Morgunblaðið - 13.06.2007, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Horfin úr heimi augnablik
hverfur ei aftur þar við sit.
Lokar nú augum hinsta sinn
í langa ferð þangað inn.
Í töfralandið stígur þú
æðri slóðir sérðu nú.
Þú áttir von
sem nú í flýti flýgur hjá
og átt í senn eilíft líf
friður yfir þér
um langan veg
sem sál þín snemma fer.
Í huganum öll við fylgjum þér
með söknuði hvert sem lífið fer.
(Höf. Hljómsveitin Vinir vors og
blóma.)
Ég kveð mína ástkæru vinkonu
með miklum söknuði, en minning-
arnar um góða og trygga vinkonu
mun ég ávallt varðveita með mér.
Elsku Diddi, Kristófer, Embla
Eir, Írena Rut og fjölskylda. Sam-
hryggist ykkur innilega, þið eigið
hug minn allan. Megi guð veita ykk-
ur styrk á erfiðum tíma og fylgja
ykkur um ókomna tíð.
Þín vinkona
Stella Vattnes.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þótt svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hugann fer.
Þó þú sért horfinn í heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Elsku Kristófer Daði, Embla Eir,
Írena Rut, Diddi, Villi, Daði, Hödd,
Aron, Villi, Guja og allir aðrir ástvin-
ir Ástu Lovísu, við sendum ykkur
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Hvíldu í friði elsku vinkona.
Þín,
Anna Kristín, Ingólfur,
Eva Lísa og Óliver Nói.
Elsku Ásta, ég trúi ekki enn að
baráttu þinni sé lokið. Þegar símtal-
ið með fréttunum kom var það svo
ótrúlegt að það kom manni á óvart.
Þú varst svo staðráðin í að vinna að
hitt kom ekki til greina. En þrátt
fyrir að líkami þinn hafi tapað
vannst þú á þann hátt að æðruleysi
þitt, hreinskilni og ást á lífinu heill-
aði alla sem vitni urðu að. Við eigum
svo margar minningar og gerðum
svo margt saman. Ég reyni daglega
að hugsa um þær með bros á vör og
þakklæti fyrir að fá að kynnast jafn
yndislegri og frábærri stelpu eins og
þér. Og ekki bara það heldur að fá
að vera vinkona þín. Sagt er að þeg-
ar gott fólk kemur inn í líf manns
skilji það eftir fótspor í hjarta
manns. Þú Ásta mín skildir eftir
mörg slík í mínu.
Við kynntumst fyrir löngu síðan,
um 15 ára, þótt við höfum ekki alltaf
verið í miklu sambandi vorum við
alltaf í einhverju sambandi og hafði
það legið fullmikið í dvala og við
bættum úr því en bara allt of seint.
En alltaf vorum við samt vinkonur
og það góðar vinkonur að við gátum
tekið upp þráðinn þar sem við lögð-
um hann niður síðast og kjaftað út í
eitt og á meðan horft á uppáhalds-
myndirnar okkar. Úff og já gúffað í
okkur nammi á meðan. Elsku Ásta
Lovísa, þú verður alltaf í hjarta mér
og ég mun alltaf sakna þín.
Þú ert hetja og kenndir mér og
mörgum öðrum svo margt um lífið,
væntingar, vonina, trúna, gleðina,
fyrirgefninguna og síðast en ekki
síst vináttuna. Og svo margt annað.
Ég veit að þú horfir niður til okkar
með mömmu þinni og systur og
passar upp á okkur, sérstaklega fal-
legu yndislegu börnin þín og fjöl-
skylduna þína.
Það síðasta sem þú baðst fólkið
sem las bloggið þitt að gera var að
„prufa að byrja daginn á því að
brosa, þakka fyrir daginn í dag og
opna fyrir hjartað.“ Já Ásta mín, ég
mun sannarlega reyna að lifa eftir
því.
Elsku Villi, Guja, Diddi, Daði,
Hödd, Villi Þór yngri, Aron, Krist-
ófer Daði, Embla Eir og Írena Rut,
ég sendi mínar innilegustu samúðar-
kveðjur til ykkar á þessum erfiðu
tímum og hugur minn leitar til ykk-
ar daglega. Megi guð halda utan um
ykkur og vernda.
