Morgunblaðið - 08.04.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 17
»Þetta atvik skelfdi mig mjögog ég hélt að maðurinn ætlaði
að ganga frá mér.
Kristján Vignir Hjálmarsson, sem varð
fyrir fólskulegri árás á Lækjartorgi á
sunnudag. Ókunnur maður vatt sér að
Kristjáni, sem er fatlaður og notast við
rafknúinn hjólastól, kýldi hann í andlitið
og tók af honum farsíma hans, sem er
Kristjáni nauðsynlegt öryggistæki.
»Það er líklega bara best aðmuna ekki neitt.
Tryggvi Tryggvason, fertugur Akureyr-
ingur, sem var hætt kominn í miklu snjó-
flóði í Hlíðarfjalli í janúarmánuði. Tryggvi
man ekkert eftir deginum sem slysið varð.
Ekki er óalgengt að fólk sem verður fyrir
slíku áfalli missi minnið.
»Þetta áfall kemur mjög seint íferlinu því við höfðum í góðri
trú keypt lóð, fengið starfsleyfi
og farið í umhverfismat og fleira.
Allt þetta hafði verið gert í góðri
trú þegar allt í einu kemur kosn-
ing sem við vorum ekki meðvituð
um að við þyrftum að ganga í
gegnum.
Rannveig Rist, forstjóri Alcan, er fyrir lá
að naumur meirihluti Hafnfirðinga hafði
hafnað tillögu um stækkun álversins í
Straumsvík.
»Ég tel að þetta sé upphaf aðáframhaldandi sókn þessara
sjónarmiða sem orkufyrirtækin,
iðnfyrirtækin og stjórnvöld
verða að horfast í augu við.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs,
um sigur álversandstæðinga í Hafnarfirði.
»Þetta er ekki til þess að vekjaáhuga manna á að fjárfesta í
sveitarfélögunum og við teljum
reyndar að þessi kosning í Hafn-
arfirði sé einsdæmi.
Pétur Reimarsson, forstöðumaður stefnu-
mótunar- og samskiptasviðs hjá Samtökum
atvinnulífsins, um kosninguna um stækkun
álversins í Straumsvík.
»Þetta eru ákveðin þáttaskilhvað varðar íbúalýðræði og
ég tel að það sé alveg ljóst að í
framhaldinu verðum við að setja
skýrari reglur og ramma um
slíkar kosningar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, um kosn-
inguna í Hafnarfirði.
»Atkvæðagreiðslan sjálf hefurekkert gildi nema sem ráð-
gefandi.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra og for-
maður Framsóknarflokksins, um niður-
stöðuna í Hafnarfirði.
»Okkur finnst mikið til um þáþróun sem orðið hefur í efna-
hagsmálum á Íslandi.
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Sví-
þjóðar.
»Þetta er í raun sambærilegtvið það að komast í lið hjá
Barcelona í fótboltanum, styrk-
leikinn er þvílíkur hjá liðinu, sem
er eitt það besta í heiminum.
Hafþór Harðarson, sem skrifað hefur und-
ir samning við Team Pergamon frá Gauta-
borg, eitt besta keilulið heims. Hafþór,
sem er tvítugur, stefnir á fulla atvinnu-
mennsku hjá sænska liðinu.
»Upplifunin er líkust því aðvera fastur í hríðarbyl eða þá
inni í þotuhreyfli.
Arnar Eggert Thoroddsen tónlistar-
blaðamaður um frammistöðu hljómsveit-
arinnar Shogun, sem bar sigur úr býtum í
Músíktilraunum.
»Það undarlegasta sem ég heftekið í nefið? Faðir minn, ég
tók föður minn í nefið.
Keith Richards, hinn lífseigi gítarleikari
hljómsveitarinnar The Rolling Stones,
upplýsti í liðinni viku að hann hefði tekið
ösku föður síns í nefið.
»Ég held að það sé ríkis-stjórnin sem þarf að hjálpa
okkur að reka Landspítalann
betur.
