Morgunblaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 33 ÞAÐ var ósköp dapurlegt að hlusta á ræðu Geirs Haarde for- sætisráðherra þar sem hann lofaði eldri borgurum 70 ára og eldri að þeir einir mættu vinna sér inn peninga án þess að sú greiðsla kæmi til skerðingar á bótum almanna- trygginga á vegum TR, en af þessum greiðslum er að sjálfsögðu greiddur eðlilegur skatt- ur. Ég spyr hér í einfeldni minni: Hvað veldur því að þessi mörk eru ekki sett jafnt yfir hópinn frá 65 ára aldri, þegar flestir eru sennilega með fulla starfsorku og geta auð- veldlega skilað miklu meira til þjóð- arbúsins? Eru þessar skerðingar það heilagar að það sé nauðsynlegt að beita þeim og í þeim mæli sem þær eru, eða 40%, og eiga að lækka niður í 35%? Hér er á ferðinni ein- hver ódrengilegasti skerðingarmáti sem til þekkist, að ætla einstaklingi á strípuðum bótum frá TR og í eng- um lífeyrissjóði að komast af með 40 þús. kr. á mánuði við töku lífeyris og í dag 60 þús. vegna skerðingar frá TR. Hér er brotið á fleiri þúsund einstaklingum í gegnum TR (þá ann- áluðu ölmusustofnun) sem skilaði inn í ríkissjóð hátt í einum milljarði króna í skertum bótum einstaklinga á sl. ári. – Það er von að skerðing- armeistarar þessarar ríkisstjórnar séu ekki á þeim brókunum að létta þessu fargi af eldri borgurum, enda skuldar stjórnin bótaþegum hátt í 40 milljarða, í skertum bótum á sl. 12 ára setu Framsóknarflokksins í heil- brigðis- og tryggingaráðuneytinu. Hér sýnir formaður Sjálfstæð- isflokksins og fyrrv. fjármálaráð- herra að hugur fylgir ekki máli í að afnema þennan ósóma sem skerð- ingar á bótum eldri borgara eru. Nei, þær skulu halda áfram hvað sem raular og tautar. Hér koma eng- ar töfralausnir í ljós eins og t.d. kjaradómur með litla 60 þús. kr. hækkun á mánuði í launum til þing- manna með reglubundnu millibili. Eða hið fræga eftirlaunafrumvarp sem allur þingheimur stóð að sér til handa og Geir Haarde svaraði ekki á nýloknum landsfundi Sjálfstæð- isflokksins nema með útúrsnúningi frá spyrjanda úti í sal. Núverandi ríkisstjórn skuldar sennilega hátt í átta milljarða í framkvæmdasjóð eldri borgara og hefur á engan hátt sýnt það svart á hvítu hvert þeir peningar hafa farið á umliðnum ár- um. Skorti á hjúkrunarrýmum hefði verið útrýmt ef þessir peningar hefðu verið notaðir eins og lögin gera ráð fyrir. Þessi ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks má ekki ná þeim þingstyrk að hún sitji áfram. Eldri borgarar; sýnum samhug í verki og kjósum Baráttu- samtök eldri borgara og öryrkja. – xE. Áskorun til eldri borgara og öryrkja Eftir Einar H. Guðmundsson Höfundur er stjórnarmeðlimur í baráttusamtökum eldri borg- ara og öryrkja. JAFNAÐARMENN hafa lagt grunninn að velferðarsamfélögum Norðurlanda. Þar er jöfnuður meiri en annars staðar og atvinnu- lífið jafnframt sam- keppnishæfast. Á undanförnum ára- tug hafa stjórnvöld á Íslandi ekki hug- að að sér, við höf- um aukið misskipt- ingu og ójöfnuð. Jafnvægi og framfarir; efling velferðarkerfisins og ábyrg efna- hagsstjórn eru rauði þráðurinn í stefnu Samfylkingarinnar. Sam- fylkingin vill þjóðarsátt um nýtt jafnvægi í efnahagsmálum og ný vinnubrögð til að tryggja samstill- ingu efnahagsaðgerða. Efnahags- og umhverfisstefna Samfylking- arinnar slær á þenslu og skapar svigrúm fyrir átak í velferðar- og samgöngumálum. Samfylkingin mun rétta hlut aldraðra og öryrkja gagnvart al- mannatryggingum, tryggja að- gengi allra að heilbrigðiskerfinu óháð efnahag og útrýma biðlistum með fjögur hundruð nýjum hjúkr- unarrýmum á næstu tveimur ár- um. Útrýma biðlistum