Morgunblaðið - 13.06.2007, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.06.2007, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EINSKÆR veðurblíða lék við menn og málleysingja í Grímsey um helgina. Hópur ferðalanga naut stillunnar og útsýnis sem var eins og best verður á kosið. Fugla- björgin voru skoðuð og fuglar myndaðir; lundar og haftyrðlar stilltu sér fagmannlega upp. Eftir að hafa þegið vöfflur í Gall- erí Sól var farið á sjóinn og siglt kringum eyna. Óli H. Ólason, sjó- maðurinn góðkunni sem orðinn er 76 ára gamall, hafði á orði að hann myndi ekki eftir jafngóðu veðri á Grímseyjarsundi. Hafið var eins og spegill, og skammt undan eynni var rennt fyrir fisk. Drógu menn hvern þorskinn af öðrum, allt að 140 cm langa, og inn á milli ýsur og ufsa, við mikla gleði veiðimanna. Íshafið minnti síðan á sig; í kríueggjaleiðangri undir kvöld skall svartaþoka á eynni og þá féll hitinn um tíu gráður. Grímseyj- arsund eins og spegill Morgunblaðið/Einar Falur Vænn sá guli Birgir Pálsson hampar vænum þorski sem Luigi Gorletti frá Ítalíu dró í stillunni sunnan við Grímsey, sem sést til vinstri. Veðrið lék við Grímseyinga og gesti þeirra um helgina Prófasturinn Lundaparið kippti sér ekki mikið upp við að ferðamenn héðan og þaðan úr heiminum væru að horfa á þá og taka af þeim myndir. Þeir stungu sér þó að lokum til sunds. Áhugasamur Þýskur áhugaljósmyndari, Frank Brodrecht, ljósmyndar fuglalífið nyrst í Grímsey og hlýðir á raddmikinn kór bjargfuglanna. Hann hafði ekki komist jafnnálægt lundum fyrr. Með 5 þrepa sjálfskiptingu. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA - 7 4 8 0 KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. isKIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU. NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ SKIPTA Keyrðu inn í sumarið á nýjum Sorento 3.645.000 kr. KIA Sorento – fullbúinn alvörujeppi Sumarpakki Dráttarbeisli, sumar- og vetrardekk innifalin í verði KIA Sorento með ríkulegum staðalbúnaði • hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting • ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél • ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control)* • 16" álfelgur • þakbogar • vindskeið og þokuljós • 3.500 kg dráttargeta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.