Morgunblaðið - 30.06.2007, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MotorMax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400
MotorMax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070 - MotorMax Akureyri - Sími 460-4350
www.motormax.is
Nú er einstakt tækifæri til að ná afar góðum samningum við sölumenn
okkar sem eru í sólskinsskapi og veita aldeilis frábær tilboð á síðstu
Camplet tjaldvögnunum og Starcraft fellihýsunum. Fyrstur kemur fyrstur
fær. Þetta er tækifæri ársins til að ná sér í kostagrip á frábæru verði!
Draumavagninn þinn á
frábæru sumartilboði!
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Bjórbændur Bjarni Einarsson og Jón Elías Gunn-
laugsson við útihúsin í Ölvisholti þar sem brugghús
væntanlegrar bjórverksmiðju verður. Með þeim á mynd-
inni eru synir Jóns Elíasar, Hugi Snær og Elías Örn.
Eftir Sigurð Jónsson
Flóahreppur | „Við gerum ráð fyrir að bjórinn frá okkur
fari á markað um næstu áramót. Við munum gefa okkur
góðan tíma í undirbúning svo framleiðslan verði sem
allra best en við leggjum áherslu á sérstakan keim af
bjórnum sem fylgir svona framleiðslu,“ sagði Bjarni Ein-
arsson framkvæmdastjóri sem ásamt Jóni Elíasi Gunn-
laugssyni og Jóhanni Steinarssyni er að undirbúa upp-
setningu brugghúss í útihúsum á bænum Ölvisholti í
Flóahreppi, skammt austan við Selfoss. „Bjórframleiðsla
er handverk og þetta er handverksbjór sem við köllum
sælkerabjór,“ sagði Jón Elías sem er mikill áhugamaður
um bjórframleiðslu. Þeir félagar hafa fengið danskan
bjórframleiðanda til liðs við sig og mun hluti framleiðsl-
unnar fara á erlendan markað.
Milljón flöskur á ári
Gert er ráð fyrir að framleiðslan þurfi 4-5 starfsmenn
og verða þeir sendir í þjálfun til danska samstarfsaðilans.
Síðan gerir Jón Elías ráð fyrir að fara í grunnþjálfun
varðandi framleiðsluna. Gert er ráð fyrir að framleiða
300 þúsund lítra á ári í verksmiðjunni, sem er um milljón
flöskur. „Mig hefur dreymt um það í mörg ár að reka
brugghús. Hér áður var bruggaður bjór í hverju þorpi í
Evrópu og átti hver staður sitt ákveðna bragð. Svo komu
stóru aðilarnir og þeir litlu hurfu. Bjórinn hjá þeim
stærri miðaðist við hámarksarðsemi, kannski á kostnað
gæðanna eða sérstöðunnar. Nú er þessi þróun að ganga
til baka og staðbundin brugghús spretta upp og fram-
leiða bjór af miklum metnaði til að ná sinni sérstöðu
fram,“ sagði Jón Elías sem segir að unnt sé að fá tæki til
bruggframleiðslu sem nægja einu veitingahúsi sem gerir
þeim mögulegt að framleiða eigin bjór.
Jón Elías er garðyrkjubóndi í Ölvisholti og hefur í 10
ár rekið fyrirtækið Ísplöntur sem býður 20 vörutegundir
af heilsuvörum sem seldar eru í heilsuverslunum. Bjarni
er bóndi í Miklholtshelli sem er næsti bær við Ölvisholt
og er fyrst og fremst í eggjaframleiðslu.
Erum að byrja
„Við erum að byrja að koma þessari skemmtilegu hug-
mynd í framkvæmd, þetta er spennandi og gaman að
koma svona landbúnaðarframleiðslu af stað,“ sagði
Bjarni Einarsson. „Við viljum nýta alla möguleika sem
eru í landbúnaði hér í þessu stærsta landbúnaðarhéraði
landsins,“sagði Jón Elías Gunnlaugsson í Ölvisholti.
„Dreymt um það í mörg
ár að reka brugghús“
Sælkerabjór væntanlegur úr
Flóanum um næstu áramót
Selfoss | Lögreglan á Selfossi hef-
ur fengið fíkniefnahund til liðs við
sig. Um er að ræða tík af Springer
Spaniel-tegund, fædd 2005 í Eng-
landi og þjálfuð í Noregi á vegum
norsku tollgæslunnar. Lögreglan
hélt upp á þessi tímamót með gef-
endum sem lagt höfðu fram fé svo
unnt væri að kaupa hundinn.
