Morgunblaðið - 08.04.2007, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hafdís Hanna Ægisdóttirer líffræðingur frá Há-skóla Íslands. Meist-araverkefnið hennar,
sem hún vann við líffræðiskor HÍ
undir handleiðslu Þóru Ellenar Þór-
hallsdóttur, prófessors í grasafræði,
var hluti af stærra samnorrænu
verkefni sem leitaði svara við hvern-
ig heimskautaplöntur svöruðu
snöggum umhverfisbreytingum.
„Við vorum sex meistaranemar
sem unnum að þessu verkefni; tveir
frá Íslandi, tveir frá Kaupmanna-
höfn og tveir frá Osló. Gagnasöfn-
unin fól í sér ferðalög til spennandi
staða á Grænlandi, Svalbarða sem
og á Tröllaskaga og á norðanverðum
Vestfjörðum. Vegna þessara sam-
norrænu tengsla fékk ég tækifæri til
að vinna hluta af meistaverkefninu
mínu við Kaupmannahafnarháskóla.
Ég bjó í Kaupmannahöfn í tvo vetur
og var það mjög skemmtilegur tími.
Þar leiðbeindi mér dr. Marianne
Philipp sem er dósent við Kaup-
mannahafnarháskóla. Ég útskrifaðst
með MS-gráðu í júní 2003 og flutti
tveimur vikum síðar til Basel í Sviss
til að hefja doktorsnám í vistfræði al-
paplantna. Síðastliðin þrjú sumur
hef ég því fengið tækifæri til að
ferðast um svissnesku Alpana þvera
og endilanga.
Rannsakar æxlunarkerfi
plantna
Alla tíð síðan ég bjó í Kaupmanna-
höfn hef ég haldið góðu sambandi við
fólkið sem ég vann með þegar ég
stundaði þar nám. Á síðasta ári hafði
Marianne Philipp samband við mig
og bauð mér að taka þátt í fimm
vikna vísindaleiðangri til Galápagos-
eyja núna í febrúar og mars. Ég
gerði mér strax grein fyrir því að
þetta væri alveg einstakt tækifæri
og tók boðinu.
Þessi vísindaleiðangur var hluti af
mjög svo metnaðarfullum dönskum
leiðangri sem farið hefur um öll
heimsins höf síðustu átta mánuði.
Leiðangurinn kallast Galathea 3
(www.galathea3.dk) og skipið sem
notað var til að flytja vísindamenn,
fjölmiðlamenn og stúdenta á milli
landa og heimsálfa var gamla varð-
skipið Vædderen sem er Íslend-
ingum að góðu kunnugt eftir að það
kom með handritin til Íslands árið
1971.
Leiðangurinn sem ég tók þátt í til
Galápagoseyja er eitt margra verk-
efna innan Galathea 3-verkefnisins.
Hann var það sem kallast stað-
bundið verkefni, þ.e.a.s. við stund-
uðum allar okkar rannsóknir á eyj-
unum en sigldum ekki með skipinu á
milli landa eins og sumir vís-
indamenn gerðu.“
Hafdís Hanna var spurð hvað hún
væri aðallega að rannsaka á
Galápagoseyjum.
„Á Galápagoseyjum rannsökuðum
við þróun æxlunarkerfa hjá plöntum
sem dreifst hafa þangað frá meg-
inlandi S-Ameríku, t.a.m. Ekvador
eða Perú. Vegna einangrunar sinnar
frá meginlandi Suður-Ameríku – en
þær eru um 1000 km frá strönd
Ekvador – og landfræðilegrar legu
eru Galápagoseyjar einkar vel til
þess fallnar að skoða þróun lífvera.
Á fáum stöðum í heiminum má jafn-
glöggt sjá hvernig lífverur hafa að-
lagast ólíkum aðstæðum.
Það var einmitt á Galápagoseyjum
sem Charles Darwin fékk innblást-
urinn að hugmyndum sínum um þró-
un lífvera sem síðar urðu að þróun-
arkenningunni. Má í þessu samhengi
nefna finkur Darwins sem oft eru
teknar sem dæmi í líffræðikennslu.
Finkur á eyjunum skiptast í nokkrar
tegundir sem aðlagast hafa ólíku
fæðuvali. Tegundirnar sem þekkja
má í sundur af mismunandi löguðu
nefi eru taldar eiga sér sameig-
inlegan forföður.
Eyjarnar eru helst þekktar fyrir
sérstætt dýralíf; risaskjaldbökur,
fornaldarlegar eðlur og fugla. Flór-
an á eyjunum er ekkert síður merki-
leg þótt hún sé minna þekkt og er
hún mjög áhugaverð m.t.t. þróunar-
og vistfræðirannsókna.
