Morgunblaðið - 03.04.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.04.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2007 43 Skráðu þig í FótboltaklúbbMasterCard og notaðuMasterCard kortið þitt frá 15. mars - 30. apríl og þú gætir unnið það sem alla fótboltaáhugamenn dreymir um: Ferð fyrir tvo á úrslitaleik UEFA Champions League í Aþenu 23. maí 2007. Í hvert skipti sem félagi í Fótboltaklúbbi MasterCard notar MasterCard kortið sitt á tímabilinu fer nafn hans í pottinn sem vinningarnir verða dregnir út. Því oftar sem þú notar MasterCard kortið þitt, því meiri líkur á að þú farir á úrslitaleikinn! Meira á www.kreditkort.is. FÓTBOLTAFÁR taktu þátt í því ! NotaðuMasterCard® kortið þitt og þú gætir verið á leið á úrslitaleik UEFA Champions League í Aþenu 23. maí! Ferð, gisting ogmiðar í boði MasterCard. ÞAU eru komin úr felum. Kate Hudson og Owen Wilson eru par, svo mikið er víst, og sjást orðið reglulega saman á meðal sauðsvarts almúgans. Sást m.a. til þeirra í Santa Monica fyrir helgi. Hudson skildi við mann sinn Chris Rowes, söngvara Black Cro- wes, ekki fyrir löngu og var Wilson sagður ástæða skiln- aðarins. Hudson vildi ekki samþykkja það og sagði að hún og Wilson væru aðeins vinir en nú hefur annað komið í ljós. Þau kynntust við tökur á myndinni You, Me and Dup- ree. Hudson og Wilson par Nýtt par Leikkonan Kate Hudson er nú með leikaranum Owen Wilson sem hér sést með bróður sínum Luke Wilson, sem einnig er leikari. KATE Moss og Pete Doherty borða nú vítamínríkt fæði sem mest þau mega til að auka líkurnar á að Kate verði ólétt. Hin 33 ára gamla fyrirsæta og hinn 28 ára rokkkær- asti hennar eru sögð svo spennt fyrir því að eignast barn að þau grípi til allra ráða sem auki líkur á getnaði. Þessi misserin er Kate sögð leggja sérstaka áherslu á prótein- ríkt fæði, svo sem egg og fisk. Pete átti þó lengi vel eitthvað erfiðara með að halda sig við hollustuna ef marka má vini hans, og lá í rusl- fæðinu í fjarveru spúsu sinnar. „Meðan Kate var úti kýldi Pete belginn með alls kyns rulsfæði þar sem hann veit að hann fær ekkert nema baunir á næstunni,“ er haft eftir ónefndum vini rokkarans. „Kate hefur verið sagt að ef hún vilji verða ófrísk þá verði hún að borða mat sem inniheldur mikið D- vítamín,“ er haft eftir sama heim- ildarmanni. Fyrir á Kate fjögurra ára gamla dóttur, Lila Grace, með útgefand- anum Jefferson Hack. Pete á son, Astile, með söngkon- unni Lisa Moorish. Vilja barn og borða því hollt Reuters Í átaki Breska ofurmódelið Kate Moss er sögð vera í sérstöku matarátaki til að auka líkurnar á þungun. MAÐUR var handtekinn eftir að hafa reynt að komast inn á heimili Bítilsins Paul McCartney á föstu- daginn. Öryggisvörðum á heimili hans í Sussex var að sögn verulega brugðið eftir að maðurinn ruddist inn á lóðina og öskraði: „Ég verð að ná til hans!“ „Þetta var hrikalegt. Allir voru logandi hræddir því talið var að hann ætlaði að drepa hann,“ sagði heimildarmaður í samtali við dag- blaðið News of the World. Öryggisvörðum tókst að loka sér- stöku hliði rétt áður en maðurinn komst upp að húsinu. Honum tókst að komast undan öryggisvörðum á hlaupum en lögregla handsamaði hann eftir nokkurn eltingaleik og er hann nú í haldi. Ekki er vitað hvort hann var vopnaður. McCartney var ekki heima þegar atvikið átti sér stað. Reuters Paul McCartney Vildi tala við McCartney Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.