Morgunblaðið - 22.03.2007, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 29
HERBERGISVERÐ á fimm stjörnu
hótelum í London nær stöðugt nýjum
hæðum. Þetta sýnir ný rannsókn sem
framkvæmd var af PriceWaterhouse-
Coopers. Frá þessu er sagt á vefnum
forbruker.no.
Á síðastliðnu ári kostaði ein nótt í
lúxusherbergi að meðaltali tæpar
39.000 íslenskar krónur. PWC reikn-
ar með að þetta meðalverð hækki í
43.000 kr. í ár en hækkunin endar
ekki þar. Árið 2008 er búist við að
verðið verði komið upp í rúmar
47.000 kr. fyrir góðan nætursvefn í
lúxusumhverfi.
Þó er það ekki bara á lúxushótelum
sem verðið hefur hækkað. Meðalverð
hótelherbergis í London var í fyrra
tæpar 15.000 kr. og búist er við að
þetta verð muni hækka í u.þ.b. 16.000
krónur í ár. Árið 2008 mun verðið að
öllum líkindum verða komið í 16.700
kr.
Fram kemur í rannsókninni að
ástæða þessara verðhækkana sé mik-
ill hagvöxtur í Bretlandi, aukin ferða-
lög viðskiptamanna, færri tilboð hjá
hótelum og miklar hækkanir á fast-
eignamarkaði.
Uppgangur í fleiri borgum
Það er ekki bara í London sem hót-
elin njóta góðs af uppgangstímum. Í
Edinborg hefur orðið mikil aukning í
ferðamannastraumi og á fyrstu níu
mánuðum ársins 2006 jókst fjöldi
ferðamanna um 14%. Ýmsar ráð-
stefnur í Manchester lofa góðu fyrir
ferðaþjónustuna þar auk þess sem
Bollywood-verðlaunahátíðin verður
þar í ár og bráðlega verður opnað þar
nýtt spilavíti.
Morgunblaðið/Ómar
Tower of London Frægt kennileiti í Lundúnaborg.
Æ dýrari hótelherbergi
Í FLESTUM borgum og bæjum
Bretlands er að finna indverska veit-
ingastaði og víða í miklu magni, enda
var Indland hluti breska heimsveld-
isins og býr fjöldi fólks af indversk-
um uppruna í landinu. Indverskur
matur nýtur líka mikilla vinsælda
meðal Breta sem heimsækja margir
hverjir reglulega indverska veit-
ingastaði – þó vissulega sé víða búið
að laga réttina að vestrænu bragð-
skyni.
Í London er að finna nokkra ind-
verska veitingastaði í hæsta gæða-
flokki – m.a. fjóra sem hlotið hafa
Michelin-stjörnur – og væru vel þess
virði að kíkja á í næstu heimsókn til
borgarinnar.
Hot Stuff Hefur hlotið nær einróma
lof í þá tvo áratugi sem staðurinn
hefur verið starfræktur. En Hot
Stuff er ódýr staður sem er í hlið-
argötu í Lambeth-hverfinu. Hann
var nýlega valinn besti indverski
veitingastaðurinn í London í hvaða
verðflokki sem er hjá breska dag-
blaðinu Times.
Amaya Indverskur „grillstaður“
með Michelin-stjörnu. Smart staður
sem er í einu af fínni hverfum borg-
arinnar, milli Knightsbridge og
Belgraviu, en að baki Amaya býr
glænýtt hugtak í indverskri mat-
argerð. Hér er hvorki að finna for-
rétti né aðalrétti heldur eru allir
réttirnir litlir – eins konar indverskt
tapas – þó glæsileg framsetningin
minni ekki síður á sushi.
Tamarind Hugarfóstur kokksins
Atul Kochar, en Tamarind var fyrsti
indverski veitingastaðurinn í Lond-
on sem hlaut Michelin-stjörnu, árið
2001, sem hann hefur haldið þrátt
fyrir að Kochar hafi flutt sig um set.
Benares Er til húsa í fyrrum banka-
byggingu í Kensington, með vold-
ugum steinskreyttum gluggum.
Framreiðsla matarins er íburðar-
mikil, fer að hluta til fram við borð
gesta og veldur ekki vonbrigðum.
Zaika Nýi staður kokksins Atul
Kochar sem nú er orðinn sjónvarps-
stjarna. Heimsókn á Benares má
líka líkja við leikhús, slíkir eru til-
burðirnir – og e.t.v. voru það þeir
sem áttu sinn þátt í því að staðurinn
hlaut sína fyrstu Michelin-stjörnu á
þessu ári.
Indverskir réttir í hæsta gæðaflokki
Zaika Á við leikhús.
Amaya „Grill“ staður.
Hot Stuff
19 Wilcox Road SW8
(0)20 77 1480
www.eathotstuff.com
Amaya
15 Halkin Arcade,
Motcomb Street SW1
(0)20 7823 1166
www.realindianfood.com
Tamarind
20 Queen Street W1
(0)20 7629 3561
www.tamarindindanrestaur-
ant.com
Zaika
1 Kensington High Street W8
(0)20 7795 6533
www.zaika-restaurant.co.uk
Benares
12a Berkeley Square House W1
(0)20 7629 8886
www.benaresrestaurant.com
Benares Íburðarmikill staður.
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
!!"# !!!"# $
!!"# "!!"#
%& ' !
($))"##
!"#$ %&'()*)+
!,$ ,- . )** #) !//"+
!" # $%&' ()*+, - .',/0'&!-.')-
123" .', ( -4 -"&!" )5 +*,-300
6 (7* ! . , 8)-
.
/
40 4
0 40 4
0 40
40 .
/
,5
5
40 40 0 11 40
40
0 /
40 40 40 40 40 40 .
/
40
40
40 40 /
40
40 11 ,5
5
40 40 40 40 21134/
,5
5
40 6 4
0 0 21134/
7 80 780 7 80 7 80
406 0 11 40 0 21134/
40 6
40 6 406 40
6 40
6
&#& # "!
& 5 9
:
5 5
; /
.$ /&0
"!
&
&& #% " $! # 1 .$ /&0
"!
&
&& #% " $! # 1
,
)-
3
0
)
*(