Morgunblaðið - 08.04.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 49
Auglýstu
atburði
á þínum
vegum
hjá okkur
Hafðu samband við
auglýsingadeild
Morgunblaðsins
í síma 569 1100
• Tónleika
• Myndlistar-
sýningar
• Leiksýningar
• Fundi
• Námskeið
• Fyrirlestra
• Félagsstarf
• Aðra mann-
fagnaði
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Söfn
Gljúfrasteinn - Hús skáldsins | Opið alla páskana
kl. 10-17. Boðið upp á hljóðleiðsögn um húsið á ís-
lensku, ensku, þýsku eða sænsku. Í móttökuhúsi er
margmiðlunarsýning helguð ævi og verkum Hall-
dórs Laxness. Í námunda við Gljúfrastein eru fal-
legar gönguleiðir. Nánari uppl. í s. 586-8066.
Félagsstarf
Félagsstarf Gerðubergs | Á morgun, annan í pásk-
um, fellur starfsemi niður. Þriðjud. 10. apríl, opið frá
kl. 9, opnar vinnustofur, létt ganga um nágrennið
og veitingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Berg.
Starfsfólk sendir þátttakendum, samstarfsaðilum
og velunnurum um allt land góðar páskakveðjur.
Fríkirkjuvegur 1 | Upprisuhátíð fyrir alla fjölskyld-
una árdegis kl. 11. Söngur, brúðuleikhús, hugleiðing
o.fl. Sameiginlegur léttur hádegisverður á eftir þar
sem allir leggja eitthvað til á borðið. Allir velkomnir.
Kirkjustarf
Boðunarkirkjan | Samkoma kl. 8. Boðið upp á
morgunverð. Verið velkomin.
Fríkirkjan í Reykjavík | Hátíðarguðsþjónusta kl. 9.
Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og þjónar fyrir
altari. Fermingarbörn aðstoða. Eftir guðsþjón-
ustuna verður boðið upp á kaffi í safnaðarheim-
ilinu.
Hjálpræðisherinn í Reykjavík | Upprisufögnuður
kl. 8 í Kirkjustræti 2. Sönghópurinn Korilena syng-
ur. Morgunmatur á Gistiheimilinu eftir samkomuna.
Hátíðarsamkoma í kvöld kl. 20 í Hafnarfjarð-
arkirkju. Ester Daníelsdóttir og Wouter van Goos-
willigen, ásamt Korilena frá Noregi og þátttak-
endum páskamótsins.
Árbæjarkirkja | Hátíðarguðsþjónusta kl.8 árdegis
sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar.
Hallgrímskirkja | Árdegisguðsþjónusta kl. 8 í
umsjá sr. Birgis Ásgeirssonar. Hátíðarmessa og
barnastarf kl. 11 í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar.
Magnea Sverrisdóttir, djákni stýrir barnastarfinu.
Mótettukórinn syngur undir stjórn Harðar Áskels-
sonar. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs
Bjarnasonar. Annar í páskum: Hátíðarmessa með
fermingu kl. 11.
Þingvallakirkja | Messa við sólarupprás kl. 6.30.
Safnast saman fyrir utan kirkjuna kl. 6.20. Hátíð-
armessa kl.14. Organisti Guðmundur Vilhjálmsson.
Prestur sr. Kristján Valur Ingólfsson.
Þorlákskirkja | Hátíðarmessa kl. 10 Hjallakirkja (í
Ölfusi) Hátíðarmessa kl. 14. Kristur og fjölmenn-
ingin. Sýning um bænadaga og páska.
Páskamorgun verður í safnaðarheimilinu að guðs-
þjónustu lokinni. Annan í páskum fermingarguðs-
þjónusta kl. 10.30
Siglufjarðarkirkja | Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Kaffi í boði systrafélags Siglufjarðarkirkju að
messu lokinni.
Borgarprestakall | Hátíðarguðsþjónusta kl 11.
Guðsþjónusta annan páskadag kl 16.30 á Dval-
arheimili aldraðra. Borgarkirkja: Hátíðarguðsþjón-
usta kl 14. Álftaneskirkja Hátíðarguðsþjónusta kl
16. Álftártungukirkja Hátíðarguðsþjónusta annan
páskadag kl 14.
Grafarholtssókn | Hátíðarmessa kl. 9 árdegis í
Þórðarsveig 3, prestur séra Sigríður Guðmars-
dóttir. Páskastund barnanna kl. 11 í Ingunnarskóla.