Elsku Ásta Lovísa, ég mun aldrei
aldrei gleyma þér …
Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tár-
um. Hugsið ekki um dauðann með harmi
og ótta. Ég er svo nærri, að hvert ykkar
tár snertir mig og kvelur, þótt látinn mig
haldið. En þegar þið hlæið og syngið með
glöðum hug, sál mín lyftist upp í mót til
ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt
sem lífið gefur. Og ég, þótt látinn sé, tek
þátt í gleði ykkar. Yfir lífinu …
(Kahlil Gibran.)
Takk fyrir allt og allt.
Hafrún Ásta og fjölskylda.
Það er komið að kveðjustund sem
allir hefðu viljað hafa miklu, miklu
seinna. Elskulega Ásta Lovísa hefur
kvatt þennan heim eftir hetjulega
baráttu við illvígan sjúkdóm. Unga
konu í blóma lífsins er auðvitað gríð-
arlegt áfall að missa og ekki auðvelt
að sætta sig við það.
Hún varð strax staðráðin í að sigr-
ast á veikindunum og þar með hófst
hennar barátta.Við sem fylgdumst
með fylltumst aðdáun á því hvernig
henni tókst að halda óskertri lífs-
gleði sinni og lífsvilja í gegnum alla
erfiðleikana sem svona baráttu
fylgja.
Elsku besta Ásta Lovísa mín, þú
varst jákvæðasta manneskja sem ég
hef kynnst, þú varst alltaf brosandi
og hafðir svo mikla útgeislun, og þú
kenndir manni að það eru ekki þessi
veraldargæði sem gefa manni ham-
ingju. Hamingjan er að vera sáttur
við sjálfan sig og aðra og vera þakk-
látur fyrir það sem maður hefur. Við
vitum að Ásta Lovísa hefur fengið
góða heimkomu. Bið ég börnunum,
fjölskyldu og unnusta blessunar
Guðs. Megi Guð styrkja ykkur í
hinni miklu sorg ykkar. Minning um
góða móður mun lifa.
Sofðu rótt, sofðu rótt,
nú er svartasta nótt.
Sjáðu sóleyjarvönd
geymdu’ hann sofandi í hönd.
Þú munt vakna með sól
Guð mun vitja um þitt ból.
Góða nótt, góða nótt,
vertu gott barn og hljótt.
Meðan yfir er húm
situr engill við rúm.
Sofðu vært, sofðu rótt
eigðu sælustu nótt.
(Jón Sigurðss. frá Kaldaðarn.)
Blessuð sé minning um elsku
bestu Ástu Lovísu Vilhjálmsdóttur.
Ólöf Jónsdóttir.
Ég kynntist þér árið 2000 og var
það yndislegur tími. Við gátum
endalaust hlegið og skemmt okkur
saman. Ég á fullt af skemmtilegum
minningum um þig en það er samt
alltaf ein sem stendur upp úr og er
það þegar við vorum alltaf í Playsta-
tion 2 í Crash frá morgni til kvölds,
okkur var farið að verkja svo í þum-
alputtana vegna tölvusýki og þá datt
þér í hug að koma með vatn í skál og
vorum við duglegar að skella putt-
unum í skálina. Ég vil þakka þér fyr-
ir allt sem þú hefur sýnt mér, kennt
mér og gefið mér. Þú hefur alltaf
verið mér eins og mamma nr. 2 og
þín verður sárt saknað og þú munt
alltaf vera í hjarta mínu. Hvíldu í
friði.
Helga Lindberg (barnapía).
Elsku Ásta okkar. Við viljum
kveðja þig með ljóðinu sem þú hélst
svo mikið upp á.
Þó ég sé látinn,
harmið mig ekki með tárum.
Hugsið ekki um dauðann
með harmi og ótta.
Ég er svo nærri
að hvert eitt ykkar tár
snertir mig og kvelur,
þó látinn mig haldið.
En þegar þið hlæið og
syngið með glöðum hug
sál mín lyftist upp í mót,
til ljóssins.
Verið glöð og þakklát
fyrir allt sem lífið gefur.
Og ég, þó látinn sé, tek þátt
í gleði ykkar yfir lífinu.
(Edward Stanley af Alderley)
Blessuð sé minning þín.
Barnalandsvinir.
