Morgunblaðið - 08.04.2007, Side 16
16 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
MIKILL tilfinningahiti hefur löngum
einkennt framgöngu hans. Og vísast
var það upplag, ásamt dirfsku, lygi-
legri rökvísi og óhaminni sköpunar-
gáfu, mikilvægur þáttur í snilli Garrís
K. Kasparovs við skákborðið. Heims-
meistarinn fyrrverandi berst nú á nýj-
um vígstöðvum, gerir hvað hann getur
til að auka skriðþunga sinn á vett-
vangi rússneskra stjórnmála m.a. með
því að styðja friðsöm mótmæli gegn
stjórn Vladímírs V. Pútíns forseta. Í
því efni er á brattann að sækja og víst
er að skýrar reglur manntaflsins gilda
ekki.
Íslenskur skákmeistari sagði eitt
sinn í samtali við ykkar einlægan að
sú reynsla að mæta Kasparov við
skákborðið líktist því einna helst að
verða fyrir vörubíl. Átti sú lýsing bæði
við stíl snillingins og „líkamstjáningu“
hans við skákborðið. Garrí Kasparov
bar höfuð og herðar yfir aðra skák-
meistara í tæpa tvo áratugi. Orkan,
sem maðurinn bjó yfir, virtist tak-
markalaus, og hugurinn frjáls og
óþægur. Hann var lítt gefinn fyrir að
taka við skipunum og eignaðist af
þeim sökum gagnrýnendur marga og
fjendur. Svo er enn.
„Lögregluríki“
Kasparov hætti þátttöku í skák-
mótum fyrir réttum tveimur árum.
Meistarinn boðaði að hann hygðist
snúa sér að stjórnmálum og ritstörf-
um. Ákvörðun Kasparovs kom tæpast
á óvart, hann hafði löngum verið póli-
tískur og gagnrýnt harðlega fram-
göngu ráðamanna í Rússlandi. Meist-
arinn hefur ef eitthvað er herst í
afstöðu sinni og þar ráða mestu
stjórnarhættir Pútíns forseta. Kasp-
arov og stuðningsmenn hans segja
forsetann hafa komið á „lögregluríki“
í Rússlandi og telja „aðgerðir“ rétt-
mætar til að berjast gegn þeirri þró-
un. Jafnframt hefur Kasparov gerst
einn helsti leiðtogi hreyfingar, sem
stjórnarandstaðan leitast nú við að
mynda. Um margt sýnast þau samtök
heldur undarleg.
Kasparov stofnaði „Sameinuðu
borgarafylkinguna“ (r. „Obíjedínjon-
níj Grazhdanskíj Front“) árið 2005 og
er yfirlýst markmið þeirra samtaka að
koma í veg fyrir að Rússland verði
einræðisríki á ný. Fylking Kasparovs
hefur nú runnið inn í eins konar regn-
hlífarsamtök andstæðinga Pútíns for-
seta er nefnast „Annað Rússland“ (r.
„Dríjgaja Rossíja“). Þar kennir ým-
issa grasa og Kasparov hefur sætt
harðri gagnrýni fyrir að hafa gengið
fram af lítilli yfirvegun í þessu efni.
Ekki er það í fyrsta skipti, sem því er
haldið fram að meistarinn búi ekki yf-
ir því raunsæi er nauðsynlegt sé að
hafa tiltækt við pólitískt stöðumat.
Innan Annars Rússlands má m.a.
finna svonefnda ný-kommúnista, sem
myndað hafa Verkamannaflokk Rúss-
lands, Bolsjevíska þjóðernisflokkinn,
sem einnig telst langt til vinstri, og
Lýðræðisbandalagið, frjálslyndan
flokk Míhaíls M. Kasjanovs, fyrrver-
andi forsætisráðherra, auk hreyfingar
Kasparovs, sem einkum sækir fylgi
sitt til ungs fólks. Kasparov segir í ný-
legu viðtali að hann vonist til þess að
Kommúnistaflokkurinn, sem enn er
nokkuð öflugur og telst helsti vett-
vangur stjórnarandstöðunnar, gangi
einnig til liðs við regnhlífarsamtökin.
