Morgunblaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.07.2007, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ 3. júlí 1977: „Ræða Krúsjoffs um Stalín og uppreisnina í Ungverjalandi 1956 varð sanntrúuðum kommúnistum um heim allan mikið áfall. Viðbrögð þeirra við þessum tíðindum urðu mjög mismun- andi. Krúsjoff staðfesti í ræðu sinni flest það, sem Morg- unblaðið hafði haldið fram í áratugi um Sovétríkin en kommúnistar jafnan kallað „Morgunblaðslygi“. Nú stóðu kommúnistar hér allt í einu frammi fyrir því, að æðsti páfi kommúnismans í heiminum staðfesti, að „Morgunblaðs- lygin“ væri sannleikur. Á þessum tíma gengu sumir fylgismenn kommúnismans alveg af trúnni, aðrir lokuðu sig inni í eigin hugarheimi en að lokum kom sú lína, að ýmis mistök hefðu verið gerð við framkvæmd sósíalismans í Sovétríkjunum og upp úr því þróuðust þær hugmyndir, að sósíalisminn gæti orðið með mismunandi hætti, hann yrði t.d. öðru vísi hér á Íslandi en í Sovétríkjunum.“ . . . . . . . . . . 5. júlí 1987: „Verðbólgan hef- ur að undanförnu verið meiri en búist var við... Vegna hækkandi verðbólgu hefur mismunur milli óverð- tryggðra og verðtryggðra vaxta aukist. Þeir sem eiga fé sitt inni á óverðtryggðum reikningum tapa en þeir sem skulda óverðtryggð lán græða. Vaxtabreytingarnar nú eru til þess að leiðrétta það bil sem er á milli óverð- tryggðra og verðtryggðra vaxta.“ . . . . . . . . . . 6. júlí 1997: „Lending banda- rísks geimfars á Mars í fyrra- dag er nýjasti þáttur þessa ævintýris. Geimfar hefur ekki lent á Mars í rúmlega tvo ára- tugi. Í grein, sem birtist hér í blaðinu í gær eftir dr. Harald Pál Gunnlaugsson, sem hefur m.a. unnið að undirbúningi þessarar ferðar, og Ásgeir Pétursson eðlisfræðing segir m.a.: „Lendingin markar upp- haf nýrra tíma í könnun Mars, því bandaríska geim- ferðastofnunin NASA ráðger- ir hér eftir að senda tvö geim- för til Mars í hvert sinn, sem afstaða jarðar og Mars hent- ar. Það gerist á rúmlega tveggja ára fresti og er ætl- unin að þessu haldi áfram vel fram yfir aldamót. Að lokum kemur svo að því að geimfar snúi aftur til jarðarinnar með jarðvegssýni frá Mars og er það áætlað fljótlega eftir aldamót.“ Eftir fyrstu tunglferðirnar hafa geimrannsóknir beinzt að öðrum þáttum. Við liggur, að ferðir bandarísku geim- ferjanna út í geiminn til margvíslegra rannsókna séu að verða daglegt brauð.“ Úr gömlum l e iðurum Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÓVISSA Í SJÁVARBYGGÐUM Mikið hefur gengið á í sjávar-byggðum landsins undanfar-ið. Sala og tilflutningur á veiðiheimildum setur sjávarþorp í erfiða stöðu og ógnar jafnvel framtíð þeirra. Og nú má búast við að fisk- veiðiheimildir verði skornar verulega niður í kjölfar ráðlegginga Hafrann- sóknastofnunar um kvóta næsta fisk- veiðiárs. Þorskveiðiheimildir gætu farið úr 193 þúsund tonnum niður í 130 þúsund tonn. Hlutverk fjölmiðils er að endurspegla ástandið í þjóð- félaginu, ekki síst þegar mikið liggur við. Morgunblaðið hefur lagt áherslu á að fylgjast með þjóðfélagsbreyting- um og veita lesendum sínum innsýn í þær. Í Morgunblaðinu í dag og næstu daga birtist fyrsti hluti umfjöllunar um stöðuna og andrúmsloftið þar sem sjávarútvegur er undirstaða byggðar. Agnes Bragadóttir blaðamaður hefur að undanförnu verið á ferð á Vest- fjörðum, Snæfellsnesi og Austfjörð- um. Viðtöl hennar endurspegla gras- rótina í sjávarplássunum, sjónarmið útgerðarinnar og afstöðu yfirvalda. Hún ræddi við beitningarkarla, trillu- karla, útgerðarmenn og bæjarstjóra. Yfirskrift fyrsta hlutans er Von- leysi á Vestfjörðum. Þar virðist svart- sýnin og óvissan mest, ekki síst eftir að kvóti Kambs var að mestu seldur burt frá Flateyri í maí. En eins og stendur í grein Agnesar er Flateyrin víða og hætt við því að fleiri sjávar- þorp muni bætast á válistann þegar kemur að niðurskurði aflaheimilda, sem jafn vel mun vara í einhver ár. Margir, sem starfa í útgerð, spyrja sig hvernig þeir eigi að lifa þann nið- urskurð af. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, talar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Hann segir að þegar menn hyggist fara út úr útgerð eins og gerðist á Flateyri eigi þeir að reyna að stýra því í þágu síns eigin samfélags. Jakob Valgeir Flosason, forstjóri Jakobs Valgeirs í Bolungarvík, fjöl- skyldufyrirtækis, sem nefnt er eftir afa hans, skynjar þessa ábyrgð. „Ég hef svo sem ekki stórar áhyggjur af fyrirtækinu sem slíku. Við munum verða í skilum með skuldir okkar. En ég hef miklar áhyggjur af fólkinu okk- ar, bæði í vinnslunni og sjómönnun- um,“ segir hann. Kvótakerfið hefur nú verið við lýði í aldarfjórðung og augljóst að á því þarf að gera einhverjar breytingar, þótt ekki séu allir sammála um heilsu- far þess. En einnig er ástæða til að velta fyr- ir sér hvort Hafrannsóknastofnun þurfi meira bolmagn til þess að rann- saka Íslandsmið. Í greinum Agnesar koma fram kunnuglegar röksemdir þeirra, sem sækja sjóinn, um að þeir upplifi allt annan veruleika en endurspeglist í rannsóknum Hafró – miklu meiri fisk- ur sé í sjónum. Ef til vill þarf að setja meira fé í rannsóknir stofnunarinnar þannig að kanna megi stofnstærð víð- ar og auka fjölbreytni rannsókna. En eftir stendur að frá því að kvótakerf- inu var komið á hefur aldrei verið far- ið eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnun- ar og því er ekki hægt að segja að reynt hafi á hana fyrir alvöru. Þegar rætt er um yfirvofandi nið- urskurð aflaheimilda til uppbygging- ar fiskistofnunum við Ísland er horft til þess að sennilega hefur íslenskt hagkerfi aldrei átt auðveldara með að taka svo róttækum samdrætti. En þjóðfélagið snýst ekki bara um hag- tölur, heldur einnig og miklu fremur um afkomu fólksins, sem það myndar. Sá þáttur kemur sterklega fram í greinaflokki Agnesar Bragadóttur og nauðsynlegt fyrir umræðuna að draga hann fram. Útkoman af efnisöflun hennar gefur innsýn í ólík viðhorf ein- staklinga, sem tala af langri reynslu. Hún veitir þverskurð af því hvernig fólk á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Austfjörðum upplifir þær hræringar, sem nú eiga sér stað í sjávarútvegi og horfur á því að verulegur niðurskurð- ur verði gerður á veiðiheimildum. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ T ími breytinga virðist vera að ganga í garð í okkar heimshluta. Gordon Brown er tekinn við sem forsætis- ráðherra Breta og boðar breytta tíma bæði heima fyrir og í alþjóða- málum, ekki sízt í afstöðu Breta til Íraksstríðsins. En á sama tíma og Brown boðar breytingar segir hann ekki hverjar þær eigi að verða. Sarkozy er tekinn við sem forseti Frakklands. Valdataka hans hefur leitt til þess að allt er á fleygiferð í frönskum stjórnmálum, þótt ekki sé enn hægt að átta sig á hvert þær breytingar stefna. Hann talar vinsamlegar til Bandaríkjamanna en forsetar Frakklands hafa gert í langan tíma og boðar löggjöf til þess að koma í veg fyrir risavaxna starfslokasamninga forstjóra stórfyrirtækja. Angela Merkel er að festa sig í sessi, sem mark- verður kanslari Þýzkalands, sem eftir verður tekið. Rússar hafa gjörbreytt um takt og tón og minna Vesturlandaþjóðir á, að þeir séu risnir úr ösku- stónni og krefjast þess, að tillit verði tekið til sjón- armiða þeirra á alþjóðavísu. Í Bandaríkjunum er Bush á útleið og mun eiga fullt í fangi á næstu 18 mánuðum með að halda þannig á málum í Írak að hann geti gengið út úr Hvíta húsinu með einhverri reisn. Þótt ljóst sé að breytingar eru að verða í öllum þessum ríkjum er erfiðara að sjá hvert þær stefna. En umbrot á mörgum sviðum eru til marks um, að þær eru í nánd. Hér á Íslandi liggja breytingar líka í loftinu en eins og í tilviki þeirra ríkja, sem hér hafa verið nefnd er erfiðara að sjá hvert þær stefna. Hins veg- ar er auðveldara að sjá hvar umbrotin eru, sem kalla á breytingar. Það voru mikil umbrot á hinu pólitíska sviði, sem leiddu til myndunar nýrrar ríkisstjórnar að lokn- um kosningunum í vor. En enn sem komið er hefur reynzt erfitt að sjá hvert hin nýja ríkisstjórn stefn- ir. Þótt breytingin í pólitíkinni sé mikil hefur ný ríkisstjórn á Íslandi ekki slegið nýjan tón og það hefur nýr samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn heldur ekki gert. Hins vegar má sjá á þeim umbrotum, sem eru hér og þar í samfélaginu hvar breytinga er þörf. Það er augljóslega þörf á einhverjum breyting- um á kvótakerfinu. Smátt og smátt eru umræður að leiða í ljós hvar þær breytingar þurfa að verða. Það er engin samstaða um það að einn maður, þ.e. útgerðarmaðurinn, geti ráðið úrslitum um framtíð byggðarlags með sölu á kvóta frá viðkomandi byggðarlagi. Það er heldur engin samstaða um það leiguliðakerfi, sem orðið hefur til á grundvelli kvótakerfisins. Það þarf ekki annað en að beita heilbrigðri skynsemi til að sjá að óbreytt kerfi gengur ekki upp. En það eru víðar umbrot í samfélagi okkar, sem vísa veginn til breytinga og umbóta. Kannski eru þau einna mest í heilbrigðismálum. Átök og umbrot S egja má, að frá því að sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík hófst, fyrst með sameiningu Borgarspítala og Landakotsspítala og síðar með sameiningu þess sameinaða spítala og Landspítala hafi stöðug átök stað- ið yfir í heilbrigðiskerfinu, annars vegar vegna þeirra skipulagsverkefna, sem urðu til í þessu sam- einingarferli og hins vegar vegna ákveðnari kröfu um að einkarekstur fengi svigrúm innan heilbrigð- isþjónustunnar. Sameiningarferli spítalanna er nú komið vel á veg og hefur reynzt dýrkeypt í samskiptum fólks innan hins sameinaða Landspítala – háskóla- sjúkrahúss. Einkarekstur er að ryðja sér braut í heilbrigðiskerfinu án þess að honum hafi verið markaður ákveðinn farvegur, einfaldlega vegna þess, að Framsóknarflokkurinn í ríkisstjórn var honum andvígur að verulegu leyti. Innan Landspítala – háskólasjúkrahúss ríkir engin sátt, þótt öldurnar hafi lægt. Og á sama tíma og stefnt er á byggingu svonefnds hátæknisjúkra- húss verða raddirnar háværari um, að flytja eigi heilbrigðisþjónustu út af spítölum í eins ríkum mæli og hægt er. Skýrt dæmi um það eru ábend- ingar um að fara með þjónustu geðheilbrigðiskerf- isins heim til fólks, sem þarf á þeirri þjónustu að halda í stað þess að flytja fólkið inn á stofnun en smátt og smátt er að koma í ljós að í þeim efnum erum við langt á eftir sumum nágrannaþjóðum okkar. Hvernig sem á því stendur vegna þess, að vitneskja um þá þróun hefur að sjálfsögðu verið til staðar hér. Einkareksturinn í heilbrigðiskerfinu hefur verið að ryðja sér braut í formi læknamiðstöðva, þar sem sérfræðingar í mörgum greinum taka saman hönd- um. Nú eru orðnar til nokkrar slíkar miðstöðvar og starfsemi sumra þeirra mjög umfangsmikil. Að- gerðir eru framkvæmdar utan spítala o.s.frv. Að sumu leyti má segja, að þessar miðstöðvar séu vísir að einkaspítölum. Þessi einkarekstur hefur orðið til innan þess heilbrigðiskerfis, sem við búum við og að svo miklu leyti, sem það leyfir en ekki vegna þess að Alþingi eða ríkisstjórn hafi markað nýja stefnu í heilbrigðismálum. Nú er kominn tími á, að slík stefna verði mörkuð og að skapað verði svigrúm og aðstæður til að einkarekinn valkostur verði til í heilbrigðiskerfinu, sem hafi svigrúm til að þróast með eðlilegum hætti. Hefðir okkar samfélags eru þannig, að kjarni heilbrigðisþjónustunnar verður alltaf í opinberum rekstri enda sýnir reynsla Bandaríkjamanna, að það er betri kostur en að heilbrigðiskerfið verði einkavætt. Hins vegar eru sterk rök fyrir því, að leyfa öðru kerfi að þróast samhliða. Rökin eru ein- faldlega þau, að á