Morgunblaðið - 03.04.2007, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
!"
#!
$#
% !"&
'
(!"
) #!
*
+
$, !"
-./ 0
!)
#
1
2 &,
!
!
" #$%
&
&
&&&
&
"
#
$#
%& '
()
*
+,(
()
*
+,(
()
*
+,(
-&
(&
##
.# / 0
.
!
1,
*
-
-
!.
!. &!
!.
-
-
23
!
!
"
-&
(& .#
0
.
!
1,
%
# -& (&
#
. !
(
&
&
&&&
&
%'
%'
2 &.
%'
(%'
PÁSKARNIR eru nú byrjaðir að
setja mark sitt á vetrarvertíðina.
Um helgina byrjaði páskastoppið
svokallaða á suðurvestursvæðinu,
en þá má ekki stunda þorskveiðar
fyrir innan 4 mílur til páska. Stóru
línubátarnir eru byrjaðir að koma
inn til löndunar fyrir páskafrí, en
smærri bátarnir eru enn að róa.
„Það eru 12 af þorski og svo er
þetta búið,“ heyrist í kallkerfinu hjá
Sverri Vilbergssyni, hafnarstjóra í
Grindavík, þegar Verið er að spjalla
við hann. „Já, þeir eru að landa úr
Tómasi Þorvaldssyni og svo er
Sturla að koma inn. Það er síðasti
Þorbjarnarbáturinn fyrir páska.
Svo fara Vísisbátarnir að koma inn
fyrir páskana líka,“ segir Sverrir.
14.00 tonn í síðustu viku
Veiðin að undanförnu hefur verið
mjög góð og Sverrir var ánægður
með síðustu viku en þá var landað
um 1.400 tonnum af bolfiski. „Þetta
er svona allt að komast í ró og
spekt. Búið að loka út á fjórar míl-
ur, en þeir fóru nú á sjó á sunnudag,
eru að í dag, allflestir. Ætli þeir rói
ekki á þriðjudag líka. Ég held að
það spái ágætis veðri. Annars var
helgin bara róleg.
Myljandi veiði í netin
Síðasta vika var mjög góð. Það
var bara fjör í því hjá strákunum
eins og víðast hvar. Það virðist vera
fiskur á mjög stóru svæði. Hér á
þessari miðslóð og alveg upp á
grunn er bara þónokkuð um fisk.
Fyrir helgina, áður en hann brældi
var orðin myljandi veiði í net. Það
hafði ekki verið neitt sérstakt í net-
in áður, en mjög gott á línuna. En
svo var þetta orðið svoleiðis að það
voru öll net full. Annars eru þessar
netaveiðar ekkert orðið, hvorki fugl
né fiskur. Þetta eru nokkrir smá-
bátar sem eru á netum og þeir eru
að draga handónýtar helv. druslur.
Það hefði verið hægt að fiska mikið
í netin núna, hefðu menn verið að af
alvöru. Hefðu menn verið að þræl-
ast á þessu eins og var gert í denn.
Stærstu bátarnir eru flestir á línu.
Stærsti báturinn, sem er á netum
hér er Marta Ágústsdóttir, en hún
er að mestu kvótalaus og svo Þor-
steinn Gíslason. Hann er eiginlega
eini báturinn, sem hægt er að tala
um sem vertíðarbát.
Þessar majónesdósir
Síðasta vika var viðunandi, en
þetta er ekki það stór floti lengur.
Þetta er ekki neitt neitt einsog ein-
hver sagði, eins og í gamla daga
þegar upp í hundrað bátar lönduðu
á dag. Þetta er orðin gífurleg breyt-
ing og þessi hefðbundni vertíðarbát-
ur heyrir nú nánast sögunni til. Það
var reyndar alveg hörku fiskirí í síð-
ustu viku. Þessar majónesdósir,
eins og þeir kalla yfirbyggðu plast-
arana, mokfiskuðu. Þeir komu með
upp í 17 tonn. Það er fjör í því og
við förum alveg þokkalega sáttir í
páskafríið,“ sagði Sverrir Vilbergs-
son.
Páskarnir setja mark
sitt á vetrarvertíðina
Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason
Aflabrögð Sverrir Vilbergsson, hafnarstjóri í Grindavík, var ánægður með
síðustu viku. Þá var landað um 1.400 tonn.
Í HNOTSKURN
»Þessar majónesdósir, einsog þeir kalla yfirbyggðu
plastarana, mokfiskuðu. Þeir
komu með upp í 17 tonn.
»Þetta eru nokkrir smábát-ar sem eru á netum og þeir
eru að draga handónýtar
druslur.
»Fæðingarorlof þorsksins,eða hrygningarstoppið, er
nú byrjað suðvestanlands og
hefst svo síðar á öðrum stöð-
um.
ÚR VERINU
#$ !
% "
"&$ '(()
! !
"
! !
"
#$
#$
%#$
%#$
&'(
'!#
)'*"
+,-
&'(
)'+,-
* ""##
www.hi.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
70
06
0
4/
07
UMSÓKNARFRESTUR Í MEISTARANÁM
VIÐ VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐIDEILD ER TIL 16. APRÍL
Viðskipta- og hagfræðideild býður upp á fjölbreytt og metnaðarfullt meistaranám
sem tekur mið af því besta sem gerist í heiminum í dag. Námið er þekkt fyrir góða
fræðilega undirstöðu og nemendur öðlast víðtæka innsýn í verkefni og áskoranir
atvinnulífsins.
VIÐSKIPTA- OG
HAGFRÆÐIDEILD
Námsleiðir í meistaranámi:
■ Fjármál fyrirtækja
■ Fjármálahagfræði
■ Hagfræði
■ Heilsuhagfræði
■ Mannauðsstjórnun
■ Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti
■ Reikningshald og endurskoðun
■ Stjórnun og stefnumótun
■ Viðskiptafræði
■ Umhverfis- og auðlindafræði (þverfaglegt)
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
um námsleiðir er að finna á heimasíðu
viðskipta- og hagfræðideildar, vidskipti.hi.is
Árleg skráningargjöld eru 45.000 kr.
Deildin býður einnig upp á MBA-nám.