Morgunblaðið - 13.06.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 39
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin kl. 17-
20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni. Kvöldbænir kl. 20. Verið velkomin.
Bessastaðasókn | Síðasti foreldramorgunninn í
Bessastaðasókn fyrir sumarleyfi. Hittumst á Ár-
bæjarsafninu kl. 10 og fáum leiðsögn um safnið,
ljúkum ferðinni með því að fara á kaffihúsið á
staðnum. Allir foreldrar ungra barna á Álftanesi
velkomnir. Foreldramorgnar hefjast aftur að loknu
sumarleyfi 1. ágúst.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hug-
vekja, fyrirbænir. Málsverður eftir stundina í safn-
aðarsal.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa í Hallgrímskirkju
alla miðvikudagsmorgna kl. 8. Hugleiðing, alt-
arisganga. Morgunverður í safnaðarsal eftir mess-
una.
Háteigskirkja | Kvöld- og fyrirbænir í Háteigskirkju
alla miðvikudaga kl. 18.
Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58-60 . Sam-
koma verður í kvöld kl. 20. „Hinn líðandi þjónn.“
Ræðumaður er Ragnar Gunnarsson. Mínar hugs-
anir: Sveinbjörg Björnsdóttir. Kaffi eftir samkom-
una. Allir eru velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 10.30 heldur gönguhópurinn
Sólarmegin af stað frá kirkjudyrum. Fararstjóri er
Örn Sigurgeirsson. Öllum er velkomið að koma og
slást í hópinn.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr.
Sigurður Árni Þórðarson. Beðið er fyrir sjúkum og
bágstöddum. Messan tekur um 20 mínútur. Hægt
er að koma fyrirbænarefnum til prestanna með
tölvupósti, símtali eða skriflega við upphaf mess-
unnar.
Vídalínskirkja Garðasókn | Foreldramorgnar
hvern miðvikudag í sumar kl. 10-12.30. Gott tæki-
færi fyrir mömmur og börn til að hittast og kynn-
ast. Allir velkomnir. Alltaf heitt á könnunni.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin kl. 9-16.30.
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað, kl. 8-16.30 handavinna,
kl. 9-16.30 smíði/útskurður, kl. 10-11.30 heilsu-
gæsla.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gull-
smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10-
11.30. S. 554 1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er
opin á miðvikudögum kl. 13-14. Félagsvist er spiluð í
Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjábakka á
miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar
fara í létta göngu kl. 10.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 10, leið-
beinandi verður til kl. 17. Félagsvist kl. 13. Viðtals-
tími FEBK kl. 13-14. Bobb kl. 17. Kaffi og meðlæti á
boðstólum til kl. 16.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður, kl.
10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 kvenna-
brids. Eldri borgarar eru hvattir til að nýta sér fé-
lagsaðstöðu í Gullsmáranum. Munið að skrá ykkur í
grillveisluna 16. júní.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Æfing fyr-
ir landsmót kvenna í Kirkjuhvoli kl. 9, í Mýri kl. 9.50.
Brids spilað í Garðabergi kl. 13, opið til kl. 16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30: vinnustofur
opnar. Frá hádegi er spilasalur opinn. Kl. 12.30: upp-
hitun fyrir Kvennahlaup ÍSÍ, umsj. Þorvaldur, harm-
onikkuleikari og Sigvaldi danskennari. Kl. 13 ræsir
Þorsteinn Hjartarson hlaupið (ath. bolir á staðn-
um). Kl. 13.30: Mannrækt – trjárækt. S. 575 7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Furugerði 1, Norðurbrún
1, Dalbraut 14-20, Hæðargarður 31. Farin verður
nestisferð að Strandakirkju fimmtud. 14. júní. Lagt
verður af stað frá Norðurbr. kl. 13 og síðan teknir
aðrir farþegar. Skráning í Norðurbrún í s.
569 6960, á Dalbraut í s. 588 9533, í Furugerði í s.