Þetta er skrautlegur hópur og í
pólitískum efnum sýnist margt fallið
til að sundra honum. Vera kann á hinn
bóginn að raunsæislegt mat kalli
þetta fólk til samstarfs og að menn
reynist tilbúnir til að leggja helstu
ágreiningsmál til hliðar í því skyni að
tryggja breiðfylkingu gegn Pútín. Sú
er alltjent von Garrís Kasparovs.
Næsta verkefni Annars Rússlands
er að efna til þings, trúlega í júlímán-
uði, þar sem þess verður freistað að ná
samstöðu um frambjóðanda í forseta-
kosningunum í mars á næsta ári.
Kasparov kveður markmiðið vera að
þrýsta á stjórnvöld í því skyni að fallið
verði frá óumdeilanlegum áformum
Pútíns og undirsáta hans um að
ákveða hver arftaki hans verður. Pút-
ín má, samkvæmt stjórnarskrá Rúss-
lands, ekki bjóða sig fram í þriðja
skipti og hefur jafnan hafnað áköllum
þess efnis, að breyta beri því grund-
vallarplaggi til að rússneska þjóðin fái
áfram notið stjórnvisku hans. Forset-
inn nýtur að sönnu mikilla vinsælda
og víst er að hann og valdahóparnir,
sem myndast hafa um hann, hyggjast
stjórna því ferli öllu. Garrí Kasparov
segir markmið Annars Rússlands
vera að tryggja að fram fari frjálsar
forsetakosningar; áform forsetans og
manna hans séu enn ein sönnun þess
að sýndarlýðræði hafi verið komið á í
Rússlandi. Hann telur tilkomu nýrra
forréttindahópa og ört vaxandi ójöfn-
uð valda spennu í samfélaginu þótt á
yfirborðinu ríki kyrrð og stöðugleiki.
Krafan um frjálsar forsetakosningar
eigi vaxandi hljómgrunn á meðal
Rússa.
Ofsafengin viðbrögð
Kasparov hefur að sönnu valið sér
öfluga andstæðinga. Viðbrögð stjórn-
valda sýnast hins vegar gefa til kynna
að ráðamenn taki sérhverja birting-
armynd pólitískrar andstöðu mjög al-
varlega. Þetta vekur nokkra furðu;
engar líkur eru á að Kasparov og
samherjar hans fái nokkru breytt um
áform Pútíns og skósveina hans.
Skákmeistarinn telur framgöngu
stjórnvalda til marks um að ráða-
menn kunni bókstaflega ekki að
bregðast við lýðræðislegri andstöðu.
Þar ráði mestu að öll mótun þeirra
hafi farið fram í samfélagi einræðis og
kúgunar. „Lögregluríki“ Pútíns kalli
á ofsafengin viðbrögð valdhafa og lítt
yfirveguð.
Í þessu efni hlýtur greining Kasp-
arovs að vekja athygli.
Ólögleg mótmæli
Í byrjun marsmánaðar komu um
5.000 andstæðingar rússneskra
stjórnvalda saman í Sankti Péturs-
borg. Fólkið hrópaði „frelsi“ og
„Rússland án Pútíns“ er það braut
sér leið í gegnum varnarmúr óeirða-
lögreglu, sem kölluð hafði verið út.
Tugir manna voru handteknir. Kasp-
arov telur mótmælin hafa verið mik-
inn sigur og fullyrðir að rætt hafi um
fjölmennustu aðgerðir stjórnarand-
stöðunnar um langt skeið. „Í fyrsta
skipti í stjórnartíð Pútíns snerust
mótmælin ekki um tiltekið mál, hærri
eftirlaun, verðhækkanir á nauðsynj-
um eða hvaðeina. Mótmælin birtu al-
menna andstöðu við ríkisstjórnina,“
segir hann.
