Morgunblaðið - 30.06.2007, Side 52
52 LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Gísla Árnason
gisliar@mbl.is
HUGMYNDIN að baki Wiki-vef-
smíði er bráðsniðug. Hver sem er
getur fært inn efni og breytt því og
er þannig hægt að safna saman á ein-
faldan hátt gríðarlegu magni upplýs-
inga. Þekktasta dæmið um þetta er
auðvitað alfræðiorðabókin Wiki-
pedia, sem er orðin svo mikið notuð
að hún er að verða eins og IKEA,
nokkuð sem margir eru háðir, en
hálfskammast sín fyrir að nota svona
mikið.
Það er ekkert undarlegt við það að
fólk horfi til alfræðiorðabókarinnar
og noti sömu aðferðir við söfnun ann-
ars konar upplýsinga. Á vefsíðunni
Wikitravel eru ferðalög og framandi
staðir hrist saman við wiki, og nið-
urstaðan hlýtur að vera góð. Vef-
urinn er orðin ein stærsta ferða-
handbók sem um getur, skrifuð af
ferðalöngum og telur rúmlega 15.000
áfangastaði.
Drykkjumenning
í Stokkhólmi
Einn reginmunur er þó á Wiki-
travel og Wikipedia, kröfur til
greinahöfunda eru aðrar. Á Wiki-
pedia eru gerðar strangar kröfur um
hlutleysi, en greinahöfundar á Wiki-
travel eru frekar beðnir um að sýna
sanngirni. Umfjöllunin verður fyrir
vikið ekki jafnþurr og í alfræðiorða-
bókinni góðu.
Þarna er auðvitað auðvelt að glata
miklum tíma með því að þvælast um
heiminn og fræðast um staði eins og
Edmonton, höfuðborg Alberta í Kan-
ada, eða fjallahéraðið Zlatibor í Serb-
íu (Zlatiborar eru að því er virðist
rómaðir fyrir greind sína og mikið
skopskyn). Þá er hægt að kynna sér
köfun við Ishigaki-eyju í Japan eða
bara drykkjumenningu í Stokkhólmi.
Stafrænt hnattlíkan
Greinarnar eru langflestar vel upp
settar, í ensku útgáfunni a.m.k., og
greinargóðar. Wikitravel gagnast því
vel við að kynnast áfangastöðum og
svarar helstu spurningum um sam-
göngur, verðlag, gistingu og helstu
staði sem ferðalangar eiga að skoða.
Svo er að sjálfsögðu hægt að
smella á tengilinn ,,Random Page“,
sem er auðvitað bara útgáfa 21. ald-
arinnar af því að snúa hnattlíkaninu,
loka augunum og stinga niður fingri.
Samhliða má svo nota sýndarjörðina
Google Earth, sem að mati undirrit-
aðs ætti að vera uppsett á hverri
tölvu sem við það ræður.
Vefsíða vikunnar: Wikitravel
Áhugavert Íbúar bæjarins Zlatibor í Serbíu eru rómaðir fyrir stórkostlega kímnigáfu og afburða gáfur.
Heimurinn er Wiki
CAMERON Diaz mun leika í næstu
mynd Richards Kelly, hryllings-
myndinni The Box. Kelly er þekkt-
astur fyrir költmyndina Donnie
Darko þar sem aðalpersónan tekst á
við fyrstu ástina, risakanínur og
verðandi heimsendi en enn bíða
menn eftir að önnur mynd hans, So-
uthland Tales, verði frumsýnd. Kelly
skrifar handritið sjálfur eftir smá-
sögu Richards Matheson, „Button,
Button.“
Diaz mun leika húsmóður sem
ókunnugur maður gefur kassa með
nokkrum tökkum á. Í upphaflegu
smásögunni var kassinn þeirrar
náttúru að með því að ýta á takka á
honum gat húsmóðirin ásamt eig-
inmanni sínum skyndilega eignast
20 milljónir en um leið dó einhver
ókunnugur af þeirra völdum. Kass-
inn í myndinni mun vera öllu flókn-
ari að gerð en þó bjóða upp á svipaða
möguleika.
Úr risakanínum í
Cameron Diaz
Skriffær Cameron Diaz áritar.
STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FYRR OG SÍÐAR.
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
eee
S.V. MBL.
BLIND DATING kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
SHREK 3 VIP m/ensku tali kl. 8 - 10:10
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
ZODIAC kl. 9 B.i.16.ára
OCEAN'S 13 kl. 6 - 8 - 10:30 B.i.7.ára
OCEAN'S 13 VIP kl. 3 - 5:30
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 5:30 - 9 B.i.10.ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 12 - 3 - 8:15 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 12 - 2:15 - 4:15 - 6:15 LEYFÐ DIGITAL
CODE NAME: THE CLEANER kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5 B.i. 10 ára DIGITAL
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á