Morgunblaðið - 22.03.2007, Page 56
56 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
Hefur þú einhvern
tímann gert
mjög stór
mistök?
/ KRINGLUNNI
300 kl. 5:30 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára DIGITAL
WILD HOGS BYLGJU FORSÝNING kl. 8 B.i. 7 ára
NORBIT kl. 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
MUSIC & LYRICS kl. 5:50 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
300 kl. 6:30 - 9 - 10:40 B.i. 16 ára
BLOOD & CHOCOLATE kl. 8 B.i. 12 ára
LETTERS FROM IWO JIMA kl. 5:30 B.i. 16 ára
eeee
V.J.V.
HORS DE PRIX ísl. texti kl. 5:40 - 8 - 10:20
TELL NO ONE (NE LE DIS A PERSONE) kl. 10:20
PARIS, JE T'AIME kl. 5:40 - 8
ALLIANCE FRANÇAISE, Í SAMVINNU
VIÐ PEUGEOT OG BERNHARD, KYNNA:
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Í HÁSKÓLABÍÓ 3.MARS TIL 1. APRÍL
,,TÍMAMÓTAMYND"
eeeee
V.J.V. - TOPP5.IS
STÆRSTA MYND ÁRSINS
Í BANDARÍKJUNUM
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Á ÍSLANDI
FRÁ HÖFUNDI
SIN CITY
SÝND Í SAMBÍÓ
KRINGLUNNI
Næstsíðasta kvöld und-anúrslita Músíktil-rauna verður haldið í
kvöld í Loftkastalanum. Þá
bítast tíu sveitir um sæti í
úrslitunum sem haldin verða
í Listasafni Reykjavíkur
laugardaginn 31. mars. Sú
hljómsveit sem ber sigur úr
býtum fær 20 hljóðverstíma
með hljóðmanni í Sundlaug-
inni í verðlaun og eins fá
sveitirnar í öðru og þriðja
sæti hljóðverstíma auk þess
sem athyglisverðasta hljóm-
sveitin fær að launum fram-
leiðslu á einu lagi hjá TÍMA.
Þótt rokk sé í aðal-
hlutverki í kvöld eins og und-
anfarin tilraunakvöld þá tek-
ur það á sig ýmsar myndir –
landsbyggðarbændatónlist
með smááhrifum frá bænda-
poppi og tröllametal, frum-
legt rokk af bestu gerð, in-
die/emo/stoner-rokk, rólegt
rokk, djass, blús og rokk í
gömlum stíl, síðrokk og
blandaður metall með níð-
þungum köflum og tekn-
ískum og hröðum gít-
arriffum.
Fjörið hefst klukkan 19 í
kvöld líkt og önnur kvöld
undanúrslitanna.
Allir að spila allt
The Custom
The Custom heitir hljómsveit af höfuðborgarsvæðinu sem
spilar djass, blús, og rokk í gömlum stíl. Sveitarmenn eru
Andri Þórhallsson trommuleikari, Ísak Örn Guðmundsson
gítarleikari, Ingimundur Guðmundsson orgelleikari, Arnar
Hauksteins Oddson gítarleikari og Sigþór Jens Jónsson bassa-
leikari. Þeir eru á aldrinum 15 til 17 ára.
Overrated Monday
Overrated Monday skipa Gunnar Valur Ara-
son gítarleikari og söngvari, Finnbogi Vil-
hjálmsson trommuleikari, Arnar Freyr Thor-
oddsen bassaleikari og Valdimar Örn
Magnússon gítarleikari, allir sautján ára
Breiðhyltingar.
Hip Razical
Hip Razical tekur nú aftur þátt í Músíktilraunum, var með
2005, en mætir nú með nokkuð breytta mannaskipan. Sveit-
armenn, sem koma frá Sauðárkróki, eru Davíð Jónsson gít-
arleikari og söngvari, Snævar örn Jónsson bassaleikari, Jón
Atli Magnússon gítarleikari og Styrkár Snorrason trommu-
leikari. Þeir eru allir átján ára. Til gamans má geta þess að
Snævar Örn var valinn efnilegasti bassaleikarinn á Músíktil-
raunum 2005.
Black Sheep
Liðsmenn Black Sheep eru víða að af Vest-
urlandi. Þeir eru Tómas Guðmundsson gít-
arleikari og söngvari, Jakob Hjörtur Ragn-
arsson gítarleikari, Kristján Ingi Arnarsson
hljómborðsleikari, Pétur Ingi Jónsson
trommuleikari og Eiríkur Björnsson bassa-
leikari. Þeir eru á sautjánda og átjánda árinu
og segjast spila landsbyggðarbændatónlist
með smá áhrifum frá bændapoppi og trölla-
metal.
Æsir
Hafnfirska rokksveitin Æsir er skipuð fjórum
piltum sem eru á aldrinum 17-19 ára. Þeir
heita Gunnar Björn Kolbeinsson gítarleikari
og söngvari, Snævar Örn Ólafsson gítarleik-
ari, Matthías Einarsson bassaleikari og
Hreinn Guðlaugsson trommuleikari. Þeir
spila rólegt rokk.
SHOGUN
Úr Reykjavík og Mosfellsbæ koma fimm piltar sem kalla sig
SHOGUN. Þeir heita Guðmundur Rúnar Guðmundsson, sem
leikur á gítar, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, sem syngur, Andri
Þorgeirsson, sem leikur á trommur, Vernharður Eiríksson,
sem leikur á gítar, og Jóakim Snær Sigurðarson, sem leikur á
bassa. Þeir eru á aldrinum sautján og nítján ára og segjast
spila blandaðan metal með níðþungum köflum og teknískum
og hröðum gítarriffum.
Narfur
Eyrarbakkasveitin Narfur spilar indie/emo/stoner-rokk.
Liðsmenn hennar eru Erlingur Þór Erlingsson trommuleik-
ari, Teitur Magnússson gítarleikari og söngvari, Vigfús Ægir
Vigfússson bassaleikari og Þorsteinn Ólason gítarleikari.
Fúsi er átján en hinir sautján.
Artika
Nokkrar hafnfiskar hljómsveitir taka þátt í
tilraununum að þessi sinn, þeirra á meðal Ar-
tika. Sveitina skipa Örn Erlendsson og Einar
Logi Hreinsson gítarleikarar, Aníta Björk
Hlynsdóttir bassaleikari, Jóhannes Pálsson
söngvari og Rúnar Sveinsson trommuleikari.
Þau eru á aldrinum frá sautján upp í nítján
ára og spila frumlegt rokk af bestu gerð, eins
og þau lýsa því sjálf.
A Long Way To Nowehere
Egilsstaðasveitin A Long Way To Nowehere er skipuð þeim
Breka Steini Mánasyni gítarleikara, Birki Snæ Mánasyni gít-
arleikara, Þorgeiri Óla Þorsteinssyni bassaleikara og Sigurði
Tómassyni trommuleikara. Allir eru þeir félagar sextán ára
nema Birkir sem er átján ára. Sveitin spilar síðrokk.
Fjórði í Músíktil-
raunum verður í
kvöld í Loftkast-
alanum. Árni
Matthíasson segir
frá sveitunum tíu
sem keppa í kvöld.
Eugene
Reykvíska sveitin Eugene er skipuð þeim Arnari Birgissyni
trommuleikara, Daða Rúnarssyni bassaleikara, Daníel Poul
Purkhus gítarleikara og Hallgrími Árnasyni gítarleikara.
Þeir eru allir átján ára nema Daði sem er sautján.