553 6040 og í Hæðargarði í s. 568 3132.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin, opin
vinnustofa. Kl. 10.15 ganga (Bergþór). Kl. 10-16 pútt.
Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13 brids. Kl. 15 kaffi. 20.
júní: Jónsmessukaffi á Básum í Ölfusi undir stjórn
Ólafs B. Ólafssonar hljóðfæraleikara. Á leiðinni
austur verður ekið um nýju hverfin í Grafarholti og
Norðlingaholti. Verð kr. 2.500. Brottför kl. 13 frá
Hraunbæ. Skráning á skrifstofu eða í s. 587 2888.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Skráning er
hafin í Hraunseli í Akranesferðina 28. júní. S.
555 0142.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-12, Sóley Erla.
Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall. Böðun fyr-
ir hádegi. Fótaaðgerðir, s. 588 2320. Hársnyrting,
s. 517 3005. Blöðin liggja frammi.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkrunarfræðingur
frá heilsugæslunni kl. 10. Leikfimi fyrir byrjendur kl.
10.30. Leikfimi í salnum kl. 11. Verslunarferð í Bónus
kl. 12. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði. Handavinnustofa er lok-
uð vegna sumarleyfa. Fótaaðgerðastofan er lokuð
frá 12. júní til 4. júlí. Kl. 14 félagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Kl. 9-12 aðstoð við böðun. Kl. 10-12 sund. Kl. 11.45-
12.45 hádegisverður. Kl. 12.15-14 verslunarferð í
Bónus, Holtagörðum. Kl. 13-14 videó/spurt og
spjallað. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morg-
unstund kl. 9.30, handavinnustofan opin, hár-
greiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar allan dag-
inn, verslunarferð kl. 12.30, söngur og dans kl. 14
við undirleik Vitatorgsbandsins, allir velkomnir.
Uppl. í síma 411 9450.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 13 ganga (Bergþór). Kl. 14
pútt (Bergþór). Kl. 15 kubb (Bergþór).
Gullbrúðkaup | Hjónin Dag-
mar Óskarsdóttir og Garðar
Eðvaldsson frá Eskifirði
fagna gullbrúðkaupi miðviku-
daginn 13. júní nk. Sama dag
nær Garðar 75 ára aldri. Heið-
urshjónin verða með börnum
og barnabörnum á stórhátíð-
ardaginn.
80ára. Í dag, 13. júní, erSvava Jónsdóttir, til
heimilis á Mýrarvegi 111 á
Akureyri, áttræð. Svava og
eiginmaður hennar, Anton
Grímsson, eru að heiman.
60ára. Þann 18. júní nk.verður Sigfús Ív-
arsson, til heimilis á Melavegi
3 á Hvammstanga, sextugur.
Af því tilefni tekur hann á
móti gestum laugardaginn 16.
júní í Félagsheimilinu
Hvammstanga, frá kl. 19.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 13. júní, 164. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.)
Öldrunarheimili Akureyrar, Sí-menntunarmiðstöð Eyja-fjarðar, Kópavogskaup-staður, Bjarmalundur –
ráðgjafarstofa um Alzheimer og öldr-
un, og FAAS – Félag aðstandenda
Alzheimersjúkra bjóða á morgun,
fimmtudag, til námskeiðs í Salnum um
bætta umönnun og aukin lífsgæði fólks
með heilabilun.
