Morgunblaðið - 13.06.2007, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hugsaðu með skynfærunum– skynjaðu með huganum“[eða Think with the Sen-
ses – Feel with the Mind] eru skila-
boð Bandaríkjamannsins Roberts
Storr, hugmyndafræðingsins að
baki Feneyjatvíæringsins að þessu
sinni. Margir hafa túlkað þessa yf-
irskrift sem vísun í þá staðreynd að
samtímalistir hverfast í auknum
mæli um skynræna reynslu – og þá
ekki bara þá er byggist á sjón,
heldur einnig á annarri skynjun;
heyrn, tilfinningu fyrir jafnvægi,
rými, áreiti af ýmsu tagi og þar
fram eftir götunum. Yfirskriftin
varð því til þess að margir gerðu
sér miklar vonir um fjölbreytni og
ferskleika í þeim sýningnum sem
Storr bar ábyrgð á; ekki síst á al-
þjóðlegu sýningunum í ítalska skál-
anum á Giardini og á Arsenale. Er
Storr hélt því ennfremur fram í
skrifum sínum fyrir sýninguna að
„þótt sýningunni væri ætlað að
horfa fram á veginn, þá væri með
henni ekki horft til baka“ var varla
nema von að gestir opnunardag-
anna hefðu væntingar í þessa veru.
Að opnunardögunum loknum erþó ljóst að ýmsir hafa orðið
fyrir vonbrigðum með þessar tvær
sýningar tvíæringsins og framlag
Roberts Storr til hugmynda-
fræðilegrar þróunar lista samtím-
ans. Þannig segir til að mynda Pet-
er Richter í þýska dagblaðinu
Frankfurter Allgemeine sl. sunnu-
dag, að á þessum þremur dögum
hafi ekki einungis orðið ljóst að
tvíæringurinn „væri minna spenn-
andi en búist var við, heldur sé allt
jafnframt mun tilþrifaminna en á
síðustu tvíæringum.“ Af orðum
Richters má síðan ráða að hann á
fyrst og fremst við sýningarstjórn
Robert Storr á ofangreindum sýn-
ingum. Hann tekur sérstaklega til
þess hversu mikil mistök það hafi
verið hjá Storr að gefa málurunum
Robert Ryman, Gerhard Richter og
Ellisworth Kelly jafnmikið rými á
alþjóðlegu sýningunni í ítalska
skálanum og raun ber vitni; ekki
vegna þess að þessir listamenn
standi ekki fyrir sínu, heldur
vegna þess að þeir hafi ekkert nýtt
fram að færa. Ástæðan er auðvitað
sú að krafan um að það sem er nýtt
og heyrir til tíðinda með ein-
hverjum hætti sé í forgrunni á
tvíæringnum hefur löngum verið
hávær. Þessari stórhátíð myndlist-
arinnar er ætlað að vera djörf og
mótandi fyrir samtímann hverju
sinni, og því hafa þeir sem ekki
þora að taka áhættu ekki átt mikið
upp á pallborðið. Peter Richter er
greinilega talsmaður slíkra við-
horfa og segir hreint út að Storr
sýni umheiminum í ítalska skál-
anum list sem sé alveg eins og „fyr-
ir tuttugu árum“ en fólk komi ekki
á tvíæringinn til að skoða slíkar
sýningar.
Umsagnir um listræna stjórnRoberts Storr hafa þó ekki
allar verið litaðar gagnrýni und-
anfarna daga. Í Financial Times
var til að mynda einmitt horft til
þess hversu vel Storr hefði tekist
að sýna „púls samtímalistanna, og
greina hjartslátt heimsþorpsins“;
afhjúpa samtíma þar sem „brot-
hættir eiginleikar, jaðarmenning,
rótleysi“ eru áberandi. Í grein Fin-
ancial Times kemur ennfremur
fram að Storr hafi tekist að koma
sinni eigin þjóðmenningu á fram-
færi með eftirtektarverðum hætti.
Ekki síst fyrir tilstilli Matthew
Barney, en sýning á verkum hans í
Guggenheim safninu í Feneyjum er
einn merkasti hliðarviðburður
tvíæringsins í ár. Barney, sem oft
hefur verið álitinn bandarískur
arftaki hins evrópska Joseph Beu-
ys, er þó einungis einn af mörgum
bandarískum listjöfrum sem nú
gefur að líta í Feneyjum; Bill Viola
er einnig með verk sem vakið hef-
ur athygli, auk þess sem Felix
Gonzalez-Torres ríkir yfir banda-
ríska þjóðarskálanum. Síðan gríp-
ur auðvitað síðasta verkið sem Jas-
on Rhoades vann áður en hann
lést, athygli allra er ganga í gegn-
um Arsenale.
