfitusýrur eru ein gerð harðrar
fitu í matvælum, en rannsóknir
sýna að mikil neysla á þeirri fitu-
gerð er þekkt fyrir að auka líkur á
hjarta- og æðasjúkdómum mun
meira en neysla annarrar harðrar fitu. Ekki
er nóg með að neysla á transfitusýrum hækki
hlutfall óæskilegrar blóðfitu heldur lækkar
hún líka magn jákvæðrar blóðfitu. Rætt er um
að transfitusýrur auki líka líkur á krabba-
meini og fullorðinssykursýki. Rannsóknir eru
þó enn misvísandi hvað þetta varðar og ekki
er heldur vitað hvort transfitusýrur í mat-
vörum frá náttúrunnar hendi, t.d. í kjöti og
mjólkurvörum, hafi sömu áhrif á heilsu og
þær sem myndast við vinnslu en engar for-
sendur eru til að ætla annað, segir Brynhildur
Briem, fagstjóri á matvælasviði Umhverf-
isstofnunar.
Transfitusýrur eru ýmist í matvælum frá
náttúrunnar hendi eða vegna þess að þær hafa
myndast við meðhöndlun eða vinnslu. Þær
myndast í fyrsta lagi þegar lin fita er hert að
hluta, í öðru lagi í vömb jórturdýra fyrir til-
stilli baktería, sem þar er að finna og í þriðja
lagi við háan hita í steikingarfeiti. Stærsti
hlutinn verður til þegar olía er hert að hluta.
Tilgangurinn með herslunni er að breyta
áferð og bræðslumarki fitunnar, en við það
breytast bökunareiginleikar fitunnar og
geymsluþolið eykst, að sögn Brynhildar.
Mettuð eða ómettuð fita
„Transfitusýrur eru hörð fita, sem er öðru-
vísi að uppbyggingu en hefðbundin hörð fita.
Almennt er það svo að í harðri fitu er grunn-
efnunum haldið saman með einföldum bind-
ingum, en í linri fitu eru bindingarnir tvöfald-
ir. Hörð fita er kölluð mettuð fita, en lin fita er
kölluð ómettuð.
Transfitusýrur innihalda tvíbindinga, eins
og ómettaða fitan, en uppröðun efnanna er
önnur sem gerir það að verkum að fitan verð-
ur hörð eins og mettaða fitan. Þegar greint er
á milli mettaðrar og ómettaðrar fitu er ein-
faldast að mæla hvort fitan inniheldur tvíbind-
inga eða ekki. Lin fita mælist með tvíbindinga
og það gera transfitusýrur líka þó að þær
flokkist sem hörð fita. Í einföldum mælingum
mælast transfitusýrur sem lin fita, en þær
haga sér í líkamanum sem hörð fita,“ segir
Brynhildur.
Transfitusýrur í afurðum jórturdýra geta
verið um 3-6% af heildarfitumagni. Ef ekkert
er að gert þegar verið er að herða fitu, eins og
t.d. þegar bökunar- eða steikingarfita er búin
til með því að herða olíu að hluta, þá getur
hlutfall transfitusýra í afurðinni orðið allt að
60%. Ef fitan er alveg hert þannig að úr verði
harður klumpur myndast ekki transfitusýrur.
Þetta eru smjörlíkisframleiðendur farnir að
nýta sér í seinni tíð. Þeir nota þá alveg herta
fitu í framleiðsluna og blanda svo í hana olíum
á eftir til að mýkja afurðina upp, að sögn
Brynhildar.
Íslendingar borðuðu að meðaltali 3,5 g af
transfitusýrum á dag eða 1,4% af heildarorku-
inntöku, skv. síðustu neyslukönnun Manneld-
isráðs sem gerð var árið 2002 og má gera ráð
fyrir að neyslan hafi eitthvað minnkað síðan.
Samkvæmt mælingum danska prófessors-
ins Steen Stender á matvælum, sem keyptar
voru á Íslandi, kom í ljós að örbylgjupopp
innihélt 58,1 g af transfitusýrum í hverjum
100 grömmum. Kex og kökur innihéldu 33,7g
af transfitusýrum í hverjum 100 grömmum og
djúpsteiktur skyndibiti innihélt 25,9 grömm í
sama magni.
Skyldumerkingar á umbúðum
Innan Evrópusambandsins hefur komið til
tals að taka upp skyldumerkingar á trans-
fitusýrum, en frá því í fyrra hafa Bandaríkja-
menn skyldað matvælaframleiðendur að geta
um magn transfitusýra við merkingu næring-
argildis.
Í Danmörku var árið 2003 sett reglugerð
sem kveður á um að feitmeti megi ekki inni-
halda meira en tvö grömm af transfitusýrum í
hverjum hundrað grömmum af fitu. Reglu-
gerðin nær þó ekki til transfitusýra í vörum
frá náttúrunnar hendi. ESB hefur gert at-
hugasemd við reglugerðina þar sem hún er
talin standa í vegi fyrir frjálsu flæði matvæla
innan sambandsins.
Hér á landi er hvorki skylt né leyfilegt að
geta um magn transfitusýra á umbúðum mat-
væla, nema að fengnu leyfi til að setja fullyrð-
ingar um transfitusýrur á umbúðir. Aftur á
móti er skylt að merkja matvæli með inni-
haldslýsingu. Þar koma fram þau hráefni, sem
notuð eru við framleiðsluna og skulu þau talin
upp í minnkandi magni. Með því að skoða inni-
haldslýsingu má iðulega finna út hvort líklegt
sé að varan innihaldi transfitusýrur. Gera má
ráð fyrir að viðkomandi vara innihaldi trans-
fitusýrur ef á umbúðum stendur að hún inni-
haldi fitu, sem er hert að hluta eða hálfhert.
Mikið magn transfitusýra í kexi,
poppi, snakki og smjörlíki
Morgunblaðið/Ásdís
Transfitusýrur Þær eru ýmist í matvælum frá náttúrunnar hendi eða myndast við vinnslu og
verður stærsti hlutinn til þegar olía er hert að hluta.
Smjörlíkisframleiðendur Eru farnir að
nota alveg herta fitu í framleiðsluna og
blanda svo í hana olíum á eftir til að mýkja
afurðina upp því transfitusýrur myndast
ekki sé fitan alveg hert.
Í HNOTSKURN
» Transfitusýrur sem og öll önnurhörð fita hefur óæskileg áhrif á
heilsufar manna og því er mikilvægt að
draga sem mest úr neyslu á henni sem
og annarri harðri fitu.
» Helstu iðnaðarframleiddar mat-vörur, sem búast má við að innihaldi
transfitusýrur, eru smjörlíki, steiking-
arfeiti, djúpsteiktur matur, kex, kökur,
vínarbrauð, poppkorn, kartöfluflögur
og sumar sælgætistegundir.
» Frá náttúrunnar hendi er að finnatransfitusýrur í litlu magni í smjöri,
rjóma, ostum, feitu kjöti og afurðum
gerðum úr þessum vörum.
Í bökunar- og steiking-
arfitu geta transfitu-
sýrur verðið allt að 60%
Fitan er hert til að
breyta áferð hennar og
bræðslumarki
Ef fitan er hert í harð-
an klump myndast ekki
transfitusýrur
Ekki má geta um
magn transfitusýra á
umbúðum hér án leyfis
Þetta er önnur greinin af nokkrum í greina-
flokki, sem er samstarfsverkefni mat-
vælasviðs Umhverfisstofnunar og Morg-
unblaðsins.
TENGLAR
...................................................................
www.ust.is/matvaeli