Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 34
34 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
PÁSKAHÁTÍÐIN
M
iðju jarðar er að finna
í gömlu Jerúsalem.
Því trúðu menn hér
áður fyrr að minnsta
kosti. Eftir að hafa
búið í borginni um tveggja ára skeið,
að vísu rétt utan borgarmúranna, þá
kemst maður aldrei frá henni aftur.
Sama hversu langt maður fer frá
henni landfræðilega eða í tíma; miðj-
an sleppir ekki takinu og togar mann
alltaf til baka. Rétt eins og að risa-
kjarnasegull leynist grafinn undir
sjálfri musterishæðinni.
Musterissvæðið er einmitt sjálf
miðja jarðar. Þar var húsnæði og
heimili sjálfs himnasmiðsins að finna
samkvæmt hinni fornu heimsmynd.
Þá sáu menn jörðina fyrir sér sem
flata pönnuköku sem hvíldi á fjórum
traustum undirstöðum. Jerúsalem
var í miðið. Síðan kom þurrlendið og
þær heimsálfur sem þekktar voru og
enn utar flæddu heimshöfin fram af
ystu brúnum.
Aðkoman að Jerúsalem frá Jaffa
við Miðjarðarhaf er einstök. Borgin
er tæpum níu hundruð metrum yfir
sjávarmáli en í aðeins klukkutíma
akstursfjarlægð. Vegurinn þangað
upp á milli ávalra og femínískra Jú-
deuhæða er hlaðinn spennu, lifandi
tilfinningum og einnig sögu biturra
átaka.
Það hefur verið barist um Jerúsal-
em í meira en þrjú þúsund ár. Þar má
nefna heri Jebúsíta, Hebrea/gyðinga,
Babíloníumanna, Persa, araba,
krossfaranna kristnu, Ottómansrík-
isins tyrkneska og breska heimsveld-
isins.
Innan borgarmúra
Þegar maður nálgast Borgina
helgu blasa borgarmúrarnir fyrst við
manni. Þeir eru að jafnaði um tólf
metrar á hæð og fjórir kílómetrar á
lengd allan hringinn. Sú miðja heims-
ins sem þeir umlykja er ekki nema
um einn og hálfur ferkílómetri að
stærð og þar búa um tuttugu til þrjá-
tíu þúsund manns í dag. Það eru sjö
nothæf borgarhlið á múrnum og þar
er Damaskushliðið tilkomumest. Sú-
leimann hinn mikli reisti nústand-
andi múra fyrir um 450 árum. En
þeir eru víðast hvar byggðir á mun
eldri undirstöðum. Á vissum svæðum
má finna grjótblokkir sem höggnar
voru á tímum Heródesar fyrir 2000
árum og jafnvel enn eldri en það, en
einnig frá tímum krossfaranna þús-
und árum síðar. En á vissum tímum
stóðu múrar mun utar og huldu
stærra svæði.
Þegar komið er inn um Jaffa-hliðið
blasir við manni heillandi torg fjöl-
breytilegrar mannlífsflóru. Þar
hljómar fjöldi tungumála, fjölbreyti-
legustu fulltrúa ólíklegustu trúar-
bragða er þar einnig að finna. Það er
auðvelt að gleyma sér á þröngum
götum borgarinnar þar sem öllu ægir
saman. Verslunarmennirnir eru há-
værir og ágengir og maður þarf að
kunna að prútta niður verð. Fyrir vit
manns ber angan ólíkra og framandi
kryddjurta, kaffið er sterkt og gott. Í
dag sér maður minna af úlföldum,
ösnum og geitum og er það miður.