„Það er okkur afar mikils virði
að eiga stuðning ykkar í þessari
baráttu, að eignast hundinn, og
þann gríðarlega mikla siðferðislega
stuðning sem því fylgir að vita af
öllu því góða fólki og félagasam-
tökum sem starfa að góðum málum
úti í samfélaginu. Það þykir mér og
okkur vænt um og slíkur velvilji
styrkir okkur í lögreglunni í störf-
um okkar,“ sagði Ólafur Helgi
Kjartansson, sýslumaður á Selfossi,
meðal annars er hann ávarpaði gef-
endurna.
Til hundsins söfnuðust í fyrstu
lotu tæpar 2,7 milljónir kr. og
kostnaður vegna hans þegar allt er
talið, þjálfun og umstang, nemur
tæplega 2.048 þúsund kr. Gjafir
bárust víða að, frá nemenda-
félögum, kvenfélögum, ein-
staklingum og skólum. Frímúr-
arareglan gaf 1,5 milljónir króna
þegar sá fyrir endann á söfnuninni.
Upphafsmaður að söfnuninni var
Eyþór Arnalds, sem gaf fyrsta
framlagið. Þá vöknuðu að sögn
Ólafs Helga vonir til þess að fá ann-
an hund sem vænst er að verði að
veruleika á næstunni.
Að sögn lögreglumanna er afar
mikilvægt að hafa hundinn með
sem verkfæri þegar kemur að því
að leita að fíkniefnum en vandamál
vegna þeirra fara vaxandi. Í fyrra
voru 36 staðnir að því að aka undir
áhrifum fíkniefna. Á þessu ári eru
þeir orðnir 42. Hundurinn hefur
þegar sannað gildi sitt en hann fann
nýlega verulegt magn fíkniefna við
leit í bíl.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Bí kynntur til sögunnar Jóhanna Eyvins Christiansen, lögreglumaður og
þjálfari, með fikniefnahundinn Bí sem kominn er til starfa.
Mikils virði að eiga
stuðning ykkar
Flúðir | Næstelsta húsinu á Flúðum,
Grund, sem byggt var 1946, hefur
nú verið breytt í veitinga- og gisti-
hús. Hjónin Dagný Ólafsdóttir og
Kristinn Kristinsson hafa byggt við
húsið og breytt því verulega.
Sólveig Ólafsdóttir og Sigurgeir
Sigmundsson bjuggu í húsinu í
fjóra áratugi. Þau hófu versl-
unarrekstur árið 1967, verslunina
Grund. Sigurgeir féll frá 1997 en
Samkaup keyptu verslunina 2003.
„Við stönsuðum oft hérna í versl-
uninni til að fá okkur hressingu og
taka púlsinn á mannlífinu þegar við
heimsóttum dóttur okkar sem
keypti jörð hér í sveitinni,“ segir
Dagný þegar hún er spurð hvers
vegna þau keyptu Grund. „Við
fundum fljótt að hér var yndislegt
samfélag. Eitt sinn þegar við kom-
um sáum við að Grund var til sölu,
slógum til og drifum okkur í sveita-
sæluna. Við byrjuðum fjótt að
breyta húsinu og síðan var byggt
við og þetta er orðið að veruleika.
Við erum með heimilismat í hádeg-
inu og eftir það matseðil sem fólk
getur valið af, einnig erum við með
gistingu fyrir 10 manns.“
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Nýjung Eigendur Grundar, Dagný Ólafsdóttir og Kristinn Kristinsson.
Grund orðið veitingahús
LANDIÐ
VEGNA mikillar aukningar umferð-
ar kemur ekki annað til greina en að
hefja sem allra fyrst tvöföldun Suð-
urlandsvegar með nýrri brú á Ölf-
usá. Sú framkvæmd mun duga til
næstu áratuga en svokallaður 2+1-
vegur væri hins vegar dýr bráða-
birgðalausn.
Kemur álit þetta fram í fréttatil-
kynningu frá Samtökum sunn-
lenskra sveitarfélaga. Samtökin
minna á þá miklu umferðarteppu
sem varð um síðustu helgi vegna
mikillar umferðaraukningar og
vanbúinna vega. Sagt er frá tölum
um mikla aukningu umferðar milli
Selfoss og Reykjavíkur á þessu ári.
Þannig hefur umferð við Litlu kaffi-
stofuna aukist um tæp 14% á þessu
ári og ef sú aukning helst megi búast
við að 9.300 bílar fari þar um á sólar-
hring að meðaltali á árinu.
Vakin er athygli á því að umferðin
á þessum stað hafi aukist um 55% á
síðustu fimm árum og um 90% á tíu
árum. Með svipaðri aukningu megi
gera ráð fyrir að 17.500 til 22.000
bílar fari þar um á sólarhring eftir
tíu ár. Með sömu forsendum megi
reikna með umferð 15-19 þúsund bíla
við Ingólfsfjall, 14-17.500 á Hellis-
heiði og umferð 20-25 þúsund bíla við
Geitháls.
Búast við tvöföldun umferðar