Morgunblaðið - 08.04.2007, Side 54
Skátar „Það kemur oft fyrir að við förum með hálfkláruð
lög á tónleika og ljúkum svo við þau á sviðinu.“
LÍTIÐ hefur heyrst í Skátum
síðan sveitin átti eft-
irminnilegan leik á síðustu
Airwaves-hátíð. Það skýrist
annars vegar af því að einn
liðsmanna sveitarinnar er
fluttur vestur um haf og annar
hefur verið langdvölum ytra
og svo hinsvegar af því að
sveitin hefur ekki haft aðgang
að æfingahúsnæði um hríð.
Það skiptir svo líka máli að
sveitarmenn hafa verið önnum
kafnir við að koma saman
nýrri breiðskífu, Ghost of the
Bollocks to Come, sem komin
er útþ
Benedikt Reynisson, Benni,
segir að grunnur hafi verið
lagður að plötunni 16. febrúar
sl., en þá héldu þeir félagar í
sumarbústað við Kiðjaberg í
Grímsnesi klyfjaðir græjum.
Þegar búið var að koma öllu
upp drifu þeir svo í upptökum
og tóku upp grunnana að tíu
lögum á átta tímum. Níu lag-
anna enduðu svo á plötunni.
Benni segir að flest laganna
séu af tónleikadagskrá sveit-
arinnar, enda vinni hún yf-
irleitt þannig að lög verði ekki
til í endanlegri mynd fyrr en
búið er að spila þau á tón-
leikum. „Það kemur oft fyrir
að við förum með hálfkláruð
lög á tónleika og ljúkum svo
við þau á sviðinu.“
Eins og getið er hefur einn
sveitarmanna flust til Banda-
ríkjanna. Það var Ólafur
Steinsson gítarleikari, en í
hans stað kemur Graveslime-
maðurinn Kolbeinn Hugi
Höskuldsson. Ólafur spilar þó
á gítar á plötunni. Aðrir í sveit-
inni, sem líka eru á plötunni,
eru Pétur Már Guðmundsson
trommu- og slagverksleikari,
Björn Kolbeinsson bassaleik-
ari, Benedikt Reynisson gít-
arleikari og Markús Bjarna-
son söngvari og
hljómborðsleikari.
Ingi Þór Ingibergsson
hljóðblandaði skífuna en frum-
eintak var gert af þeim feðg-
um John og J.J. Golden vestur
í Kaliforníu, en þeir hafa unnið
með merkissveitunum Graves-
lime, Sonic Youth, Comets On
Fire og Xiu Xiu svo fátt eitt sé
nefnt. Umslagið, sem er í
meira lagi skrautlegt, gerðu
Alda Rose Cartwright og
Kristján Freyr Einarsson.
Smekkleysa dreifir plötunni
hér á landi. Skátar ætla að
fagna útgfáfunni með útgáfu-
partíi 14. apríl.
Skátaútilegu
lyktaði með plötu
Þess má til gamans
geta að faðir Google
litla er tölvufræðingur sem
hefur sérhæft sig í leit-
arvélum á netinu.… 57
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Karl Tryggvason
BANDARÍSKI leikarinn Robert „Toshi“
Chan, sem er sennilega þekktastur fyrir leik
sinn í óskarsverðlaunamyndinni The Departed,
er staddur hér á landi um þessar mundir vegna
hlutverks síns í væntanlegri mynd Ólafs Jó-
hannessonar, Stóra planinu. Í myndinni fer
Chan með hlutverk Shun-Yee, andstæðings að-
alpersónunnar Davíðs sem leikinn er af Pétri
Jóhanni Sigfússyni.
„Þetta er gamanmynd um smáglæpamann-
inn Davíð,“ segir Chan. „Sjálfsmynd hans er úr
tengslum við raunveruleikann, hann telur sig
vera meistara í bardagalistum og ég fer með
hlutverk ímyndaðs erkióvinar hans.“ Að öðru
leyti vill Chan lítið láta uppi um söguþráð og
smáatriði myndarinnar en telur að Pétur henti
fullkomlega í hlutverk sitt og sé, eins og aðrir
sem að myndinni koma, hæfileikaríkur og fær í
sínu fagi. Chan ber einnig Ólafi Jóhannessyni
leikstjóra vel söguna. „Ólafur er mjög hug-
myndaríkur leikstjóri og leyfir leikurunum að
njóta sín,“ segir Chan. „Leikararnir fá frelsi til
að túlka verkið og persónur sínar en leikstjór-
inn leggur línurnar.“
Öskraði á Jack Nicholson
The Departed var fyrsta Hollywood-myndin
sem Chan lék í. Þar fór hann með hlutverk kín-
versks mafíuforingja og lék andspænis Jack
Nicholson. „Hlutverk mitt þar mótaðist í raun
og veru við tökurnar,“ segir Chan. Leikstjórinn
[Martin Scorsese] sagði mér að hafa ekki
áhyggjur ef ég frysi, gleymdi línunum mínum
eða yrði óglatt þegar að tökum kæmi. Slíkt væri
ekki óalgengt þegar leikarar mættu stjörnum
eins og Nicholson. Þessi fyrirvari hans gerði
mig þó bara enn ákveðnari í því að standa mig.“
Chan vill ekki gera of mikið úr hlutverki sínu
eða ferli almennt til þessa. „Ég lít ennþá á mig
sem tiltölulega óþekktan leikara, ég hef leikið
nokkur lítil hlutverk en þó ávallt hlutverk sem
mér hefur litist vel á. Það er gömul klisja að
segja að ekki séu til ómerkileg hlutverk heldur
bara ómerkilegir leikarar, en það er nokkuð til í
henni, eins og oft er raunin með klisjur.“
Handritið mikilvægast
Chan telur að þótt ætla mætti að mikill mun-
ur væri á því að vinna við stórmyndir í Holly-
wood og við minni myndir sé aðalatriðið ávallt
það sama. „Það sem skiptir fyrst og fremst máli
er góð saga og gott handrit. Hollywood-
stjörnur og peningar skipta í raun ekki máli ef
verið er að vinna úr góðu efni.“ Kvikmyndir á
borð við Little Miss Sunshine séu dæmi um
hversu mikilvæg góð saga sé og að í því sam-
hengi skipti peningar ekki höfuðmáli.
Annars segist Chan ganga jákvæður til móts
við óvissa framtíð. „Í þessum geira er mikið
sem er ekki í þínum höndum og það eina sem
þú getur gert er að halda áfram og reyna að
njóta þess sem þú ert að gera. Maður tekur
ekkert sem gefið en gerir sitt besta. En vonandi
er ég kominn með fótinn inn fyrir dyragætt-
ina.“
Kominn inn fyrir dyragættina
Morgunblaðið/KristinnLeikarinn Robert „Toshi“ Chan hlotnaðist gott tækifæri þegar Martin Scorsese réð hann til að leika í kvikmyndinni The Departed.
Robert „Toshi“ Chan leikur ímyndaðan bardagakappa í íslenskri kvikmynd
http://www.poppoli.com/storaplanid.html
ktryggvason@gmail.com