Trúarleg fjölmenning
Gömlu borginni er formlega skipt í
fjögur svæði. Þegar inn er komið
blasir kristna hverfið við manni á
vinstri hönd. Það er að mestu búið
kristnum aröbum, sem og fulltrúum
hinna mörgu kirkjudeilda Austur-
kirkjunnar. Armenski hlutinn blasir
við manni á hægri hönd. Armenar
voru líklegast fyrstir allra til að taka
kristna trú sem þjóð. Nokkru áður
en Konstantínus keisari og móðir
hans Helena tóku kristna trú hófu
Armenar að flytjast til borgarinnar
helgu og hafa átt þar griðastað síðan.
Armenar hafa verið sannir vottar
Krists í borginni en um leið vitna þeir
um fjölbreytileika trúarinnar því að í
borginni eru einnig fjölmargir aðrir
kristnir fulltrúar sem vitna um aðra
siði, hefðir, túlkanir og trúarlegt at-
ferli innan kristninnar. Til að mynda
er hægt að halda bæði jól og páska í
borginni á a.m.k. þremur mismun-
andi tímum ársins, þar sem hinar
misjöfnu kirkjudeildir styðjast við
ólík almanök og tímatöl helgisiða.
En sá fjölbreytileiki sem hér er
lýst innan kristninnar er aðeins brot
af þeirri margvísandi trúarlífsflóru
hinnar stóru heildar sem þrjú ein-
gyðistrúarbrögðin mynda, þ.e.a.s.
gyðingdómur, kristni og íslam.
Systur hefðarinnar þrjár
Borgin geymir örlagasögu þessara
þriggja systra – eingyðistrúarhefða.
Í hugum trúaðra gyðinga er Jerú-
salem tvímælalaust helgasti staður á
jörðu. Davíð konungur gerði hana
höfuðborg ríkis síns og musteri Sal-
ómons og síðar Heródesar vitnuðu
um nærveru og velþóknun Guðs. Í
hugum gyðinga er Jerúsalem meira
en borg. Hún er þeim griðastaður
þar sem draumar og trúarleg fyr-
irheit rætast.
Gyðingdómur skiptist í alveg jafn-
margar ólíkar deildir og fylkingar og
kristnin gerir. Ef eitthvað er þá er
landslagið þar enn fjölbreytilegra og
oft á tíðum virðist það enn mótsagna-
kenndara en hjá okkur hinum
kristnu.
Í huga múslima er borgin þriðja
helgasta borg á jörðu á eftir Mekka
og Medína í Sádi-Arabíu.
Gullna hvelfingin á íslamska must-
erinu sem stendur á miðju must-
erissvæðinu er eitt helsta kennileiti
borgarinnar. Hún er einhver elsta og
fegursta bygging íslamskrar trúar-
hefðar og jafnvel þótt víðar væri leit-
að. Helgisögnin segir að einmitt þar
hafi Múhameð lagt upp í himnaför
sína. Þá er Al-Aqsa-moskuna einnig
að finna á suðurenda musterissvæð-
isins.
Múslimahlutinn er landfræðilega
langstærstur í borginni og múslím-
arnir eru flestallir arabar. Það merk-
ir ekki að allir arabar á svæðinu séu
múslímar en kristnum aröbum fer
því miður ört fækkandi á svæðinu.
Áður fyrr voru þeir fjölmargir og í
miklum meirihluta. Það er mjög mið-
ur því að það er líklegast af pólitísk-
um ástæðum sem sú fækkun hefur
átt sér stað. Samskonar þróun hefur
einnig átt sér stað á stöðum eins og
Betlehem og Nasaret þar sem
kristnir menn voru í miklum meiri-
hluta og hin kristna arfleifð gaf stöð-
unum sögulegt og trúarlegt vægi.
Í huga hinna kristnu er borgin sá
vettvangur þar sem Jesús lifði sínar
síðustu stundir á jörðu. Hin heilaga
Grafarkirkja vitnar allt í senn um
þjáningu hans og dauða á krossi sem
og upprisu hans frá dauðum á þriðja
degi.
Páskar kristinna
Það er einstök upplifun að taka
þátt í páskahaldi í borginni helgu þar
sem páskaundrið átti sér stað fyrir
tæpum 2000 árum.
