Morgunblaðið - 26.06.2007, Side 11

Morgunblaðið - 26.06.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 11 STANGVEIÐI „VEIÐISKAPUR er happdrætti, það er ekkert gaman ef allir fá vinn- ing,“ sagði Eiríkur Pálsson, veiði- vörður á Arnarvatnsheiði, í gær- kvöldi. Hann hafði sömu sögu að segja og aðrir umsjónarmenn veiði- svæða sem rætt var við, það vantar alls staðar vatn. Veiðimenn bíða eftir rigningunni – sem er víst ekki í kort- unum. „Það hefur verið frekar dræmt. Menn eru að kroppa hér og þar, sumum gengur betur en öðrum, en það vantar nýtt vatn. Fiskurinn mætti taka betur. Það kom demba fyrir um tíu dögum og þá tók fisk- urinn um leið.“ Eiríkur segir flesta veiðimenn veiða á flugu en margir noti einnig spún og maðk. Og veðrið hefur vissulega verið afskaplega gott upp á síðkastið, fyrir utan að það var næturfrost fyrir helgi. Þá er flugan eitthvað að angra menn. „En veiði- menn eru jákvæðir að upplagi, þótt maður vildi vissulega að allir færu ánægður niður af heiðinni aftur.“ Tíu punda úr Veiðivötnum Veiðivötn voru opnuð á föstudag- inn var, en þar er veitt á um 90 stangir. Bryndís Magnúsdóttir veiðivörður sagði veiðina þessa fyrstu daga hafa verið svipaða og í opnun síðustu ár, eða allgóða, og fiskur væri kominn úr flestum vatnanna. Stærsti urriðinn til þessa er tæp tíu pund. Bryndís sagði að veiðimenn segðu helstu breytinguna nú vera þá, að eftir afar háa vatnsstöðu í Litlasjó og Hraunvötnum síðustu tvö, þrjú ár, hefði vatnsborðið nú lækkað og fögnuðu sumir gamalkunnir veiði- menn því að sjá góða veiðistaði á þurru að nýju. 80 cm Maríulax í Grímsá Víðast hvar kvarta laxveiðimenn sáran yfir vatnslitlum ám og glærum – og að lítið af fiski sé gengið í árnar. Nú horfa þeir spenntir til næsta stóra straums, sem er eftir fjóra daga. Fólk sem rætt var við á bökk- um áa í gærkvöldi, var bjartsýnt á að nú væru göngurnar að hefjast, þar sem laxar voru að sjást í auknum mæli í gær. Þannig voru laxar búnir að dreifa sér í neðstu hyli Grímsár, bæði tveggja ára laxar og smálaxar, og tveir tóku flugur veiðimanna. Annar var Maríulax, 80 cm langur, sem reyndi á taugar veiðimannsins. Hann tók á Lækjarbreiðu, 60 metr- um fyrir ofan brúna á þjóðveginum, en var ekki landað fyrr en í Hörgs- hyl, neðan brúar. „Það er ekki slæmt að hefja lax- veiðiferilinn með þessum hætti og eins og reglur segja til um og sönn- um höfðingja sæmir þá fékk hrygn- an að sjálfsögðu líf,“ sagði Jón Þór Júlíusson leigutaki árinnar. Laxar komnir úr Rangánum Ein þeirra áa sem líður fyrir lítið vatn þessa dagana er Straumfjarð- ará á sunnanverðu Snæfellsnesi. Þar varð Katrín Ævarsdóttir fyrir svör- um og sagði að áin væri komin niður í harða grjót ef ekki væri vatns- miðlun í Baulárvallavatni. „Ég man ekki eftir svona litlu vatni í opnun árinnar. Við erum búin að veiða í þrjá daga og það er enginn lax kominn á land en þeir fyrstu voru mættir í ána í morgun. Þeir eru afskaplega styggir í þessu glæra vatni. Hinsvegar hafa veiðimenn veitt vel af fallegri bleikju.“ Í Langá lifnaði aðeins yfir mönn- um í fyrrakvöld, er grálúsugir laxar tóku að veiðast í Strengjum. Annars voru veiðimenn að skjótast upp á fjall, þar sem þeir gengu að afar fal- legum bleikjum – sem er ekki ama- leg veiði heldur. Tíu laxar höfðu veiðst í Elliða- ánum um miðjan dag í gær. Sá stærsti til þessa er tólf pundari sem veiddist í Sjávarfossi og var ekki sleppt aftur. Á morgunvaktinni í gær veiddust þrír, tveir í Sjávarfossi og einn í Holunni, allir á maðk. Þá tók fjögurra punda urriði fluguna Laxabláa í Neðri-Móhyl. „Hann var meira á lofti en ofan í vatninu,“ sagði félagi veiðimannsins og átti ekki orð til að lýsa fimleikum fisksins. Loksins er laxinn farinn að sýna sig í Blöndu, en þar veiddust sex á dag um helgina. Fyrsti laxinn er kominn úr Víðidalsá og þá er búið að veiða laxa í Rangánum báðum. Ytr- Rangá var opnuð í gær og strax veiddist tíu pundari í Djúpósi. Eystri áin hefur enn ekki verið opnuð, en leiðsögumaður sem „fékk að kíkja“ sneri aftur með átta