Morgunblaðið - 08.04.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.04.2007, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hafdís Hanna Ægisdóttirer líffræðingur frá Há-skóla Íslands. Meist-araverkefnið hennar, sem hún vann við líffræðiskor HÍ undir handleiðslu Þóru Ellenar Þór- hallsdóttur, prófessors í grasafræði, var hluti af stærra samnorrænu verkefni sem leitaði svara við hvern- ig heimskautaplöntur svöruðu snöggum umhverfisbreytingum. „Við vorum sex meistaranemar sem unnum að þessu verkefni; tveir frá Íslandi, tveir frá Kaupmanna- höfn og tveir frá Osló. Gagnasöfn- unin fól í sér ferðalög til spennandi staða á Grænlandi, Svalbarða sem og á Tröllaskaga og á norðanverðum Vestfjörðum. Vegna þessara sam- norrænu tengsla fékk ég tækifæri til að vinna hluta af meistaverkefninu mínu við Kaupmannahafnarháskóla. Ég bjó í Kaupmannahöfn í tvo vetur og var það mjög skemmtilegur tími. Þar leiðbeindi mér dr. Marianne Philipp sem er dósent við Kaup- mannahafnarháskóla. Ég útskrifaðst með MS-gráðu í júní 2003 og flutti tveimur vikum síðar til Basel í Sviss til að hefja doktorsnám í vistfræði al- paplantna. Síðastliðin þrjú sumur hef ég því fengið tækifæri til að ferðast um svissnesku Alpana þvera og endilanga. Rannsakar æxlunarkerfi plantna Alla tíð síðan ég bjó í Kaupmanna- höfn hef ég haldið góðu sambandi við fólkið sem ég vann með þegar ég stundaði þar nám. Á síðasta ári hafði Marianne Philipp samband við mig og bauð mér að taka þátt í fimm vikna vísindaleiðangri til Galápagos- eyja núna í febrúar og mars. Ég gerði mér strax grein fyrir því að þetta væri alveg einstakt tækifæri og tók boðinu. Þessi vísindaleiðangur var hluti af mjög svo metnaðarfullum dönskum leiðangri sem farið hefur um öll heimsins höf síðustu átta mánuði. Leiðangurinn kallast Galathea 3 (www.galathea3.dk) og skipið sem notað var til að flytja vísindamenn, fjölmiðlamenn og stúdenta á milli landa og heimsálfa var gamla varð- skipið Vædderen sem er Íslend- ingum að góðu kunnugt eftir að það kom með handritin til Íslands árið 1971. Leiðangurinn sem ég tók þátt í til Galápagoseyja er eitt margra verk- efna innan Galathea 3-verkefnisins. Hann var það sem kallast stað- bundið verkefni, þ.e.a.s. við stund- uðum allar okkar rannsóknir á eyj- unum en sigldum ekki með skipinu á milli landa eins og sumir vís- indamenn gerðu.“ Hafdís Hanna var spurð hvað hún væri aðallega að rannsaka á Galápagoseyjum. „Á Galápagoseyjum rannsökuðum við þróun æxlunarkerfa hjá plöntum sem dreifst hafa þangað frá meg- inlandi S-Ameríku, t.a.m. Ekvador eða Perú. Vegna einangrunar sinnar frá meginlandi Suður-Ameríku – en þær eru um 1000 km frá strönd Ekvador – og landfræðilegrar legu eru Galápagoseyjar einkar vel til þess fallnar að skoða þróun lífvera. Á fáum stöðum í heiminum má jafn- glöggt sjá hvernig lífverur hafa að- lagast ólíkum aðstæðum. Það var einmitt á Galápagoseyjum sem Charles Darwin fékk innblást- urinn að hugmyndum sínum um þró- un lífvera sem síðar urðu að þróun- arkenningunni. Má í þessu samhengi nefna finkur Darwins sem oft eru teknar sem dæmi í líffræðikennslu. Finkur á eyjunum skiptast í nokkrar tegundir sem aðlagast hafa ólíku fæðuvali. Tegundirnar sem þekkja má í sundur af mismunandi löguðu nefi eru taldar eiga sér sameig- inlegan forföður. Eyjarnar eru helst þekktar fyrir sérstætt dýralíf; risaskjaldbökur, fornaldarlegar eðlur og fugla. Flór- an á eyjunum er ekkert síður merki- leg þótt hún sé minna þekkt og er hún mjög áhugaverð