Morgunblaðið - 13.06.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.06.2007, Blaðsíða 25
hollráð um heilsuna | Lýðheilsustöð MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 25 S umar og sól, og það er gaman að vera úti og leika. Margar fjöl- skyldur fara á suðlæg- ar slóðir í sumarfrí til að njóta sólarinnar. Sólin færir okkur kærkomna birtu og hlýju eftir langan vetur en einnig út- fjólubláa geislun sem getur skað- að okkur ef við pössum okkur ekki. Við þurfum ljósið og hit- ann en ekki geislunina, ekki einu sinni til að húðin geti framleitt D-vítamín. Þeir sólargeislar sem ná inn í skuggann og D- vítamínið úr fæðunni fullnægja vítamínþörfinni. Það er sérstaklega mikilvægt að börn séu vel varin fyrir sól- inni. Húð barna er mun þynnri en húð fullorðinna og geta þeirra til að mynda vörn gegn geislum sólarinnar er því ekki eins góð. Hér á eftir eru nokkrar ábendingar um hvernig við getum var- ið okkur og börnin okkar fyrir hættu- legum geislum sólarinnar á suðrænum slóðum en ekki má gleyma að sökum þess hversu tært andrúmsloftið er á Íslandi getur útfjólublá geislun frá sólinni valdið sól- bruna á skömmum tíma. Húðin gleymir aldrei Í hvert skipti sem þú eða barnið þitt sólbrennur aukast líkurnar á því að fá húð- krabbamein síðar á ævinni. Húð barna er viðkvæmari en húð full- orðinna og því er sérstaklega hættulegt að sólbrenna á æsku- árunum.  Ung börn ættu aldrei að vera í sól óvarin. Sérstaklega ekki fyrsta aldursárið, þegar húðin er alveg ný. Mikilvægt er að verja hvítvoðunga vandlega, sólhattur og þunn sumarföt henta þeim vel. Staðsetjið barnavagninn í skugganum eða notið sólhlíf.  Ef farið er út í sólina er besta vörnin föt og hattur, en sól- aráburð má bera á þau svæði sem eru ber. Berið þá á nægj- anlegt magn og notið áburð sem verndar gegn bæði A- og B-geislum með sólvarnarstuð- ulinn 15 eða hærri. Berið á hálftíma áður en farið er í sól- ina og endurtakið á tveggja klukkutíma fresti. Munið að jafnvel sólaráburður sem er vatnsþolinn máist af þegar maður þurrkar sér með hand- klæði og þegar maður svitnar eða er lengi í vatni.  Forðist sólina um miðjan dag- inn. Frá klukkan 11 til 15 eru geislar sólarinnar sterkastir og um 60% af heildargeislun dagsins á sér stað á þessu tímabili. Takið fjölskyldur sem búa á suðrænum slóðum til fyrirmyndar og forðist sólina, t.d. með því að borða inni, fá ykkur smá lúr eða leyfa börn- unum að leika sér innandyra eða í skugganum. Þegar það er mögulegt er það að forðast sólina yfir miðjan daginn klár- lega besta og einfaldasta sól- arvörnin. Meiri geislun nær til jarðar um hádegi á skýjuðum degi en á heiðskírum degi fjórum tímum síðar. Enginn, og þá sérstaklega ekki börn, ætti að liggja í sólbaði þegar sólin er hátt á lofti.  Geislun sólarinnar endurkast- ast af hvítum sandi og vatni sem veldur því að hún verður sterkari og hættan á að sól- brenna eykst. Það er því mik- ilvægt að vernda börnin þegar þau eru að leika sér á strönd- inni eða í sundi. Stutt- ermabolur er góð sólarvörn og til eru sérstök föt sem eru hönnuð til að veita vörn gegn geislun.  Hægt er að kaupa sólgleraugu fyrir börn og fullorðna sem veita 100% vörn gegn bæði A- og B-geislum. Þau draga stór- lega úr áreiti geislunar sól- arinnar á augun en hún getur valdið skýi á auga (cataract) og öðrum augnsjúkdómum. Sýnum börnum og unglingum okkar gott fordæmi og verum klár í sólinni. Er sólvarnaráburður besta sólarvörnin? Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sveinbjörn Kristjánsson verkefnisstjóri á Lýðheilsustöð Besta sól- arvörnin er að forðast útfjólubláa geisla sól- arinnar milli kl. 11 og 15 Sólarvörn Húðin er mun þynnri hjá börnum en hjá fullorðnu fólki og geta þeirra til að mynda vörn gegn geislum sólarinnar er því ekki eins góð. Sérfræðingar í útimálningu fyrir íslenskar aðstæður Baldvin Már Frederiksen málarameistari „Áður en þú velur málninguna, sem þú ætlar að nota, skaltu athuga hvort hún sé gerð fyrir íslenskar aðstæður. Íslenskt veðurfar er gjörólíkt því sem menn eiga að venjast erlendis. Þess vegna nota ég alltaf útimálningu frá Málningu hf.“ Baldvin Már Frederiksen, málarameistari IS L E N S K A /S IA .I S /M A L 3 80 55 0 6/ 07 Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi • Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i • Litabú›in Ólafsvík • Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki • Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi • Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík • Fóðurblandan á Selfossi, Hvolsvelli og Egilsstöðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.