Tilgangur verkefnisins var að
kanna hvort sjálfsófrjósamar plöntu-
tegundir – þ.e. plöntur sem ekki geta
frjóvgað sig sjálfar – sem dreifst
hafa frá meginlandi Suður-Ameríku
til Galápagoseyja hafi þróast í þá átt
að geta frjóvgað sig sjálfar. Það er
kostur fyrir plöntu sem nemur land
á fjarlægri eyju að geta frjóvgað
sjálfa sig þar sem aðrir einstaklingar
sömu plöntutegundar eru alla jafna
fáir eða engir fyrst í stað. Þetta er
ástæða þess að margar plöntuteg-
undir sem numið hafa land á ein-
angruðum eyjum hafa þróað með sér
þann hæfileika að geta frjóvgað sig
sjálfar. Æxlunarkerfi þessara
plantna er því oft öðruvísi en hjá
plöntum sömu tegundar sem vaxa í
stærri stofnum á meginútbreiðslu-
svæði plöntutegundarinnar (t.a.m. í
tilfelli Galápagoseyja – á meginlandi
S-Ameríku). Niðurstöður rannsókna
okkar munu vonandi geta varpað
ljósi á þróun æxlunarkerfa hjá
plöntum en rannsóknir á æxl-
unarkerfum plantna eru mjög nær-
tæk aðferð til að rannsaka og skilja
þróun þeirra á einangruðum stöð-
um.“
Reyna að verja þetta
einstaka vistkerfi
Hafdís Hanna var spurð hvort það
væru ekki forréttindi að rannsaka
lífríki á þessum einstaka stað.
„Jú, ég held að Galápagoseyjar
hljóti að vera draumastaður flestra
náttúrufræðinga. Eins og ég sagði
áðan var það þar sem Darwin fékk
innblásturinn að hugmyndinni um
náttúruval, þ.e.a.s. að sá hæfasti lifi
af. Þessar hugmyndir urðu síðar
grundvöllur þróunarkenningarinnar
sem kom fyrir almenningssjónir í
tímamótariti hans „Uppruna teg-
undanna“ árið 1859. Þegar mér var
boðið að taka þátt í þessum leiðangri
vissi ég að ég gæti ekki látið mér
þetta tækifæri úr greipum ganga.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
eyjum, lífríki þeirra, vistfræði og
þróun einangraðra tegunda.
Sem vísindamaður hafði ég tæki-
færi á að kynnast lífríki þeirra mun
betur í gegnum rannsóknirnar auk
þess að fá leyfi til að fara inn á svæði
sem lokuð eru ferðamönnum.“
Hvernig er staða mála á eyjunum?
Stafar umhverfinu engin hætta af
ferðamönnum eða öðru utanaðkom-
andi áreiti?
„Staða umhverfismála á eyjunum
er að mörgu leyti góð en þó fara eyj-
arnar ekki varhluta af þeim vanda-
málum sem hrjá aðra staði í heim-
inum. Það má í raun segja að
umhverfisvandamál þar séu eins og
smækkuð mynd af hnattrænum um-
hverfisvandamálum. Innfluttum
dýra- og plöntutegundum fjölgar,
mengunarslys hafa orðið og El Niño-
veðurfyrirbrigðið, sem hefur mikil
áhrif á lífríki hafsins við eyjarnar, er
talið hafa eflst vegna aukinna
gróðurhúsaáhrifa. Allt eru þetta
vandamál sem raskað hafa jafnvæg-
inu í lífríkinu og ekki er ljóst hverjar
endanlegar afleiðingar þeirra verða.
Galápagoseyjar tilheyra Ekvador
og hafa verið þjóðgarður frá árinu
1959. Langstærstur hluti eyjanna
eða 97 % tilheyra þjóðgarðinum.
Ferðamönnum hefur fjölgað mjög á
síðustu árum og áratugum og nú
koma yfir 100.000 gestir þangað ár-
lega. Þessari miklu aukningu ferða-
manna hefur fylgt straumur fólks frá
Ekvador sem flust hefur til eyjanna í
von um betra líf við að þjónusta
ferðamennina. Fólksfjöldi á eyj-
unum hefur því tífaldast á síðustu 30
árum.
Þrátt fyrir að starfsfólk þjóð-
garðsins reyni eftir fremsta megni
að fylgjast með að engar framandi
dýra- og plöntutegundir komi til
eyjanna er nær vonlaust að skoða
alla gáma, farangur o.s.frv. Fram-
andi lífríki hefur því stundum komist
framhjá þjóðgarðsvörðunum og gert
nokkurn usla á sumum svæðum.
