Morgunblaðið - 30.06.2007, Page 6
6 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SEXTÁN ára piltur er talinn hafa
sloppið ótrúlega vel úr fáheyrðu
slysi í gær þegar hann hjólaði fram
af brúnni við Laxárvirkjun og
steyptist 11 metra niður í á. Er það
mat lögreglunnar á Húsavík að
mikil mildi hafi verið að ekki fór
verr. Pilturinn var fluttur á sjúkra-
húsið á Húsavík en er ekki talinn
alvarlega slasaður.
Eftir fallið tókst honum að kom-
ast upp úr ánni af sjálfsdáðum og
hringja á hjálp. Það sem gæti hafa
orðið piltinum til mikillar bjargar
er birkihrísla sem tók af honum
fallið á leiðinni niður í ána, sam-
kvæmt mati læknis sem kom á
vettvang.
Tildrögin voru þau að pilturinn
kom hjólandi úr beygju niður
brekku að brúnni og gæti hafa ver-
ið á mikilli ferð, að sögn lögreglu,
þannig að hann rakst á brúar-
handriðið og steyptist fram af.
Lenti hann fyrst í laufkrónu birki-
hríslunnar sem stóð neðan við
brúna. Þaðan féll hann niður á
klettasnös við árbakkann og loks
út í ána. Heildarfallhæðin var 11
metrar eins og fyrr var getið.
Pilturinn féll í ána þar sem er yf-
irfall af stíflu virkjunarinnar,
þannig að áin er ekki vatnsmikil á
þessum stað að sögn lögreglunnar.
Þegar hann hringdi eftir hjálp
úr farsíma sínum var fljótt brugð-
ist við. Sigmenn frá Björg-
unarsveitinni Garðari á Húsavík
og Hjálparsveit skáta í Aðaldal
voru sendir af stað ásamt lögreglu
og sjúkraliði.
Lögreglan telur piltinn hafa ver-
ið heppinn að hafa ekki fallið beint
á klettasnösina fyrrnefndu, heldur
lent fyrst á birkihríslunni sem talið
er að hafi svignað undan þung-
anum og þannig slakað piltinum
niður að hluta.
Bjargaðist á ótrúlegan hátt
Piltur féll 11
metra af brú við
Laxárvirkjun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mildi Þrátt fyrir gífurlega fallhæð slasaðist pilturinn ekki alvarlega.
Hann lenti fyrst á laufkrónu birkihríslu sem bjargaði miklu.
ELLEN, Alexander, Sunna og Heba notuðu góða
veðrið til að spila „veiðimann“ á Austurvelli. Engum
sögum fer af því hverjum gekk best í spilamennsk-
unni enda skiptir það ekki öllu máli. Aðalatriðið er
að njóta góða veðursins. Spáð er áframhaldandi blíð-
viðri næstu daga.
Morgunblaðið/Sverrir
Í „veiðimanni“ á Austurvelli
REYKJAVÍKURBORG efnir til
hugmyndaleitar um uppbyggingu í
Kvosinni í kjölfar bruna húsanna í
Austurstræti 22 og Lækjargötu 2.
Uppbyggingarsvæðið afmarkast af
Pósthússtræti, suðurhlið Hótels
Borgar, Skólastræti, Stjórnar-
ráðinu, suðurhlið Tónlistarhúss-
reitsins og Tryggvagötu.
Markmiðið er að afla tillagna um
hvernig styrkja megi svæðið, að því
er segir í frétt frá Reykjavíkurborg.
Sex arkitektastofur hafa verið
valdar til að setja fram tillögur að
uppbyggingu og fá þær greitt fyrir
framlag sitt. Þær eru Argos, Gull-
insnið og Studio Granda, VA arki-
tektar og Landslag ehf., Henning
Larsen architects, Arkitema K/S og
ARKþing ehf. arkitektar, KRADS
arkitektar og Gehl architects.
Allir sem áhuga hafa á mega þó
koma sinni sýn á framtíð svæðisins
á framfæri. Trúnaðarmaður dóm-
nefndar er Þórarinn Þórarinsson
arkitekt FAÍ á Skipulags- og bygg-
ingarsviði Reykjavíkur.
Hugljómun
um Kvosina
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
VERKTAKAR eru bjartsýnir á
verkefnahorfur og sjá ekki fram á
samdrátt þótt stóriðjufram-
kvæmdum á Austurlandi ljúki
senn, að því er Árni Jóhannsson,
talsmaður verktaka segir. Fyrir
liggur að brátt lýkur framkvæmd-
um á Kárahnjúkasvæðinu og á
Reyðarfirði, en verði af byggingu
álvers í Helguvík er hugsanlegt
að framkvæmdir við það hefjist í
kringum áramót. Árni bendir á að
um 3.000 manns séu nú að störf-
um á Kárahnjúkasvæðinu og á
Reyðarfirði, þar af um 400 Íslend-
ingar. Nánast allri vinnu þar ljúki
í október „og þá kynni maður að
halda að það komi gusa eða
snöggur samdráttur. En við höld-
um að svo verði ekki,“ segir hann.
Erlendu starfsmennirnir fari
langflestir úr landi og miðað við
stöðu mála á suðvesturhorninu
verði auðvelt fyrir þá sem verða
eftir að fá vinnu.
Ljóst sé að eitthvað af þeim
stóriðjuáformum sem uppi séu
muni ganga eftir og þótt fram-
kvæmdir hefjist ekki strax muni
vanta fólk til starfa í undirbún-
ingsferlinu. Þá vanti fólk til starfa
í ýmsar byggingarframkvæmdir.
Í ár sé reiknað með að um 2.500
íbúðir verði byggðar sem sé mikið
í sögulegu samhengi. Íbúðabygg-
ingamarkaðurinn „virðist vera
hraustur og hress“.
Ekki aukið atvinnuleysi
Ekki virðist heldur blasa við
samdráttur í byggingu samgöngu-
mannvirkja þó að sá tónn hafi
heyrst í aðdraganda kosninga.
Vegagerðin hafi á þessu ári fjár-
fest fyrir um 10 milljarða króna
sem sé í meira lagi, sé horft til
síðustu ára.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir atvinnuástandið mjög
gott og góður gangur í íslensku
efnahagslífi. Til marks um það sé
fólk enn að flytjast til landsins til
þess að stunda atvinnu og eft-
irspurn eftir vinnuafli sé mikil.
Töluverður launaþrýstingur sé á
vinnumarkaðnum og tekjur rík-
issjóðs aukist að mun. „Það eru
mjög margar stærðir sem benda
til þess að hagkerfið sé á fleygi-
ferð,“ segir Vilhjálmur. Hann seg-
ist ekki telja að atvinnuleysi auk-
ist úr 1,6% á þessu ári í 3,9% á
því næsta, líkt og fram kemur í
endurskoðaðri þjóðhagsspá fjár-
málaráðuneytisins, sem birt var
fyrr í mánuðinum. Einu skakka-
föllin sem hann sjái að gætu kom-
ið upp væru ef hrun yrði á fast-
eignamarkaði. Verð fasteigna hafi
hækkað mikið að undanförnu
vegna ákvörðunar stjórnvalda um
að hækka lánshlutfall Íbúðalána-
sjóðs.
Í Hagvísum Seðlabankans sem
komu út á fimmtudag segir að
nýjustu vísbendingar um veltu
bendi til meiri vaxtar á öðrum
fjórðungi ársins en á þeim fyrsta.
Árshækkun dagvöruveltu nam
rúmlega 9,6% í apríl og maí en
7% á fyrsta fjórðungi ársins.
Nýskráningum bifreiða fjölgaði
um rúmlega 7% milli ára í maí.
Er það í fyrsta skipti frá því að
gengi krónunnar tók að veikjast á
fyrsta fjórðungi 2006 sem vöxtur
verður á milli ára. Sementsala án
stóriðju jókst um tæplega 9% í
maí frá sama tíma í fyrra.
„Mjög margar stærðir sem benda til þess að hagkerfið sé á fleygiferð“
Verktakar sjá ekki fram
á samdrátt á næstunni
Í HNOTSKURN
»Vilhjálmur telur að þráttfyrir að staðan í atvinnu-
og efnahagsmálum landsins
sé góð í heildina geti orðið
vandamál á einstökum stöð-
um vegna samdráttar í
þorskveiðum.
»Vandamál á einstökumstöðum vegna samdrátt-
arins geti orðið umtalsverð.
