Morgunblaðið - 13.06.2007, Síða 46

Morgunblaðið - 13.06.2007, Síða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000 Fantastic Four 2 kl. 6 - 8 - 10 Hostel 2 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 18 ára Fantastic Four 2 kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 Fantastic Four 2 LÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 Hostel 2 kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 18 ára Fantastic Four 2 kl. 6 - 8.20 - 10.30 The Hoax kl. 5:30 - 8 - 10.30 B.i. 12 ára 28 Weeks Later kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16 ára Painted Veil kl. 5:30 Fracture kl. 8 - 10.30 B.i. 14 ára The Last Mimzy kl. 3:40 Pirates of the Carribean 3 kl. 5 - 9 B.i. 10 ára Spider Man 3 kl. 5 - 8 B.i. 10 ára ROBERT CARLYLE ER VIÐURSTYGGILEGA GÓÐUR! STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA eeee L.I.B. - Topp5.is eee V.I.J. - Blaðið eeee Empire eeee H.J. - MBL Frábær ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna NÝ LEYNDARMÁL - NÝR MÁTTUR - ENGAR REGLUR eee L.I.B, Topp5.is eee FGG - FBL eee T.V. - kvikmyndir.is FALIN ÁSÝND OG ALLS EKKI, UNDIR NEINUM KRINGUMSTÆÐUM, FYRIR VIÐKVÆMA QUENTIN TARANTINO KYNNIR STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 18 ÁRA ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST R I C H A R D G E R E GABBIÐ eee D.V. - Kauptu bíómiðann á netinu Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * eeee “Vel gerð...Gere er frábær!” - H.J., Mbl eeee - Blaðið eeee S.V. - MBL HEIMSFRUMSÝND Í DAG FRUMSÝNING» KVIKMYNDIR byggðar á teikni- myndasögum virðast falla vel í kramið hjá bíógestum þessa dag- ana. Fjölmargar myndir hafa streymt í kvikmyndahúsin að und- anförnu, en hin nýjasta heitir The Fantastic Four; Rise of the Silver Surfer og er framhald kvikmynd- arinnar The Fantastic Four sem kom út árið 2005. Það er því við hæfi að atburðir framhaldsmynd- arinnar hefjist tveimur árum eftir að þeirri fyrri lauk. Hin fjögur fræknu (Mr. Fantas- tic, Invisible Woman, Human Torch og The Thing) mæta sinni stærstu áskorun til þessa, er hinn dularfulli geim-váboði, The Silver Surfer, kemur til jarðarinnar og býr hana undir tortímingu. Um leið og hann þýtur í kringum hnöttinn og veldur gríðarlegri ringulreið verða ofurhetjurnar að takast á við hættuna áður en öll von er úti. Hinn ófrýnilegi Doctor Doom mætir einnig til leiks á ný, en hann hefur dúsað síðustu tvö ár í hræðilegri prísund og ásælist nú krafta The Silver Surfer. Myndin hefur hlotið blendnar viðtökur. Sumir gagnrýnendur segja að myndin sé létt og skemmtileg. Í Baltimore Sun segir að Fantastic Four sé nútímaleg en þó ekta teiknimyndasagna- skemmtun. Þeir gagnrýnendur sem eru á öðru máli segja hins vegar að ekkert sé frábært við þessar fjórar ofurhetjur. Það er Tim Story sem leikstýrir myndinni en hann leikstýrði einn- ig þeirri fyrri. Hann hefur verið einlægur aðdáandi teiknimynda- sagnanna frá blautu barnsbeini og gamall draumur varð því að veru- leika er hann fékk það verkefni að gera þessar myndir. Frumraun hans var hin vinsæla Barbershop frá árinu 2002. Í henni lék meðal annars rapparinn Ice Cube, en Story hóf einmitt feril sinn í rapp- hljómsveit. Hljómsveit hans átti í samningaviðræðum við útgáfufyr- irtækið stóra, The Warner Bros. Records, þegar einn meðlima hennar var skotinn af keppinaut hljómsveitarinnar. Eftir þennan harmleik söðlaði Story um list- grein, og sér væntanlega ekki eftir því í dag. Helstu leikarar fyrri mynd- arinnar snúa aftur í The Fantastic Four; Rise of the Silfer Surfer, en það eru þau Jessica Alba, Michael Chiklis, Chris Evans; Ioan Gruf- fudd, Julian McMahon og Kerry Washington. Á meðal nýrra leikara eru Doug Jones og Beau Garrett, en það er hinn dimmraddaði og karlmann- legi Laurence Fishburne sem ljær The Silfer Surfer rödd sína. Jörðin búin undir tortímingu Metacritic: 40/100 New York Times: 40/100 Variety: 50/100 Empire: 40/100 Ofurhetjur Kvartettinn frábæri mætir sinni mestu áskorun til þessa þegar Silfur-brimarinn fiktar í ótrúlegum ofurhæfileikum þeirra. LEE OG KIRBY kallast teymið sem skapaði The Fantastic Four. Stan Lee samdi sögurnar en Kirby teiknaði. Stan Lee hafði lengi stefnt á að ná langt í teikni- mynda- sögubransanum. Í kjölfar mikilla vinsælda nýs ofur- hetjuteymis, The Justice League of America, fékk hann það verkefni ár- ið 1961 að setja saman lið svipaðra afburðakaraktera fyrir Marvel Co- mics, hina þekktu bandarísku teiknumyndasögulínu fyrirtækisins Marvel Publishing, Inc. Um þetta segir Lee: „Í fyrsti skipti fékk ég tækifæri til að skrifa sögu af þeim toga sem ég sjálfur gæti notið að lesa … og per- sónurnar yrðu þannig að ég gæti sjálfur tengt við þær; þær yrðu af holdi og blóði, hefðu galla og kæki, væru mistækar en kraftmiklar, og – það sem mikilvægast er – innan- undir litríkum búningum væru mol- dugir og skítugir fætur.“ Ofurhetjurnar hafa komið víða við síðan þá og sumar átt sólóferil. Ofurhetjur af holdi og blóði Fyrsta tölublað Fantastic Four.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.