Morgunblaðið - 08.04.2007, Side 1
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gleðilega páska
STOFNAÐ 1913 97. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SUNNUDAGUR
HUBERT
OREMUS
ÞÖRFIN FYRIR
NÝTT KRAFTAVERK
Á ÍSLANDI Í 29 ÁR >> 30
SVERRIR
Í HÓLMI
FÉ OG FÓLK FARIÐ EN
HANN FER HVERGI
GÆTIR MERKRA MINJA >> 22
SAMEINUÐ
Í SMEKK
HEFUR UNNIÐ
NÁIÐ MEÐ BJÖRK
MATT BELL >> 55
HVERNIG á að klæða sig með
grænum hætti? Er hægt með góðri
samvisku að vera í takt við tískuna?
Uppruni fatanna, meðferð þeirra
og nýting eru mál dagsins.
Tíska með
góðri samvisku
MIKIL leynd hvílir yfir rann-
sóknastofum AC Mílanó þar sem
fylgst er með andlegu og líkamlegu
ástandi leikmanna út í ystu æsar og
árangurinn þykir blasa við.
Rannsaka
kropp og koll
SNILLI Garrís Kasparovs við skák-
borðið er óumdeild, en nú hefur
hann hætt sér út í refskák rúss-
neskra stjórnmála og þar mun hann
ekki njóta sömu yfirburða.
VIKUSPEGILL
Pólitísk skák
Kasparovs
SENN hefjast
framkvæmdir við
skóla og heima-
vist í hinu bág-
stadda Vestur-
Afríkuríki Líber-
íu með aðild
íslenskra stjórn-
valda. ABC
barnahjálp hefur
umsjón með
verkefninu en
stjórnandi þess ytra verður heima-
maðurinn Matthew T. Sakeuh.
Morgunblaðið ræddi við Sakeuh
þegar hann var staddur hér á landi
á dögunum en hann hefur lifað við-
burðaríku lífi svo ekki sé meira
sagt. Í borgarastríðinu slapp hann
úr landi þar sem maðurinn sem
ætlaði að myrða hann hafði brugðið
sér í mat. Hann ólst upp í fátækt í
frumskógum Líberíu og sá ekki bíl
fyrr en hann var orðinn 17 ára. 12
ára gamall sá hann í fyrsta skipti
hvíta manneskju og lagði á flótta,
þar sem hann taldi að vofa væri á
ferðinni. | 10
Morðinginn
brá sér í
hádegismat
Ísland kemur að upp-
byggingu í Líberíu
Matthew T.
Sakeuh
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
EIÐUR Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í
knattspyrnu, hefur engin áform um annað en
halda áfram að berjast fyrir stöðu sinni hjá Barce-
lona og klára samninginn við Evrópumeistarana
sem rennur út sumarið 2010.
Hann kveðst aldrei hafa upplifað eins mikla ut-
anaðkomandi pressu og hjá Barcelona. „Í raun má
segja að á þeim stutta tíma sem ég hef verið hérna
hafi ég fengið að kynnast öllum hliðum á því að
leika fyrir Barcelona. Ég hef verið inn og út úr lið-
inu og bæði fengið hrós og skammir. Raunar er
ekkert þarna á milli – hjá Barcelona er maður ann-
aðhvort hetja eða skúrkur,“ segir Eiður Smári
sem er þokkalega sáttur við sinn hlut í vetur.
„Auðvitað vill maður alltaf meira og ég veit að ég
get betur. En þetta er fyrsta árið mitt hérna og ég
hef gengið í gegnum miklar breytingar. Miðað við
það er ég þokkalega sáttur.“
Ítarlega er rætt við Eið Smára í blaðauka sem
fylgir Morgunblaðinu í dag en blaðið sótti hann
heim til Barcelona fyrir skemmstu. Þar verður
honum tíðrætt um metnað sinn og mikilvægi þess
að æfa af kappi til að halda sér á toppnum í vinsæl-
ustu íþrótt í heimi. Þegar Eiður Smári er spurður
hver hafi verið erfiðasti andstæðingurinn gegnum
tíðina stendur ekki á svari:
„Ég sjálfur. Ég er rosalega sjálfsgagnrýninn og
það koma tímar þar sem ég skil hreinlega ekki
hvers vegna hlutirnir ganga ekki eins og ég vil að
þeir gangi. Ég veit hvað býr í mér og ef ég næ ekki
að sýna það verð ég vonsvikinn. Ég segi ekki að ég
verði þunglyndur en þetta dregur mig klárlega
niður.“
Rosalega sjálfsgagnrýninn
Eiður Smári Guðjohnsen staðráðinn í að berjast áfram fyrir sæti sínu hjá Barce-
lona og klára samninginn við Evrópumeistarana sem rennur út eftir rúm þrjú ár
Ljósmynd/Ívar Örn Indriðason
Umsetinn Eiður afhendir ungum
aðdáendum treyjur við tökur á
Eimskips-auglýsingu í Barcelona.