Morgunblaðið - 22.03.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 41
Elsku Bára amma.
Mig langar svo til að
fá að kveðja þig hér,
elsku hjartans Bára
amma mín, þar sem ég náði ekki að
kveðja þig áður en þú fórst. Þú varst
yndislegasta manneskja sem ég hef
þekkt. Alltaf svo hress og kát þegar
við hittumst og svo jákvæð, lífsglöð og
krúttleg að mig langaði alltaf til að
vera að knúsa þig og faðma þegar ég
sá þig. Það er ótrúlegt að þú skulir
vera farin, svona stutt á eftir Alla afa
og henni Villu okkar sem fór langt
fyrir aldur fram, því þið voruð svo
stór hluti af lífi mínu frá því að ég var
smástelpa í Stigahlíðinni. Margar
góðar minningar á ég þaðan og er
mér efst í huga þegar við Ollý systir
fengum stundum að gista hjá ykkur
yndislegu hjónum, og fengum þá að
klæðast skósíðum náttkjólum og dýr-
indis hollenskum tréklossum af þeim
systrum Gunnu og Villu, sem þá voru
fluttar að heiman. Tilfinningin sem
fór um lítinn kropp þá var að nú væri
ég orðin prinsessa og var það ótrú-
lega ánægjuleg upplifun. Einnig verð
ég að minnast á að þú tókst okkur
systkinum, öllum fimm, alltaf opnum
örmum þegar við kíktum í heimsókn
og gafst okkur þá alltaf Cocoa Puffs,
sem var munaðarvara í þá daga, og
var með því besta sem við fengum og
því var mjög vinsælt að fá að kíkja yf-
ir til ykkar. Þessar minningar og
margar aðrar, um þig og þína ynd-
islegu fjölskyldu, mun ég varðveita í
hjarta mínu og verður ykkar, sem far-
in eruð, sárt saknað.
Yndislega amma:
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú er komin lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margs sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð
(Þórunn Sig.)
Elsku Gunna mín og fjölskylda, Al-
brecht og fjölskylda; missir ykkar er
mikill en minningin um einstaklega
ljúfa og yndislega konu mun lifa í
huga okkar og hjörtum um ókomna
tíð. Megi Guð styrkja ykkur og varð-
veita.
Hulda Hrönn Jónsdóttir.
Elsku Gunna og fjölskylda.
Guð styrki ykkur og styðji.
Við vorum svo lánsöm að eiga ykk-
ur að nágrönnum í Stigahlíðinni.
Þið systur fóruð snemma að hjálpa
okkur með barnaskarann með því að
gæta þeirra fyrir okkur.
Smám saman bundust fjölskyld-
urnar vinaböndum sem entust alla tíð
og slík vinátta mætti gjarnan finnast
víðar í sambúð granna.
Foreldrar þínir gengu barnahópn-
um okkar í afa og ömmu stað og verð-
ur minning þeirra og ykkar allra
ávallt ríkulega blessuð í hugum okk-
ar.
Hún Bára var orku- og gleðigjafi
eins og allir sem kynntust henni vita.
Trú hennar og æðruleysi var henn-
ar styrkur og okkur hinum hvatning.
Við erum afar lánsöm að hafa átt
ykkur að vinum í öll þessi ár og fyrir
trú á Jesú Krist eigum við, vonandi
✝ Bára IngibjörgVigfúsdóttir
fæddist 25. maí
1921 í Reykjavík.
Hún lést á Landspít-
ala – háskólasjúkra-
húsi við Hringbraut
2. mars síðastliðinn.
Útför Báru var gerð
frá Grafarvogs-
kirkju 14. mars sl.
öll, eftir að fagna aftur
saman á nýjum stað.
Guð blessi ykkur.
Henny Bartels
og Jón Erlings
Jónsson.
Hlátrasköll, hávær-
ar samræður þar sem
hver talaði í kapp við
annan, einkenndu af-
mælisveislur sem stór
systkinahópur sem ólst
upp á Bergstaðastræt-
inu, makar þeirra og
fjölskyldur voru staðsett í. Þessar af-
mælisveislur voru margar á ári
hverju, því öll systkinin og makar
héldu upp á afmæli sín en eins og
gengur og gerist hefur afmælunum
og röddunum fækkað með árunum
Ein úr þessum systkinahópi er nú
fallin frá og er stórt skarð komið í
hópinn. Stúfa er látin. Það er ekki að
ástæðulausu að maður leit upp til
hennar, því hún var einstök kona sem
lá ekki á sínum skoðunum, ákveðin,
hlý, barngóð, dugleg, drífandi,
skemmtileg og svo mætti lengi telja.
