Morgunblaðið - 08.04.2007, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.04.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 37 HÖRPUGATA – 101 REYKJAVÍK Húsið er klætt timburhús, sem er samtals skráð 131,6 fm, skiptist í hæð, ris og kjallara en þar er 2ja herb. Íbúð/útleigumöguleik- ar. Húsið stendur á 317,0 fm eignarlóð. Verð 39,9 millj. NORÐURBRÚN – 104 REYKJAVÍK 5-6 herb. efri sérhæð ásamt bíl- skúr í Laugarneshverfi. Íbúðin er 130 fm, bílskúr 24,1 fm og geymsla 12 fm. samtals 166,1 fm. Verð 36,8 millj. DALSEL – 109 REYKJAVÍK 5 herb. raðhús, 2 hæðir og kjall- ari, ásamt stæði í lokaðri bíla- geymslu, samtals 242,5 fm. 2ja herb. íbúð í kjallara/útleigu- möguleiki. Stæði í bílageymslu er 31,3 fm. Verð 40,9 millj. LÆKJASMÁRI – 200 KÓPAVOGUR 2ja-3ja herb. 94,5 fm íbúð ásamt stæði í bílageymslu, sam- tals birt stærð 121,8 fm. Íbúðin er á 8. hæð (efsta hæð) í mjög snyrtilegu lyftuhúsi. Útsýni. Verð 26,9 millj. HRAUNBÆR – 110 REYKJAVÍK 4ra herb. íbúð, samtals 103,2 fm. Íbúð á 3. hæð. Íbúðin er vel skipulögð og smekklega inn- réttuð. Þvottahús og geymsla inn- af eldhúsi. Eldhús með nýlegri innréttingu. Verð 22,8 millj. Vantar allar gerðir eigna í sölumeðferð - fagleg og traust þjónusta Virk kaupendaskrá - Frí söluskoðun - www.nyttheimili.is/skodun NÝTT HEIMILI - FYRIR ÞIG Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. faste ignasal i Starfsfólk Húsavíkur fasteignasölu óskar viðskiptavinum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra páska. Í FRAMHALDI af tilkynningu um stofnun Íslandshreyfing- arinnar lét formaður bráða- birgðastjórnar flokksins, Ómar Ragnarsson, hafa eftir sér að betra væri að fara leið Finna við atvinnuuppbyggingu en þá leið sem Íslendingar hefðu fetað á síð- ustu árum. Voru orðin „finnska undrið“ nefnd í þessu sambandi. Rétt er að Finnar hafa með ár- angursríkum hætti byggt upp at- vinnu í kringum hátækni á síð- ustu árum. Sú atvinnuuppbygging krefst hins vegar raforku með nákvæmlega sama hætti og önnur atvinnu- uppbygging. Í ljósi þeirrar umræðu sem hér hefur verið uppi á síðustu miss- erum um stöðvun framkvæmda bæði við stóriðju og virkjanir er áhugavert að velta fyrir sér hvaða leið Finnar hafa farið við öflun þeirrar orku sem nauðsynleg er til atvinnuuppbyggingar. Til að knýja áfram „finnska undrið“ byggja Finnar nú 1600 MW kjarnorkuver sem tekið verður í notkun árið 2009. Enn fremur huga þeir að frekari upp- byggingu kjarnorkuvera og gas- drifinna raforkuvera til að full- nægja raforkuþörf sinni. Er það sú umhverfisvæna leið sem forsvarsmenn Íslandshreyf- ingarinnar vilja fara? Ef svo er – er óskað eftir tillögum frá þeim sömu aðilum um staðsetningu slíkra kjarnorkuvera. Árni M. Mathiesen Finnska undrið – umhverfisvæn leið? Höfundur er fjármálaráðherra. VILDARKORT frá Hafnarfjarðarbæ hafa nú borist til íbúa bæj- arins sem fæddir eru árið 1940 og fyrr. Mánudaginn 5. mars sl. bauð bæjarstjórn Hafnarfjaðar Öldung- aráði ásamt Félagi eldri borgara til fundar í Byggðasafni Hafn- arfjarðar, Pakkhúsinu við Vest- urgötu. Efni fundarins var að kynna vildarkort til Hafnfirðinga 67 ára og eldri. Tilgangur kortsins er að hvetja þennan aldurshóp og gera honum frekar kleift að taka þátt í íþrótta-, félags- og forvarnarstarfi óháð efnahag. Þannig er hreysti og heilbrigði, bæði líkamlega og fé- lagslega, aukið meðal eldri bæj- arbúa. Bæjarstjórinn, Lúðvík Geirs- son, skrifaði undir samninga við eftirfarandi aðila: Íþróttabandalag Hafnarfjarðar sem hefur 16 félög í sínum hópi. Tómstunda- bandalagið með 6 fé- lög. Heilsuræktarstöðv- arnar Hress og Techno-sport. Sjúkraþjálfarann Strandgötu og Nau- tilus Suðurbæjarlaug. Á ofantöldum stöð- um er niðurgreiðsla Vildarkortsins tvö þús- und krónur á mánuði. Gegn framvísun Vildarkortsins fá eldri borgarar afhenta strætómiða í Þjónustuveri bæjarins að Strand- götu 6. Eftir sem áður verður ókeypis í söfn bæjarins, sundlaug- arnar og bókasafnið þar sem gott er að setjast niður og lesa nýjustu blöðin yfir kaffibolla og velja af- þreyingarefni til að fara með heim. Á stjórnarfundi Öldungaráðs Hafnarfjarðar sem haldinn var í Hafnarborg 21. mars sl. var eft- irfarandi bókun samþykkt sam- hljóða: „Stjórnin þakkar það frumkvæði sem Hafnarfjarðarbær hefur sýnt eldra fólki í Hafnarfirði með því að koma til móts við það með þeim hætti sem Vildarkortið býður upp á. Vildarkortið mun auðvelda fólki 67 ára og eldra að taka þátt í heilsu- eflingu og menningarviðburðum, auk þess sem ókeypis í strætó mun auðvelda mörgum að ferðast milli staða. Stjórnin lýsir ánægju sinni með að Hafnarfjörður skuli fyrst sveitar- félaga gefa út Vildarkort til eldra fólks og sýna því í verki bæði velvild og virðingu.