Á pálmasunnudag má sjá litskrúð-
ugar og fjölmennar skrúðgöngur
syngjandi fólks hvaðanæva úr heim-
inum. Þetta eru pílagrímar frá öllum
heimsálfum sem og kristnir arabar
úr borginni og þorpunum í kring.
Fólkið streymir til borgarinnar og
margir veifa pálmagreinum eða ólífu-
viðargreinum, rétt eins og gert var
þegar Jesús kom á sínum tíma inn í
borgina, ríðandi á asna.
Fólkið gengur slóð Jesú frá Ólíf-
ufjallinu utan borgarmúranna og of-
an í Kidrondalinn, framhjá Getsem-
anegarðinum og inn um hlið gömlu
borgarinnar.
Fimmtudaginn fyrir páska er mik-
ið um dýrðir í öllum helstu kirkjum
borgarinnar þar sem kvöldmáltíð-
arsakramentið er haft um hönd. En á
skírdag er þess einmitt minnst þegar
Jesús neytti síðustu kvöldmáltíð-
arinnar með lærisveinum sínum og
bauð þeim að neyta slíkrar máltíðar
hvert sinn sem þeir kæmu saman í
hans nafni.
Á föstudaginn langa má sjá fjölda
fólks fara í hópum um þröng stræti
gömlu borgarinnar. Það fetar kross-
ferli Krists og fer eftir vegi sorg-
arinnar þ.e.a.s. þá leið sem talið er að
Jesús hafi þurft að ganga með kross-
inn. Bornir eru krossar af ýmsum
stærðum og gerðum og á tilteknum
stöðum er stoppað til að lesa úr písl-
arsögunni, biðja eða syngja.
Ljósið eilífa
Klukkustund fyrir dögun á páska-
dagsmorgun er slökkt á öllum ljós-
kerum í hinni stóru Grafarkirkju í
Ljósmynd/Hjörtur Magni
Verslað í matinn Verslunarmennirnir eru háværir og ágeng-
ir og því er gott að kunna að prútta.
Rabb Tveir strarngtrúaðir gyðingar spjalla
saman við bænagjörð.
Gamla Jerúsalem á páskum
Páskarnir eru helgasta
hátíð gyðingdóms og
kristni. Séra Hjörtur
Magni Jóhannsson
segir það einstaka upp-
lifun að taka þátt í
páskahaldi í borginni
helgu þar sem páska-
undrið átti sér stað fyr-
ir tæpum 2000 árum.
» Í gyðing-kristnu
páskahaldi er spilað á
marga sameiginlega
strengi sem hafa hljóm-
að lengi, bæði meðal
gyðinga og kristinna
manna, reyndar í þús-
undir ára.
Viðkvæmt svæði Í bakgrunni er grátmúrinn og gullna hvelfingin á musterissvæðinu. En í forgrunni er göngubrú
sem liggur upp á musterissvæðið og fornleifauppgröftur er í gangi við undirstöður brúarinnar. Í febrúar síðast-
liðnum munaði minnstu að átök brytust út á svæðinu vegna þess að hreyft var við undirstöðum brúarinnar í því skyni
að styrkja þær. En það var gert í leyfisleysi og þess vegna brutust út mikil mótmæli víða um hinn arabíska heim.
Damaskushliðið Undir hliðinu er nú mikill fornleifauppgröftur.
Í borginni helgu Hjörtur Magni og kona hans Ebba Margrét Magnúsdóttir
á múrum Jerúsalemborgar.
»En sá fjölbreytileiki
sem hér er lýst innan
kristninnar er aðeins
brot af þeirri margvís-
andi trúarlífsflóru hinn-
ar stóru heildar sem
þrjú eingyðistrúar-
brögðin mynda, þ.e.a.s.
gyðingdómur, kristni og
íslam.