Morgunblaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2007 23
eins og íslenskur foss eins og Erla
orðar það sjálf.
Eruð þið kannski ómeðvitað að
reyna að flytja Ísland hingað til Am-
eríku?
Erla brosir. „Ætli það ekki bara.
Það eru náttúrlega miklar andstæður
í íslenskri náttúru. Svarti sandurinn,
vatnið, eldfjöllin. Maður kemst ekki
hjá því að verða fyrir áhrifum frá svo
dramatísku landslagi.“
En hvað um þig, Tryggvi?
„Ég tek undir það að andstæður í
íslenskri náttúru eru náttúrlega inn-
blástur. Maður er kannski staddur á
svörtum sandi og þar vaxa smágerð
gul blóm.
Eða segjum snjór og kolsvart
hraun. Þegar maður er í burtu frá ís-
landi í einhvern tíma og býr í um-
hverfi með fremur tilbreytingalausu
veðurfari og litlum árstíðaskiptum
verða náttúruperlur Íslands manni
auðvitað ofarlega í huga. Þetta vega-
nesti okkar frá Íslandi er kannski
okkar sterkasta einkenni sem arki-
tektar,“ segir Tryggvi og Erla sam-
sinnir því.
Skipulögð ringulreið
Hér í Los Angeles ægir öllum
byggingarstílum saman, engin höft
virðast vera á sköpunarverkum arki-
tekta hér í borg, en þó er einhver
undarleg fegurð og persónuleiki í
þessari kaos.
Þetta er harla ólíkt því sem við
eigum að venjast hér á Íslandi og
kannski helst á höfuðborgarsvæðinu
þar sem eru að byggjast upp ný
hverfi sem eru steypt í sama mótið
svo að umhverfið verður ópersónu-
legt og ólífrænt. Heilu göturnar þar
sem húsin eru öll eins. Er ætlast til
að í þeim búi nákvæmlega eins
manneskjur? Ég ákveð að spyrja
Tryggva hvaða skoðun hann hafi á
þessu. Og ekki stendur á svörum.
„Mér fyndist vel athugandi í
hverfaskipulagi, í stað þess að
byggja oft eingöngu raðhúsalengjur
og blokkir að byggja upp hverfi með
litlum einbýlum og þá er ég ekki að
tala um hallir heldur að ungu fólki
sem er að byrja sinn búskap verði
gert kleift að eignast sín einkaheim-
ili og hanna þau í sínum persónulega
stíl.“ Tryggvi heldur áfram.
„Það er um margt merkilegt
hvernig LA byggðist upp, en borgin
varð til á alveg óskaplega skömmum
tíma. Ég held að Reykjavík sem líka
byggist fremur hratt upp eigi eftir
að takast á við mörg þau vandamál
sem LA glímir nú við þó þau verði
smærri í sniðum.“
En þú minnist á væntanleg vanda-
mál í Reykjavík, hvað áttu við?
„Vaxtarverkir,“ svarar Tryggvi.
„Eitt sem mér finnst í raun var-
hugavert er það sem kallast á ís-
lensku blönduð byggð. Það er verið
að byggja upp ný hverfi og þar er
fyrirfram kvóti af raðhúsum, blokk-
um og einbýlishúsum. Staðlaðar lóð-
ir að stærð og útliti. Þessum hverf-
um fylgir síðan meðfylgjandi
skipulag fyrir þjónustu, verslun og
viðskipti. Í þessum hverfum er eng-
inn grundvöllur fyrir sköpun ein-
staklingsins.
Í Reykjavík mætti einnig líta til
stórborgar eins og Los Angeles sem
glímir nú við mörg þau vandamál
sem ég hygg að kunni að verða reyk-
víkingum fjötur um fót í framtíðinni.
Þá er kannski nærtækast að líta til
samgöngumála sem eru fyrirsjáan-
legt vandamál og líka það að við
verðum að standa vörð um hinn eig-
inlega miðbæ sem er það sem gerir
borg að borg. Við ættum að taka
meira mið af borgum sem byggðust
upp snemma með þennan eiginlega
miðborgarkjarna. Ef við skoðum LA
í dag er hún í raun samsett úr mörg-
um borgarkjörnum sem eru í leit að
miðborg.“
Endalaus útsynningur
Í Los Angeles þar sem veður-
blíðan er eins og raun ber vitni lifir
fólk og hrærist mikið utandyra og
húsin eru hönnuð með það í huga.