“ Hvet ég fólk til að vera duglegt að nýta Vildarkortin til heilsuefl- ingar og ánægju. Erna Fríða Berg fjallar um Vildar- kort í Hafnarfirði Erna Fríða Berg »Hvet ég fólk til aðvera duglegt að nýta Vildarkortin til heilsu- eflingar og ánægju. Höfundur er formaður Öldungaráðs Hafnarfjarðar. Vildarkort fyrir 67 ára og eldri í Hafnarfirði Í MÍNU sveitarfélagi eru tæplega 7% íbúanna með erlent ríkisfang, þ.e. aðeins yfir landsmeðaltali. Þangað hefur líka flutt fólk að vestan og aust- an, jafnvel að sunnan. Flestir eiga líka ættingja og vini annars staðar, bæði í öðrum héruðum og í öðrum löndum. Unga fólkið fer til útlanda til lengri eða skemmri dvalar, til náms eða vinnu, og margir inn- fæddir hafa í gegnum tíðina flutt á önnur landshorn til að freista gæfunnar. Þessi blönd- un er að mestu vand- ræðalaus. Við erum öll fólk sem vill fá að lifa í friði við guð og menn. Stofnanir í sveitarfélögunum, í sam- vinnu við atvinnurekendur, leysa þau mál sem þarf að leysa hvort sem fólk- ið er komið lengra að eða skemmra. Blóraböggullinn fundinn Það sagði mér skólastjóri sem stýrir stórum skóla þar sem hátt hlutfall nemenda er af erlendum uppruna að hann hefði aldrei orðið var við kynþáttafordóma í sínum skóla fyrr en sl. haust, eftir að Jón Magnússon birti grein sína ,,Ísland fyrir Íslendinga“. Í kjölfar þess var farið að abbast uppá nemendur sem annað hvort höfðu dekkri litarhátt eða hétu nýstárlegum nöfnum. Einu gilti þótt viðkomandi barn hefði verið ættleitt til Íslands ungt að árum. Gerendur voru í flestum tilfellum börn sem komu frá brotnum heim- ilum. Allt í einu var komin skýring á því fyrir þau af hverju pabbi eða mamma voru ekki í vinnu eða gátu ekki uppfyllt væntingar. Blórabögg- ullinn var fundinn. Flest þau sem vinna við það að leysa mál, hvort sem eru Íslendingar eða útlendingar, ræða um fólk af virðingu og skilningi á þeim marg- breytileika sem gerir lífið skemmti- legt. Það hefur líka komið fram hjá þeim sem vinna að aðlögun þess fólks sem lengst er að komið í okkar sam- félag að fram undir þetta hafi sú að- lögun gengið vel. Nú sé þetta hins- vegar að breytast. Nú kveði við nýjan tón. Talsmenn Frjálslynda flokksins segjast vilja ræða málefni útlend- inga. Sú umræða sem verið hefur er þeim ekki þóknanleg. Þeir vilja tengja aðkomufólkið við sjúkdóma og glæpi og eyðileggingu velferð- arkerfis og kjarasamninga. Allt hef- ur þetta heyrst áður, bæði hér og annars staðar, bæði fyrr og nú. Tengingar af þessu tagi hafa hrundið af stað skelfilegum styrjöldum og ,,þjóðernishreins- unum“. Þessar teng- ingar eru á öllum tím- um notaðar af ófyrirleitnum og ábyrgðarlausum stjórn- málamönnum. Það er umræða af þessu tagi sem skapar vandamálin en leysir engin. Að spila á ótta við ,,hina“ Ef til vill finnst ein- hverjum ástæðulaust að taka orðræðu Frjáls- lyndra alvarlega. Og sjálfsagt finnst líka einhverjum samlíking við nas- isma eða þjóðernishreinsanir óþörf. Þetta er jú Ísland. Staðreyndin er hins vegar sú að hjörtunum svipar saman og það sem veldur ugg á ein- um stað virkar líka annars staðar. Óttinn við hið óþekkta er sammann- legur og allir vilja vernda samfélag sitt og afkomendur. Það vita a.m.k. þeir sem notfæra sér það í stjórn- málabaráttu að kalla fram ótta við ,,hina“, og ná allt of oft árangri eins og blóði drifin sagan af átökum fólks af mismunandi uppruna, jafnvel bara síns úr hvoru héraðinu, jafnvel meðal menntaðra Evrópubúa á síðari árum, sýnir og sannar. Sá árangur sem Frjálslyndir ná með sínum málflutningi hér á Íslandi ræðst ekki síst af viðbrögðum ann- arra stjórnmálaflokka og fjölmiðla. Þótt við skömmumst okkar fyrir mál- flutning þeirra skulum við ekki þegja. Það á sagan líka að hafa kennt okkur. Frjálslyndi flokkurinn á ískyggilegum slóðum Svanfríður Jónasdóttir skrifar um málflutning Frjálslyndra » Þessar tengingar eruá öllum tímum not- aðar af ófyrirleitnum og ábyrgðarlausum stjórn- málamönnum Svanfríður Jónasdóttir Höfundur er bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.