Morgunblaðið - 08.04.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 41
er ég 22 ára og þegar ég lít til baka
þá hefði ég ekki getað fundið betri
vin en afa. Hann var tilbúinn að
gera allt til að mér liði sem best. Í
mínum huga er afi það allra besta
sem hefur hent mig. Elsku afi minn,
takk fyrir allt og ég kveð eins og ég
hef alltaf gert, við sjáumst, afi.
Ómar Freyr.
Elsku afi minn,
frá því ég man eftir mér höfum
við alltaf brallað eitthvað saman í
hestunum, það varst þú sem kveikt-
ir þennan áhuga hjá mér, það varst
þú sem komst mér af stað og það
varst þú sem að hélst mér gangandi
í hestunum. Þú keyrðir mér á reið-
námskeið annan hvern dag inn á
Akureyri því þú vildir jú að ég fengi
almennilega kennslu, og seinna
keyptir þú á mig keppnisreiðbuxur
og stígvél í stíl því ég varð að vera
vel útlítandi á baki og sitja beinn.
Það var nokkuð sem þú minntir mig
reglulega á, því það var að þínu mati
mjög mikið atriði að ásetan væri fal-
leg og ég átti alls ekki að vera eins
og einhver moðpoki á baki, enda
hafðir þú efni á því, jafn teinréttur
og þú alltaf varst á hestbaki, jafnvel
í síðasta reiðtúrnum fyrir tveim
mánuðum.
Það varst líka þú, elsku afi minn,
sem gafst mér fyrsta hestinn minn,
hann Ófeig.
Ég kemst ekki hjá því að hugsa til
þess hversu skrítið það verður að
fara einn í hesthúsið og hlusta ekki
á þig segja mér til, þó að ég væri nú
ekki alltaf sammála því sem þú
sagðir. Elsku afi minn, ég er óend-
anlega þakklátur fyrir að hafa feng-
ið að vera hjá þér síðustu mínúturn-
ar þínar í þessu langa lífi þínu og
líka fyrir það að þú fékkst að deyja
heima alveg eins og þú vildir. Elsku
afi, takk fyrir allt sem þú kenndir
mér og allar stundirnar okkar sam-
an, ég veit að þú verður alltaf hjá
mér og ég veit að þú munt hjálpa
mér í öllu sem ég tek mér fyrir
hendur, þannig varstu bara.
Ég kveð þig, afi minn, þess full-
viss að ég hitti þig aftur, á baki.
Arnar Ingi.
Elsku besti afi minn,
nú á ég voðalega bágt, ég vildi
hafa þig svo miklu, miklu lengur, þú
áttir að sjá mig fermast eftir nokkra
daga og þú ætlaðir að sjá mig fara í
útreiðartúr á Ófeig í sumar, en
mamma segir að þú sjáir mig, það
er bara ég sem ekki sé þig. Nú reyni
ég bara að hugsa um stundirnar
okkar saman eins og þegar þú varst
alltaf að segja mér að ég væri svo
búkonuleg og ég yrði alveg örugg-
lega góð húsmóðir þegar ég var að
gefa þér kaffi og brauð sem ég bak-
aði. Hvað ég var rosalega stolt þeg-
ar þú varst að keyra fram í hesthús í
sumar til að sjá mig á hestbaki og
þegar þú varst að tala um það við
mömmu hvað ég hefði fína ásetu og
hvað mér gengi vel með Ófeig. Hvað
mér fannst það flott að eiga afa sem
var 86 ára, fór á hestbak og keyrði
eins og herforingi út um allt á rauð-
um Chrysler, skar út óendanlega
fallega hluti og var alltaf tilbúinn að
reyna nýja hluti, meira að segja
gemsa sem þú notaðir til að hringja
í okkur ef þú fórst eitthvað.
Elsku afi minn, takk fyrir allt og
takk fyrir að klára að skera út
gestabókina handa mér og ég skal
passa Bubba voða vel fyrir þig.
Litla húsmóðirin þín,
Rebekka Rún.
✝ Svala KristinÓskarsdóttir
fæddist í Loðmund-
arfirði 2. júní 1947.
Hún andaðist á
Heilbrigðisstofnun
Austurlands á Eg-
ilsstöðum 29. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Óskar Valdórsson
og Xenia Eyjólfs-
dóttir sjúkra-
húsráðskona, f. 2.7.
1922, d. 5.6. 1982.
Systkini Svölu eru
Vilborg Ásthildur Andersen, f.
17.11. 1950 og Rúnar Smári Fjal-
ar, f. 18.2. 1957.
Svala giftist hinn 28. júlí 1968
Jóni Sigfússyni bifvélavirkja, f.
9.1. 1943. Svala og
Jón eignuðust þrjú
börn, þau eru: 1)
Sigfús Jónsson, f.
16.2. 1967, maki
Dagný Sylvía Sæv-
arsdóttir, f. 2.8.
1975, dætur þeirra
eru Aldís Anna, f.
19.8. 1995 og Ásrún
Svala, f. 4.6. 1997.
