Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 4
4 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í vorsólina við Alicante á hreint
ótrúlegum kjörum. Allra síðustu sætin á frábæru tilboði. Þú kaupir tvö
flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt. Úrval gistimöguleika á Benidorm í boði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
2 fyrir 1 til
Alicante
13. apríl
frá kr. 9.990
Allra síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2
fyrir 1 tilboð. Út 13. apríl og heim 9. maí.
Netverð á mann.
Verð kr. 9.990
Flugsæti aðra leið með sköttum, m.v. 2 fyrir
1 tilboð frá KEF 13. apríl.
Netverð á mann.
RÚMLEGA 55% landsmanna hafa
jákvætt viðhorf til Geirs H. Haarde,
forsætisráðherra og formanns Sjálf-
stæðisflokksins, en tæplega 19% eru
neikvæð gagnvart honum. Þetta kem-
ur m.a. fram í símakönnun sem Capa-
cent Gallup gerði dagana 28. mars til
2. apríl um viðhorf til formanna
stjórnmálaflokkanna. Samkvæmt
könnuninni er Geir sá formaður sem
nýtur mestra vinsælda og að auki eru
fæstir neikvæðir gagnvart honum.
Fleiri höfðu jákvæða afstöðu en
neikvæða gagnvart tveimur öðrum
formönnum stjórnmálaflokka; Stein-
grími J. Sigfússyni formanni Vinstri
grænna og Ómari Ragnarssyni for-
manni Íslandshreyfingarinnar. Stein-
grímur er sá formaður sem kemur
næstur Geir í vinsældum en jákvæði
gagnvart honum mældist rúm 50%.
Flestir neikvæðir gagnvart
Ingibjörgu Sólrúnu
Fleiri höfðu neikvæða afstöðu en
jákvæða gagnvart þremur formönn-
um stjórnmálaflokka; Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur, formanni Samfylk-
ingarinnar, Jóni Sigurðssyni, for-
manni Framsóknarflokksins, og Guð-
jóni A. Kristjánssyni, formanni
Frjálslynda flokksins.
Ingibjörg Sólrún er sá formaður
sem flestir voru neikvæðir gagnvart
eða rúm 50%.
Af þeim sem voru jákvæðir gagn-
vart Steingrími J. Sigfússyni kváðust
93% ætla að kjósa Vinstri græna og
rúm 93% þeirra sem voru jákvæðir
gagnvart Geir H. Haarde ætla að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Þá ætla
rúmlega 87% þeirra sem voru já-
kvæðir gagnvart Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur að kjósa Samfylkinguna.
Rúm 7% þeirra sem voru neikvæðir
gagnvart Jóni Sigurðssyni ætla að
kjósa Framsóknarflokkinn.
Rúmlega 58% þjóðarinnar eru
hlynnt því að hlé verði gert á frekari
stóriðju í landinu næstu fimm árin en
tæplega 33% þjóðarinnar eru því and-
víg. Rúmlega 66% kvenna eru hlynnt
hléi á stóriðju en tæp 49% karla.
Meirihluti kjósenda Sjálfstæðisflokks
er andvígur því að hlé verði gert á
stóriðju eða tæplega 52%. Þá eru
tæplega 45% kjósenda Framsóknar-
flokks andvíg hléi á stóriðju. Rúmlega
90% kjósenda Vinstri grænna eru
hlynnt því að hlé verði gert á stóriðju
og tæplega 74% kjósenda Samfylk-
ingarinnar.
Viðhorf til formanna stjórnmálaflokkanna og þess að hlé verði gert á áframhaldandi stóriðju
!!
!
!
!
!
!!
!
!!
!
!
! "
"#$"#%"&'(
"$" )*++,"&-(
".++,"&(
" /*"+/% "& (
"
++,"&0(
"1$"2+ ++,"&3(
!
!
!
!
!
!
#$%
&
'()
* (
+,-
#
+-
(.
+//0
1 &2
3 4 3
1 &2
$.2 4 $.2
! $.2 !
"
!!
#$%
&
'()
* (
+,-
#
+-
(.
+//0
!
!!
!
! !!
!
Geir nýtur mestra vinsælda
Könnunin var símakönnun og úrtakið var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Í
því voru 1230 manns á aldrinum 18 til 75 ára. Svarhlutfall var 62%.
ENGAN sakaði þegar eldur kom
upp í íbúð í fjölbýlishúsi við Seljaveg
á tólfta tímanum á föstudagskvöld.
Íbúar voru komnir út úr húsinu þeg-
ar slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
mætti á vettvang og gekk slökkvi-
starf vel. Eldurinn var staðbundinn
við eitt herbergi íbúðarinnar, sem
skemmdist mikið, auk þess sem frek-
ari skemmdir urðu af völdum sóts og
vatns. Eldsupptök eru ókunn og til
rannsóknar.
Erilsamt var á laugardagskvöld
og voru nánast linnulaus útköll fram
á nótt. Meðal annars kom upp eldur í
bifreið sem stóð á bílastæði við Flug-
vallaveg. Þar höfðu tveir menn verið
að sniffa gas og kveiktu sér í vind-
lingum í kjölfarið. Auk þess að
kveikja í bílnum brunnu þeir tölu-
vert á andliti og höndum og voru
fluttir á slysadeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss vegna atviksins.