gagnvart læknisaðgerðum, auka öryggi og lífsgæði þjóðarinnar. Samfylkingin mun hrinda í framkvæmd aðgerðaáætlun til að sporna gegn fátækt. Einnig að- gerðaáætlun um málefni barna og auka þannig stuðning samfélags- ins við börn og barnafjölskyldur, draga úr skerðingum á barnabót- um vegna tekna og bæta tann- vernd barna með ókeypis eftirliti. Takast þarf á við neyslu ávana- og fíkniefna með áherslu á for- varnir, meðferð og endurhæfingu. Kynjajafnrétti er ein af grunn- stoðum jafnaðarstefnunnar. Sam- fylkingin lýsir yfir skýrum póli- tískum vilja til að útrýma launamun kynjanna, afnema launaleynd, koma á fullu jafnrétti milli karla og kvenna og gera Ís- land að fyrirmyndarsamfélagi á sviði jafnréttismála. Gott velferðarkerfi er forsenda heilbrigðs og samkeppnishæfs at- vinnulífs. Samfylkingin er jöfn og frjáls og er eina trúverðuga breytingaaflið í samfélaginu. Í komandi kosningum verður kosið um það hvort jafnaðarstefnunni verður beitt á ný til að auka lífs- gæði á Íslandi. Stuðningur við Samfylkinguna mun gera það að verkum. Jafnaðarstefnan er það sem þjóðin þarfnast Eftir Gunnar Svavarsson Höfundur er oddviti Samfylking- arinnar í Suðvesturkjördæmi. Fréttir á SMS Kolbrún Halldórsdóttir skipar 1. sæti Reykjavíkurkjördæmi Suður 1. Hvetjum til þátttöku sem flestra í samfélaginu. Það verður best gert með því að bæta aðgengi að umræðu, upplýsingum og þekkingu og veita öllum jafngild tækifæri til skólagöngu og símenntunar. 2. Eflum grasrótarhreyfingar á Íslandi með það að markmiði að þær séu virkar í stefnumótun og ákvarðanatöku um samfélagsmál. 3. Festum í stjórnarskrá ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur. 4. Tryggjum að Ríkisútvarpið geti gegnt hlutverki sínu með reisn sem kraftmikið menningar- og almannaþjónustuútvarp, einkum í þágu lýðræðis. Það verður best gert með því að breyta lögum um Ríkisútvarpið á nýjan leik.  5. Stuðlum að umburðarlyndu og opnu samfélagi og vinnum markvisst gegn fordómum, t.d. í garð samkynhneigðra, innflytjenda og fleiri. 6. Skoðum málefni innflytjenda í samhengi við önnur samfélagsmál með það fyrir augum að móta stefnu til framtíðar. Innflytjendum þarf að standa til boða að taka þátt í uppbyggingu þjóðfélagsins á öllum sviðum. 7. Eflum þjónustu við móttöku innflytjenda, bætum skráningu við komu þeirra inn í landið og aukum upplýsingar til þeirra um húsnæði, réttindi og skyldur, og atvinnu. Tryggjum að menntun innflytjenda verði metin og staðfest á hverju fagsviði, t.d. með jafngildisprófum. Tryggjum íslenskukennslu fyrir innflytjendur í allt að 3000 stundir án gjaldtöku. 8. Lengjum fæðingarorlof í eitt ár og tryggjum að allir eigi rétt á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði. 9. Tryggjum forræði landsmanna á náttúruauðlindum til lands og sjávar og að þær haldist í þjóðareigu. Afnemum þau ákvæði vatnalaga sem innleiða einkaeignarrétt á vatni. 10. Tryggjum nægt framboð af húsnæði á viðráðanlegu verði, bæði leiguhúsnæði og húsnæði til eignar. Stofnum til félagslegra íbúðalána í gegnum Íbúðalánasjóð. 11. Setjum stefnumótun í málefnum barna í forgang og leggjum áherslu á úrræði fyrir börn inni á heimilum sínum í stað stofnanaúrræða. Aukum réttindi barna með auknu lýðræði í skólastarfi. 12. Stuðlum að atvinnuumhverfi þar sem vinnudagurinn er hóflega langur og sveigjanlegur og hægt er að laga vinnuna að þörfum fjölskyldulífs. KRAFMIKIÐ SAMFÉLAG ALLT ANNAÐ LÍF! - með vinstri grænum Kynntu þér málið á www.VG.is Katrín Jakobsdóttir skipar 1. sæti í Reykjavik Norður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.