Hinn 24. fyrra mánaðar blésu and-
stæðingar forsetans einnig til mót-
mæla í borginni Nízníj Novgorod.
Lagt hafði verið bann við mótmæl-
unum en það hundsaði stjórnarand-
staðan. Óeirðalögregla beitti þyrlum
og háþrýstidælum gegn mótmælend-
um og tókst að koma í veg fyrir að
þeir næðu inn á aðaltorg borgarinnar.
Fólkið hrópaði „fasistar“ er svart-
klæddar sveitir óeirðalögreglu beittu
bareflum til að leysa samkunduna
upp.
Kasparov var í hópi þeirra er
skipulögðu mótmæli þessi. Þau fóru
fram þrátt fyrir að leyfi stjórnvalda
lægi ekki fyrir. Í ríki Pútíns er þessi
aðferðafræði Kasparovs afar áhættu-
söm.
Skákmeistarinn kveður leynilega
deild rússnesku öryggislögreglunnar,
FSB, hafa fengið það verkefni að
brjóta á bak aftur alla pólitíska and-
stöðu við stjórn Pútíns forseta. „Sam-
kvæmt þeim lögum sem nú gilda í
Rússlandi er unnt að skilgreina hvern
og einn sem öfgamann.“
Stöðumat Garrís Kasparovs reynd-
ist næsta óbrigðult við skákborðið. Í
pólitískum efnum er hann tæpast lík-
legur til stórafreka enda boðar hann í
raun byltingu í ríki Vladímírs Pútíns.
Meistarinn verður á hinn bóginn seint
vændur um hugleysi enda er tilfinn-
ingahitinn hinn sami og áður. Raun-
verulegar „umbætur“ munu koma
innan frá í Rússlandi og barátta
Kasparovs kann að reynast mikilvæg
þegar fram líða stundir.
REUTERS
Andstaða Reyksprengjur springa og táknum Sovétríkjanna sálugu er haldið á lofti í mótmælum í Sankti Pétursborg í byrjun marsmánaðar. Talið er að um 5.000 manns hafi tekið þátt í útifund-
inum, sem efnt var til í því skyni að mótmæla einræðislegum stjórnarháttum Vladímírs V. Pútíns Rússlandsforseta og skósveina hans. Samtökin „Annað Rússland" stóðu fyrir samkundunni.
Í HNOTSKURN
»Garrí Kímovítsj Kasparovfæddist 13. apríl 1963 í
Bakú í Aserbajdsjan.
»Kasparov sýndi barnungurmikla skákhæfileika og að-
eins 12 ára gamall varð hann
sovéskur ungmennameistari.
Hann varð heimsmeistari ung-
menna 16 ára og alþjóðlegur
stórmeistari ári síðar. Árið
1985 varð hann yngsti heims-
meistari skáksögunnar aðeins
22 ára gamall. Á ýmsu gekk
næstu 20 árin en Kasparov var
þá almennt talinn öflugastur
skákmanna. Í mars 2005 sneri
hann sér að stjórnmálum.
REUTERS
Ábyrgð Garrí Kasparov hefur ásamt öðrum tekið að sér það erfiða og
hættulega hlutverk að freista þess að sameina stjórnarandstöðuna.
Stöðumat Kasparovs
ERLENT»
Heimsmeistarinn fyrrverandi freistar þess að mynda breið-
fylkingu andstöðuafla gegn stjórn Pútíns Rússlandsforseta
Erlent | Enginn stóðst Garrí Kasparov snúning við skákborðið, en í refskák rússneskra stjórnmála bíður hans
erfiðara verkefni. Lífsstíll | Með hvaða ráðum er hægt að vera siðferðislega og samfélagslega ábyrgur í fatavali?
Knattspyrna | Knattspyrnufélagið AC Mílanó hefur tekið vísindin í sína þjónustu og önnur félög fylgjast forvitin með.
VIKUSPEGILL»