Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Epic Movie kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Epic Movie LÚXUS kl. 4, 6, 8 og 10
Norbit kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
The Number 23 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára
Ghost Rider kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
Night at the Museum kl. 5.40
Epic Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Norbit kl. 8 og 10
Smokin´ Aces kl. 6 SÍÐASTA SÝNING B.i. 16 ára
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
JIM CARREY
eee
V.J.V. - TOP5.IS
eee
S.V. - MBL
700 kr fyrir fullorðna
og 500 kr fyrir börn
eeee
K.H.H. - FBL
eeee
S.V. - MBL
Hefur þú einhvern tímann gert
mjög stór
mistök?
HÚN ER STÓR...
VIÐ MÆLDUM
UPPLIFÐU MYNDINA
SEM FÉKK ENGIN
ÓSKARSVERÐLAUN!
eee
SV, MBL
eee
VJV, TOPP5.IS
LÍKT og á þessum tíma í fyrra sit-
ur hljómplata með lögum úr
Söngvakeppni Sjónvarpsins á
toppnum og líkt og í fyrra má bú-
ast við að sú plata skipi sér í efstu
sæti fram að Evróvisjónkeppninni.
Platan hefur nú setið efst á Tón-
listanum í fimm vikur og aðeins
Ladda tekst að toppa þann árangur
þegar kemur að efstu þremur sæt-
unum. Þann árangur getur Laddi
þakkað sjálfum sér því að sýning
hans í Borgarleikhúsinu hefur
gengið fyrir fullu húsi og nú hefur
verið ákveðið að fjölga enn auka-
sýningum.
GusGus stendur í stað á milli
vikna með plötuna Forever og
sömu sögu er að segja um Mika
sem í síðustu viku átti vinsælasta
lagið á Lagalistanum. Lay Low fer
upp um þrjú sæti með Please don’t
hate me en sú plata hefur verið
heilar 20 vikur á Tónlistanum. Er
það aðeins kynsystir hennar Ragn-
heiður Gröndal sem nær að reka
tærnar í hæla Lay Low en hún hef-
ur hangið á Tónlistanum í 17 vikur.
Annars er ekki mikið um nýliða
á listanum en athygli vekur að
Muse stekkur upp um 14 sæti á
milli vikna.
!!
"
#$"#%&#'
"# (!
)*&+
"
! "
#$%& $
' () % $
*
+,%(-. $$ /
$$" 0
(
1
($230
4
'0
$
(
!"#!
$%
& '%% "%%
()*% +,"
%%%)
% --)
.#% /#
(%'0",% 0
(%/1 2#)
3'%-)'
3 4" 5!,)" 6)7
&%%
85!% 3!
3)',%)9 )%
:;.! )! *
<,0,"*):! *%=!-
> *"
:
" ,'
- .
/01 213
.
)*&+
)*&+
.
.
!(
4
.
1
15
!
"6*#%
#1789#:;
53 .
6 6 0
4
7&
*
")#
" 0$$
89$:
;$/', -3
.)
' .07$<;;
7
0 = $
) 670
:. 08 $$
8$- /00
;;
6((
//
;8>2,%
#$%& $
;
5$!0!(0?!
0
'22*$$
? )5) /5 !"
>'8))0
( '
<!-0
@%! %AB+" % %%*
C)*!
D,) %,',%
*)5
? % ,) "
%AE0F,GH
= *0"
&!
;, !--0
>"*%A
3,*0-%0
#!"1
C )% *4
B 9 9
&!* %,
,+"*%
3
'
%
3
3
4
6/=
%
6 6-
)*&+
/
(
6-
,%1>
213
Söngvakeppnin
ávallt vinsæl!
Morgunblaðið/Eggert
Eiki Hauks Sagði breytinguna á
háralitnum „tæknileg mistök“.
EIRÍKUR Hauksson eða „Big Red“
eins og hann er stundum kallaður
hefur endurheimt efsta sætið eftir
að hinn ungi Mika velti honum af
toppnum í síðustu viku. Nýtt mynd-
band við enskan texta lagsins vegur
þar eflaust þungt og það þrátt fyrir
að þjóðin hafi farið á hliðina þegar
ljóst var að háralitur Eiríks hefði
breyst úr fagurrauðu í dimmbrúnt.
