Morgunblaðið - 13.06.2007, Síða 52
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 164. DAGUR ÁRSINS 2007
45 !+% '%
6%& %%& 0 %7 21
1 1
1 2 1 12 21 21
21
1
1 1
2 1
12 21
12
21 )8. ! 12
21 2 1 1
1 2 1 12 21 9:;;<=>
!?@=;>A6!BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA!8 8=EA<
A:=!8 8=EA<
!FA!8 8=EA<
!/>!!A0 G=<A8>
H<B<A!8? H@A
!9=
@/=<
6@A6>!/'!>?<;<
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Háskóli Íslands efstur
í níu af ellefu atriðum
Í nýrri úttekt Ríkisendurskoð-
unar á kostnaði, skilvirkni og gæð-
um í kennslu hjá fjórum íslenskum
háskólum fær Háskóli Íslands bestu
umsögnina. Þetta er í fyrsta skipti
sem slík úttekt er gerð. »Forsíða
Slæm umgengni
Skammarleg umgengni um orlofs-
hús VR hefur vakið hörð viðbrögð.
Félagsmenn vilja aldurstakmark í
bústaðina. Æla, rotnandi matarleifar
og notaðir smokkar eru skildir eftir
fyrir næsta mann. »2
Hörð átök á Gaza
Hundruð Hamas-liða réðust gegn
Fatah-hermönnum í gær. Mahmoud
Abbas, forseti Palestínu, segir Ham-
as-liða ætla að reyna valdarán, en
sprengikúlum hefur rignt yfir heim-
ili hans í átökunum. »14
Gagnrýna bankaráðið
Kristinn H. Gunnarsson í Frjáls-
lynda flokknum og Helgi Hjörvar,
Samfylkingunni, gagnrýndu banka-
ráð Seðlabankans harðlega á þingi í
gær fyrir að auka óstöðugleika með
ótímabærum launahækkunum til
seðlabankastjóra um leið og varað
væri við ofþenslu. „Olía á eld, en
ekki sá kaldi bakstur sem Seðla-
bankinn á að vera.“ »11
SKOÐANIR»
Staksteinar: Auglýsingamennska …
Forystugreinar: Alvarlegar at-
hugasemdir | Barnaþrælkun og ól-
ympíuhugsjónin
Ljósvaki: Efstaleiti – Skaftahlíð
UMRÆÐAN»
Hvað má peningastjórnin kosta?
Brunaslys
Atvinnugreinin ferðaþjónusta
Hvað á sjávarútvegsráðherra við?
Heitast 15°C | Kaldast 10°C
Fremur hæg suð-
vestlæg eða breytileg
átt, skýjað með köflum
og smáskúrir vest-
anlands. » 10
Undirbúningur
stendur nú yfir fyrir
Hinsegin daga í
Reykjavík, sem
haldnir verða 10. til
12. ágúst. »47
HÁTÍÐIR»
Hinsegin
dagar
KVIKMYNDADÓMUR»
Hryllingsmynd sem er
ekki hryllileg. »49
Joni Mitchell var
hippi og fjöllista-
kona. Tónleikar
henni til heiðurs
verða haldnir í
kvöld. »49
TÓNLEIKAR»
Mitchell til
heiðurs
AF LISTUM»
Ofgnótt skynræns áreitis
á tvíæringi? »44
STUTTMYNDIR»
Samkynhneigðir glíma í
Bræðrabyltu. »42
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Eiður Smári til sölu
2. Ísland séð utan úr geimi
3. Dýrasta íbúðin á 230 milljónir
4. Diddú og Dísella bjarga …
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
DAGLEGT líf starfsfólks hjúkrunarheimilisins á
Vífilsstöðum, og ættingja sjúklinga þar, er nú
komið í talsvert uppnám eftir að ákveðið var að
hætta strætisvagnaferðum þangað. Nú þegar hef-
ur að minnsta kosti ein starfskona boðað uppsögn
sína vegna þess að ómögulegt er fyrir hana að
komast í vinnuna. Næsta stoppistöð er nú við
Garðatorg og þarf að ganga í gegnum nærfellt all-
an Garðabæ til að komast að Vífilsstöðum.
Til að gefa mynd af því ástandi sem blasir nú við
ættingjum sjúklinga nefnir Ingibjörg Tómasdótt-
ir, forstöðumaður Vífilsstaða, aðstæður nokkurra
roskinna kvenna sem eiga eiginmenn á Vífilsstöð-
um. „Þær eru ekki á bíl og þurfa að komast með
strætó. Þær hafa jafnvel valið mökum sínum pláss
hér í trausti þess að strætósamgöngur yrðu fyrir
hendi,“ bendir hún á. Segir hún þetta bagalegt því
nú verði að keyra aðstandendurna í heimsóknir.
Á Vífilsstöðum eru langlegudeildir og segist
Ingibjörg vænta þess að niðurfelling strætóferð-
anna hafi þær afleiðingar að sjúklingar muni nú
fara að óska þess að verða fluttir annað til að af-
stýra því ástandi að aðstandendur geti ekki heim-
sótt þá. Þetta sé hins vegar vandamál, enda ekki
pláss á lausu á hinum hjúkrunarheimilunum.
En það eru ekki eingöngu aðstandendur sem
reiða sig á strætóferðirnar til að geta heimsótt
sjúklingana, því starfsfólk er einnig háð strætó-
ferðunum. „Næsta stoppistöð er á Garðatorgi og
það sér hver maður að það er ansi langt að ganga
þaðan, eftir öllum Vífilsstaðaveginum og hingað.
Hér vinnur skólafólk með lítil fjárráð og hefur
ekki bíl og þetta skapar því vanda.“
Sveini Skúlasyni, forstjóra Hrafnistu, mislíkar
ákvörðun Strætós sem hann segir hafa verið
byggða á niðurstöðum talningar. „Þeir sögðu að 18
af okkar starfsfólki tækju strætó við Vífilsstaði og
11 manns kæmu með vagninum yfir allan daginn.
Það getum við skilið, því þetta er á vaktaskipt-
unum. En síðan eykst þetta yfir sumarið vegna
komu sumarfólksins og það hefur almennt ekki
bíla til umráða. Nú þegar er starfsfólk farið að
segja upp út af þessu. Ég veit um eina starfskonu
sem reiðir sig á strætó og hún hefur sagt okkur að
hún komi ekki til vinnu eftir sumarfrí.“
Geta ekki lengur heimsótt
aldraða aðstandendur sína
Vandræði hafa skapast vegna þess að strætó ekur ekki lengur að Vífilsstöðum
Morgunblaðið/ÞÖK
Farinn Strætisvagnar stoppa ekki lengur við
Vífilsstaði í Garðabæ og ekki eiga allir bíl.
MARTIN Scor-
sese, einn virtasti
kvikmyndaleik-
stjóri heims, hef-
ur mikinn áhuga
á því að vera við-
staddur frum-
sýningu á heim-
ildamynd sinni
um Rolling Ston-
es, Shine a Light,
á Íslandi í haust. Scorsese tjáði
þetta Árna Samúelssyni, eiganda
Sambíóanna, á frumsýningu mynd-
arinnar í fyrradag. Scorsese sagð-
ist vera að lesa Sjálfstætt fólk og
var afar hrifinn af bókinni.
Scorsese á leið
til Íslands?
Martin Scorsese
LEIKSKÓLABÖRN á Hraunborg og eldri borgarar í
félagsstarfi í Gerðubergi gróðursettu í gær birki-
plöntur í svokölluðum gæðareit við Hraunberg en hann
er á bak við menningarmiðstöðina Gerðuberg.
Einnig verður gróðursett í dag en auk birkiplantn-
anna verður einn hlynur gróðursettur. Reykjavík-
urborg og Garðyrkjufélag Íslands leggja til plönturn-
ar.
Unga fólkið var sérlega áhugasamt um gróðursetn-
inguna og kunni greinilega réttu handtökin.
Morgunblaðið/ÞÖK
Kynslóðir mætast í blómabeðinu
LÍTIL seglskúta steytti á skeri rétt
utan við Ægisíðu í Reykjavík á átt-
unda tímanum í gærkvöldi. Eftir að
hafa reynt að losa skútuna án
árangurs kölluðu skipverjar, fjórir
nemar á námskeiði í siglingum og
skipstjóri, eftir aðstoð. Gott veður
var og lítil hætta á ferðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg fór
Björgunarsveitin Ársæll á staðinn á
Gróu P. og náðist skútan fljótlega
og farsællega á flot. Hún var lítið
sem ekkert skemmd en vélarvana
og því þurfti að draga hana áleiðis
til hafnar í Kópavogi.
Seglskúta
steytti á skeri