80ára afmæli. Hinn 9.apríl, annan í páskum,
verður Guðrún Brynjólfs-
dóttir, Vallarbraut 6, Reykja-
nesbæ, áttræð. Af því tilefni
tekur hún á móti vinum og
vandamönnum í Selinu á Vall-
arbraut 4 frá kl. 15 á afmæl-
isdaginn.
70ára afmæli. Í dag, 8.apríl, er sjötugur Örv-
ar Kristjánsson, harmónikku-
leikari. Hann dvelur á Kan-
aríeyjum.
dagbók
Í dag er sunnudagur 8. apríl, 98. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. ( Matt. 6, 14.)
Heilsugæslustöðin í Árbæverður 30 ára 12. aprílnæstkomandi, en hún erelsta heilsugæslustöðin á
höfuðborgarsvæðinu.
Gunnar Ingi Gunnarsson er yf-
irlæknir Heilsugæslustöðvarinnar:
„Stöðug uppbygging hefur verið á
heilsugæslukerfi höfuðborgarsvæð-
isins frá því Heilsugæslan í Árbæ hóf
starfsemi 1977, og varð kerfið full-
byggt með opnun Heilsugæslustöðv-
arinnar í Glæsibæ fyrir nokkrum miss-
erum,“ segir Gunnar Ingi. „Það þótti
mikil nýlunda þegar Heilsugæslu-
stöðin hóf starfsemi, en þjónustan hef-
ur þróast í samræmi við þarfir al-
mennings og eru
heilsugæslustöðvarnar nú mikilvægur
hluti af almennri heilbrigðisþjónustu.“
Starfsemi heilsugæslustöðvanna
spannar fjölbreytt svið, og má hjá
heilsugæslunum m.a. fá almenna lækn-
isþjónustu og hjúkrunarþjónustu,
læknisfræðilega endurhæfingu,
sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, heima-
hjúkrun og tannlækningar. Einnig
sinna Heilsugæslustöðvarnar heil-
brigðisfræðslu til forvarna, heilsu-
gæslu í skólum, ónæmis-, berkla-, og
kynsjúkdómavörnum, mæðravernd og
ungbarna- og smábarnavernd.
„Heilsugæslustöðvarnar í Reykjavík
geta sinnt til enda um 90% þeirra til-
vika sem stöðvunum berast, en tíunda
hluta þarf að vísa til sérfræðinga á
sérútbúnum stofnunum,“ segir Gunnar
Ingi en á síðasta ári fóru fram um
tæplega 27.000 viðtöl við skjólstæðinga
í Árbæjarstöðinni, skráð símtöl voru
alls um 22.000 og vitjanir rúmlega
1800.
Frá upphafi hefur Heilsugæslu-
stöðin í Árbæ verið til húsa á sama
stað, Hraunbæ 102: „Síðustu ár hefur
farið að þrengja töluvert að starfsem-
inni, en hillir nú undir lausn á þeim
vanda og gera áætlanir ráð fyrir að ný
stöð verði opnuð í júlímánuði á næsta
ári með betri aðstöðu og meira rými,“
segir Gunnar Ingi. „Það mun gera
okkur kleift að þjóna enn betur íbúum
Árbæjarsvæðisins, en það hafa vissu-
lega verið forréttindi að starfa fyrir
Árbæinga undanfarna þrjá áratugi.“
Finna má upplýsingar um Heilsu-
gæslustöðvarnar á höfuðborgarsvæð-
inu, opnunartíma og þjónustu, á slóð-
inni www.heilsugaeslan.is
Heilsa | Heilsugæslustöðin í Árbæ er elsta heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla í þrjá áratugi
Gunnar Ingi
Gunnarsson fædd-
ist í Reykjavík
1946. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1968 og
varð med.lic. frá
Gautaborgarhá-
skóla 1978. Gunnar
hóf störf hjá Heilsugæslustöðinni í
Árbæ 1979. Gunnar er kvæntur Ernu
Matthíasdóttur hjúkrunarfræðingi og
eiga þau til samans 7 börn og 5 barna-
börn.
PÁSKAEGG eru trú-
lega á boðstólum víða
um heim í dag.
Þessi ónefnda kona
var fyrir helgina að
ganga frá útstillingu á
páskaeggjum í versl-
un sinni í Sao Paulo í
Brasilíu.
Eggin eru aðeins
lítið brot þeirra 21.400
tonna páskaeggja sem
framleidd voru í Bras-
ilíu í ár.