Elsku besta Ásta mín, sem nú er
farin langt fyrir aldur fram. Hún er
farin á góðan stað, þar sem móðir og
systir bíða hennar. Þótt leiðir okkar
hefðu skilið um stund, þá áttir þú
alltaf sess í hjarta mínu. Þú varst
alltaf góð og traust vinkona.
Við kynntumst í FB þegar við vor-
um 16 ára gamlar og höfum brallað
margt í gegnum tíðina. Þú varst allt-
af svo dugleg að læra, þú hefðir geta
orðið allt sem þú vildir. Ég man þeg-
ar þú varst að læra nuddið þá gast
þú þulið bókina utanað en þetta leit
út fyrir mér sem kínverska.
Við vorum samtaka í mörgu, átt-
um börnin á svipuðum tíma. Það
skemmtilegasta sem við gerðum
þegar ég var ólétt af Ásdísi og þú af
Emblu var að elda og þú varst svo
góð í því.
Ég man eftir öllum sumarbú-
staðaferðunum sem við fórum í með
börnunum okkar, ferðin okkar til
Portúgal með Önnu Þóru. Og það
voru ekki fá skiptin sem ég flutti
með börnin mín til þín þegar karlinn
var í útlöndum, við skemmtum okk-
ur konunglega.
Fjölskylda þín skipti þig miklu
máli, þú átt marga góða að. Börnin
þín voru númer eitt hjá þér og
fannst þér ekkert skemmtilegra en
að taka myndir af þeim og vera með
þeim. Þú kynntist æðislegum manni,
honum Didda þínum. Það sást lang-
ar leiðir hvað þið voruð ástfangin.
Ég á eftir að sakna þín mikið, þú
verður alltaf hjá mér í huga og í
hjarta. Megi guð geyma þig. Ég
sendi Kristófer, Emblu, Irenu og
fjölskyldu, svo og ástvinum öllum,
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Þín vinkona,
Halldóra Anna Hafliðadóttir
Ásta Lovísa
Vilhjálmsdóttir
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför,
HALLDÓRU MARGRÉTAR
HERMANNSDÓTTUR
frá Ysta-Mói í Fljótum,
til heimilis á Hvanneyrarbraut 34,
Siglufirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sjúkarhúsi Siglu-
fjarðar.
Margrét Lára Friðriksdóttir, Arngrímur Jónsson,
Agnes Einarsdóttir,
Ævar Friðriksson, Hjördís Júlíusdóttir
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu samúð
og hluttekningu vegna andláts,
HERDÍSAR SIGURÐARDÓTTUR
LYNGDAL.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á hjúkrunar-
heimilinu Eir fyrir góða umönnun.
Svala Thorlacius, Gylfi Thorlacius,
Magnús Eiríksson,
Hulda Stefánsdóttir Yodice, John Yodice.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför mannsins míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
HELGA HALLSSONAR
frá Siglufirði,
Víðilundi 24,
Akureyri.
Edda Indriðadóttir,
Anna Margrét Helgadóttir,
Indriði Hallur Helgason,
Helga Sigríður Helgadóttir, Sigurgeir Harðarson,
afa- og langafabörn.
✝
Innilegar þakir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og
kveðjur við andlát og útför,
ÓLAFS INGIBJÖRNSSONAR
læknis,
Æsufelli 4,
Reykjavík.
Ingvar B. Ólafsson,
Jón Á. Ólafsson, Kristín Ásmundsdóttir,
Gunnar Þ. Ólafsson, Catrina Hendry,
Ólafur P. Ólafsson,
Guðrún M. Ólafsdóttir, Bjarni Ó. Guðmundsson,
Lísa Ólafsdóttir,
Linda Ólafsdóttir,
Halldóra Ingibjörnsdóttir
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
BOGA JÓHANNSSONAR
rafvirkjameistara
frá Vestmannaeyjum,
Furugrund 60,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sunnuhlíð, Kópa-
vogi, fyrir einstaka alúð og hlýhug í veikindum hans.
Halldóra Guðrún Björnsdóttir,
Jóhanna Bogadóttir,
Eiríkur Bogason, Guðbjörg Ólafsdóttir,
Kristján Bogason, Jóhanna Emilía Andersen,
Svava Bogadóttir, Kristján Bjarnason,
Gunnar Bogason, Bergþóra Aradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson