Morgunblaðið - 08.04.2007, Síða 45

Morgunblaðið - 08.04.2007, Síða 45
Íslendingar í toppbaráttunni á Kaupþingsmótinu Einbeittur Guðmundur Kjartansson þjarmaði að litháíska stórmeistaranum og fallhlífahermanninum Kveinys í 4.umferð Kaupþingsmótsins. Á ALÞJÓÐLEGU móti Kaup- þings, sem Taflfélagið Hellir og Tafl- félag Reykjavíkur hafa samvinnu um, sitja skákmennirnir tuttugu sannar- lega ekki auðum höndum. Teflt er í tveimur tíu manna riðlum látlaust yfir páskahátíðina, tvær umferðir á dag flesta dagana. Mótinu er skipt í stórmeistaraflokk og meistaraflokk og í báðum þessum flokkum er frammistaða okkar manna viðunandi. Einkum hafa Guð- mundur Kjartansson í stórmeistara- flokknum og Ingvar Þ. Jóhannesson í flokki alþjóðlegra meistara staðið sig vel og einnig sagnfræðingurinn kunni Snorri G. Bergsson. Þá hefur Hjörvar Steinn Grétarsson teflt frísklega en er fullfljótfær á köflum. Stefán Krist- jánsson tók þetta mót fram yfir EM í Dresden. Hann þarf enn að hækka á stigum til að fá staðfestan stórmeist- aratitil og hefur verið nokkuð rólegur í tíðinni undanfarið en ætti að klára dæmið fljótlega. Eftir fimm umferðir í stórmeist- araflokknum er staða efstu manna þessi: 1. Normunds Miezis (Lettlandi) 4½ v. 2. Aloyzas Kveinys (Litháen) 4 v. 3.–4. Guðmundur Kjartansson og Emil Hermannsson (Svíþjóð) 5.–6. Stefán Kristjánsson og Róbert Harð- arson 2½ v. hvor. Í flokki alþjóðlegra meistara er staða efstu manna þessi: 1.–2. Ingvar Þ. Jóhannesson og Robert Bellin (Englandi) 4½ v. 3. Snorri G. Bergsson 3 v. Ingvar Þ. Jóhannesson er senni- lega að ná sínum besta árangri á þessu móti. Þar munar mikið um góð- an sigur hans á hinum margreynda Skota Colin McNab í 2. umferð en þar saumaði Ingvar að andstæðingi sín- um eftir nokkuð erfiða byrjun: Colin McNab – Ingvar Jóhannes- son Kóngsindversk vörn 1. c4 g6 3. g3 Bg7 3. Bg2 Rf6 4. Rc3 0–0 5. e4 d6 6. Rge2 e5 7. 0–0 Be6 8. d3 Dd7 9. f4 Bh3 10. f5 Bxg2 11. Kxg2 c6 12. Bg5 h6 13. Bxf6 Bxf6 14. h4 a6 15. b4 De7 16. dd2 Kh7 17. Rd1 g5 18. hxg5 Bxg5 19. de1 Rd7 20. Hh1 Rf6 21. Rg2 Hg8 22. hh3 d5 23. rf2 Hg7 24. Rf3 Bf4 25. Rh1 d4 26. Kf1 Be3 27. Hb1 b5 28. c5 a5 29. a3 axb4 30. axb4 Ha3 31. De2 Rg4 32. Hh4 Rf6 33. Kg2 De8 34. Hb2 Rg4 35. Re1 Dg8 3. Rc2 Ha4 37. Rxe3 Rxe3 38. Kh3 Ha1 39. Kh2 Rf1+ 40. Kg2 Rxg3 – hvítur gafst upp. Hannes byrjar rólega á EM í Dresden Eitt stærsta og sterkasta opna mót ársins hófst 3. apríl sl. Keppendur eru alls 403 en tæplega helmingur þeirra er stórmeistarar. Hannes Hlífar Stef- ánsson er eini íslenski skákmaðurinn sem tekur þátt í mótinu en hann tap- aði nokkuð óvænt í fyrstu umferð fyr- ir þýskum skákmanni. Hann vann í þriðju umferð og er með 1½ vinning. Tefldar verða ellefu umferðir. Fimm skákmenn eru með fullt hús, þar af þrír Úkraínumenn, Volotkin, Moi- seenko og Berelovich, einnig Rússinn Galkin og Jian Vlad-Christian frá Rúmeníu. Anand sjötti skákmaðurinn á toppi FIDE-listans Það kennir ýmissa grasa á hinum nýbirta stigalista FIDE og þar ber helst til tíðinda að Indverjinn Wisva- nathan Anand hefur fellt Búlgarann Veselin Topalov úr toppsætinu. FIDE birti stigalista sinn árið 1970 en aðeins sex skákmenn hafa komist á topp listans. Þeir eru í réttri tímaröð: 1. Bobby Fischer. 