m.t.t. þróunar- og vistfræðirannsókna. Tilgangur verkefnisins var að kanna hvort sjálfsófrjósamar plöntu- tegundir – þ.e. plöntur sem ekki geta frjóvgað sig sjálfar – sem dreifst hafa frá meginlandi Suður-Ameríku til Galápagoseyja hafi þróast í þá átt að geta frjóvgað sig sjálfar. Það er kostur fyrir plöntu sem nemur land á fjarlægri eyju að geta frjóvgað sjálfa sig þar sem aðrir einstaklingar sömu plöntutegundar eru alla jafna fáir eða engir fyrst í stað. Þetta er ástæða þess að margar plöntuteg- undir sem numið hafa land á ein- angruðum eyjum hafa þróað með sér þann hæfileika að geta frjóvgað sig sjálfar. Æxlunarkerfi þessara plantna er því oft öðruvísi en hjá plöntum sömu tegundar sem vaxa í stærri stofnum á meginútbreiðslu- svæði plöntutegundarinnar (t.a.m. í tilfelli Galápagoseyja – á meginlandi S-Ameríku). Niðurstöður rannsókna okkar munu vonandi geta varpað ljósi á þróun æxlunarkerfa hjá plöntum en rannsóknir á æxl- unarkerfum plantna eru mjög nær- tæk aðferð til að rannsaka og skilja þróun þeirra á einangruðum stöð- um.“ Reyna að verja þetta einstaka vistkerfi Hafdís Hanna var spurð hvort það væru ekki forréttindi að rannsaka lífríki á þessum einstaka stað. „Jú, ég held að Galápagoseyjar hljóti að vera draumastaður flestra náttúrufræðinga. Eins og ég sagði áðan var það þar sem Darwin fékk innblásturinn að hugmyndinni um náttúruval, þ.e.a.s. að sá hæfasti lifi af. Þessar hugmyndir urðu síðar grundvöllur þróunarkenningarinnar sem kom fyrir almenningssjónir í tímamótariti hans „Uppruna teg- undanna“ árið 1859. Þegar mér var boðið að taka þátt í þessum leiðangri vissi ég að ég gæti ekki látið mér þetta tækifæri úr greipum ganga. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á eyjum, lífríki þeirra, vistfræði og þróun einangraðra tegunda. Sem vísindamaður hafði ég tæki- færi á að kynnast lífríki þeirra mun betur í gegnum rannsóknirnar auk þess að fá leyfi til að fara inn á svæði sem lokuð eru ferðamönnum.“ Hvernig er staða mála á eyjunum? Stafar umhverfinu engin hætta af ferðamönnum eða öðru utanaðkom- andi áreiti? „Staða umhverfismála á eyjunum er að mörgu leyti góð en þó fara eyj- arnar ekki varhluta af þeim vanda- málum sem hrjá aðra staði í heim- inum. Það má í raun segja að umhverfisvandamál þar séu eins og smækkuð mynd af hnattrænum um- hverfisvandamálum. Innfluttum dýra- og plöntutegundum fjölgar, mengunarslys hafa orðið og El Niño- veðurfyrirbrigðið, sem hefur mikil áhrif á lífríki hafsins við eyjarnar, er talið hafa eflst vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa. Allt eru þetta vandamál sem raskað hafa jafnvæg- inu í lífríkinu og ekki er ljóst hverjar endanlegar afleiðingar þeirra verða. Galápagoseyjar tilheyra Ekvador og hafa verið þjóðgarður frá árinu 1959. Langstærstur hluti eyjanna eða 97 % tilheyra þjóðgarðinum. Ferðamönnum hefur fjölgað mjög á síðustu árum og áratugum og nú koma yfir 100.000 gestir þangað ár- lega. Þessari miklu aukningu ferða- manna hefur fylgt straumur fólks frá Ekvador sem flust hefur til eyjanna í von um betra líf við að þjónusta ferðamennina. Fólksfjöldi á eyj- unum hefur því tífaldast á síðustu 30 árum. Þrátt fyrir að starfsfólk þjóð- garðsins reyni eftir fremsta megni að fylgjast með að engar framandi dýra- og plöntutegundir komi til eyjanna er nær vonlaust að skoða alla gáma, farangur o.s.frv. Fram- andi lífríki hefur því stundum komist framhjá þjóðgarðsvörðunum og gert nokkurn usla á sumum svæðum. Sums staðar hafa framandi plöntu- tegundir kæft