Brit J. Bieltvedt er einn af skipu-
leggjendum námskeiðsins: „Kennari á
námskeiðinu er Jane Verity sem er
mjög eftirsótt og ein af virtustu fyr-
irlesurum í heimi varðandi heilabilun
og þjónustu við aldraða. Hún er leið-
andi á sviði svokallaðrar Eden-
hugmyndafræði sem er meðal áhrifa-
mestu kenninga í umönnun aldraðra í
heiminum í dag,“ segir Brit. „Eden –
hugmyndafræðin byggist á breyttu
viðhorfi til hins aldraða þar sem
áhersla er lögð á styrkleika fólks
fremur en sjúkdóma og veikleika. At-
hyglinni er beint að einstaklingnum,
lífi, gleði og tilbreytingu. Hugmynda-
fræðin leggur áherslu á að öldr-
unarstofnanir séu gerðar sem heim-
ilislegastar og horfið verði frá þeirri
sjúkdómsáherslu sem oft hefur ein-
kennt öldrunarstofnanir. Áhersla er á
líf sem er vert að lifa og að þar eigi að
vera pláss fyrir dýr, plöntur og börn.“
Brit segir vandasamt að annast ein-
staklinga með heilabilun. „Víða þarf að
gera betur svo aðhlynning sé eins og
best verður á kosið. Eins og kerfið er í
dag er mikil áhersla á veikindi og
lyfjagjöf, en einstaklingurinn vill
stundum gleymast og persónulegar
þarfir hvers og eins,“ segir Brit. „Með
heilabilun verður skerðing hjá ein-
staklingnum sem hætta er á að brugð-
ist sé rangt við. Þá vill það gerast að
einstaklingurinn lokast meira inni í
sjálfum sér, vandinn vex og vansældin
með.“
Samkennd, kærleikur og virðing
getur breytt heilmiklu, að sögn Brit:
„Jane orðar þetta svo að við þurfum
að sjá fólk með heilabilun með hjart-
anu og setja okkur í þess spor. Í að-
ferðum sínum leggur hún líka áherslu
á leikgleði, og kraft kímnigáfunnar og
ímyndunaraflsins til að brúa bilið milli
einstaklinga. Ekki síst vill hún þó að
fólk temji sér ómælda þolinmæði til að
hjálpa heilabiluðum að takast á við líf-
ið og ná árangri á eigin spýtur.“
Sjá nánar á www.simey.is.
Heilsa | Námskeið Jane Verity haldið í Salnum á morgun kl. 9 til 16.
Heilabilun og lífsgæði
Brit J. Bieltvedt
fæddist í Noregi
1945. Brit lærði
frumugreiningu í
krabbameins-
rannsóknum og
starfaði við hana á
Íslandi og í Sví-
þjóð. Hún lauk
námi í félagsráðgj.
frá HÍ 1987. Hún var félagsmálastj. í
Borgarnesi í 14 ár, en hefur und-
anfarin 6 ár starfað hjá Öldr-
unarheimilum Akureyrar og er þar nú
framkvæmdastj. Brit er gift Birgi
Guðmundssyni svæðisstj. og eiga þau
þrjá syni og fjögur barnabörn.
Tónlist
DOMO Bar | Þingholtsstræti,
miðvikudagskvöldið 13. júní kl.
22. Tónleikar til heiðurs tón-
listarkonunni Joni Mitchell.
María Magnúsdóttir syngur,
Eðvarð Lárusson leikur á gítar,
Ingólfur Magnússon á bassa og
Jón Óskar Jónsson á trommur.
Aðgangseyrir er 1000 kr.
Fréttir og tilkynningar
Blóðbankinn | Blóðbankabíll-
inn verður á Selfossi við Hótel
Selfoss miðvikudaginn 13. júní
kl. 10-17.
Ferðaklúbbur eldri borgara |
29. júní: dagsferð í Þjórsárdal
og Veiðivötn. 2.-6. júlí: Vest-
firðir: Ísafjörður – Þingeyri –
Patreksfjörður – Rauðisandur –
Látrabjarg. Upplýsingar og
skráning í síma 892 3011,
Hannes.
Útivist og íþróttir
Grasagarður Reykjavíkur |
Helena Óladóttir, verkefn-
isstjóri Náttúruskóla Reykja-
víkur, verður með leiki og
fræðslu í Grasagarðinum fyrir
8-12 ára börn og foreldra
þeirra kl. 20-22. Mæting er í
lystihúsinu. Ókeypis fræðsla
og skemmtun, allir velkomnir.
