Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kvikmyndahátíðin í Cannes er á næstaleiti. Hátíðin verður sett hinn 16. maínæstkomandi og stendur fram til 27.
maí.
Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær
að 22 myndir hefðu verið valdar til keppni
en ein þeirra hlýtur æðstu verðlaun hátíð-
arinnar, Gullpálmann. Hér verður nánar
fjallað um myndirnar sem komnar eru í úr-
slit.
Opnunarmynd hátíðarinnar nefnist MyBluberry Nights eftir kínverska leik-
stjórann Kar Wai Wong. Myndin segir frá
ungri konu, sem leikin er af tónsmiðnum og
söngkonunni Noruh Jones sem leggur upp í
ferðalag um Bandaríkin. Önnur hlutverk eru
í höndum Jude Law, David Strathain, Tim
Roth, Natalie Portman, Ed Harris og Rachel
Weisz … hvorki meira né minna.
Heimakonan Catherine Breillat gerði
myndina Une vieille maitresse sem byggð er
á samnefndri sögu Jules-Amédée Barbey
d’Aurevilly.
Mikil eftirvænting ríkir eftir nýjustu mynd
þeirra Coen-bræðra sem ber heitið No Co-
untry For Old Men. Líkamsmeiðingar og
annað ofbeldi eru fylgifiskur þess að veiði-
maður finnur lík, heróín og álitlega peninga-
upphæð. Hvort myndin fer á hillu með meist-
araverkum þeirra bræðra, Fargo og The Big
Lebowski, eða hillu neðar með hinni slöku
Intolerable Cruelty verður svo að koma í
ljós.
David Fincher (Se7en og Fight Club) sýn-ir nýjustu afurð sína, Zodiac, sem segir
sannsögulega sögu samnefnds raðmorðingja
sem skók samfélag San Fransisco á sjöunda
og áttunda áratug síðustu aldar. Með aðal-
hlutverk fara Jake Gyllenhaal, Mark Ruf-
falo, Antony Edwards, Robert Downey Jr.
og Brian Cox.
We Own the Night fjallar um eiganda næt-
urklúbbs í New York sem gerir hvað hann
getur til að bjarga fjölskyldu sinni úr klóm
rússnesku mafíunnar. Joaquin Phoenix,
Mark Wahlberg og Robert Duvall skipta að-
alhlutverkunum með sér.
Söngvamyndin Les Chansons d’amour er
eftir Frakkann Christophe Honoré. Í einu
aðalhlutverkanna er Chiara Mastroianni,
dóttir Marcello Mastroianni og Catherine
Deneuve.
Landi hans, Raphaël Nadjari, sýnir mynd
sína, Tehilim, í keppninni.
Japanska myndin Mogari no Mori (Skóg-
urinn syrgjandi) kemur einnig til greina en
leikstjóri hennar er Naomi Kawase.
Kóreska myndin Breath fjallar um fanga
sem verður ástfanginn af konu sem skreytir
fangaklefann hans. Leikstjórinn er Ki-duk
Kim en hann fer jafnframt með hlutverk í
myndinni.
Emir Kusturica mætir einnig með nýjustu
mynd sína í farteskinu. Sú nefnist Zavet
(Promise Me This). Myndin gerist í Belgrad
og fjallar um mann sem biður son sinn um að
finna fyrir sig eiginkonu. Kusturica hefur
tvisvar áður unnið Gullpálmann, 1985 og
1995 fyrir Underground.
Milyang (Secret Sunshine) nefnist mynd
suður-kóreska leikstjórans Chang-dong Lee.
Myndin er ástarsaga píanókennara og eig-
anda bílaverslunar.
Mexíkóski leikstjórinn Carlos Reygadas
sýnir nýjustu mynd sína, Luz silenciosa á há-
tíðinni og Austurríkismaðurinn Ulrich Seidl
mætir til leiks með Import/Export.
Frumraun þeirra Vincent Paronnaud og
Marjane Satrapi á leikstjórnarsviðinu nefnist
Persepolis og er teiknimynd. Þar segir af
ungri íranskri stúlku sem er uppi á tímum
íslömsku byltingarinnar þar í landi.
