Morgunblaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Útfararþjónustan er til reiðu, herra bæjarstjóri. Á ráðstefnu félagsmálaráðu-neytisins í tilefni Evrópuárs jafnra tækifæra í gær hélt Beate Gangås, umboðsmaður jafnræðis og mismununar í Noregi, athyglisvert erindi. Mörg þeirra mála sem berast inn á borð um- boðsmannsins eru vegna út- lendinga. Gangås rakti nokkur þeirra, þ.á m. mál múslíma- konu sem var sagt upp störfum í einni stærstu verslunarsam- stæðu Óslóar vegna þess að hún bar slæðu á höfði. Nú gæti farið svo að versluninni yrði vikið úr samstæðunni.     Gangås ræddi hættuna af því að íNoregi væri að skapast and- rúmsloft þar sem ótti væri við að ræða málefni innflytjenda og trúmál með opnum hætti. Nefndi hún þar mál Ködru Yusuf, sem lýsti yfir því að túlka bæri á nýjan leik afstöðuna til kvenna í Kóraninum. „Hún getur sagt það sem henni sýnist og er örugglega sæt og með fínan líkama, en við breytum ekki Kóraninum vegna skoðana konu,“ sagði Ghulam Sawar, talsmaður stærstu samtaka múslíma, um ummæli hennar. Í lið- inni viku var ráðist á hana á förnum vegi í Ósló og hún barin til óbóta. Í kvöld fær Kadra Yusuf verðlaun úr hendi Gangås fyrir hugrekki sitt.     Í fyrirlestrinum sagði Gangås fráþví að hún hefði vogað sér að halda því fram að trúfélög með mál- flutning, sem stangaðist á við norsk ákvæði um jafnrétti og mismunun, til dæmis gegn samkynhneigðum, ættu ekki að njóta styrkja frá rík- inu. Fyrir þetta var hún gagnrýnd harkalega og sökuð um að virða ekki trúfrelsi. En hvað ber að gera þegar rekast á vestræn gildi og trúarsetningar? Gangås lagði ekki til að málfrelsi trúarhópa yrði skert, varpaði því einungis fram hvort nokkur ástæða væri til þess að þeir fengju að boða mismunun og ójafn- ræði á ríkisstyrkjum. STAKSTEINAR Beate Gangås Umræða og innflytjendur                      ! " #$    %&'  (  )                   *(!  + ,- .  & / 0    + -        !      " #           12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (     $       %"% &% &       !         :  *$;< %%%                  !  "#$    *! $$ ; *! ' "( )% %(%    # * =2 =! =2 =! =2 ' )  %+ ! ,%-  .  <> $         /    ?  ? ;   " 2  ? '   "% %  %" /$% %0  !1% %  % *# % %!"  %() %* ( %  $% %(  ! 2 %%(1%%( %3% %%   $% %   ! =7  ' ) %"1%( %$%, % %    %$%, %(%(  * !$  &%' !% %  %  $% (  ! 1% % % %"%/$  $% %0  !&%%2%"%.   % %%  1% %    % & 45 %"%66  %#"%7 #%+ ! 3'45 @4 @*=5A BC *D./C=5A BC ,5E0D ).C 3& 1 &3 &3 &3 &3  3& &  3& 3& &3 &3 &3 &   & 1 1 1 13 1 1 1 1 1 1 1 1 1            Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu mjög glæsilegar tvær 143 fm 4ra herb. hæðir í nýju 3ja hæða húsi sem er í byggingu, í hjarta Hafnar- fjarðar. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna í ágúst 2007, með vönduð- um innréttingum og tækjum, flísalögðu baði og þvottahúsi. Eignirnar skipt- ast, samkvæmt teikningu í forstofu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, baðher- bergi, tvö herbergi, vinnuherbergi, þvottahús og geymslu. Tvennar svalir, aðrar um 60 fm. Stór geymsla í risi sem býður upp á mikla möguleika. Upplýsingar veittir Þorbjörn Helgi gsm 896 0058. