Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 44
44 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Minningarkort
588 9390
www.throskahjalp.is
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% ✝
Elskulegu vinir og vandamenn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát
okkar kæra
KRISTJÁNS HAFLIÐASONAR,
Funalind 13.
Helga Wíum Karlsdóttir,
Elínborg Kristjánsdóttir, Kristinn Kristinsson,
Kristján Viktor og Helga.
✝
Innilegar þakkir til þeirra er sýndu okkur samúð og
vináttu við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR J. INGIMUNDARDÓTTUR
frá Efri-Ey.
Halla Jónsdóttir, Magnús Emilsson,
Sunnefa Jónsdóttir, Ólafur Einarsson,
Árni H. Jónsson, Guðlaug B. Olsen,
Svavar Jónsson, Fjóla Þorvaldsdóttir,
Eygló Jónsdóttir, Jón Ingvar Pálsson,
Ómar Jónsson, Fanney Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRUNNAR INGUNNAR ÞORSTEINSDÓTTUR,
Gullsmára 5,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Sunnhlíðar.
Þorsteinn W. Guðmundsson,
Freyja María Þorsteinsdóttir,
Sveinn Þorsteinsson, Bylgja Þorvarðardóttir,
Þuríður Elísa Þorsteinsdóttir, Kolbeinn I. Birgisson,
Kristrún S. Þorsteinsdóttir, Sigurjón Þ. Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þótt við Sveinn vær-
um bræðrasynir var
aldursmunur mikill
milli okkar. Þannig að
þegar ég loksins fædd-
ist var Sveinn búinn að upplifa þá
tíma þegar hið nýja Ísland var byggt
úr frumstæðu þjóðfélagi millistríðs-
áranna. Hann tók þátt í því. Hann
Sveinn Einarsson
✝ Sveinn Ein-arsson fæddist í
Efri-Gróf í Vill-
ingaholtshreppi 5.
nóvember 1922.
Hann lést á Selfossi
28. febrúar síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Sel-
fosskirkju 10. mars.
vann við að leggja
hitaveituna í Reykja-
vík. Hann vann í svo-
kallaðri Bretavinnu og
hann var um tíma
vinnumaður á kúa-
búinu fræga í Laxnesi
þegar nokkrir læknar
í Reykjavík tóku sig til
og hófu mjólkurfram-
leiðslu í Mosfellssveit.
Það er mikils virði að
hafa heyrt frænda
segja frá öllu þessu og
allt voru þetta frá-
sagnir af striti og
vandamálum sem gengið var í með
glöðu geði.
Þegar ég man svo fyrst eftir
Sveini frænda var hann byrjaður bú-
skap á Lækjarbrekku. Þar bjuggu
þau Sigríður systir hans ágætu búi
um áratuga skeið. Fyrir lítinn
Flóastrák var nokkurt ævintýri að
koma að Lækjarbrekku. Bratta
brekku var upp að fara heim á hlaðið.
Þegar heim var komið tóku frænd-
ræknu systkinin gestunum opnum
örmum. Sveinn var kátur heim að
sækja og var jafnan með glannaleg
spaugsyrði á vörum en Sigga systir
hans passaði upp á að hann færi ekki
yfir mörkin og lagði jafnan gott til og
dró úr ef henni fannst spaugsemin
ganga úr hófi. Það var létt yfir þessu
heimili. Búskapurinn var rekinn með
áhyggjuleysi og nánast eins og um
leik væri að ræða. Sveinn var ákaf-
lega laginn við að halda vélum og
tæknibúnaði gangandi og gerði sjálf-
ur við flest sem aflaga fór. Ég held
líka að hann hafi sjálfur byggt flestar
byggingar á Lækjarbrekku. Sveinn
hafði einnig eðlislægan áhuga á
ræktun og gripahaldi og þegar þekk-
ing hans og raunsæi héldust í hendur
á þessu sviði varð útkoman góð. Búið
í Lækjarbrekku skaffaði þeim systk-
inum vel og var auk þess vinnustaður
og athvarf ótalinna barna og ung-
linga bæði skyldra og óskyldra sem
voru þar við störf, eða snúninga eins
og það hét, oft sumar eftir sumar.
Hafa margir þessir snúningakrakk-
ar sýnt þeim systkinum tryggð og
ræktarsemi æ síðan.
Eftir að Sveinn og Sigga brugðu
búi fluttust þau að Selfossi. Ekki var
annað að sjá en að Sveinn kynni vel
við sig á mölinni enda var hann já-
kvæður maður og opinn fyrir hlut-
unum. En búskaparáhugi Sveins var
alltaf samur við sig og á þessum Sel-
fossárum hans var hann tíður gestur
í Geirakoti til þess að sækja sér
tengsl við sveitina og skepnurnar.
Við eldhúsborðið var rifjað upp hvert
rosasumarið eftir annað allt frá því
fyrir miðja síðustu öld. Niðurstaðan
var sú að alltaf náðist nú einhver
lending í heyskapnum þótt það stæði
tæpt rosasumarið mikla 1955 þegar
rigningar stóðu óslitið fram á haust
og bleytan var orðin svo mikil að kýr
sukku í kvið í eðju þar sem áður voru
harðir melar uppi í Lækjarbrekku.
Það var því ekki að undra þótt
Sveinn yrði órólegur um sláttinn fyr-
ir hönd frænda síns og renndi oft
niður í Geirakot til að fylgjast með
slætti og heyþurrkun og gefa góð ráð
um veðurútlit.
En nú er þessum eldhúsumræðum
lokið og þökk skal frændi hafa fyrir
þær. Vegna þess er ég margs vísari
og þótt Sveinn hafi nú yfirleitt ráðið
umræðuefninu fór auðvitað best á
því. Síáhugasamur um allt og alla og
fróður um þjóðmálin og umfram allt
vinveittur og fordómalaus gagnvart
hverjum sem er var Sveinn góður
frændi til eftirbreytni. Hann hlýtur
að eiga góða heimkomu.
Ólafur í Geirakoti.
✝
Okkar ástkæri sonur, faðir, afi, bróðir og
sambýlismaður,
FRIÐRIK ADOLFSSON,
verkfræðingur,
Faxaskjóli 26,
varð bráðkvaddur á heimili sínu fimmtudaginn
5. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðríður Egilsdóttir,
Agla Jael Rubner Friðriksdóttir,
Kjartan Jónatan Rubner Friðriksson,
Egill Moran Rubner Friðriksson,
Dagur Benjamín Rubner Kjartansson,
Þórður Adolfsson,
Elke Herrel
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskulegur frændi minn og bróðir,
GUÐMUNDUR HJARTARSON,
fyrrv. Seðlabankastjóri,
Selvogsgrunni 29,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 6. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Fjóla Guðrún Friðriksdóttir,
Anna Pálmey Hjartardóttir
og Emil Hjartarson.
✝
Faðir okkar,
GARÐAR JÖRUNDSSON,
frá Bíldudal,
lést á Sjúkrahúsinu Patreksfirði, að morgni föstudagsins langa, 6. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda.
Börnin.
✝
ANNA RÓSA BJÖRNSDÓTTIR,
frá Göngustðakoti,
Svarfaðardal,
lést á Dvalarheimilinu Dalbæ aðfararnótt miðvikudagsins 4. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Dalvíkurkirkju miðvikudaginn 11. apríl kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Börn og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar