Morgunblaðið - 26.06.2007, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8:15 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4:15 - 6:15 LEYFÐ DIGITAL
CODE NAME: THE CLEANER kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5 B.i. 10 ára DIGITAL
SHREK 3 m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
SHREK 3 VIP m/ensku tali kl. 8 - 10:10
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
OCEAN'S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára
OCEAN'S 13 VIP kl. 5:30
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 8 - 10 B.i.10.ára
ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
WWW.SAMBIO.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FYRR OG SÍÐAR.
DANIEL Radcliffe, sem leikur galdrastrákinn Harry Potter, er töfra-
maður á sviði kossa. Þetta upplýsti Katie Leung, sem leikur á móti
Radcliffe í nýjustu myndinni, sem nefnist Harry Potter og Fönixreglan
og verður frumsýnd í júlí. Leikarar myndarinnar komu saman á blaða-
mannafundi í London í gær til að kynna myndina.
„Hann var frábær,“ sagði Leung, sem leikur Cho Chang, skólasystur
og kærustu Potters. „Ég er viss um að allir vilja vita hvort hann kyssir
vel og það gerir hann svo sannarlega.“
Radcliffe viðurkenndi að hann hefði verið nokkuð taugaóstyrkur í
upphafi en það hefði breyst þegar tökurnar voru komnar vel á veg.
Nýja myndin er sú fimmta, sem gerð er eftir bókum J.K. Rowlings
um Harry Potter. David Heyman, framleiðandi myndarinnar, sagði að
kossaatriðið markaði tímamót í myndaflokknum, sem hóf göngu sína
árið 2001.
„Við höfum mörg þekkt Daniel frá því hann var 10 ára, séð hann vaxa
og þroskast og reynt að gæta hans. … Þetta var afar skrítið. Ég hugs-
aði í sífellu: Ég ætti ekki að vera að horfa á þetta,“ sagði Heyman.
Von er á síðustu bókinni um Harry Potter í júlí. Rowling hefur sagt,
að tveir af sögupersónunum í bókinni láti lífið en hefur ekki viljað segja
hverjar.
REUTERS
Leikararnir Evanna Lynch (Luna Lovegood), Rupert Grint (Ron Weasley), Emma Watson (Hermione Granger), Daniel Radcliffe (Harry Potter)
and Katie Leung (Cho Chang) á blaðamannafundi í London í gær.
Harry Potter kyssir vel
TÖLVULEIKURINN umdeildi, Manhunt 2,
verður ekki gefinn út að svo stöddu.
Ástæðan er sú að leikurinn hefur verið bann-
aður í Bretlandi og Írlandi og aðeins leyfður
fullorðnum einstaklinum í Bandaríkjunum.
Framleiðendur leikjarins ákváðu því að fresta
útgáfu hans um óákveðinn tíma.
Eftirlitið neitaði að veita leiknum vottun á
þeim forsendum að sífelld áhersla sé lögð á um-
sátur og ofbeldi í honum og segir yfirmaður
kvikmyndaeftirlitsins í Bretlandi að smávax-
andi og frjálslegur kvalalosti einkenni leikinn.
Fyrsta útgáfa leiksins var bannaður yngri en
18 ára, en hann vakti mikið umtal eftir að for-
eldrar fjórtán ára drengs frá Leicester sem var
myrtur, kenndu áhrifum leiksins um morðið.
Hætt við
útgáfu
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Umdeildur Fjöldi fólks er örugglega feginn
því að Manhunt 2 kemur ekki í verslanir á
meðan öðrum þykir það eflaust súrt.
Umdeildur tölvuleikur
ekki í verslanir
MYNDLIST
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Ljósmyndir, Olaf Otto Becker, Páll Stef-
ánsson, Ragnar Axelsson
Til 9. september. Opið virka daga
frá. 12-19 og 13-17 um helgar.
Aðgangur ókeypis.
ÞRÍR valinkunnir ljósmyndarar
leiða saman hesta sína í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur í sumar,
þeir Ragnar Axelsson, Páll Stef-
ánsson og þýski ljósmyndarinn
Olaf Otto Becker. Sá síðastnefndi
hefur eins og Ragnar myndað
töluvert á norðurslóðum, hér sýnir
hann myndir teknar hérlendis en
einnig hefur hann myndað á
Grænlandi eins og sjá má á
heimasíðu hans. Becker á nokkurn
sýningarferil að baki sem ljós-
myndari en er auk þess lærður
hönnuður og hefur einnig lagt
stund á nám í heimspeki og trúar-
brögðum.
Sýningin í Ljósmyndasafninu
sýnir ólíka nálgun þriggja per-
sónuleika við myndefnið Ísland.
Páll Stefánsson er allt að því ab-
strakt í ísmyndum sínum sem eru
sumar hverjar kosmískar, svo vart
verður séð hvað myndað er – ís-
klumpur í geimnum umkringdur
stjörnum, eða er þetta svartur
sandur sem glitrar? Páll fangar á
einstakan hátt ótrúleg litbrigði ís-
lenskrar náttúru sem birtist eins
og furðuverk, óháð manni og mús.
Nálgun Ragnars Axelssonar bygg-
ist aftur jafnan á tengslum manns
og náttúru, hann sýnir baráttu og
um leið ást í myndum sínum þar
sem hestur og maður verða eitt,
hann birtir manneskjuna í óblíðu
faðmlagi náttúruaflanna.
Myndir Olafs Ottos Becker
fanga mann síðan umsvifalaust og
koma á óvart í látlausri full-
komnun þar sem birtist örugg
myndbygging, íhugult val á mynd-
efni, skerpa í smáatriðum og svo
fínleg litbrigði að unun er að
skoða. Hér kemur saman list-
fræðileg þekking en sumar mynd-
irnar minna á rómantísk málverk,
og örugg tilfinning fyrir kyrrð og
lágstemmdri fegurð. Það er óhætt
að mæla með sýningunni í Ljós-
myndasafninu, bæði fyrir ljós-
myndara og áhugafólk. Fleiri
myndir eftir Olaf Otto Becker má
sjá á heimasíðunni olafottobec-
ker.de/.
Ragna Sigurðardóttir
Fínleg litbrigði rússneskra togara
Olaf Otto Becker „Hér kemur saman listfræðileg þekking en sum-
ar myndirnar minna á rómantísk málverk, og örugg tilfinning fyrir
kyrrð og lágstemmdri fegurð. “