Morgunblaðið - 14.06.2007, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
Reykjavík | Miðborgarþing var haldið í Ráð-
húsi Reykjavíkur í gær. Þar kom m.a. fram
að nýlega hefði verið stofnað félagið Miðborg
Reykjavíkur sem á að standa að hagsmuna-
málum miðborgarinnar. Það mun taka yfir
rekstur Þróunarfélags miðborgarinnar og í
kjölfarið verður hverfisráð miðborgarinnar
lagt niður.
Í setningarávarpi sínu sagðist Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri binda vonir við
að þetta nýja félag yrði lyftistöng fyrir mið-
borgina í náinni framtíð. Hann sagðist að
auki telja það mjög mikilvægt að Reykjavík-
urborg legði enn frekari áherslu á að auka
lífsgæði í miðborginni í samvinnu við hags-
munaaðila, m.a. með fegrun og hreinsun mið-
borgarinnar. „Það er sannfæring mín eftir
skoðun á fyrirkomulagi miðborgarmála að
hægt sé að ná mun betri og meiri árangri við
að efla miðborgina okkar ef hagsmunaaðilar
og Reykjavíkurborg leggja lóð sín á sameig-
inlega vog.“
Miðborgin þjóðarhagur
Á fundinum var einnig rætt um hvernig
hægt væri að efla verslun og þjónustu í mið-
borg Reykjavíkur. Júlíus Vífill Ingvarsson,
borgarfulltrúi og formaður Miðborgar
Reykjavíkur, sagði borgina ekki geta gengið
á sjálfstýringu heldur skipti samvinna borgar
og hagsmunaaðila í miðborginni sköpum.
Hann sagði jafnframt ferðaþjónustu vera
meðal helstu atvinnuvega landsins og það
væri því þjóðarhagur að miðborg Reykjavík-
ur væri sérstök, áhugaverð og ógleymanleg
þeim sem þangað kæmu.
Skv. niðurstöðum viðhorfskönnunar Capa-
cent Gallup versla 40% aðspurðra nær aldrei
í miðborginni og sagði Júlíus Vífill nauðsyn-
legt að bæta úr því. Helstu ástæður fólks
voru of mikil fjarlægð frá heimili og bíla-
stæðavandi miðborgarinnar.
Júlíus Vífill tók það fram að Reykjavík-
urborg ætlaði sér ekki að ráðskast með at-
vinnulífið eða fara út í deiliskipulagsgerð sem
gæti heft frelsi til nýsköpunar eða dregið úr
áhuga á breytingum. Markmiðið væri fyrst
og fremst að efla verslun og þjónustu.
Verslunarmiðstöð í miðborginni?
Svava Johansen, kaupmaður og eigandi
NTC, sagði gaman að koma í miðbæ Reykja-
víkurborgar en nauðsynlegt væri að gera
verslanirnar sýnilegri. Hún lagði fram nokkr-
ar tillögur að betrumbótum miðbæjarins og í
þeim fólst m.a. að verslanir samræmdu af-
greiðslutíma sinn í takt við stóru versl-
unarhúsin og að stöðumælagjald og sektir
yrðu lækkuð. Að lokum lagði hún til að versl-
unarmiðstöð yrði reist í miðborginni.
Því var Jan Olav Braaten, sem hefur um
tuttugu ára reynslu af þróun og uppbyggingu
verslunarmiðstöðva í Evrópu, alveg sammála.
Hann taldi lykilatriði í uppbyggingu miðborg-
arinnar felast í fjölgun smásöluverslana en
gæta þyrfti að því að blanda verslunum sam-
an við mismunandi menningu, afþreyingu og
fallega hönnun til að ná tilætluðum árangri
og tryggja mikið mannlíf í miðborginni. Jan
Olav lagði mikla áherslu á að aðaldrifkraft-
urinn fælist í smásöluverslunum. Tækist að
byggja fjölbreytta afþreyingarmiðstöð sem
félli vel að miðborginni myndi hún draga að
sér fleiri verslanir og geta keppt við Smára-
lind og Kringluna. Hans reynsla af álíka
verkefni hefði verið sú að viðskipti jukust
nær strax.
Nýtt félag lyftistöng fyrir miðborgina
Morgunblaðið/G.Rúnar
Miðborgarþing Að sögn Júlíusar Vífils Ingvarssonar, formanns Miðborgar Reykjavíkur, er mikilvægt að miðborg Reykjavíkur sé sérstök,
áhugaverð og ógleymanleg þeim sem þangað komi. Samvinna borgar og hagsmunaaðila í miðborginni geti ráðið miklu þar um.
Í HNOTSKURN
»Hið nýstofnaða félag MiðborgReykjavíkur tekur yfir rekstur Þró-
unarfélags miðborgarinnar. Markmið
félagsins er að efla þjónustu og verslun í
miðborginni.
»Félagið er skipað sjö aðilum; fjórumúr hópi hagsmunaaðila og þremur
sem borgarráð velur.
» Í nýlegri könnun sögðust 40% að-spurðra versla sjaldan eða aldrei í
miðborginni. Helstu ástæður fyrir því
eru of mikil fjarlægð frá heimili og
skortur á bílastæðum.
»80% landsmanna telja mikilvægt aðefla verslun í miðbænum.
