Morgunblaðið - 08.04.2007, Blaðsíða 20
|sunnudagur|8. 4. 2007| mbl.is
Einfalt Ralph Lauren heldur sig við
einfaldan stíl í vorlínunni.
Allt í sama stíl Einfalt og allt í stíl í væntanlegri vetrarlínu Giorgio Armani. Samkvæmt trúarhefð er
fólk ofar í virðingarröðinni eftir því sem meira efni er notað í túrbaninn. Hér eru ekki notaðir margir
sentimetrar af efni en útkoman er engu að síður sérlega glæsileg og skorar hátt á tískuskalanum.
TÚRBANAR eru í tísku, sáust á sýningarpöllunum í vor- og haust-
tískunni og eru líka hluti af glænýrri línu Madonnu fyrir H&M.
Djúpir litir Prada-silkitúrbana hafa sést á tískuglöðum síðustu vik-
ur, m.a. Ashley Olsen, og eru þeir þá helst notaðir við fínni tæki-
færi, líkt og hjá Hollywood-leikkonum fyrri ára.
Túrban er ekki auðveldur fylgihlutur og óráðlegt að skarta slíku
höfuðfati og búast við að falla í fjöldann. Sjálf á ég þrjá (úr Hatta-
búðinni, Rauðakrossbúðinni og frá Harlem) keypta á síðustu árum
og hefur satt að segja aldrei gengið vel að nota þá. Ef túrban er
valinn er allavega mikilvægt að hafa hárið slétt. Það minnir heldur
á trúð en fágaða dömu að láta krullað hár stingast í allar áttir und-
an túrban. Annað vandamál er að ef maður er búinn að setja túrb-
aninn upp er erfitt að taka hann niður sama dag án þess að vera
með klesst hár. Nauðsynlegt er því að nota hann einnig innandyra.
Líka þarf að velja einföld en fáguð föt við túrbaninn. Helst eitt-
hvað nútímalegt svo útkoman sé ekki eins og maður sé á leiðinni í
grímuball í anda fimmta áratugarins. Takmarkið er auðvitað að
verða meira eins og nútíma Grace Kelly frekar en gömul kona.
ingarun@mbl.is
Töff Nútímaleg
og töff sam-
setning í flott-
um litum í vor-
línu Miucciu
Prada.
Reuters
Grænt Þessi smaragðsgræni túrban heldur
kannski hita á fyrirsætunni.
Nútímalegt Blanda af túrban og derhúfu í
vorlínu Marc Jacobs.
Algjör höfuðverkur
Fyrirsætur Miucciu
Prada voru með
túrbana á höfði á
vortískusýningu
hennar í Mílanó.
Inga Rún Sigurð-
ardóttir veltir fyrir
sér hvort höfuðfatið
virki utan sýning-
arpallanna á venju-
legum konum.
Með slaufu Jennifer Lopez skart-
aði einhvers konar túrban á MTV
verðlaunahátíð í New York í fyrra.
Sætt og sumarlegt Guli liturinn er sumarlegur og fer
dönsku fyrirsætunni Freju Beha vel.
daglegtlíf
Einstakt er fylgjast með páska-
haldi í Jerúsalem. Séra Hjörtur
Magni Jóhannsson upplifði há-
tíðina í borginni helgu. » 34
jerúsalem
Í Benín er helmingur íbúa vúdú-
trúar. Eliza Reid var viðstödd
krýningu Tomadljehoukpons II
Metogbokandjis. » 28
galdur í afríku
Kaþólski presturinn séra Hub-
ert Oremus kom til Íslands fyrir
29 árum. Maó kom í veg fyrir að
hann yrði trúboði í Kína. » 30
lífshlaup
Hólmur er Sverri Valdimarssyni
allt. Þar hefur hann búið mest
alla sína ævi og gætir merkra
minja um horfna tíð. » 22
svipmynd
Ef túrban er valinn er
allavega mikilvægt að
hafa hárið slétt. Það
minnir heldur á trúð en
fágaða dömu að láta
krullað hár stingast í
allar áttir undan túrban.