2) Guðný Ásthildur,
f. 8.12. 1972, maki
Vignir Guðmunds-
son, f. 15.8. 1970,
dóttir þeirra er
Helena Mist, f. 9.2. 2005. 3)
Eygló Þórstína, f. 30.6. 1974,
maki Ben Shields, f. 5.8. 1978.
Útför Svölu Kristinar var gerð
frá Egilsstaðakirkju 4. apríl.
Elsku Svala mín.
Þegar við stigum upp í lestina í
Sønderborg skein sólin svo sterkt.
Vorið komið fyrir alvöru og blómin
á trjánum byrjuð að springa út. Á
leiðinni í lestinni sá ég nýbornu
lömbin baða sig í sólskininu
áhyggjulaus og sæl, bambinn stóð
grafkyrr á meðan við þutum áfram
og Stórabeltisbrúin skartaði sínu
fegursta. Allt var svo friðsælt og fal-
legt. En líka dapurlegt, sorglegt og
óskiljanlegt. Ég ætlaði jú að hitta
þig um páskana á lífi en gerði mér
samt grein fyrir að það yrði í síðasta
sinn. Nú hugga ég mig við að síðast
þegar við hittumst (sumarið 2005)
fórum þú, Aldís, Svala og ég í bíltúr
á jeppanum ykkar upp að Kára-
hnjúkum. Veðrið var bjart og fallegt
og við nutum náttúrunnar, samver-
unnar og nestisins okkar. Við
keyrðum svo niður í Hrafnkelsdal-
inn og Jökuldalinn heim. Við vorum
innilega sammála um að Jökuldal-
urinn væri endalaus og grínuðumst
með að það myndi seint breytast.
Þetta er mín síðasta minning með
þér og þessi minning er góð.
Síðustu dagana áður en þú kvadd-
ir, flettum við mæðgur myndaal-
búmunum fram og tilbaka og rifj-
uðum upp. Oftast heyrðist setningin
„þetta prjónaði amma“. Já þú bjarg-
aðir mér alveg, kornungri mömmu-
nni sem ekki fæddist með fínprjóna-
hæfileikana. En ég gat nú aldeilis
státað af heimaprjónuðu á prins-
essurnar mínar.
Elsku Svala, að vera á leið til Ís-
lands í jarðarförina þína er svo
óraunverulegt, allt gerðist þetta svo
hratt og mig langaði svo að faðma
þig, halda í höndina á þér og segja
falleg orð við þig. Elsku Svala, ég
trúi eftir að þú eigir eftir að vaka yf-
ir okkur og fylgjast með okkur.
Guð blessi þig og hvíl þú í friði.
Þín tengdadóttir,
Dagný Sylvía.
Elsku amma.
Það var svo gaman að hitta þig í
febrúar. Ég vonaði að ég gæti séð
þig um páskana, en nei, nú ertu far-
in. Ég sakna þín svo mikið núna. Ég
man þegar ég kom í heimsókn á
sumrin og það stóð alltaf nammiskál
á stofuborðinu og þú leyfðir okkur
alltaf að klára úr henni.
Amma, ég mun alltaf muna eftir
þér, sama hvað.
Þitt barnabarn
Ásrún Svala Sigfúsardóttir.
Elsku amma.
Ég man þegar þið höfðuð grind í
stofuhurðinni á Lagarfellinu og ég
var alltaf að hanga og sveifla mér í
henni. Það fannst mér svo gaman.
Ég ætla líka alltaf að geyma öll fötin
sem þú prjónaðir handa mér. Þau
eru svo falleg. Ég man líka eftir
bangsanáttfötunum sem þú keyptir
handa mér, þótt ég passi ekki í þau
lengur ætla ég alltaf að geyma þau
og þegar ég fæ sjálf börn eiga þau
að eiga þau. Ég á alltaf eftir að
sakna þín, elsku amma.
Þúsund knús og kossar. Þín
Aldís Anna Sigfúsardóttir.
Elsku Svala mín.
Það er ekki hægt að skilja hvers-
vegna þú ert ekki hjá okkur lengur.
Örlögin hafa leikið þig grátt, þú
barðist hetjulega á meðan þú hafðir
krafta og þrek til.
Ég kynntist þér og fjölskyldu
þinni þegar Dagný dóttir mín og
Sigfús sonur þinn fóru að vera sam-
an. Mér finnst ég heppin að eiga
Fúsa fyrir tengdason. Við eigum
sameiginlega yndislegar ömmu-
stelpur sem við höfum fylgst með
vaxa og dafna, þó að fjölskyldan búi
í Danmörku. Alltaf töluðum við mik-
ið um þær þegar við hittumst eða
áttum símtöl saman. Ég dáðist að
því hvað þú varst myndarleg í hönd-
unum, þú varst svo dugleg að
prjóna á þær áður en þær fæddust
og þegar þær voru litlar. Við töl-
uðum eitt sinn um hvort við fengum
strák eða stelpu en það skipti ekki
máli, þú hafðir litina bara gula og
græna. Þú málaðir mjög fallega á
postulín, þú gafst mér nokkra muni
sem ég varðveiti vel.