Gleðilega
páska
Reuters
FRJÁLSLYNDI flokkurinn hefur
tilkynnt framboðslista flokksins í
Norðvesturkjördæmi fyrir alþingis-
kosningarnar 12. maí nk. Listinn er
þannig skipaður:
1. Guðjón Arnar Kristjánsson, al-
þingismaður, Ísafirði.
2. Kristinn H. Gunnarsson, alþing-
ismaður, Bolungarvík.
3. Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir,
menntunarfræðingur og ráð-
gjafi, Akranesi.
4. Ragnheiður Ólafsdóttir, öryrki
og listamaður, Akranesi.
5. Anna Margrét Guðbrandsdóttir,
heilbrigðisstarfsmaður við heil-
brigðisstofnunina á Sauðárkróki,
Sauðárkróki.
6. Guðmundur Björn Hagalínsson,
bóndi og formaður eldri borgara
í Önundarfirði, Flateyri.
7. Brynja Úlfarsdóttir, stuðnings-
fulltrúi, Ólafsvík.
8. Helgi Helgason, bóndi, Borgar-
firði.
9. Gunnlaugur Guðmundsson,
bóndi, Söndum, Miðfirði, Húna-
þingi vestra.
10. Lýður Árnason, heilbrigðis-
starfsmaður, Bolungarvík.
11. Hanna Þrúður Þórðardóttir,
heimavinnandi húsmóðir, Sauð-
árkróki.
12. Páll Jens Reynisson, véla- og iðn-
aðarverkfræðinemi við HÍ,
Hólmavík.
13. Sæmundur T. Halldórsson,
verkamaður, Akranesi.
14. Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir,
verslunarrekandi, Dalabyggð.
15. Þorsteinn Árnason, vélverkfræð-
ingur, Andakílsárvirkjun, Borg-
arfirði.
16. Þorsteinn Sigurjónsson, bóndi,
Reykjum, Hrútafirði.
17. Rannveig Bjarnadóttir, stuðn-
ingsfulltrúi, Akranesi.
18. Pétur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri og varaþingmaður.
Frambjóðendur Frjálslynda
flokksins í NV-kjördæmi
RÁÐSTEFNA um hnattlægar um-
hverfisrannsóknir og spálíkanagerð í
samstarfi Pourquoi-pas? – Franskt
vor á Íslandi og Háskóla Íslands
verður haldin þriðjudaginn 10. apríl
kl.15–17 í Hátíðasal Háskólans.
Meginfyrirlesarar eru vísinda-
menn í fremstu röð í umhverfisrann-
sóknum og spálíkanagerð, frá
Frakklandi og Bretlandi, segir í
fréttatilkynningu. Að fyrirlestrum
loknum verða pallborðsumræður
með þátttöku fyrirlesaranna, Helga
Björnssonar jöklafræðings o.fl. Jón-
ína Bjartmars umhverfisráðherra
flytur ávarp í upphafi ráðstefnunnar.
Í fréttatilkynningu segir um fyr-
irlesarana: Jean Jouzel er einn mik-
ilvægasti vísindamaður heims á sviði
hnattlægra umhverfisrannsókna og
lagði grundvöllinn að jarðefnafræði
eins og henni er beitt við rannsóknir
á jöklum og loftslagi. Starf hans upp-
fyllir loforð loftslagssögulegra rann-
sókna um að auka skilning á loftslagi
samtímans og framtíðar.
Sylvie Joussaume hefur borið
ábyrgð á megináætlanagerð Geim-
vísindadeildar CNRS og INSU á
sviði haf- og loftslagsrannsókna, þ.e.
rannsókna á loftslagi, loftgæðum,
sjávarmengun, veðurfræðilegum
ógnum, frá árinu 2001. Hún var skip-
uð forstöðukona INSU og Geimvís-
indadeildar árið 2003, og nær starfs-
svið hennar þar allt frá jarðvísindum
til stjörnufræði. Frá júnímánuði árið
2006 hefur hún snúið sér aftur að
loftslagsrannsóknum. Sylvie er
heimsþekktur sérfræðingur í spálík-
anagerð.
David Warrilow er vísindamaður
við DEFRA í Bretlandi, (UK’s Dep-
artment for Environment, Food and
Rural Affairs). Hann er sérstakur
ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar á
sviði loftslagsbreytinga og orkuspar-
andi aðgerða, bæði heima fyrir og á
alþjóðlegum vettvangi.
Fundarstjóri er Brynhildur Dav-
íðsdóttir, dósent í umhverfis- og auð-
lindafræðum við Háskóla Íslands.
Hnattlægar umhverfisrann-
sóknir og spálíkanagerð