Saga Jean-Dominique Bauby, fyrrverandiritstjóra Elle tímaritsins, er sögð í Le
Scaphandre et le papillon eftir Julian Schna-
bel. Bauby lamaðist í öllum líkamanum nema
öðru auganu og með því auga náði hann með
hjálp að deila æviminningum sínum sem og
draumum og þrám. Afar athyglisverð mynd
sem spennandi verður að sjá.
Heiðursverðlaunahafi Alþjóðlegrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík, Aleksandr Sok-
urov, sýnir myndina Alexandra í Cannes.
Þetta er í fimmta sinn sem hann er til-
nefndur til Gullpálmans.
Þrátt fyrir misjafna dóma eru flestir kvik-
myndaunnendur þó spenntir fyrir að sjá nýj-
ustu afurð Quentins Tarantino. Sú ber heitið
Death Proof og er annars helmingur mynd-
arinnar Grindhouse sem hann gerir með
kollega sínum Robert Rodriguez. Tarantino
hlaut Gullpálmann árið 1994 fyrir Pulp Fict-
ion.
Ungverjinn Béla Tarr sýnir mynd sína
The Man From London sem skartar Tildu
Swinton í aðalhlutverki og Rússinn Andrei
Zvyagintsev mætir með Izgnanie í fartesk-
inu. Aðalhlutverkið þar er í höndum hinnar
sænsku Maria Bonnevie sem margir þekkja
úr Hvíta víkingi Hrafns Gunnlaugssonar.
Síðast en ekki síst er það svo Gus Van
Sant með mynd sína Paranoid Park, mynd
sem fjallar um hjólabrettagaur sem óvart
verður öryggisverði að bana.
Van Sant á þó þegar einn gulllitan pálma
heima hjá sér síðan árið 2003 fyrir Elephant.
Það eru bæði þrautreyndir leikstjórar semog nýliðar í faginu sem reyna með sér í
keppninni um Gullpálmann.
Hver fer heim með (Gull)
pálmann í höndunum?
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sáttur Ken Loach fékk Gullpálmann í fyrra fyrir The Wind that Shakes the Barley.
Reuters
Fínn Hver vill ekki hafa einn svona á arinhill-
unni í stofunni?
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
» Bauby lamaðist í öllum líkamanum nema öðru
auganu og með því auga náði
hann með hjálp að deila ævi-
minningum sínum sem og
draumum og þrám.
birta@mbl.is
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 12 ára
TÍMAMÓT (ÍSLENSK KVIKMYND) kl. 8 - 10 LEYFÐ
THE GOOD SHEPERD kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára
BECAUSE I SAID SO kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 LEYFÐ
MISS POTTER kl. 5:40 LEYFÐ
300 kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
/ KEFLAVÍK
BECAUSE I SAID SO kl. 8 LEYFÐ
THE MESSENGERS kl. 8 B.i. 16 ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 6 LEYFÐ
MEET THE ROBINSONS m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
/ AKUREYRI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
eeee
SUNDAY MIRROR
BECAUSE I SAID SO
BESTA MAMMA Í HEIMI
GETUR LÍKA VERIÐ ERFIÐASTA MAMMA Í HEIMI
Diane Keaton Mandy Moore
Saga öflugustu leyniþjónustu fyrr og síðar, CIA. Háspenna, lífshætta frá Pang Bræðrum.
STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
eee
Ó.H.T. RÁS2
eee
S.V. MBL
SHOOTER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
HOT FUZZ kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Úrvalslið leikara í magnaðri kvikmynd
undir tryggri leikstjórn Robert DeNiro
EDISONS LIFANDI LJÓSMYNDIR KYNNIR:
KVIKMYND EFTIR
GUÐMUND ERLINGSSON
HERBERT SVEINBJÖRNSSON
GUÐJÓN ÁRNASON
SIGURBJÖRN GUÐMUNDSSON
STEINÞÓR EDVARDSSON
Börn sjá meira en fullorðnir
gera sér grein fyrir!eeeH.J.