Morgunblaðið - 01.07.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2007 35
Undirbúningsrannsóknir
Nýlega fékk undirrituð símtal frá
framkvæmdastjóra Fjórðungs-
ambands Vestfirðinga þar sem ósk-
að var eftir leyfi til að taka stafræn-
ar landupplýsingar í landi Núps í
Dýrafirði með tilliti til staðarvals
fyrir fyrirhugaða olíuhreins-
unarstöð. Lét hann líta út sem um
ósköp sakleysislegar undirbúnings-
rannsóknir væri að ræða. Helm-
ingur jarðarinnar er í eigu fjölskyld-
unnar og eftir samtöl milli móður
minnar og okkar 9 systkinanna vor-
um við sammála um að veita ekki
þessa heimild og var því komið á
framfæri við Fjórðungssambandið.
Nokkrum dögum síðar fékk ég ann-
að símtal þar sem framkvæmda-
stjórinn tjáði mér að þeir þyrftu
ekki heimild okkar til að fara um
landið og vísaði hann í lög um nátt-
úruvernd. Þá gilti beiðnin sem sagt
aðeins ef við værum hlynnt verkefn-
inu. Óskað var eftir skriflegu erindi
frá Fjórðungssambandinu sem ekki
hefur borist ennþá.
500 störf
Í símtali við bæjarstjórann á Ísa-
firði þar sem ég lýsti verulegum
áhyggjum vegna þessara vondu
hugmynda sagði bæjarstjórinn með-
al annars: ,,En þetta eru 500 störf og
þar af um fimmtungur háskóla-
menntaður.“ Ég spurði á móti:
,,Hvað þurfið þið mörg störf?“ en þá
var fátt um svör. Enginn hefur spurt
ennþá hverjir muni vinna þessi störf
og ólíklegt er að þau verði unnin
undir stjórn íslenskra fyrirtækja.
Ekki liggur fyrir hvort Vestfirð-
ingar eru í stakk búnir til að taka við
500 nýjum störfum eða hvað mörg
störf í öðrum atvinnugreinum á
Vestfjörðum tapast á móti. Allir vita
að um er að ræða mjög mengandi
stóriðnað með verulega hættu á um-
hverfisslysum. Ekki þarf að fjölyrða
um hugsanleg áhrif á fiskismiðin úti
fyrir Vestfjörðum. Vestfirðingum er
sannarlega vorkunn og það er illa
gert og beinlínis andstyggilegt að
ota slíkum hugmyndum að þeim á
erfiðum tímum í atvinnumálum.
Geostream og
KATAMAK-Nafta
En hvað er Geostream? Geo-
stream er rússneskt ráðgjafafyr-
irtæki sem sérhæfir sig í að taka
stafrænar landupplýsingar, einmitt
það sem Fjórðungssambandið var
að óska eftir í landi Núps, og breyta
þeim í viðskiptaáætlanir. Land-
upplýsingar eru tengdar stafrænum
upplýsingum í olíuiðnaðinum í hug-
búnaði sem heitir Gravitas og út
kemur viðskiptaáætlun. Fyrirtækið
KATAMAK-Nafta er með heim-
ilisfang í Dublin á Írlandi en ekki
finnast aðrar upplýsingar um fyr-
irtækið á vefnum. Fyrirtækið Ís-
lenskur hátækniiðnaður ehf. var
stofnað í aprílmánuði síðastliðnum
eða um sama leyti og fréttir af mik-
illi undirbúningsvinnu fyrirtækisins
komu í fjölmiðlum. Hlutverk fyr-
irtækisins er rekstur eignarhalds-
félaga. Fyrirtækið er ekki með virð-
isaukanúmer og margt bendir til að
umsvifin og viðskiptin hafi ekki ver-
ið stórvægileg til þessa.
Hvaðan koma peningarnir?
Við Íslendingar höfum nýlega séð
kastað til höndunum við undirbún-
ing risaframkvæmda sem hafa gíf-
urleg óafturkræf áhrif á íslenskt
samfélag í för með sér. Nátt-
úrufórnir hafa verið færðar þó efna-
hagsleg og félagsleg áhrif fram-
kvæmdanna til lengri tíma litið hafi
verið óljós. Fréttir um illa meðferð
fyrirtækja á starfsmönnum og vond-
an aðbúnað erlendra verkamanna
eru nánast að verða daglegt brauð. Í
fréttinni um olíuhreinsunarstöð á
Vestfjörðum kemur fram að stórir
fjárfestar hafi lýst áhuga á að taka
þátt gefi stjórnvöld og sveitarfélög
grænt ljós. Allir fjárfestar hafa
áhuga á að taka þátt í verkefnum
sem færa þeim fjárhagságóða, sér-
staklega ef þeir hafa baktryggingu
opinberra aðila og áhættan er lítil
sem engin. Nauðsynlegt að fá upp-
lýst hverjir þessir fjárfestar eru.
Höfundur er arkitekt frá Núpi.
HRAUNBÆR 4 HERB. Á 1. HÆÐ M/AUKAHERB.
Rúmgóð og falleg 118 fm íbúð á 1. hæð.