2. Anatolí Kar- pov. 3. Garrij Kasparov. 4. Vladimir Kramnik. 5. Veselin Topalov. 6. Wis- vanthan Anand. Anand er með 2.786 en Topalov næstur með 2.782 stig. Þegar Kasp- arov hætti árið 2005 var hann með yf- ir 2.800 Elo-stig. Það eru margir sem velta Elo-stig- um mikið fyrir sér en undirritaður er raunar ekki í þeim hópi. Þó er margt athyglisvert þegar samanburðar- fræðunum er beitt. Aldrei hefur verið meiri munur á milli fyrsta og annars manns á listanum en þegar Bobby trónaði á toppnum eða í kringum 150 Elo-stig. Þrátt fyrir umtalsverða „verð- bólgu“ í stigunum var Fischer hæstur allra skákmanna í nálega 20 ár (að vísu á óvirka listanum) eða þar til Kasparov komst upp fyrir hann í kringum 1990 en þá hafði hann verið heimsmeistari í u.þ.b. fimm ár. Stig Anands í dag eru næstum þau sömu og Fischer hafði í ársbyrjun 1972. Helgi Ólafsson helol@simnet.is Skák Kaupþingsmótið 4.–9. apríl 2007 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 45 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Formaðurinn einmennings- meistari Bridsfélags Akureyrar Þriðjudaginn 3. apríl fór fram þriðja og síðasta kvöldið í einmenn- ingi B.A. þar sem úrslit réðust en tvö bestu kvöldin af þremur giltu. Það má segja að úrslitin hafi verið óvænt því sigurvegarinn hefur víst að eigin sögn aldrei verið yfir með- alskori í einmenning síðastliðinn aldarfjórðung þótt ýmsir telji reyndar möguleika á að um ýkjur sé að ræða! Hér er um að ræða sjálfan formann félagsins, Stefán Vilhjálmsson, en mikil barátta var á lokasprettinum milli hans og Giss- urs. Þess má geta að eitt par komst í 2000 klúbbinn þegar 7 laufa fórn yfir slemmu andstöðunnar fór 2300 niður sem var víst tveimur slögum of mikið niður. Þriðja kvöldið: Stefán Vilhjálmsson 63,9% Gissur Jónasson 63,0% Hermann Huijbens 54,6% Ragnheiður Haraldsdóttir 52,8% Ólína Sigurjónsdóttir 51,9% Heildarstaðan: Stefán Vilhjálmsson 58,4% Gissur Jónasson 57,6% Björn Þorláksson 55,0% Ólína Sigurjónsdóttir 52,1% Pétur Gíslason 51,1% Hæsta skor fyrir stakt kvöld fengu Stefán og Gissur fyrir 3. kvöldið ásamt Sveinbirni Sigurðs- syni með 61,1% skor 2. kvöldið. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, mánud. 02.04. Spilað var á 11 borðum. Með- alskor 216 stig. Árangur N-S Albert Þorsteinss. - Friðrik Hermannss. 259 Birgir Sigurðss. -Sæmundur Björnss. 238 Sigurður Pálsson - Guðni Sörensen 237 Árangur A-V Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 271 Einar Einarss. - Magnús Jónsson 269 Jón Hallgrímss. - Helgi Hallgrímsson 266

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.