Morgunblaðið - 08.04.2007, Side 48

Morgunblaðið - 08.04.2007, Side 48
48 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ AUÐLESIÐ EFNI Maður fékk hníf í brjóst-ið á þriðjudags-kvöld og var hætt kominn. Einn maður viður-kenndi að hafa stungið manninn og var hnepptur í gæslu-varð-hald að kröfu lög-reglunnar. Hinn slasaði var fluttur á slysa-deild Land-spítalans og gekkst undir aðgerð þar sem þurfti að gefa honum mikið blóð. Í aðgerðinni kláruðust allar neyðar-birgðir blóðs á spít-alanum. Maðurinn er 48 ára gamall. Alls voru fjórir menn hand-teknir vegna árásar-innar og hefur þrem þeirra verið sleppt úr haldi. Þá var ráðist á unglings-pilt í strætó-skýli í Breið-holti á þriðju-dag. Hann meiddist ekki alvar-lega en árásin var einkar fólsku-leg. Þrír ókunnir piltar komu ak-andi upp að skýlinu þar sem pilturinn beið ásamt kærustunni sinni og börðu hann. Lög-reglan náði þeim og viður-kenndu þeir árásina. Ekki liggur fyrir hvað þeim gekk til með þessu at-hæfi en málið er í rann-sókn hjá lög-reglunni á höfuð-borgar-svæðinu. Fékk hníf í brjóst-ið Morgunblaðið/Júlíus Lífshættulega særður. Banda-ríski tón-listar- maður-inn 50 Cent var meðal þeirra sem komu fram í af-mælis- veislu kaup-sýslu-mannsins Björg-ólfs Thors Björg-ólfs-sonar sem fram fór á dögunum. Veislan var haldin á Karíbahafseyjunni Jamaíka og hafði Björg-ólfur boðið þangað sínum nán-ustu vin-um og ætt-ingjum í til-efni af því að hann varð 40 ára 19. mars síðast-liðinn. 50 Cent er rapp-ari frá New York sem hefur selt yfir 21 mill-jón platna um allan heim og verið til-nefndur til fjölda verðl-launa. Hann hefur einnig skrifað bækur, leikið í kvik-myndum og komið fram í sjón-varpi. Árið 2004 hélt 50 Cent tón-leika í Laugar-dals-höllinni í Reykja-vík. 50 Cent í af-mæli Björg-ólfs 50 Cent BLÚSHÁTÍÐ í Reykjavík var sett í byrjun dymbilviku og lýkur annað kvöld. Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin og stækkar hún með hverju árinu að sögn Halldórs Bragasonar stofnanda hennar. Ýmsar stórstjörnur koma fram á hátíðinni í ár og má þar m.a nefna gítarsnillinginn Ronnie Baker Brooks sem kemur frá Bandaríkjunum, og söngkonuna Zoru Young sem kemur fram á hátíðinni með Halldóri Bragasyni og Blue Ice band. Á föstudaginn langa lauk Blúshátíð með veglegri sálma- og gospeldagskrá í Fríkirkjunni í Reykjavík. Þar komu fram: Zora Young, Andrea Gylfadóttir, KK sem var kosin blúsmaður ársins við setningu Blúshátíðar í ár, Lay Low, Brynhildur Björnsdóttir og Goðsagnir Íslands. Blúshátíð í gangi KK er blús- maður ársins. Óöldin í Afríku-landinu Sómalíu færðist í aukana um síðustu helgi. Bardagarnir í höfuðborginni, Mogadishu, voru þeir mestu í 15 ár. Um 10.000 manns flúðu höfuðborgina á þremur dögum. Hjálpar-stofnanir segja að um 96.000 manns hafi flúið heimili sín í Sómalíu á síðustu tveimur mánuðum. Hræðilegt ástand ríkir í Mogadishu og íbúarnir eru óttaslegnir. Þúsundir manna eru peningalausar á flótta með aleigu sína á bakinu. Erfitt er fyrir hjálparsveitir að aðstoða flóttafólkið og víða er mikill skortur á vatni og mat. Á mörgum stöðum er líka skortur á lyfjum og mörg börn hafa dáið úr sjúkdómum sem berast með menguðu vatni. Mikil neyð í Sómalíu vegna átakaForseti Úkraínu, ViktorJústsjenkó, rauf þing á mánudag og boðaði til kosninga. Hann sakaði forsætis-ráðherra landsins, Viktor Janúkovítsj, og stjórn hans um að hafa brotið stjórnarskrána. Jústsjenkó óttast að stjórnin auki meiri-hluta sinn á þinginu til að geta hnekkt neitunar-valdi forsetans og breytt stjórnar-skránni. Forsætis-ráðherrann hafnaði tilskipun forsetans um þing-rof. Þingið samþykkti tillögu um að leysa kjör-stjórn landsins upp. Þingið fól líka stjórnar-skrár-dóm-stól Úkraínu að úrskurða hvort tilskipun forsetans væri brot á stjórnar-skránni. Jústsjenkó og Janúkovítsj hafa lengi tekist á um völdin. Janúkovítsj reyndi að verða forseti 2004 og var lýstur sigur-vegari. Andóf lýðræðis-sinna í „appelsínu-gulu byltingunni“ varð til þess að hann varð að sætta sig við að kosið yrði á ný. Þá tapaði hann naumlega fyrir Jústsjenkó. Janúkovítsj varð síðan forsætis-ráðherra eftir að flokkur hans sigraði í þing-kosningum á síðasta ári. Forseti Úkraínu leysti þing- ið upp í baráttu um völdin Reuters Stuðningsmenn forsætisráðherra Úkraínu mótmæla í Kíev. RAGNA Ingólfsdóttir úr Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur varð þrefaldur Íslands-meistari í badminton síðastliðinn sunnudag. „Þetta var mjög eftirminnilegur dagur. Ég hef aldrei áður unnið Íslandsmeistaratitla í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik á sama tíma,“ segir Ragna. Ragna, sem er 24 ára, ætlar sér stóra hluti – markmið hennar er að komast á Ólympíuleikana í Peking í Kína árið 2008. „Þetta er fimmta árið í röð sem ég vinn einliðaleikinn á Íslandsmótinu og í sjötta sinn sem ég fæ gull í tvíliðaleiknum. Ég hef aldrei áður unnið tvenndarleikinn. Það var sá úrslitaleikur sem mér fannst erfiðastur. Hann var síðastur á dagskrá og ég ætlaði mér ekki að klúðra tækifærinu að vinna þrefalt – enda hef ég stefnt að þessu í mörg ár.“ Ragna lék með Helga Jóhannessyni í tvenndarleiknum og Katrínu Atladóttur í tvíliðaleiknum. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég leik með Helga í tvenndarleik og ætli það hafi ekki skipt öllu máli í ár – að ég mætti með nýjan karl,“ sagði Ragna í léttum tón. Ragna stundar nám við Háskóla Íslands og stefnir á að ljúka BA-námi í heimspeki og sálfræði í sumar. „Ég mun lítið gera annað en að æfa og keppa erlendis fram í maí á næsta ári. Markmiðið er að leika á einu til tveimur alþjóðlegum mótum í hverjum mánuði, safna stigum og komast ofar á heimslistanum í einliðaleik,“ segir Ragna, sem er í 49. sæti heimslistans. Ragna varð þrefaldur Íslandsmeistari Morgunblaðið/Brynjar Gauti Meistari Ragna Ingólfsdóttir Netfang: auefni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.