Eftir að þú veiktist alvarlega um
jólin 1999, en náðir að komast aftur
til okkar, varðst þú að sætta þig við
miklar breytingar í lífi þínu sem
ekki var auðvelt. Þú varst alltaf ró-
leg og kvartaðir ekki.
Og nú aftur 15. febrúar síðastlið-
inn, dundi reiðarslagið stóra yfir er
við fengum að vita að þú værir al-
varlega veik. Ég hitti þig á Land-
spítalanum í Reykjarvík, þá varstu
orðin svo veik. Ég átti mörg símtöl
við þig þann tíma sem þú varst fyrir
sunnan, það var ýmislegt sem við
sögðum hvor annarri, sem ég geymi
nú í hjarta mínu.
Hér á sjúkrahúsinu á Egilsstöð-
um kom ég til þín eins oft og ég gat,
þú barst þig vel, við þurftum ekki að
segja svo mikið, við skildum hvor
aðra. Þú spurðir mig hvenær Fúsi
og fjölskylda kæmu að utan, þú
reyndir að bíða til 1. apríl, þá ætl-
uðu þau að koma, en þú fékkst það
ekki.
Þú sagðir mér frá yndislegri ferð
sem þið Jón fóruð í til Loðmund-
arfjarðar síðasta sumar, þar sem þú
varst fædd á Bárðarstöðum. Þið
keyrðuð inn sveitina og það var
glampandi sól og hiti en þoka út við
sjóinn. Þennan dag sýndi fjörðurinn
ykkur Jóni hversu mikilfenglegur
hann er. Þennan dag sást þú þínar
æskuslóðir. Svala mín, við eigum
það sameiginlegt að eiga ræturnar
þarna í firðinum.
Það var einstakt hversu mikinn
hlýhug þú sýndir Magga syni mín-
um þegar þið unnuð saman í nokkur
ár. Þú varst honum eins og góð
móðir og kenndir honum margt.
Alltaf spurðir þú hvernig gengi hjá
honum. Þú baðst Magga að koma
með litla strákinn sinn þegar hann
heimsótti þig á Landspítalann, þig
langaði svo að sjá hann, auðvitað
gerði hann það fyrir þig. Heimsókn-
in gladdi þig mikið og talaðir þú um
það við mig hvað Viktor Nói væri
líkur pabba sínum.
Svala mín, þú átt yndisleg börn
og einstakan eiginmann, sem ég veit
að þú fylgist með, og litlu ömmu-
börnunum vísar þú veginn í framtíð-
inni.
Elsku Jón, börn, tengdabörn,
barnabörn, systkini og fjölskyldur
ykkar, innilegar samúðarkveðjur til
ykkar.
Svala mín, takk fyrir allt, minn-
inguna um þig geymi ég í hjarta
mínu.
Vinir þínir kveðja þig
með sárum sting í hjarta
en eiga hjá þér hver um sig
góða minningu bjarta.
Þín
Anna Kristín.
Svala Kristin
Óskarsdóttir
✝
Elskuleg móðir okkar,
TORFHILDUR HANNESDÓTTIR,
áður Lindargötu 57,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn
3. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hrefna Guðmundsdóttir,
Anna Ágústsdóttir,
Svava Ágústsdóttir.
✝
Okkar ástkæri bróðir, mágur og frændi,
HAFSTEINN KARLSSON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
sunnudaginn 1. apríl.
Útförin verður gerð frá Víðistaðakirkju fimmtu-
daginn 12. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á minningarkort Heilaverndar,
sem fæst í síma 588 9220.
Soffía Karlsdóttir, Grétar Garðarsson,
Halldór Ingi Karlsson, Lára Jóhannsdóttir,
Hilmar Karlsson, Dórothea Sigurjónsdóttir
og frændsystkini hins látna.
✝
Ættfaðir okkar,
GRÍMUR GÍSLASON,
Garðabyggð 8,
Blönduósi,
andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi laug-
ardaginn 31. mars.
Útför hans fer fram frá Blönduóskirkju þriðjudaginn
10. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Orgelsjóð Blönduóskirkju, reikn. nr. 0307-18-930129, kt. 190334-2369.
Sigrún, Katrín, Sæunn, Gísli og fjölskyldur.
✝
Ástkær sambýlismaður minn, stjúpfaðir, afi, langafi
og bróðir,
ÞÓRIR ÞORLÁKSSON
frá Veiðileysu,
Frostafold 57,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi laugar-
daginn 31. mars.
Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtu-
daginn 12. apríl kl. 13.00.
Þórunn Þorgeirsdóttir,
Bogi Eggertsson,
Guðmundur Eggertsson,
Hólmfríður Eggertsdóttir, Helgi Helgason,
Stefanía Eggertsdóttir, Garry Hurst,
barnabörn, systkini
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ANNA GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Eystri-Skógum,
lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, laugardaginn
31. mars.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
10. apríl kl. 11.00.
Sólveig Guðmundsdóttir, Sigþór Sigurðsson,
Ólafur Guðmundsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Jón Guðmundsson, Jóhanna Hannesdóttir,
Pétur Guðmundsson, Alda Guðmundsson,
Gunnar Guðmundsson, Sigurjóna Björgvinsdóttir,
Sigríður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.