Morgunblaðið - 13.06.2007, Page 21

Morgunblaðið - 13.06.2007, Page 21
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 21 TREFJAR hvítkálsins innihalda græðandi efni, pektín, sem lengi hefur verið notað sem sultuhleypir. Norskur vísindamaður hefur kom- ist að þeirri niðurstöðu að efnið hafi sennilega áhrif á ónæmiskerfi manna. Aftenposten greinir frá dokt- orsverkefni Bjørge Westereng um hina gleymdu lækningajurt hvítkál sem áður fyrr var notað í græð- andi vafninga á sár. „Við ákváðum að einbeita okkur að hvítkáli vegna þess að það er bæði ódýrt og að- gengilegt hráefni,“ segir Weste- reng, sem eftir rannsóknina fýsir að vita meira um eiginleika hvít- kálsins. Hann bendir á að lítið sé vitað um áhrif káljurta. „Hvaða áhrif hafa t.d. trefjar kálsins á ónæmiskerfið þegar við borðum þær?“ spyr hann. „Það hlýtur að vera það næsta sem verður skoðað. Í þessari rannsókn höfum við bara kannað áhrif trefjanna lítillega.“ Prófaði ekki kál á sár vegna skorts á meiðslum Pektín er ekki bara sultuhleypir heldur ein af um tíu tegundum trefja í jurtaríkinu. Eftir er að kortleggja hverjar þeirra hafa hugsanlega áhrif á lífkerfi okkar. Sá hluti pektínsins sem hleypir sultunni virðist þó ekki hafa áhrif samkvæmt rannsókn Westerengs. Það var flókið verkefni að rann- saka áhrif pektínsins úr hvítkálinu en niðurstöðurnar leiddu í ljós að það gæti haft veruleg græðandi áhrif. En hefur Westereng sjálfur prófað að leggja hvítkálsblöð á sár? „Nei, það voru engin sár í boði svo við höfum ekki prófað áhrif kálsins í raun,“ svarar hann. „Hins vegar er ekki ólíklegt að hægt verði að nota ákveðna hluta efnis- ins í græðandi krem í framtíðinni. Áður en af því verður þarf þó frek- ari rannsókna við.“ Doktor í hvítkáli Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds Græðandi Í gamla daga þóttu hvítkálsblöð góð til að leggja á sár og nýjar rannsóknir sýna að efni í þeim geta haft góð áhrif á ónæmiskerfi manna. Arnþór Helgason sendir bréfmeð skemmtilegum fróðleik: „Sigurður Sigurðarson, skáld frá Arnarholti í Vestmannaeyjum (1879-1939), var lyfsali í Vestmannaeyjum á árunum 1913-1931, en þá fluttist hann til Reykjavíkur. Hann lifði þar við heldur bág kjör og lést úr matareitrun sextugur að aldri. Skáldanafn hans var Sigurður slembir. Skömmu fyrir dauða hans buðu Ásgeir Bjarnþórsson listmálari og fleiri Sigga gamla slembi, eins og Ásgeir orðaði það, austur á Þingvöll. Var þetta í byrjun september 1938 eða 1939. Veðrið var eins og það getur orðið fegurst. Þá orti Sigurður: Silkimjúkt er sólskinsbrosið, silfurtært er daggarbað. En hvergi hafa hjörtun frosið harðar en á þessum stað. Heimild: Ásgeir Bjarnþórsson listmálari. Þegar Davíð Stefánsson birti fyrstu ljóð sín í Eimreiðinni (sennilega árið 1916) orti Guðbrandur Magnússon, sem var einn af prenturum Morgunblaðsins í upphafi og fann upp gælunafnið Mogginn, þessa vísu: Þökk sé fyrir þessi kvæði. Þau eru andleg leðurskæði, sem endast á við önnur tvenn. Af útnáranum ertu að sníða. En ekki skaltu neinu kvíða – hrygglengjan er eftir enn. Þetta er nýgerving. Hrygglengjan er besti hluti húðarinnar, en útnárinn þótti heldur ónýtur til skæða. Guðbrandur bjóst því við meira af Davíð en þegar var komið fram. VÍSNAHORNIÐ Af hjörtum og hrygg- lengju pebl@mbl.is Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 Fréttir á SMS Velkomin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Umfangsmiklar breytingar hafa staðið yfir á Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðustu misserin. Verslunar- og þjónusturýmið hefur ríflega tvöfaldast og fjölmargir nýir rekstraraðilar bæst í hópinn. Veitingastöðum fjölgar jafnt og þétt og úrval verslana og vöruframboð hefur aldrei verið glæsilegra. Aukið rými og bætt þjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Við hvetjum alla farþega til þess að mæta tímanlega og njóta alls þess sem Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur upp á að bjóða. Hægt er að nálgast upplýsingar um þjónustu flugstöðvarinnar á airport.is. Munið! Innritun hefst 2 tímum fyrir brottför! Fáðu meira – mættu fyrr! Fáðu meira fyrir ferðina ÍS L E N S K A S IA .I S F L E 3 77 03 0 6/ 07

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.