Sums staðar hafa framandi plöntu-
tegundir kæft náttúrulegan gróður
og framandi dýr grafið undan lífsvið-
urværi þeirra dýra sem fyrir eru á
eyjunum. Auknum fólksfjölda fylgir
náttúrlega aukin vatnsnotkun, elds-
neytisnotkun og úrgangur sem erfitt
er að takmarka.
Þeir ferðamenn sem fara til Gal-
ápagoseyja eru langflestir nátt-
úruskoðendur sem gera sér grein
fyrir því hve lífríki eyjanna er við-
kvæmt. Einnig er aðgengi ferða-
manna takmarkað að mörgu leyti.
Ferðamenn mega ekki heimsækja
allar eyjarnar og á sumum þeirra
mega þeir bara fara í land á einum
stað og þá aðeins með leið-
sögumönnum þjóðgarðsins. Þetta
fyrirkomulag tryggir að rask ferða-
manna verður eins lítið og mögulegt
er. Því má einnig bæta við að fólk
sem fær sérstakt leyfi til að fara inn
á svæði sem annars eru lokuð (s.s.
vísindamenn, kvikmyndagerð-
armenn o.s.frv.) fara í gegnum mjög
strangt ferli áður en þeim er hleypt í
land. Allur farangur, þó sérstaklega
föt og skór, er grandskoðaður til að
tryggja að engin fræ eða dýr slæðist
með.
Þjóðgarðsstarfsmenn sem og
starfsmenn rannsóknarmiðstöðvar
eyjanna, sem kennd er við Charles
Darwin, hafa einnig unnið mjög gott
starf við að útrýma framandi dýra-
og plöntutegunum sem fluttar hafa
verið viljandi eða óviljandi til
eyjanna síðustu áratugi og aldir.
Stærsta vandamál síðustu ára hafa
verið geitur sem sjómenn slepptu í
land í nokkrar eyjar á 19. öld. Geit-
urnar áttu sér enga náttúrulega
óvini og fjölguðu sér úr hófi fram.
Ofbeit af þeirra völdum ógnaði m.a.
lífsviðurværi risaskjaldbakna sem
einnig eru grasbítar. Á síðustu árum
hefur tekist að útrýma geitum af
mörgum eyjanna.“
Hvað tekur við hjá þér þegar
þessu verkefni er lokið?
„Nú tekur við hjá mér að klára
doktorsritgerðina mína sem ég
stefni á að skila hér í Basel snemm-
sumars. Ég þarf því að snúa mér frá
hitabeltisplöntum í bili og hugsa um
vistfræði alpaplantna.“
„Galápagoseyjar eru
draumastaður flestra
náttúrufræðinga“
GALÁPAGOSEYJAR hafa ekki varið varhluta af útrýmingu tegunda. Fyrr
á öldum var afar vinsælt af sjómönnum að taka mér sér skjaldbökur um
borð í skip sín enda töldust þær herramannsmatur og kjötið hélst lengi
ferskt á langri siglingu. Þetta olli því að sumar skjaldbökuundirtegundir
dóu út. Eitt frægasta dæmið er risaskjaldbakan „Einmana Georg“ (Lone-
some George) sem fannst á eyjunni Pintu (Isla Pinta) í Galápagoseyjaklas-
anum árið 1972. Talið hafði verið að öllum risaskjaldbökum hefði verið út-
rýmt af eyjunni en þetta eina karldýr vakti von um að hægt yrði að bjarga
þessari undirtegund. Þrátt fyrir mikla leit hefur ekki fundist kvendýr af
sömu undirtegund til að makast við Georg og því kallast hann „Einmana
Georg“. Það eru því allar líkur á því að „Einmana Georg“ sé eina eftirlif-
andi risaskjaldbakan af þeirri undirtegund sem lifði á eyjunni Pintu og að
með honum deyi hún út.
„Einmana Georg“
Ljósmynd/Hafdís Hanna
Einn Risaskjaldbakan „Einmana Georg“ er síðasta eftirlifandi risaskjald-
bakan af undirtegund sem lifði á eyjunni Pintu í Galápagoseyjaklasanum.
Hafdís Hanna Æg-
isdóttir líffræðingur
hefur í vetur stundað
rannsóknir á Galápag-
oseyjum. Lífríki þar er
einstakt og greip hún
tækifærið fegins hendi
þegar henni bauðst að
fara þangað. Egill
Ólafsson ræddi við
Hafdísi Hönnu.
Eldgosaeyjar Hafdís Hanna Ægisdóttir líffræðingur situr á helluhrauni á
Galáposaeyjum. Eyjarnar urðu allar til vegna eldgosa.
Sjaldgæfar Sækembur í sólbaði. Þessar eðlur finnast aðeins á Galápagos-
eyjum og eru einu sæeðlurnar í heiminum.