Aðdáunarvert var að sjá hvað hún
tók áföllum með mikilli reisn. Á 4 ár-
um missti hún bæði dóttur sína og
maka en alltaf stóð hún upprétt.
Stúfu kveð ég með söknuði og
hafðu hjartans þakkir fyrir allt.
Minningin um góða konu lifir.
Elsku Gunna, missir þinn er mikill,
þér, tengdasonum og barnabörnum
Stúfu sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Þó í okkar feðrafold
falli allt sem lifir
enginn getur mokað mold
minningarnar yfir.
(BK)
Aldís B. Ægisdóttir
Bára og Alli heitinn voru einstakt
fólk. Þau voru amma okkar og afi. Við
vorum svo lánsöm að vera nágrannar
þeirra þegar við slitum barnskónum,
og án þeirra hefðum við aldrei þekkt
þá blessun að eiga ömmu og afa. Okk-
ar blóðtengdu ömmur og afar höfðu
kvatt þennan heim þegar við litum
dagsins ljós, en Bára og Alli gengu
okkur í ömmu og afa stað.
Bára var einstök kona og höfum við
margt af henni lært. Hún gaf okkur
ótrúlega gott veganesti út í lífið með
hreinskilni sinni, trúfestu, einlægni
og óendanlegri ást og hlýju. Hún kom
fram við alla sem jafningja, háa sem
lága, hún lá ekki á skoðunum sínum
sem ávallt voru þó raunsæjar og vel
úthugsaðar, og aldrei baktalaði hún
nokkurn mann. Hún var alltaf hrein
og bein og kom til dyranna eins og
hún var klædd. Hún tók sérhverri
ágjöf lífsins af einstöku æðruleysi og
styrk. En fyrst og fremst var hún
óendanlega lífsglöð, kraftmikil og
sönn.
Elsku Bára. Við þökkum þér fyrir
að hafa mátt eiga þig sem ömmu. Við
þökkum þér ást þína, umhyggju og
allan lærdóm sem við höfum frá þér
fengið. Við elskum þig og munum
ávallt elska þig.
Fyrir hönd foreldra okkar, maka
og barna kveðjum við þig í bili, elsku
Bára amma.
Elsku Gunna og fjölskylda og Al-
brecht og fjölskylda. Hugur okkar er
hjá ykkur. Megið þið finna styrk og
frið sem Guð einn gefur.
Hennýjar og Jónsbörn.
Við fráfall Báru leitar hugurinn
fimmtíu til sextíu ár aftur í tímann
þegar hún var ung stúlka, enn í for-
eldrahúsum, hjálpaði til á heimilinu
en vann líka úti.
Ekki er samt hægt að rifja þessa
tíma upp án þess að minnast einnig á
foreldra hennar og fjölskyldu sem
hún var tengd sterkum böndum. Án
þeirra hefði líf fjölskyldu minnar orð-
ið fábreyttara og hversdagslegra, þau
fluttu ávallt með sér ferskan blæ
borgarlífsins, hjálpsemi og tilbreyt-
ingu þegar þau komu í heimsókn.
Kynni þessara fjölskyldna hófust
þegar Vigfús faðir Báru var snún-
ingadrengur hjá Bjarna á Bóli sem
var bróðir Gísla afa sem bjó í Úthlíð.
Eftir að foreldrar mínir tóku svo við
búinu, um 1930, hófst langt og traust
vinasamband við fjölskylduna á Berg-
staðastíg 31A sem varði meðan öll
lifðu. Í fleiri ár kom Vilborg móðir
Báru í byrjun sumars og hafði sum-
ardvöl í Úthlíð.
Hún var ekki kaupakona en hafði
samt ýmis störf á hendi, t.d. mjólkaði
hún alltaf Malagjörð, stóra og fallega
kú sem hún hafði dálæti á. Þess á milli
sat hún og heklaði, skrapp í berjamó
eða á hestbak. Yngsti sonur Vilborgar
og seinna sonarsynir fylgdu henni í
vistina og voru snúningastrákar sum-
arlangt. Vigfús dvaldi í sumarfríinu
sínu og dyttaði að húsum og amboð-
um. Um helgar komu svo börn þeirra
og tengdabörn með lítil börn með sér,
húsið fylltist af gleði og hlátrasköllum
og oft hef ég undrast hvernig allir
komust fyrir. En það var alltaf pláss.
Okkur krökkunum var púttað nið-
ur í kjallara eða út í hlöðu, sumir gest-
ir sváfu í flatsæng á stofugólfinu eða í
tjaldi úti í garði.