mörgum sviðum ræður opinbera kerfið ekki við verkefni sitt. Heilbrigðiskerfið hef- ur ekki þróazt í samræmi við aðra þætti samfélags- ins. Enn er það kerfi í gangi á heilsugæzlustöðvum, að fólki er bent á að hringja í tiltekinn lækni á til- teknum klukkutíma og síminn er alltaf á tali. Í einu tilviki a.m.k. hefur fólki, sem þurft hefur á aðgerð að halda verið bent á að hringja á Landspít- ala einn tiltekinn dag í viku í einn tiltekinn klukku- tíma til þess að fá upplýsingar um hvenær aðgerðin fari fram og síminn er að sjálfsögðu alltaf á tali. Litlir hlutir af þessu tagi, sem geta orðið býsna stórir í hugum þeirra, sem þurfa að eiga samskipti við heilbrigðisþjónustuna sýna, að hún er langt á eftir ýmsum öðrum þáttum í samfélaginu í viðhorfi til þjónustu við skjólstæðinga sína. Einn slíkur skjólstæðingur spurði starfsmann heilsugæzlu- stöðvar, hvort hann mætti sækja lyfseðil á stöðina eftir hádegi á föstudegi og fékk þau kostulegu svör, að læknarnir vildu ekki að lyfseðlar væru afgreidd- ir eftir hádegi á föstudögum! En sjúklingar geta þurft á lyfseðlum að halda eftir hádegi á föstudög- um og þá er ekki annað að gera en fara á hina svo- nefndu Læknavakt, sem er einkarekið fyrirtæki. Það er ekki sjálfgefið að einkarekinn valkostur í heilbrigðiskerfinu sé betri en sá opinberi, og raun- ar er hægt að halda því fram, að sá einkarekstur, sem hér hefur þróazt hafi ekki sýnt fram á sérstaka kosti einkareksturs. Það getur tekið jafn langan tíma að fá viðtalstíma við lækni eins og í opinbera kerfinu. Og sú sjálfsagða þjónusta, að sjúklingur fái skriflega greinargerð um það, sem um hefur verið spurt eða rannsakað virðist ekki vera til stað- ar, hvorki í hinu opinbera kerfi hér né hinu einka- rekna. En þrátt fyrir þetta sýna biðlistarnir og biðtím- inn að opinbera kerfið ræður ekki við það verkefni, sem það hefur tekið að sér á sviði heilbrigðisþjón- ustu. Og þá er ekkert við það að athuga, að einka- rekinn valkostur verði byggður upp við hliðina á því, þannig að sjúklingar eigi einhverra kosta völ. Umbrotin, árekstrarnir og vandamálin, sem koma upp með reglulegu millibili eru til marks um þörf fyrir breytingar og umbætur. Nú er komin ný ríkisstjórn og nýr heilbrigð- isráðherra og þær væntingar, sem við hann eru bundnar eru miklar. Kerfið er stórt og mikið og þar eru margvíslegir hagsmunir til staðar, sem hafa ekkert með þarfir sjúklinga að gera. Það er hæg- ara sagt en gert að breyta þessu kerfi eða hreyfa það til. Fræg er viðleitni Hillary Clinton til þess að breyta heilbrigðiskerfinu í Bandaríkjunum í upp- hafi forsetatíðar eiginmanns hennar í manneskju- legri átt. Hún varð frá að hverfa. Í okkar samhengi og í okkar umhverfi er það verkefni, sem Guðlaugur Þór Þórðarson stendur frammi fyrir risavaxið. En nú má ekki víkjast und- an þeim vanda og þeim verkefnum, sem við blasa. Á milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var augljóslega hugmyndafræðilegur ágreiningur um þetta mál. Ekki er vitað til þess, að hann sé til stað- ar á milli núverandi stjórnarflokka. Það á þá eftir að koma í ljós. En tækifærið er fyrir hendi nú til þess að breyta heilbrigðiskerfinu vegna þess, að þörfin fyrir breytingar er svo augljós. Líkurnar á því að almenningur taki skynsamlegum breyting- um vel eru miklar. Einkarekstur í skólakerfinu M eð sama hætti og í heilbrigðis- málum hefur einkarekstur smátt og smátt verið að ryðja sér til rúms í skólakerfinu og þá ekki sízt á leikskólastigi og háskólastigi. Sama þróun er að byrja á grunnskólastigi og einhver umbrot eru á ferðinni í framhaldsskólum eins og skýrt kom fram í ræðu skólameistara Menntaskólans á Akureyri hinn 17. júní sl. Þessi einkarekstur í skólakerfinu hefur orðið til meira og minna innan hins hefðbundna kerfis, þar Laugardagur 30. júní Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.