Morgunblaðið - 03.04.2007, Blaðsíða 18
|þriðjudagur|3. 4. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Spenna í lofti. Fjöldinn alluraf pollagallaklæddum kríl-um stendur á palli fyrir of-an brekkuna í leik-
skólagarðinum sínum og bíður í
ofvæni eftir því að einhver segi:
„Nú má.“ Eftir nokkurra mínútna
bið grípur einn kennarinn gjall-
arhorn og spyr yfir hópinn hvort
allir séu tilbúnir? Jújú, hátt í
hundrað hausar kinka kolli og
kennarinn heldur áfram: „Einn,
tveir, þrír oooooog … byrja!“
Fimir fætur þeysast niður brekk-
una og eigendur þeirra taka að
skima um í krókum og kimum í
garðinum. Ekki líður á löngu þar til
gellur úr einu horninu: „Ég fann
eitt!“ og strax berast svipaðar til-
kynningar úr öðrum áttum.
Hreyknar hampa litlu manneskj-
urnar feng sínum og hlaupa til
kennara sinna sem geta ekki beðið
eftir því að fá að sjá. Jújú, í lófum
leitarmanna hvíla litrík og skraut-
leg hænuegg.
Eggin hefur unga fólkið sjálft séð
um að skreyta dagana á undan og
kennararnir hafa falið þau í garð-
inum. Rúsínan í pylsuendanum er
þó eftir því eggin eru ætluð páska-
kanínunni sem í þessu þrammar inn
um leikskólahliðið. Á handleggnum
ber hún körfu, sneisafulla af litlum
súkkulaðieggjum og það eru þau
sem þau stuttu hafa áhuga á. Þau
verða ekki fyrir vonbrigðum. Eitt
af öðru rétta þau páskakanínunni
hænueggið sitt og fá í staðinn lang-
þráð góðgætið.
Á heima í stjörnunum
Páskaeggjaleitin á Austurborg er
löngu orðin árviss viðburður en fyr-
ir nokkrum árum færðist fjör í leik-
inn þegar einn starfsmaður leik-
skólans ánafnaði honum
dimmisjón-búninginn sinn úr
menntaskóla. Páskakanínan tekur
sig enda vel út í honum, akfeit og
ánægð þar sem hún hrósar börn-
unum fyrir listræn tilþrif á hænu-
eggjunum. „Roþalega eðuð þið flink
að mála,“ segir hún, smámælt með
afbrigðum, „læðið þið að mála í
leikþkólanum?“
Ekki stendur á svörum, ekki
heldur þegar blaðamaður spyr
nokkur kríli hvað sé eiginlega á
seyði? „Ég var að leita egg, og svo
gefði ég henni páskanínunni eggið
sem ég fann og svo fékk ég í stað-
inn páskaegg sem er með súkkulaði
og það þarf að taka miðann,“ út-
skýrir þriggja ára hnáta sem er líka
alveg með á hreinu hvar páskakan-
ínan á heima: „Auðvitað hjá páska-
mömmunni og páskapabbanum sín-
um,“ svarar hún steinhissa á
vanþekkingu blaðamannsins.
Vinkona hennar er á öðru máli.
„Hún á heima í stóra búrinu,“ segir
hún alvörugefin en önnur telur holu
líklegra heimili fyrir svona furðu-
skepnu. Ungur herramaður er með
rómantískari skýringu: „Hún á
heima í stjörnunum,“ segir hann og
brosir, sjálfur eins og geislandi
himintungl.
Eldri krakkar virðast vera með
allt aðrar hugmyndir um tilvist
kanínunnar með súkkulaðieggin:
„Þetta er bara Ella,“ segir einn sem
þykist vera með staðreyndir lífsins
á hreinu. „Nei, þetta er einhver
sem er að leika hana,“ andmælir fé-
lagi hans hneykslaður. Ungfrúin í
næstu rólu sér sig knúna til að leið-
rétta þessa villuráfandi skólafélaga
sína: „Þetta er sko frænka hennar
Ellu að leika hana,“ segir hún.
Áður en blaðamaður kveður
gengur hann fram á tvo pjakka sem
reynast vera í skólahóp og því
býsna lífsreyndir miðað við margan.
Þeir eru því spurðir hvort þeir lumi
á einhverri vitneskju um páskakan-
ínuna og jújú, svo reynist vera. „Ég
veit sko eitt sem ég ætla ekki að
segja svona nálægt litlu krökk-
unum,“ segir annar þeirra ábyrgð-
arfullur. Hann er þó tilbúinn að
hvísla því í eyra blaðamannsins sem
er alveg sammála um að svo mik-
ilvægar upplýsingar sé sennilega
réttast að geyma fyrir sjálfan sig.
Æsispennandi
eggjaleit í leik-
skólagarðinum
Mikil eftirvænting fylgir jafnan heimsókn páskakan-
ínunnar á Austurborg enda kemur hún færandi hendi
Morgunblaðið/Ásdís
Vöruskipti Páskakanínan á góðgæti fyrir alla en sumir þurfa að teygja sig
svolítið eftir því.
Leyndó „Ég veit sko eitt sem ég ætla ekki að segja svona nálægt litlu krökkunum.“ Litrík Það vantar ekkert upp á glæsileikann á hænueggjunum sem krakkarnir skreyttu.
Ný rannsókn sýnir að fjórðihver unglingsstrákur áaldrinum 14–17 ára notartölvu meira en í þrjá
tíma á dag utan skólatíma. Frá
þessu er sagt á vefnum for-
skning.no.
Um það bil sjö af hverjum tíu
strákum og um helmingur stúlkna
er með tölvu með netaðgangi í her-
bergi sínu og margir eru auk þess
með eigið sjónvarp þar. Þessar nið-
urstöður fengust eftir rannsókn sem
gerð var á tölvu-, farsíma- og net-
notkun unglinga, en niðurstöðurnar
voru birtar í fyrstu útgáfu ársins af
Tidsskrift for ungdomsforskning.
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýna að margir piltar nota mikinn
hluta frítíma síns í tölvu- og sjón-
varpstölvuleikjum. Það er hins veg-
ar óalgengt meðal stúlkna. 25% pilta
leika tölvuleik daglega og 30% spila
leiki í tölvu eða sjónvarpi daglega,
en einungis 5% stúlkna. Auk leikja
er nokkur munur á milli pilta og
stúlkna hvað varðar tölvu-, farsíma-
og netnotkun, þrátt fyrir að piltar
eyði aðeins meiri tíma við tölvuskjá-
inn. Meira en helmingur ungling-
anna eyðir tíma á spjallrásum dag-
lega og 25% nota tölvupóst á
hverjum degi. Spjallið hefur yf-
irburði yfir niðurhal tónlistar bæði
hjá piltum og stúlkum.
Fyrir utan það sem að ofan grein-
ir svara flestir unglingar því til að
þeir noti tölvu til heimanáms utan
skólatíma. Þó sýnir það sig að nokk-
ur tími geti enn liðið áður en tölvu-
notkun verður eðlilegur hluti af lexí-
unum fyrir meirihluta nemenda.
Morgunblaðið/ÞÖK
Tölvur Piltar eyða meiri tíma í tölvum en telpur.
Ungir piltar sitja mest við tölvuna