Erla og Tryggvi eru einmitt um
þessar mundir að vinna að verkefni á
Íslandi sem er í raun tilraun til að
flytja þessa hugmynd Outdoor/
indoor living eða hýbýli utan sem
innan dyra hingað heim. Mér leikur
forvitni á því að heyra hvernig þau
telja það gerlegt.
„Já, það er kannski hlægilegt að
vilja flytja hinn kaliforníska lífsstíl
heim til Íslands. Íslensk veðrátta
býður náttúrlega ekki upp á nema
örfáa góða daga á ári en það eru
þessi millisvæði sem hægt væri að
nýta betur, t.d. með garðhýsum.
Ekki það að garðhýsi séu ný af nál-
inni á Íslandi en þau hafa gjarnan
orðið til eftir að hús eru hönnuð.“
Erla bætir því við að oftar en ekki
sé verið að byggja yfir svalir sem oft
verði ankannalegt þegar ekki hefur
verið gert ráð fyrir því í upphafi.
Þið sýnduð mér teikningar af
sumarbústað sem þið eruð að byggja
á Íslandi og þar fannst mér eft-
irtektarverð bygging skjólveggja
eða veðurálagsveggja í kringum
húsið. Ætla þau sér að segja ís-
lenskri veðráttu stríð á hendur?
„Í raun eru þetta ekki skjólveggir
heldur reynum við að hanna húsið
þannig að það í sjálfu sér myndi
ákveðið skjól. Þetta finnst okkur
gefast betur í glímunni við íslenskt
veðurfar heldur en að vera með
lausa veggi. Síðan erum við líka að
nýta okkur það að leggja hita í gólf
og loft opinna rýma utandyra, jafn-
vel líka í veggi,“ segir Tryggvi.
Fegurðin liggur í
einfaldleikanum
Nú er notagildið augljóst í hönnun
arkitekta en hvað skiptir fegurðin
miklu máli?
„Fegurðin liggur náttúrulega í
mínum huga í notagildinu og einfald-
leikanum, við fáumst lítið við
skreytilyst,“ svarar Erla.
Hún heldur áfram og segir: „Það
skiptir auðvitað máli að það séu and-
stæður í efnisvali, litum og bygging-
areiningum.“
Tryggvi bætir því við að erfitt sé
»Maður mótast af umhverfi sínu á hverjum tíma og það fylgir manni auðvit-
að í gegnum lífið og mótar það hvernig hönnuður maður verður.
Einfaldleiki Efri hæð húss Erlu Daggar og Tryggva í Los Angeles.
Útsýni Hönnun einbýlishúss við Elliðavatn. Línurnar eru einfaldar, húsið stílhreint og stórir gluggar opna húsið.
Línur Einbýlishús arkitektanna á Íslandi við Kleifarkór í Kópavogi. Timbur og steypa mynda samstæða heild.
+ Nánari upplýsingar og bókaðu á www.icelandair.is
Sölutímabil Special Offer tilboða: 22. júní–13. júlí.
Ferðatímabil: 17. júlí–10. desember.
Takmarkað sætaframboð.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
66
61
0
6
/0
7
Frá 9.900 kr. aðra leiðina
í Þý
sög
„
eru
að
haf
V
„
var
vor
sem
tek
Ka
ton
Þ
hug
bre
G
drá
„
bun
þyr
S
ske
ska
H
um
alla
una
gön
„
tek
lög
Þ
þú
ark
„
gre
var
eða
ma
„Al
ark
ark
hve
haf
Sm
svö
H
An
sjá
er n
eru
ing
gild
stá
hön
jafn
not
að
línu
hlý
Er
„
kri
ann
mó
tím
geg
hön
Á
hér
dæ
irn
bei
sko
Í
eld
ínu
eld
sem