Undirrituð verður að við-urkenna að í hvert sinn sem
hún kemur til Feneyja virðist sem
síðasti tvíæringur hafi verið betri
en sá sem er yfirstandandi. Ef til
vill vegna þess að í þessari ofgnótt
skynræns áreitis sem sýning af
þessari stærðargráðu óhjákvæmi-
lega er, þarf dálítinn tíma til að
melta heildarútkomuna og átta sig
á því hvað það er sem stendur upp
úr hverju sinni. Verkefnið Utopía
Station sem tók gríðarmikið pláss
á Arsenale fyrir fjórum árum síðan
og var harðlega gagnrýnt þá, virð-
ist t.d. eftir á að hyggja mun til-
þrifameira, vogaðra og framsýnna
heldur en það sem nú var í öndvegi
á Arsenale. En því má heldur ekki
gleyma að á hverjum einast Fen-
eyjatvíæringi eru auðvitað und-
antekningarlaust nokkur afar
minnistæð verk – fjölbreytnin og
framboðið er slíkt að það segir sig
sjálft. Þau verk enduróma í minn-
ingunni á milli tvíæringa og setja
bæði hugmyndafræðilegan og fag-
urfræðilegan gæðastuðul á allt það
sem skoðað er annarsstaðar þess á
milli. Þótt þau sem vöktu slík við-
brögð verði ekki öll talin upp hér
er óhjákvæmilegt að minnast á
verk Mounir Fatmi á Arsenale, sem
var bæði áhrifamikið og vel útfært
„landslagsverk“; verk sem hverfist
um fjölbreytileika borgarlífsins og
þá ógn sem að því stafar um heim
allan eftir að árásirnar á tvíbura-
turnana í New York.
Ofgnótt skynræns áreitis?
Verkið Tijuanatanjierchandelier Innsetning Jason Rhoades á Arsenale var einskonar óður til minningar hans, en
listamaðurinn lést langt fyrir aldur fram fyrir nokkrum misserum.
AF LISTUM
Fríða Björk Ingvarsdóttir
» „Krafan um að það sem er nýtt og heyrir til tíð-inda með einhverjum hætti sé í forgrunni á
tvíæringnum hefur löngum verið hávær. Þessari
stórhátíð myndlistarinnar er ætlað að vera djörf og
mótandi fyrir samtímann hverju sinni, og því hafa
þeir sem ekki þora að taka áhættu ekki átt mikið
upp á pallborðið“
fbi@mbl.is
Verkið Save Manhattan Innsetning Mounir Fatmi á sýningunni Check List Luanda Pop; gert úr hátölurum er til
samans hljóma eins og maður sé staddur á Manhattan daginn sem árásirnar voru gerðar á tvíburaturnana.
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
14. júní kl. 12.00
Jón Bjarnason, orgel
16. júní kl. 12.00
Daniel Zaretsky, orgel
17. júní kl. 20.00
Hinn þekkti rússneski orgelleikari
Daniel Zaretsky leikur verk eftir
Buxtehude, Bach, Alain,
Hallgrím Helgason og Kohler.
www.listvinafelag.is
SÝNINGAR Á
SÖGULOFTI
MÝRAMAÐURINN
- höf. og leikari Gísli Einarsson
14/6 kl. 20 síðasta sýning
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
15/6 kl 18, 20/6 kl 20 uppselt,
29/6 kl 20, 1/7 kl 20, 5/7 kl 20,
13/7 kl. 20, 14/7 kl. 20,11/8 kl. 20,
12/8 kl. 20, 18/8 kl. 20, 19/8 kl. 20,
30/8 kl. 20, 31/8 kl. 20
SVONA ERU MENN (KK og Einar)
Aukasýning 16. júní kl. 20
Leikhústilboð í mat:
Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600
Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200
Miða- og borðapantanir í síma 437 1600
Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í samstarfi við Vesturport
Fös 15/6 kl. 20 UPPS.
BELGÍSKA KONGÓ
Í kvöld kl. 20 UPPS.
Fim 14/6 kl. 20 UPPS.
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
LADDI 6-TUGUR
Mið 20/6 kl. 20 UPPS.
Fim 21/6 kl. 20 UPPS.
Fös 22/6 kl. 20 UPPS.
Lau 23/6 kl. 20
Sun 24/6 kl. 20
Fim 28/6 kl. 20
Síðustu sýningar
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Ég bið að heilsa
Sýning á bútasaumsverkum
í tilefni af 200 ára
fæðingarafmæli
Jónasar Hallgrímssonar
Erró - Kvenfólk
Sýning á grafíkverkum í eigu
Listasafns Reykjavíkur
Af hjartans list!
Alþýðulistamaðurinn
Ágúst Jónsson
sýnir málverk í Boganum
Heitt og kalt
Ferðatöskusýning Evrópu-
samtaka bútasaumsfélaga.
Sýnd eru 17 teppi frá
jafnmörgum löndum
Vissir þú af...
góðri aðstöðu fyrir ráðstefnur
veislur, námskeið, fundi o.fl.
Nánar á www.gerduberg.is
Athugið nýjan opnunartíma!
Sýningar eru opnar virka daga kl.11-17
Lokað um helgar í júní
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600