Stefnt að eflingu
verslunar og þjónustu
í miðbæ Reykjavíkur
AKUREYRI
ÞAÐ ER rétt að taka það strax fram að fyrirsögnin er
rétt stafsett. Um er nefnilega að ræða sérstakt fyr-
irbæri: hreingjörninginn. Það er heitið á gjörningum
listakonunnar Önnu Richards, sem miða að því að
hreinsa heiminn. Anna hefur semsagt unnið að því um
áraraðir að hreinsa heiminn í gegnum gjörninga sína.
Áður vann hún ein að gjörningunum, en síðastliðin þrjú
ár hefur hún boðið listafólki víðsvegar að úr heiminum
að taka þátt með henni. „Og ekki veitir af,“ segir Anna.
Áhugi Önnu á hreingjörningum kviknaði að hennar
sögn í hennar eigin innri hreingjörningi: „Þannig færð-
ust hreingjörningarnir úr mínum eigin sálarherbergjum
og út í veröldina.“
Hreingjörningar fólks um allan heim til sýnis
„Hinn þriðji Alheimshreingjörningur“ verður sér-
staklega útfærður fyrir Þorgeirskirkju og vatn, sem
fékk Önnu til að hugleiða þýðingu vatnsins fyrir trúar-
brögðin. Hann verður haldinn á dulmögnuðum stað: í
Þorgeirskirkju við Ljósavatn og hefst kl. 21 nk. föstu-
dagskvöld.
„Þar munu verk og gjörningar kvenna og karla alls-
staðar að úr heiminum verða til sýnis til að magna áhrif-
in við að þrífa heiminn.“ Auk fjölda verka sem Anna hef-
ur fengið send frá listafólki, mun hún njóta fulltingis
Ragnhildar Gísladóttur söngkonu. „Ragnhildur mun
spinna rödd sína í fléttu við Hreingjörning sem ég flyt.
Við hófum samstarf 1991 og við höfum meðal annars
framið hreingjörning í Japan.“
Valgerður H. Bjarnadóttir mun einnig um kvöldið
leiða gjörning þar sem goðin verða heimt aftur úr Goða-
fossi: „Goðin hvíldu í fossinum í 1008 ár og nú er tími til
kominn að kalla þau til okkar aftur,“ segir Valgerður.
„Ekki til að taka yfir, heldur lifa í sátt við öll önnur þau
goð sem við kjósum í lífi okkar. Náttúran sjálf er goð-
mögnuð og með hennar fulltingi hreinsum við heiminn.“
Kvöldið hefst með samstarfi Önnu og Ragnhildar, en
eftir það er haldið út í náttúruna til að endurheimta goð-
in. Eftir það verður áhorfendum boðið að sjá mynd- og
textaverk af gerningum í safnaðarheimili kirkjunnar.
Alheimshreingjörningur
haldinn í Þorgeirskirkju
Hreinsar heiminn Anna með hreingjörning í Joensuu í
Finnlandi þar sem hún tók þátt á jaðarlistarhátíð.
Í HNOTSKURN
»Anna gat sér orðstír þegar hún stóð fyrir viku-legum hreingjörningum í miðbæ Akureyrar í
heilt ár frá 1998-99.
»Eftir það ákvað hún að þrífa allan heiminn oghefur starfað við það síðan.
»Síðastliðin ár hefur hún staðið fyrir árlegum al-heimshreingjörningum ásamt öðru fólki og er
þetta þriðja skiptið af alls 10.
Goðin endurheimt úr
Goðafossi á sýningunni
BRYNDÍS Kjartansdóttir, Hákon Hákonarson, Kristín Anna Kristjáns-
dóttir, Lilja Kristín Sæmundsdóttir og Valborg Kjærbech Óskarsdóttir út-
skrifuðust úr rekstrar- og stjórnunarnámi Símenntunar Háskólans á Ak-
ureyri. Útskriftin fór fram hinn 8. júní í Listasafni ASÍ. Félagsmálaskóli
alþýðu býður upp á háskólanám fyrir forystu og starfsmenn stéttarfélaga í
samstarfi við Símenntun HA. Þetta er þriðji útskriftarhópurinn.
Í fréttatilkynningu segir um námið: „Markmið þess er að gera félögin
öflugri í opinberri umræðu, beittari í kjarabaráttunni og um leið að efla
þátttakendur í starfi og leik. Námið er skipulagt með þarfir forystu og
starfsmanna stéttarfélaga í huga, bæði hvað varðar námsgreinar og skipu-
lag. Kennsla fer fram á vinnutíma og eru kennsluhættir og aðferðir sniðn-
ar að þörfum fólks sem vinnur samhliða námi.“
Samstarfsútskrift
Í KVÖLD kl. 20 mun Pétur H. Ár-
mannsson arkitekt fjalla um Guðjón
Samúelsson og verk hans í fyrirlestri
sem haldinn er á 1. hæð í Rósenborg
(Barnaskóla Akureyrar.) Í framhaldi
af því verður fólki boðið að ganga um
þann hluta bæjarins sem ber hvað
sterkust einkenni Guðjóns.
Rósenborg verður opnuð klukkan
19.30, þannig að fólki gefst tækifæri
til að skoða húsið eftir yfirgripsmikl-
ar endurbætur á því. Þær miðuðu að
því að halda í sem mest af upphaf-
legu útliti hússins, sem Guðjón hann-
aði.
Auk Rósenborgar eru fjölmörg
opinber hús á Akureyri sem Guðjón
var höfundur að, til að mynda Ak-
ureyrarkirkja, elsti hluti Sundlaug-
arinnar og gamla íþróttahúsið fyrir
neðan hana, auk Húsmæðraskólans
við Þórunnarstræti.
Áhrif Guðjóns á
bæjarmynd Akureyrar