náttúrulegan gróður og framandi dýr grafið undan lífsvið- urværi þeirra dýra sem fyrir eru á eyjunum. Auknum fólksfjölda fylgir náttúrlega aukin vatnsnotkun, elds- neytisnotkun og úrgangur sem erfitt er að takmarka. Þeir ferðamenn sem fara til Gal- ápagoseyja eru langflestir nátt- úruskoðendur sem gera sér grein fyrir því hve lífríki eyjanna er við- kvæmt. Einnig er aðgengi ferða- manna takmarkað að mörgu leyti. Ferðamenn mega ekki heimsækja allar eyjarnar og á sumum þeirra mega þeir bara fara í land á einum stað og þá aðeins með leið- sögumönnum þjóðgarðsins. Þetta fyrirkomulag tryggir að rask ferða- manna verður eins lítið og mögulegt er. Því má einnig bæta við að fólk sem fær sérstakt leyfi til að fara inn á svæði sem annars eru lokuð (s.s. vísindamenn, kvikmyndagerð- armenn o.s.frv.) fara í gegnum mjög strangt ferli áður en þeim er hleypt í land. Allur farangur, þó sérstaklega föt og skór, er grandskoðaður til að tryggja að engin fræ eða dýr slæðist með. Þjóðgarðsstarfsmenn sem og starfsmenn rannsóknarmiðstöðvar eyjanna, sem kennd er við Charles Darwin, hafa einnig unnið mjög gott starf við að útrýma framandi dýra- og plöntutegunum sem fluttar hafa verið viljandi eða óviljandi til eyjanna síðustu áratugi og aldir. Stærsta vandamál síðustu ára hafa verið geitur sem sjómenn slepptu í land í nokkrar eyjar á 19. öld. Geit- urnar áttu sér enga náttúrulega óvini og fjölguðu sér úr hófi fram. Ofbeit af þeirra völdum ógnaði m.a. lífsviðurværi risaskjaldbakna sem einnig eru grasbítar. Á síðustu árum hefur tekist að útrýma geitum af mörgum eyjanna.“ Hvað tekur við hjá þér þegar þessu verkefni er lokið? „Nú tekur við hjá mér að klára doktorsritgerðina mína sem ég stefni á að skila hér í Basel snemm- sumars. Ég þarf því að snúa mér frá hitabeltisplöntum í bili og hugsa um vistfræði alpaplantna.“ „Galápagoseyjar eru draumastaður flestra náttúrufræðinga“ GALÁPAGOSEYJAR hafa ekki varið varhluta af útrýmingu tegunda. Fyrr á öldum var afar vinsælt af sjómönnum að taka mér sér skjaldbökur um borð í skip sín enda töldust þær herramannsmatur og kjötið hélst lengi ferskt á langri siglingu. Þetta olli því að sumar skjaldbökuundirtegundir dóu út. Eitt frægasta dæmið er risaskjaldbakan „Einmana Georg“ (Lone- some George) sem fannst á eyjunni Pintu (Isla Pinta) í Galápagoseyjaklas- anum árið 1972. Talið hafði verið að öllum risaskjaldbökum hefði verið út- rýmt af eyjunni en þetta eina karldýr vakti von um að hægt yrði að bjarga þessari undirtegund. Þrátt fyrir mikla leit hefur ekki fundist kvendýr af sömu undirtegund til að makast við Georg og því kallast hann „Einmana Georg“. Það eru því allar líkur á því að „Einmana Georg“ sé eina eftirlif- andi risaskjaldbakan af þeirri undirtegund sem lifði á eyjunni Pintu og að með honum deyi hún út. „Einmana Georg“ Ljósmynd/Hafdís Hanna Einn Risaskjaldbakan „Einmana Georg“ er síðasta eftirlifandi risaskjald- bakan af undirtegund sem lifði á eyjunni Pintu í Galápagoseyjaklasanum. Hafdís Hanna Æg- isdóttir líffræðingur hefur í vetur stundað rannsóknir á Galápag- oseyjum. Lífríki þar er einstakt og greip hún tækifærið fegins hendi þegar henni bauðst að fara þangað. Egill Ólafsson ræddi við Hafdísi Hönnu. Eldgosaeyjar Hafdís Hanna Ægisdóttir líffræðingur situr á helluhrauni á Galáposaeyjum. Eyjarnar urðu allar til vegna eldgosa. Sjaldgæfar Sækembur í sólbaði. Þessar eðlur finnast aðeins á Galápagos- eyjum og eru einu sæeðlurnar í heiminum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.