Morgunblaðið - 22.03.2007, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 53
Fyrsta hljómsveit á svið þetta annað til-
raunakvöld af fimm var Occasional Happyness
og stóð sig prýðisvel, spilamennska í fínu lagi og
vel sungið. Lögin voru þó full bragðdauf fyrir
minn smekk, vantaði í þau framvindu og ris.
Seinna lagið var betra og hefði batnað til muna
ef gítarleikur hefði verið beinskeyttari.
Þeir félagar og bræður í Endless Dark
stungu eiginlega dálítið í stúf við músíkina; eftir
útliti þeirra bjóst maður við hörðu goth-rokki en
fékk í þess stað kraftmikið popp. Söngur var al-
mennt með ágætum og gítarleikarinn flinkur,
sérstaklega í seinna laginu sem var býsna gott.
Næsta sveit á svið, Spooky Jetson, kippti
okkur svo aftur í tímann með kraftmiklu blús-
rokki sem minnti ekki svo lítið á Cream, Led
Zeppelin og ámóta sveitir sem mest bar á á átt-
unda áratugnum. Fyrra lagið gekk reyndar
ekki alveg upp, samsöngurinn virkaði ekki
fannst mér, en seinna lagið var þrusugott lengst
af og hefði verið enn betra ef það væri stytt um-
talsvert.
Eftir að hafa upplifað áttunda áratuginn var
mönnum kippt rækilega inn í þann níunda með
hressilegu íslensku pönki hjá Hestreði. Mjög
skemmtilegt band með fína texta og þrælgóðan
söngvara með skemmtilegar hreyfingar. „Ég er
enginn morðingi / ég var bara að hefna mín“
söng hann í fyrra laginu og slátraði svo FM957
á eftirminnilegan hátt í næsta lagi.
Tímaflakkinu lauk með Oboi sem spilaði eig-
inlega tímalaust epískt popp. Fyrra lagið var
þokkalegt en datt inn í það bútur úr öðru lagi,
en það síðasta ágætis lag. Sveitin var þétt, en
eins og hún vissi ekki alveg hvað hún vildi vera.
Hljómsveitir eru eðlilega mis-tilbúnar til að
standa á sviði og Universal Politics átti þannig
greinilega nokkuð í land með að taka þátt í
keppni eins og músíktilraunum. Spilamennska
þeirra er þó í góðu lagi, sérstaklega gítarspil, en
lögin eru flatneskjuleg og söngurinn óþægilega
eintóna. Þeim gekk betur þegar slegið var að-
eins í klárinn, eins og í seinna lagi sveitarinnar,
en lagið sjálft hafði lítið við sig.
The Portals voru aftur á móti í miklu stuði,
svalir gæjar með fín lög, grípandi stuðrokk,
Fyrra lagið var framúrskarandi og sveitin vel
þétt. Þeim gekk aftur á móti heldur illa með
seinna lagið – lagið gott en söngvarinn komst
ekki inn í það fyrr en eftir tvær atrennur. Hljóð-
færaleikur var afbragð.
Stúlkurnar í Primera eru greinilega að pæla
sitthvað og lögin þeirra voru mjög forvitnileg
þótt ekki hafi allt gengið upp. Sérstaklega var
seinna lagið forvitnilegt og gott. Þær þurfa að
æfa meira, verða þéttari, en efniviðurinn er til
staðar.
Eftir það sem á undan var gengið var fínt að
róa sig aðeins niður með Vyð – einfalt og áhrifa-
ríkt kassagítarpopp með fínum texta. Smám
saman seig þó á ógæfuhliðina, lagið varð hálf
stefnu- og tilgangslaust og maður varð eig-
inlega feginn þegar það var búið. Seinna lag
þeirra Vyð-manna var ekki vel heppnað.
Spooky Jetson marði sigur á sal, en dóm-
nefnd fannst rétt að gefa The Portals tækifæri
til að klára lagið.
Úr ýmsum áttum
TÓNLIST
Músíktilraunir í Loftkastalanum,
2. tilraunakvöld 20. mars.
Þétt Oboi spilaði tímalaust epískt popp,
þokkalegt en full stefnulaust.
Einfalt Vyð spilaði áhrifaríkt kassagítarpopp
með fínum textum - langdregið þó.
Ungir Spilamennska Universal Politics var í
góðu lagi, en lagasmíðarnar ekki.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Pönk Hestreður - „Ég er enginn morðingi /
ég var bara að hefna mín.“
Eyjarokk Occasional Happyness - fín spila-
mennska og vel sungið, en bragðdauft.
Árni Matthíasson
Stelpurokk Primera spilaði forvitnilegt og
gott rokk, en þurfa að æfa meira.
Goth Bræðrabandið Endless Dark - kraftmik-
ið popp með góðum söng og gítarleik.
ÞRÓUNARFÉLAG AUSTURLANDS
Austurland
tækifæranna
Á þriðja tug fyrirtækja, samtaka og stofnana kynna hin margvíslegu tækifæri sem
bjóðast á Austurlandi, atvinnutækifæri, búsetutækifæri og viðskiptatækifæri.
• Fyrirtæki af svæðinu kynna starfsmöguleika hjá sér og þjónustu sem
þau veita.
• Húsnæðismál, eignir og lóðir til sölu.
• Þjónusta sveitarfélaga.
• Menningar- og frístundastarf.
• Ferðaþjónusta.
• Þróunarfélag Austurlands, Þekkingarnetið, Menningarráðið
og Markaðstofa Austurlands kynna starfsemi sína.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs,
og Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð,
verða á staðnum og ræða við gesti.
Grípið tækifærið!
Kynnið ykkur kraftinn og uppbygginguna
sem hafa einkennt Fjarðabyggð og
Fljótsdalshérað á síðustu misserum og
sláist í hópinn með okkur.
Kynning og sýning á Nordica Hotel
laugardaginn 24. mars kl. 12:00 - 16:00
Blómstrandi atvinnulíf
og öflugt samfélag
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/A
U
S
3
61
68
0
3/
07