Bára var mikill aufúsugestur enda
kom hún á hverju sumri og stundum
með vinkonur sínar með sér. Henni lá
frekar hátt rómur og hafði einstak-
lega dillandi hlátur. Hún var tilgerð-
arlaus og sérlega gamansöm og gat
verið kappsöm ef hún greip í hrífu
þegar Krókvöllurinn lá allur undir af
ilmandi töðu. Ef við fórum í bæinn
áttum við vísa gistingu og vinum að
mæta á Bergstaðastígnum. Þar var
ekki mikið húsrúm en nóg hjartarúm.
Þá var það Bára sem leiðbeindi um
stræti borgarinnar, kom með í búð-
arferðir, hjálpaði við að setja perm-
anent í hárið að ógleymdum öllum
bíóferðunum.
Á þessum árum voru næstum einu
samgöngurnar milli borgarinnar og
sveitarinnar rúta sem gekk milli
Reykjavíkur og Geysis einu sinni í
viku. Með henni var oft sendur brúsi
suður sem kallaður var Villubrúsi. Í
honum var mjólk eða kjöt af nýslátr-
uðu, broddur eða eitthvað annað sem
búið framleiddi. Til baka kom brúsinn
fullur af góðgæti, nýjum vínarbrauð-
um, franskbrauði og stundum nýjum
fiski. Þetta voru eins konar vöruskipti
sem allir höfðu ánægju af.
Ekki var úr miklu að spila en vel
haldið á og öll jól fengum við sendar
jólagjafir fallega innpakkaðar og æv-
inlega fylgdi með sælgæti sem gladdi
litla munna.
Vináttu þessarar, sem varað hefur
þrjár kynslóðir, er vert að minnast og
þakka.
Blessuð sé minning Báru Vigfús-
dóttur.
Sigrún Sigurðardóttir.
Bára Ingibjörg
Vigfúsdóttir ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR BALDVINSSON
frá Hofsósi,
Blesugróf 40,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hofsóskirkju laugardaginn
24. mars kl. 14.00.
Margrét Þorgrímsdóttir,
Trausti Baldvins Gunnarsson, Jóhanna Clausen,
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, Steinn Márus Guðmundsson,
Gunnar Heiðar Gunnarsson, Sólveig Ingunn Skúladóttir,
Friðrikka Baldvinsdóttir, Heimir Jóhannsson,
barnabörn og langafabörn.
Lokað
Umhverfisráðuneytið verður lokað í dag, fimmtudaginn 22. mars
frá kl. 13.30, vegna jarðarfarar SIGRÍÐAR STEFÁNSDÓTTUR.
Umhverfisráðuneytið.
✝
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og
útför foreldra okkar, fósturforeldra, tengdaforeldra, afa, ömmu, langafa og
langömmu,
KRISTJÓNS HAFLIÐASONAR
og
HELGU TYRFINGSDÓTTUR
frá Tjörn
í Þykkvabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Lundar.
Ásdís Erla Kristjónsdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Þórunn Kristjónsdóttir, Ragnar V. Sigurðsson,
Hafrún Kristjónsdóttir, Sigurbergur Kristjánsson,
Tyrfingur Arnar Kristjónsson, Nína Kristjónsson,
Jóna María Kristjónsdóttir, Guðmundur Hreinsson,
Steinn Jóhannsson, Súsanna Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
SVEINN SKÚLASON,
Bræðratungu,
Biskupstungum,
verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugardaginn
24. mars kl. 14.00.
Jarðsett verður í Bræðratungu.
Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Minningarsjóð Bræðra-
tungukirkju eða líknarstofnanir.
Sigríður Stefánsdóttir,
Guðrún Sveinsdóttir, Þorsteinn Þórarinsson,
Skúli Sveinsson, Þórdís Sigfúsdóttir,
Kjartan Sveinsson, Guðrún Magnúsdóttir,
Stefán Sveinsson, Sigrún Þórarinsdóttir
og barnabörn.
✝
Faðir okkar og tengdafaðir,
ÞORSTEINN JÓSEF STEFÁNSSON
frá Jaðri
í Vopnafirði,
verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju laugar-
daginn 24. mars nk. kl.14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir sem vilja
minnast hans eru beðnir að láta hjúkrunarheimilið
Sundabúð, Vopnafirði, njóta þess.
Heiðrún Þorsteinsdóttir, Hermann Hansson,
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, Viðar Bjarnason
og fjölskyldur.
✝
Elsku fósturmóðir mín, tengdamóðir og amma,
HANSÍNA JÓNATANSDÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar laugardaginn
3. mars.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigurður Ásgrímsson, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir,
Karen Ósk Sigurðardóttir,
Sveinn Pétur Sigurðsson,
Marta Eir Sigurðardóttir.