Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 57
PIETRO MASCAGNI
eftir
Hljómsveitarstjóri: Kurt KopecKy
leiKstjóri: ingólfur níels Árnason
óperuKór Hafnarfjarðar
Hljómsveit íslensKu óperunnar
frumsýning Á annan í pÁsKum, 9. apríl uppselt
mið. 11. apríl Kl. 20 lau. 14. apríl Kl. 20
sun. 15. apríl Kl. 17 loKasýning
midasala s. 511 4200 WWW.opera.is
elín ósK ósKarsdóttir
jóHann friðgeir valdimarsson
ólafur Kjartan sigurðarson
HÖrn Hrafnsdóttir
Þórunn stefÁnsdóttir
musicI
Sony Ericsson W880i
Örþunnur Walkman tónlistarsími
Frábær 2 megapixla myndavél • Léttur og fjölhæfur
MP3 tónlistarspilari með tónlistargreini
Handfrjáls búnaður fylgir
Verð 39.980 kr.
Verð áður 49.900 kr.
Þú færð símann í vefversluninni á siminn.is
eða á næsta sölustað Símans.
Tilboðin gilda til 15. apríl
MDS-60 ferðahátalarar
Verð 3.980 kr.
Verð áður 4.980 kr.
®
HJÓNIN Michael og Karolina Tom-
aro berjast nú við yfirvöld í heima-
landi sínu Svíþjóð fyrir því að fá að
skíra sex mánaða dóttur sína Metal-
licu. Nafnið er, sem glöggir hafa ef-
laust tekið eftir, það sama og ein
frægasta þungarokkssveit allra tíma
ber.
Reyndar hefur Metallica litla ver-
ið skírð en það eru skattyfirvöld sem
eru með leiðindi og vilja ekki skrá
barn með þessu nafni hjá sér. Þar af
leiðandi getur Metallica ekki fengið
vegabréf og fleira sem venjulega
nefndir Svíar eiga auðsótt.
Samkvæmt sænskum lögum
verða yfirvöld að samþykkja öll nöfn
til að koma í veg fyrir að börn séu
skírð óviðeigandi og ónotendavæn-
um nöfnum. Í síðastnefnda hópinn
flokkast trúlega nafnið
Brfxxccxxmnpcccclllmmn
prxvclmnckssqlbb11116 (borið
fram Albin!), sem var hafnað af yf-
irvöldum árið 1996. Foreldrar Alb-
ins litla völdu honum þetta ónefni til
að sýna andúð sína á sænsku nafna-
lögunum. Dómstóll í Gautaborg
dæmdi á dögunum foreldrum Metal-
licu litlu í hag, barnið má heita í höf-
uðið á hljómsvetinni. Skattyfirvöld
vilja hins vegar ekki fallast á það og
telja nafnið ónefni sem ekki eigi að
samþykkja.
Meðal nafna sem sænska manna-
nafnanefndin hefur hafnað gegnum
tíðina er nafnið Ikea. Google er hins
vegar leyft og er hinn tveggja ára
Oliver Google Kai lifandi sönnun
þess. Þess má til gamans geta að
faðir Google litla er tölvufræðingur
sem hefur sérhæft sig í leitarvélum á
Netinu.
Hin sænska
Metallica
Reuters
Hljómsveitin Metallica Hver vill ekki skíra börnin sín eftir þessum fé-
lögum?