Í TILEFNI af því að 120 ár eru liðin frá fæðingu Guðjóns Samúelssonar byggingameistara
verður boðið upp á fyrirlestur og gönguferð með leiðsögn annað kvöld kl. 20. Pétur H. Ár-
mannsson arkitekt fjallar um Guðjón og verk hans í fyrirlestrinum sem haldinn verður á 1.
hæð Rósenborgar, Barnaskóla Akureyrar, sem Guðjón hannaði og sést hér fyrir ofan.
Húsið verður opið frá kl. 19.30 til skoðunar en það var nýlega tekið í notkun eftir end-
urbætur, sem miðuðu að því að halda sem mest upphaflegu útliti þess. Þá verður boðið upp á
gönguferð með leiðsögn um þann hluta bæjarins sem ber sterkust einkenni Guðjóns.
Fyrirlestur um Guðjón Samúelsson í Rósenborg
FRÉTTIR
SKELJUNGUR hf. hefur bæst í hóp
þeirra rúmlega tvö hundruð fyr-
irtækja sem bjóða handhöfum
greiðslukortanna e-kort Master-
Card og e2-Vildarkort Visa frá
SPRON endurgreiðslu af hluta
þeirrar upphæðar sem verslað er
fyrir með kortunum. Gengur Skelj-
ungur að samstarfinu í stað N1, áð-
ur ESSO, sem hætt hefur þátttöku.
Bæði e-kortið og e2-Vildarkortið
eru alþjóðleg endurgreiðslukort,
eins konar tryggðarkort fyrir þau
samstarfsfyrirtæki sem eiga aðild
að kortunum. Skeljungur end-
urgreiðir handhöfum kortanna
1,5% þeirrar upphæðar sem verslað
er fyrir hjá Shell, bæði af vöru og
þjónustu, en í tilefni tímamótanna
er endurgreiðslan helmingi hærrri
í júnímánuði, eða 3%. Endur-
greiðslur vegna notkunar e-
kortanna eru í formi peninga-
greiðslu sem fram fer í desem-
bermánuði ár hvert. Auk
endurgreiðslnanna njóta hand-
hafar kortanna ýmissa tilboða sam-
starfsaðilanna.
Skeljungur
gengur til
samstarfs
við SPRON
NÚ Í ár munu Alþjóðlegu hreysti-
samtökin (IFF) halda heimsmeist-
araleika barna í hreysti í Malasíu,
nánar til tekið þann 29. júlí, á Putra
Bukit Jalil leikvanginum.
Þar sem Ungdóms- og íþrótta-
ráðuneyti Malasíu er meðvitað um
mikilvægi andlegrar og lík-
amlegrar hreysti er það að vonum
stolt að fá að halda þessa virtu
keppni sem hlotið hefur alþjóðlegt
lof.
Íþróttafólk frá ýmsum löndum
hvaðanæva úr heiminum munu taka
þátt og keppa um sæti á toppnum.
Skipuleggjandinn mun veita styrk
sem felur í sér allan kostnað, svo
sem flugfar, gistingu og svo fram-
vegis. Áætlað er að um 50 kepp-
endur frá 25 löndum/landsvæðum
og 25 fulltrúar/þjálfarar muni taka
þátt í keppninni.
Það er mikill heiður að fá boð um
að taka þátt í þessari keppni. Með
þessu móti gefst okkur færi á að
kynna bæði fallega landið okkar og
hæfileikaríku þátttakendurna okk-
ar fyrir umheiminum. Hægt verður
að fylgjast með keppninni í gegnum
sjónvarpsstöðvar um heim allan.
Við hyggjumst senda 5 kepp-
endur á aldrinum 12–15 ára í
keppnina. Og höfum við þegar valið
5 stúlkur frá Gróttu til þess að taka
þátt í þessari keppni.
Við æfum saman daglega og
þetta er mikið og stórt tækifæri fyr-
ir okkar keppendur að taka þátt.
Alþjóðleg
keppni í
hreysti barna