Helst voru það þó sinueldar sem
þurfti að sinna, en þeir voru t.a.m.
kveiktir víða í Hafnarfirði. Þeir ollu
einnig slökkviliðinu á Suðurnesjum
vandræðum en um miðjan dag var
tilkynnt um mikinn sinueld í Ósa-
botnum í Reykjanesbæ skammt
norðan við Hafnavegi, og laust fyrir
miðnætti var kveikt í sinu við Bakka-
stíg í Reykjanesbæ og var eldurinn á
um tíu fermetra svæði.
Erill hjá slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins
Morgunblaðið/Júlíus
Eldur Slökkvistarf við Seljaveg.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
STJÓRNVÖLD í Íran vísuðu í gær á
bug frásögnum bresku sjóliðanna
sem sleppt var á fimmtudag eftir
nær tveggja vikna fangavist um að
þeir hefðu sætt stöðugum sálfræði-
legum þrýstingi og margvíslegu
harðræði í fangavistinni í Íran. Í yf-
irlýsingu utanríkisráðuneytisins í
Teheran sagði að „sviðsettar aðgerð-
ir af þessu tagi“ gætu ekki dulið mis-
tök sjóliðanna 15 sem hefðu með
ólöglegum hætti farið inn í íranska
lögsögu. Bretar fullyrða að sjólið-
arnir hafi verið í lögsögu Íraks.
„Við höfum gert okkar og sýnt
okkar góða vilja... nú er komið að
bresku stjórninni að bregðast við á
jákvæðan hátt,“ sagði sendiherra Ír-
ans í Bretlandi, Rasoul Movahedian,
í gær. Sjóliðarnir voru handteknir
rétt eftir að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti einum rómi að
herða verulega efnahagslegar refsi-
aðgerðir sínar gegn Íran fyrir að
verða ekki við tilmælum Alþjóða-
kjarnorkumálastofnunarinnar um að
stöðva tilraunir með auðgun úrans
sem hægt er að nota til sprengju-
gerðar. Bretar hafa ásamt Banda-
ríkjamönnum beitt sér ákaft gegn
Íran í málinu.
Einnig er bent á að Bandaríkja-
menn hafi enn í haldi fimm íranska
diplómata í Írak en mennirnir voru
sakaðir um að styðja þar uppreisn-
arsveitir.
Ef fullyrðingum Breta er trúað
um að ekki hafi verið farið inn í lög-
sögu Írans er hugsanlegt að ráða-
menn í Teheran hafi látið handtaka
sjóliðana til að nota þá sem skipti-
mynt. Þeir hafi viljað þvinga Breta
til að beita sér í máli diplómatanna.
Tímaritið The Economist segir að
Íranar hafi ef til vill talið of hættu-
legt að ráðast beinlínis gegn Banda-
ríkjamönnum en gert það óbeint
með þessum hætti. En þótt sjóliða-
deilan vekti úlfúð og ugg um að hún
væri upphafið að enn harðari deilum
og jafnvel átökum þykir samt ljóst
að nú hafi opnast eins konar sam-
skiptarás sem ríkin tvö geti reynt að
nýta sér í von um að leysa aðrar deil-
ur.
Fjölmiðlar í Bretlandi fögnuðu
ákaft þegar sjóliðarnir, 14 karlar og
ein kona, sneru heimleiðis á fimmtu-
dag. Yfirmaður breska flotans, sir
Jonathan Bond, hefur hrósað sjólið-
unum og sagt þá hafa farið að öllu
rétt að, bæði þegar skip þeirra var
stöðvað og eins í varðhaldinu. Fram-
koma þeirra hefði einkennst af
virðuleika og hugrekki en áður höfðu
heyrst gagnrýnisraddir þeirra sem
sögðu að sjóliðarnir og landgöngulið-
arnir hefðu átt að veita mótspyrnu.
Einnig var fundið að því að fólkið
skyldi í varðhaldinu koma fram í
írönsku sjónvarpi, viðurkenna þar
sekt sína og hrósa Írönum í hástert
fyrir góðan aðbúnað og mannúðlega
framkomu. En við yfirheyrslur eftir
heimkomuna sagðist fólkið hafa sætt
hótunum um að það myndi hljóta sjö
ára fangelsisdóm ef það játaði ekki,
allir hefðu verið hafðir í einangrun,
bundið hefði verið fyrir augu þeirra
og hendurnar bundnar fyrir aftan
bak. Ekki „kom til mála að veita
mótspyrnu“, segja sjóliðarnir.
Bresk blöð röktu meðal annars
frásögn eins landgönguliðans, Joe
Tindell. „Einn af landgönguliðunum
hélt að við færum fyrir aftökusveit
sem er skiljanlegt því að við heyrð-
um að byssuhanar voru spenntir fyr-
ir aftan okkur. Hann fleygði sér þess
vegna á gólfið og æpti „strákar, það
á að taka okkur af lífi“.
Íranar neita að hafa
beitt sjóliða harðræði
Fólkið segist hafa
sætt hótunum
Reuters
Léttir Einn af bresku landgönguliðunum sem Íranar handtóku, Adam
Sperry, með móður sinni, Söndru Sperry, á blaðamannafundi á föstudag.
Í HNOTSKURN
»Bátur sjóliðanna var send-ur til að kanna ferðir skips
sunnan við vatnaleiðina Shatt-
el-Arab við ósa fljótanna Efrat
og Tígris en vatnaleiðin skilur
á milli Íraks og Írans.
»Bretar segja sjóliðanahafa verið um 1,7 sjómílur
innan íraskrar lögsögu.
»Erlenda herliðið í Írak hef-ur heimild Sameinuðu
þjóðanna til að annast eftirlit á
þessum slóðum.