Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 63
Í DAG ætlar Fjalakötturinn, sem og
aðrir, að halda sig heima og háma í
sig súkkulaði. Hann mætir þó sterk-
ur til leiks á morgun en þá verða
sýndar fjórar myndir. Klukkan þrjú
verður sannkölluð fjölskyldusýning
en þá sýnir Fjalakötturinn kvik-
myndina Bróðir minn Ljónshjarta
sem er byggð á sögu Astrid Lind-
gren en í tilefni af aldarafmæli Lind-
gren sýnir Fjalakötturinn nokkrar
af vinsælustu kvikmyndunum sem
hafa verið gerðar eftir sögum henn-
ar. Síðar í mánuðinum verða kvik-
myndirnar Ronja ræningjadóttir og
Börnin í Ólátagarði sýndar.
Í kjölfar Bróður míns Ljónshjarta
verður síðasta sýning á myndinni
Ástarinnar krókaleið eftir Tatsumi
Kumashiro og kvöldinu lýkur á syst-
urmyndunum Kyrrmynd og Dong
sem lýsa lífinu á áhrifasvæði þriggja
gljúfra stíflunnar í Kína.
Síðastliðinn sunnudag frumsýndi
Fjalakötturinn kvikmyndina Kyrr-
mynd. Myndin er sýnd af svonefndri
DigiBeta spólu, sem er hágæðaleið
til þess að sýna kvikmyndir og þekkt
víða um heim. Því miður var skjá-
varpinn sem var notaður við sýn-
inguna í ólagi og fyrir vikið var
myndin í svart/hvítu.
Starfsfólk Fjalakattarins biðst
velvirðingar á þessu og vill bjóða öll-
um þeim sem sóttu sýninguna síð-
ustu helgi að sjá hana aftur, ýmist á
morgun klukkan 19 eða sunnudag-
inn 15. apríl klukkan 19. Allar sýn-
ingar fara fram í Tjarnarbíói.
Fjalakött-
urinn
fyrir alla
GRÍÐARLEG fagnaðarlæti brut-
ust út í Vetrargarðinum á föstu-
dagskvöld þegar ljóst var að hinn
færeyski Jógvan Hansen hefði
farið með sigur af hólmi í X Fac-
tor. Tvö atriði kepptu til úrslita
og bar Jógvan sigurorð af Hara-
systrunum, þeim Rakel og Hildi
Magnúsdætrum frá Hveragerði
sem höfðu vakið mikla athygli
fyrir líflegan flutning.
Úrslitakvöldið var allt hið
glæsilegasta og auk atriðis með
stúlkunum í Nylon fluttu kepp-
endur þrjú lög og þar á meðal
nýtt lag „Hvern einasta dag“ sem
var samið sérstaklega fyrir loka-
kvöldið af þeim Stefáni Hilm-
arssyni og Óskari Páli Sveinssyni.
Jógvan hlaut 70% atkvæða í
fyrsta sætið og varð þar með
fyrsti sigurvegari X Factor
keppninnar á Íslandi, löndum
hans eflaust til mikillar gleði sem
fylgdust með keppninni í beinni
útsendingu í Færeyjum.
Jógvan
sigraði í
X Factor
Morgunblaðið/Ómar
Sigursælir Einar Bárðar fagnar Jógvan eftir að úrslitin lágu fyrir í Vetrargarðinum. Hara-systurnar voru kampakátar með 2. sætið og Páll Óskar var þjóðlegur í tilefni dagsins.