Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 55
Sími - 551 9000
Epic Movie kl. 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Venus kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
Last King of Scotland kl. 5.30, 8 og 10.35 B.i. 16 ára
Notes on a Scandal SÍÐUSTU SÝN. kl. 8 B.i. 14 ára
Pan´s Labyrinth SÍÐUSTU SÝN. kl. 10 B.i. 16 ára
Litle Miss Sunshine SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.50 B.i. 7 ára
* Gildir á allar sýningar
í Regnboganum merktar
með rauðu
450 KR.
Í BÍÓ
*
- Verslaðu miða á netinu Sýnd kl. 6, 8 og 10:15Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
-bara lúxus
Sími 553 2075
HÚN ER STÓR....VIÐ MÆLDUM
UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK
ENGIN ÓSKARSVERÐLAUN!
Milljón dollarar. Sjö leigumorðingjar. Eitt skotmark.
Sýnd kl. 5:45 og 10:15 B.i. 16 árawww.laugarasbio.is
eee
SV, MBL
eee
VJV, TOPP5.IS
Hefur þú einhvern tímann gert
mjög stór
mistök?
eeee
H.J. - MBL
eeee
LIB - TOPP5.IS
eeee
O.R. - EMPIRE
eee
H.J. - MBL
eee
Ó.H.T. - RÁS 2
SÍÐUSTU SÝNINGAR
eeeee
LIB, TOPP5.IS
eeeee
HGG, RÁS 2
eeeee
HK, HEIMUR.IS
SÍÐUSTU SÝNINGAR SÍÐUSTU SÝNINGAR
eeee
„Frábær
skemmtun!“
- S.V., Mbl
„Óvænt kvikmyndaperla sem
enginn má láta fram hjá sér fara.“
- Sigríður Pétursdóttir, Rás 1
eeee
„Frábær leikur og eftirminnileg mynd!“
- B.S., Fréttablaðið
23. mars í Kringlunni
2007
S
K
A
P
A
R
IN
N
A
U
G
L
Ý
S
IN
G
A
S
T
O
FA
UNDANKEPPNIR fyrir Evr-
óvisjón-söngvakeppnina eru nú í
fullum gangi víða um Evrópu en
ekki ríkir fullkomin eining í öllum
löndum um sigurvegara.
Í Bretlandi var undankeppnin
haldin á dögunum og þar öttu
kappi margar fallnar poppstjörnur
í bland við nýliða í faginu. Sig-
urvegararnir urðu kvartettinn Sco-
och, kvartett er kannski ekki rétt-
nefni því þótt sveitin telji tvær
söngkonur og tvo söngvara nutu
þau liðsinnis „leynisöngvara“. Um
er að ræða tvo bakraddasöngvara
sem húktu að tjaldabaki og hjápuðu
Scooch með hæstu tónana í laginu.
Aðrir keppendur undankeppn-
innar eru að sögn æfir yfir þessu.
Justin Hawkins, fyrrverandi söngv-
ari The Darkness, var meðal kepp-
enda. „Áhorfendur voru plataðir og
voru látnir halda að Scooch væru
betri söngvarar en þau í raun og
veru eru,“ sagði hann.
Í sama og ögn grófari streng tók
Brian Harvey, sem áður var í East
17. „Ég var brjálaður yfir þessu
öllu! Almenningur hefur verið
blekktur!“
Talsmaður Scooch er ekki á
sama máli og segir andstæðingana
einfaldlega bitra.
„Það er erfitt að syngja og dansa
samtímis. Ástæðan fyrir því að bak-
raddirnar voru ekki hafðar inni á
sviðinu er einfaldlega sú að þær
pössuðu ekki inn í atriðið. Það er
ekkert ólöglegt við það.“
Scooch-liðar klæddust búingum
flugfreyja og flugþjóna í atriði
sínu.
Loddarar? Kvartettinn Scooch.
Leyni-
söngvarar
valda usla
BAKGRUNNUR gamanmynd-
arinnar Okurs – Hors de Prix, er
Mónakó og Franska Rivieran, leik-
völlur hinna ofurríku og afætanna
sem fylgja í kjölfarið og hirða alsæl-
ar molana sem falla af gnægta-
borðum ríkisbubbanna.
Irène (Tautou), er ein þeirra sem
ekkert á annað en fegurð og ynd-
isþokka sem hún gerir hispurslaust
út á. Í myndarbyrjun hefur hún sett
í feitan drátt, forríkan karlfausk sem
veltur dauðadrukkinn út af á afmæl-
isdaginn hennar á lúxushótelinu. Þar
vinnur barþjónninn Jean (Elmaleh)
og fyrir röð tilviljana sænga þau
saman um nóttina, þar sem Irène
telur hann jafnvel ríkari en fauskinn,
auk þess að vera ólíkt huggulegri og
yngri.
Tautou er jafn heillandi og í ess-
inu sínu og hún var utangátta í The
Da Vinci Code, hún er góð gam-
anleikkona sem minnir á Audrey
Hepburn í útliti, reyndar má finna
ýmislegt sammerkt með Irène og
Holly Golightly í Breakfast at Tiff-
anyfs, einni frægustu mynd Hepb-
urn. Elmaleh er Tautou fyllilega
samboðinn, geðþekkur og bráð-
flinkur leikari. Jean á hins vegar lít-
ið skylt við rithöfundinn í Breakfast,
Jean verður vissulega ástfanginn, en
leiðist í sorgum sínum út á sömu
brautir og Irène, krækir sér í forríka
konu á óræðum aldri.
Það er góð skemmtun að fylgjast
með líferni persónanna og ekki síður
að virða fyrir sér munúðarfull leik-
tjöldin sem umlykja óraunverulegt
líferni hinna moldríku. Glæsibygg-
ingarnar, fimm stjörnu hótelsvít-
urnar, sælkerastaðina, merkjaversl-
anirnar. Allt er þetta hjóm segir
myndin; ástin, það eina sem skiptir
máli í heimi hér, er ekki föl fyrir fé.
Okur er lauflétt og oft á tíðum
meinfyndin afþreying og veisla fyrir
augað. Fransmenn eru snjallir við
gerð kynþokkafullra gamanmynda
og flétta í þær ádeilubroddi. Auðvit-
að eiga myndir af gæða- og stærð-
argráðu Okurs að vera daglegt
brauð í kvikmyndahúsunum en ekki
hátíðamatur.
Auður, allsleysi og ást
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: Frönsk kvik-
myndahátíð
Leikstjóri: Aðalleikendur: Audrey Tautou,
Gad Elmaleh, Marie-Christine Adam, Ver-
non Dobtcheff, Jacques Spiesser, Annel-
ise Hesme. 105 mín. Frakkland 2006.
Okur/ Hors de Prix Meinfyndin „Okur er lauflétt og oft
á tíðum meinfyndin afþreying og
veisla fyrir augað,“ segir í dómi.
Sæbjörn Valdimarsson