Kristín Sigurðardóttir hjúkrunardeild-
arstjóri um viðvarandi skort á hjúkr-
unarfræðingum. Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga telur tæplega 600
hjúkrunarfræðinga vanta til starfa.
»Lið okkar er of gott til þessað fara niður.
Eggert Magnússon, stjórnarformaður
enska úrvalsdeildarliðsins West Ham.
Hagur liðsins hefur vænkast í undan-
liðnum leikjum en „Hamrarnir“ eru enn í
næstneðsta sæti.
Ummæli vikunnar
Morgunblaðið/Kristinn
Árás Fólskuleg árás, sem Kristján Vignir Hjálmarsson varð fyrir á Lækj-
artorgi um liðna helgi, kallaði fram undrun og almenna fordæmingu.
Búlgaríuveisla
• Veisla í mat og drykk
• Frábært næturlíf
• Gott að versla
• Spennandi kynnisferðir
• Ótrúlegt verðlag
• o.fl., o.fl.
Bókaðu núna!
www.terranova.is
Frá kr. 29.990*
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum, fargjald A.
Takmarkaður sætafjöldi í boði á þessu fargjaldi.
Gott hótel ***
Frá kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á
Hotel Perla í viku, 21. maí.
Frá kr. 49.990 – 2 vikur
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á
Hotel Perla í 2 vikur, 21. maí.
Frábærar íbúðir ****
Frá kr. 49.495
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð
á Paradise Park í viku, 9., 16., 23. eða 30. júlí.
Gott hótel ***+
m/allt innifalið
Frá kr. 54.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með allt innifalið á
Hotel Madara í viku, 21. maí.
Frá kr. 69.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með allt innifalið á
Hotel Madara í viku, 9., 16., 23. eða 30. júlí.
Beint morgunflug Terra Nova með íslensku
flugfélagi í allt sumar. Betri þjónusta og betri flugtímar – fyrir þig!
BEINT MORGUNFLUG
Hvergi meira frí fyrir peninginn!
Glæsilegur aðbúnaður í fríinu
Endalausir möguleikar
á afþreyingu
• Sjóstangveiði
• Hjól og mótorhjól
• Mini-golf, strandblak
• Vatnagarðurinn Aquapolis
• Teygjustökk
• Köfun, kajakar
• Keila, tennis
• Sjóskíði, seglbretti
Ótrúlegt verðlag!
Í verslun
Vatn 1,5 l. .................................. 40 kr.
Bjór 0,5 l. ................................... 50 kr.
Léttvínsflaska........................... 300 kr.
Kjúklingur 1 kg......................... 320 kr.
Gos 1,5 l. ................................... 75 kr.
Vodkaflaska (innlend) ............... 370 kr.
Á veitingastað
Aðalréttur ................................. 600 kr.
Bjór .......................................... 150 kr.
Vínflaska .................................. 440 kr.
Pizza ........................................ 400 kr.
Annað
Bananabátur ............................ 300 kr.
Sjóskíði ................................. 1.100 kr.
Teygjustökk.............................. 750 kr.
Hjólaleiga (dagur) ..................... 550 kr.
Nú býður Terra Nova til frábærrar
sumarveislu til perlu Svartahafs-
ins, Golden Sands í Búlgaríu. Þú fær
hvergi meira frí fyrir peninginn en
í ferð til Golden Sands og nú bjóð-
um við frábær tilboð á nokkrum
vinsælum gististöðum í maí og júlí.
Staðurinn ber svo sannarlega nafn
með rentu því ströndin er ein sú
allra besta í Evrópu, 4 km. löng og
allt að 100 metra breið með gulln-
um sandi, hlýjum og tærum sjó.
frá kr. 29.990*
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099 · Hafnarfjörður sími: 510 9500
Hotel Madara
Hotel Perla
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
26
0
78
Aðeins 200 sæti í boði.
Tryggðu þér sæti strax!
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
Ítalskar
mokkasínur
kr. 9.800
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111