Vilhjálmur
Egilsson
Árni
Jóhannsson
SUNDLAUGAVARSLA
er ekki íhlaupastarf
sem hver sem er getur
gengið í án þjálfunar,
segir Eyjólfur Sæ-
mundsson, forstjóri
Vinnueftirlitsins. Eft-
irlitið hefur nú gefið út
tilkynningu þar sem
ítrekað er að starfs-
menn við sundstaði
skuli ekki vera yngri en
18 ára. „Þetta er mjög ábyrgðarmikið
starf eins og reynslan sýnir og það er ekki
hægt að láta börn og ungmenni axla slíka
ábyrgð,“ segir Eyjólfur.
Í reglugerð frá árinu 1999 um vinnu
barna og unglinga kemur fram að ung-
menni undir 18 ára aldri megi ekki vinna
störf sem geta ógnað líkamlegum eða and-
legum þroska þeirra. Að sögn Eyjólfs er
vinna á sundstöðum ekki tiltekin sér-
staklega þar, enda sé erfitt að telja allt
upp sem geti heyrt undir reglugerðina.
Hann segir þó að mögulega þarfnist reglu-
gerðin uppfærslu því margt hafi breyst
síðan hún var samþykkt.
Eyjólfur vill ekki meina að þessi mál séu
í ólestri hjá sundlaugum landsins, en að
gefnu tilefni sjái Vinnueftirlitið þó ástæðu
til að brýna þetta fyrir forsvarsmönnum
sundlauganna. Á stærri sundstöðum geti
til dæmis komið upp sú staða að fólk yngra
en 18 ára sé ráðið eingöngu til léttra
starfa s.s. miðasölu og veitingasölu. Í slík-
um tilfellum þurfi atvinnurekandi að geta
sýnt fram á og ábyrgst að ungmennin
starfi undir umsjón eldri starfsmanns og
þurfi aldrei að sinna vaktstörfum af neinu
tagi.
Sundlaugaverðir
séu eldri en 18 ára
Eyjólfur
Sæmundsson
ÞAÐ er grunnhyggni að
ætla að allir þeir sem
flust hafa til Íslands til
þess að taka þátt í þeim
miklu framkvæmdum
sem átt hafa sér stað
undanfarin ár séu að
flytja út aftur. Fjöldi
þessa fólks er flutt til Ís-
lands til þess að setjast
hér að,“ segir Víg-
lundur Þorsteinsson,
stjórnarformaður BM-Vallár, sem telur að
snöggur og verulegur samdráttur verði í
hagkerfinu á næstu mánuðum. Spyrja
megi hverjum þessi samdráttur muni
koma niður á.
Víglundur bendir á að ýmsum fram-
kvæmdum sem voru í hámarki á árunum
2004-2006 sé lokið eða um það bil að ljúka.
Hann nefnir Kárahnjúka, álvers-
framkvæmdir á Reyðarfirði, stækkun
Grundartanga hjá Norðuráli, stækkun
Járnblendiverksmiðjunnar á Grund-
artanga, Reykjanesvirkjun, virkjanir á
Hellisheiði og Lagarfljótsvirkjun.
Engar álversframkvæmdir séu fyr-
irsjáanlegar á árinu og óljóst hvort nokk-
uð verði af framkvæmdum á því næsta.
Þessi staðreynd, auk verulegs samdráttar
í þorskveiðum, fari stjórnvöld að mestu að
ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, valdi
samdrættinum. Hann sé þegar hafinn og
fólk muni finna fyrir honum í auknum
mæli þegar frekar líður á árið. Seðlabank-
inn þurfi nú þegar að hefja ferli vaxta-
lækkana til að örva atvinnustarfsemi og
reyna að draga úr því að samdrátturinn
verði of mikill.
Samdrátturinn
þegar hafinn
Víglundur
Þorsteinsson
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæslu-
varðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir karl-
manni sem sætir rannsókn vegna fjölda
sakamála sem lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu er að rannsaka. Hefur hann ját-
að aðild að 9 málum sem hafa verið til
rannsóknar. Er þar um að ræða líkams-
árásir, rán, innbrot í íbúðir og bifreiðar,
fíkniefnabrot, umferðarlagabrot og fleira.
Voru brotin öll framin á þessu ári. Þar fyr-
ir utan er maðurinn grunaður um aðild að
6 innbrotum í íbúðarhúsnæði.
Gæsluvarðhaldið varir til 7. ágúst næst-
komandi.
Úr umferð vegna
fjölda sakamála