punda hrygnu sem tók Snældu á Tunguvaði. Nýgenginn Hákon Stefánsson með lúsugan lax úr Strengjunum í Grímsá í gærmorgun. Veiðimenn vonast til þess að líf sé að færast í veiðina. „Það kom demba og þá tók fiskurinn“ Stangveiðimenn bíða eftir rigningu SAMBANDSSTJÓRN Sjómanna- sambands Íslands telur að taka verði alvarlega tillögur Hafrannsókna- stofnunarinnar um verulegan niður- skurð í þorskveiðum á næsta fisk- veiðiári. „Þó svo að ýmislegt megi gagnrýna í aðferðafræði stofnunar- innar við mat á stofnstærð er það staðreynd að ekki liggja fyrir betri upplýsingar um stofnmatið,“ segir í ályktun frá sambandsstjórninni. Þar segir ennfremur: „Ljóst er að markmið fiskveiðistjórnunarkerfis- ins um að byggja upp þorskstofninn hefur algjörlega mistekist. Sú skylda hvílir á stjórnvöldum og hagsmuna- aðilum í sjávarútvegi að skoða for- dómalaust alla þætti fiskveiðistjórn- unarkerfisins og lífríkisins og taka á þeim þáttum sem valda sóun og koma í veg fyrir uppbyggingu stofnsins. Stjórnin telur að beita verði öllum ráðum til að snúa þróun- inni við, þannig að þorskstofninn vaxi á næstu árum í stað þess að standa í stað eða minnka eins og gerst hefur undanfarin ár. Til að snúa þessari þróun við þarf sérstak- lega að skoða áhrif leiguframsals veiðiheimilda, brottkasts og landana framhjá vigt á sókn í stofninn og þar með stofnstærð. Auk þess þarf að skoða fæðuframboðið á Íslandsmið- um fyrir þorskstofninn.“ Tilfærslu milli byggða hafnað „Fundur sambandsstjórnar SSÍ hafnar alfarið þeirri hugmynd að leysa beri vanda einstakra byggðar- laga með byggðakvótum. Slíkar að- gerðir leysa engan vanda, enda yrði þá sumum byggðarlögum umbunað á kostnað annarra, sem er aðeins til- færsla á vandanum en ekki lausn. Margoft hefur verið bent á það af Sjómannasambandi Íslands að gefa verður fiskvinnslunni tækifæri til að afla hráefnis til vinnslunnar án þess að jafnframt sé rekið skip í tengslum við hana. Óeðlilegt er að þeir sem eiga skip og fá úthlutað veiðiheim- ildum á grundvelli þess geti jafn- framt ákveðið að selja sjálfum sér eða öðrum aflann á lægra verði en markaðurinn er tilbúinn að greiða fyrir hann,“ segir meðal annars í ályktuninni. Taka verður tillögur Hafró alvarlega Í HNOTSKURN »Þó svo að ýmislegt megigagnrýna í aðferðafræði stofnunarinnar við mat á stofnstærð er það staðreynd að ekki liggja fyrir betri upp- lýsingar um stofnmatið. »SSÍ hafnar alfarið þeirrihugmynd að leysa beri vanda einstakra byggðarlaga með byggðarkvótum.                                                                                 !                                                  !  !  !  !  !  ! " # $# %& '  !  !  !  !  !  !  () *   +,(   () *   +,(    () *   +,(   - - - - - - - - -     .& (& /#   0 # ( !  1 , %  #.&(&  #  /  !   (   2 ! # . /   0  !  !  !  !  !  !  !    ! 2 3/ (445 !   # 6&!# . /   0 , , (.  "  "    "   #" FISKISTOFNAR við Bandaríkin, sem taldir eru ofveiddir, voru jafn- margir í fyrra og árið áður. 242 stofn- ar hafa verið rannsakaðir og reyndust 194, eða 80%, vera nýttir með sjálf- bærum hætti. 49 stofnar eða 20% reyndust hins vegar vera ofveiddir samkvæmt samantekt frá Banda- ríska fiskifélaginu, the National Mar- ine Fisheries Service, NMFS. Af þeim 186 fiskistofnum, sem vitað er að hafi verið ofveiddir, eru 140 eða 75% það ekki lengur. 47 stofnar, 25%, eru hins vegar ofveiddir og eru þessi hlutföll óbreytt frá árinu áður. Þeim stofnum, sem of mikið er veitt úr, fjölgaði um 3 frá árinu áður. Þrír stofnar voru teknir af listanum en sex bættust við. Meðal þeirra stofna, sem ekki eru lengur taldir ofveiddir, eru úthafshörpudiskur og hrifsari í Mexíkóflóa. Fjórir fiskistofnar bættust á lista yfir þá sem eru ofveiddir. Það eru vetrarskata, gagari í Mexíkóflóa, Ka- líforníukoli og guluggatúnfiskur í austanverðu Kyrrahafi. Þá eru grái gikkur í Mexíkóflóa og rökkurhákarl taldir í hættu auk skötusels, sandhá- karls og hámerar. Óbreytt staða við Bandaríkin ÚR VERINU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.