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Strandgata - Hf - 4ra herbergja VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Áslaug Ósk Hinriksdóttir | 23. apríl 2007 Fréttir dagsins Já kraftaverkin gerast! Hún er sem sagt farin að slást við systkini sín, lætur sko engan lengur vaða yfir sig, hún ríf- ur kjaft eins og ein- hver unglingur eheh, hún er farin að skella á eftir sér ef hún fær ekki eitthvað sem hana langar að fá og fer þá bara í fýlu og svo mætti lengi telja. Meira: aslaugosk.blog.is Helga Vala Helgadóttir | 24. apríl 2007 Topp tíu Þess vegna er gott, þegar maður er á leið aftur inn í bloggheima, að koma með svona smá topp tíu síðustu daga. Sagði Jón Baldvin í alvöru ljóska um menntamálaráð- herrann okkar? Megum við þá ætla að næst þegar hún tekur til máls að hún fari að ræða um gamla karlinn í Mosó … þegar hún vill ræða um þennan fyrrverandi sendiherra og utanríkisráðherra? Meira: helgavala.blog.is Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir | 23. apríl Veggjakrot og það sem enginn á Þau hafa skýrt út fyrir okkur hvernig á málum er haldið og við- brögðum ungmenna sem eru staðin að verki. Ungmennin segja hvað varðar veggjakrotið að þau ,,kroti bara á það sem enginn á“. Hverfislögregluþjónninn sagði þetta einstaklega súrt að heyra því þau virðist ekki skynja að það sem eng- inn á eigi allir. Meira: thorbjorghelga.blog.is Árni Gunnarsson | 25. apríl 2007 Alþingismaður flengd- ur á kosningaferða- lagi umVestfirði Hefur einhver séð þessa frétt? Sennilega ekki og ekki hef ég séð hana ennþá. En oft hef ég leitað að henni vegna þess að mér finnst alltaf fyrir Al- þingiskosningar að þessi frétt sé í sjónmáli. Fyrir hverjar kosningar kemur hvert þingmannsóbermið öðru óburðugra í sjávarplássin vestur á fjörðum og boðar sókn til atvinnu- tækifæra með sértækum aðgerðum. Kjósendur hlýða á boðskapinn opn- um munni og fer að líða betur. Af hverju geta þessir menn æv- inlega sótt sér umboð fólksins sem þeir rændu og sviku í stað þess að ná sér í ærlega hýðingu? Mér er þetta alveg óskiljanlegt. Mig rámar í gamla sögu af því þegar sýslumaðurinn á Ísafirði var settur af vegna meintra mistaka í erfiðu dómsmáli. Annar var skip- aður í hans stað en í óþökk heima- manna sem vildu hafa sinn fyrri sýslumann, hann var þeirra maður. Og nú urðu þau fáheyrðu tíðindi á Ísafirði að nokkrir skapmenn sóttu hinn nýja sýslumann í hús að næt- urþeli, drógu hann út og flengdu. Sá hafði þó ekkert til saka unnið annað en að verða fórnarlamb heitra tilfinninga í erfiðri deilu skapmikilla sævíkinga við kansellíið í Reykjavík. „Já, það er kjarkmaður, Kolbeinn í Dal“, sagði Magnús sýslumaður Torfason á Ísafirði í frægu barnsfað- ernismáli snemma á síðustu öld. Það er almenn skoðun að öðru jöfnu sé ósiður að berja menn. Ég er ekki viss um að þetta þurfi endilega að vera algilt viðhorf. Ég er nefnilega fastur á þeirri skoðun að það sé hverjum mis- heppnuðum alþingismanni hollt að vera flengdur af umbjóðendum sín- um í kjördæminu svona í það minnsta einu sinni, – bara til reynslu og öðrum slíkum til viðvörunar. Eiga þeir enga afkomendur leng- ur fyrir vestan, þeir Kolbeinn í Un- aðsdal og Alexander á Dynjanda? Aldrei held ég að þeir hefðu látið lögin um stjórn fiskveiða yfir sig ganga andmælalaust. Meira: reykur.blog.is BLOG.IS Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.