Hinn ungi Mika er þó ekki langt
undan með lag sitt „Grace Kelly“
en þó þarf nokkuð til að það nái aft-
ur toppsætinu.
Lagið „Ruby“ með Kaiser Chiefs
færir sig upp um tvö sæti en þar
fyrir neðan situr lagið „You know
I’m no good“ með Amy Winehouse
sem sækir í sig veðrið á Tónlist-
anum.
Lög úr Söngvakeppni Sjónvarps-
ins eru þrjú þessa vikuna en auk Ei-
ríks Haukssonar eru bæði Heiða og
Friðrik Ómar í efstu 20 sætunum
með lög sín, „Ég og heili minn“ og
„Eldur“. Silvía Nótt fellur enn á
milli vikna og sömuleiðis Ampop.
Christina Aguilera, Jónsi, Ólöf
Arnalds og Nephew koma hins veg-
ar með látum inn á listann og verð-
ur áhugavert að sjá í hvaða sæti lög
þeirra verða í næstu viku.
„Big Red“ lætur
ekki að sér hæða!
JÆJA. Einhver varð að segja það. Arcade
Fire, ein umtalaðasta nýrokkssveit þessa
áratugar, fylgdi einni umtöluðustu frum-
raun þessa áratugar eftir með þessari plötu,
The Neon Bible. Alveg eins og með fyrstu
plötuna þá er þetta alls ekki slæmt. Það er
einhver órói og sorg í rödd leiðtogans, Wins
Butlers, sem dregur mann að lögunum sem eru umlukt myrkri
og dramatík, í henni togast á sorg og gleði, jafnt í textum sem
lagauppbyggingu. The Neon Bible er fín plata, og aðeins meira
en það meira að segja. En meistaraverk sem breytir lífi þínu og
jafnvel rokksögunni um leið? Uuu … nei. Manni verður óneit-
anlega hugsað til Flavor Flav, og hinnar mjög svo viðeigandi
setningar: „Don’t believe the hype.“
Hæpið
TÓNLIST
Arcade Fire – The Neon Bible Arnar Eggert Thoroddsen
SAGT hefur verið að Grinderman, nýtt band
Nick Cave, feli í sér afturhvarf til geðveiki
þeirrar sem einkenndi brjálæðisrokksveit
hans Birthday Party. Það er ekki rétt.
Vissulega er þetta losaralegra og hrárra en
það sem Bad Seeds hefur verið að gera að
undanförnu, en að þetta sé sturlað gítars-
arg, borið uppi af andsetnum, kolklikkuðum söngvara er fjarri
lagi. Einhverjir markaðsfræðingar vilja e.t.v. selja bandið
þannig en við hlustun verður slíkt hjákátlegt. Grinderman þarf
ekkert á svoleiðis brellubulli að halda, platan stendur hnarreist
sem stórgóð rokkskífa, og það að Cave hafi hlaupist undan Bad
Seeds-merkjum virðist hafa losað þægilega um hann, og bæði
við og hann erum í stórgróða fyrir vikið.
Góður skítur
TÓNLIST
Grinderman – Grinderman Arnar Eggert Thoroddsen
ÞEGAR hlustað er á aðra sólóplötu Mal-
colm Middleton harmar maður ekki svo
mikið að skoska gæðasveitin Arab Strap
hafi lagt upp laupana. Eins og með vin okk-
ar, hinn heilaga Nick Cave, er eins og það
hafi losnað um eitthvað hjá Middleton og A
Brighter Beat gefur fyrstu sólóplötunni,
hinni stórgóðu Into the Woods (2005), nákvæmlega ekkert eft-
ir. Arab Strab voru meistarar þunglyndispoppsins, rifu sjálfa
sig hlæjandi niður á plötu eftir plötu. Titillinn hér segir hins
vegar ýmislegt um hvert Middleton er að fara á sólóferlinum,
það er léttara yfir og sólargeislar gægjast reglulega inn á milli
hljóðrásanna. Undir öllu er þó hárbeitt kaldhæðni sem Middle-
ton vinnur frábærlega með í grípandi lagasmíðum.
Bjartur
TÓNLIST
Malcolm Middleton – A Brighter Beat Arnar Eggert Thoroddsen