Mjög stórt aukaherbergi í kjallara sem er
með aðgangi að baðherbergi (hægt að
leigja). Á sérgangi eru þrjú svefnherbergi og
baðherbergi. Stofurnar eru stórar og bjartar
með fallegu parketi, svalir, eldhús með-
borðkrók. Hér er þægilegt að búa. V. 23,0
millj. 6867
MELABRAUT - EFRI SÉRHÆÐ
Efsta hæð í þríbýlishúsi. Hæðin er vel skipu-
lögð og nýtist vel. Frábært útsýni er út á sjó
og upp á Snæfellsjökul. Hæðin skiptist í
anddyri, stigahol, þrjú herbergi á hæð, sjón-
varpsstofu, dagstofu og borðstofu, eldhús,
þvottahús, herbergi á jarðhæð og geymslu.
V. 35,9 millj. 6866
BERGSTAÐSTRÆTI - MÖGULEIKAR
Hér er um að ræða gott um 185 fm hús-
næði. Húsnæðið er í dag nýtt sem íbúðar-
rými en möguleiki er á að útbúa tvær sér-
íbúðir. Húsnæðið skiptist í 6-7 herbergi, tvö
baðherbergi o.fl.
DVERGABORGIR - RÚMGÓÐ M. SÉRINNGANGI
2ja herb, 67 fm íbúð, með sérinngangi á
2. hæð. Skiptist í herbergi, stofu, bað og
eldhús. Merktstæði á bílaplani. V. 16,8 millj.
6859
HÆÐARGARÐUR - ELDRI BORGARAR
Mjög góð 2ja herbergja íbúð á 5. hæð í
þessu góða fjölbýli fyrir eldri borgara. Íbúðin
skiptist í hol, baðherbergi, eldhús, stofu og
svefnherbergi, góðar svalir með miklu út-
sýni. V. 21,9 millj. 6857
JÖKULGRUNN - RAÐHÚS - ELDRIBORGARAR
Glæsilegt raðhús með innbyggðum bílskúr
við Hrafnistu. Húsið skiptist í forstofu, hol,
stóra stofu, rúmgott eldhús, stórt svefnher-
bergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Hellulagt plan er fyrir framan húsið og er
það með hitalögn. V. 37,5 millj. 6862
SUMARHÚS - ÁSGARÐSLANDI Í GRÍMSNESI
Sumarhús í Ásgarðslandi, Grímsnes- og
Grafningshreppi. Um er að ræða vandað
sumarhús, húsið er byggt 1991 sem skipt-
ist í tvö svefnherbergi, baðherbergi með
sturtu, stofu, eldhús og svefnloft. Auk þess
er nýlegt gestahús, húsið skiptist í stórt
rými með skáp auk baðherbergis með
sturtu. Einnig er í sama húsi mjög góð sér-
geymsla. Mjög stór verönd er að vestan-
verðu með heitum potti. Húsin eru vönduð
og allur frágangur er sérlega snyrtilegur.
Rafmagn og heitt og kalt vatn. Staðsetning er einstök, mikið og fallegt útsýni og er
landið kjarri vaxið. Lóðin er 7.353 fm eignarlóð. V. 18,5 millj. 6869
SUMARHÚS Í MIÐFELLI VIÐ ÞINGVALLAVATN
50,5 fm sumarhús á 5.000 fm eignarlóð.
Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi,
baðherbergi, eldhús og stofur. Einnig er góð
geymsla í litlu útihúsi. Kalt vatn sem ersér úr
borholu á lóðinni. Rafmagnshitun. Útsýni út
á vatn. Mikið hefur verið gróðursett á lóðinni
sem er eignarlóð. V. 10,9 millj. 6863
HJALTABAKKI - ENDURNÝJUÐ
Mjög góð 4ra herbergja 91,1 fm íbúð á
2. hæð, ásamt 14,1 fm sérgeymslu, sam-
tals stærð 105,2 fm. Íbúðin skiptist í 3 stór
og góð herbergi, stofu, eldhús og baðher-
bergi, í kjallara er sameiginlegt þvottahús
og stór sérgeymsla. V. 19,5 millj. 6547
ÍRABAKKI - 3JA HERB. MEÐ AUKAHERBERGI Í KJ.
Íbúð á 2. hæð í fallegu fjölbýlishúsi með
aukaherbergi í kjallara sem er með aðgangi
að sameiginlegu baðherbergi. Íbúðin skipt-
ist í tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu, eld-
hús, baðherbergi og sérþvottaherbergi.
Tvennar svalir. Barnvænt umhverfi og falleg
lóð. V. 17,5 millj. 6861
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Um er að ræða 100,0 fm glæsi-
lega, fjögurra herbergja, vel
skipulagða endaíbúð í litlu fjöl-
býli. Eignin skiptist í hol, þrjú
svefnh., baðh., eldhús, stofu og
borðstofu. Stórar svalir eru í
suður auk minni svala út frá
hjónaherbergi. Stæði í bíla-
geymslu fylgir eigninni. Glæsi-
leg eign. Stutt í leik- og grunn-
skóla sem og aðra þjónustu.
V. 29,5 m. 6779
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Seilugrandi - Falleg eign
Falleg húseign sem er kjall-
ari 2 hæðir og rishæð á frá-
bærum stað í Vesturbænum,
ásamt c.a. 20 fm bílskúr. Á
horni Sólvallagötu og Bræðr-
aborgarstígs. Með margvís-
legum nýtingar möguleikum,
en er í dag nýtt sem gistihús
með 9 herbergjum. Tvennar
svalir.
Húsið er til afhendingar 5.september nk. Verð 85 millj.
HÚSEIGN Í VESTURBÆNUM -
MIKLIR MÖGULEIKAR
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
49,5 fm heilsárshús, m. góðum palli, gufu-
baði og nuddpotti. Frábær staðsetning, ríf-
lega klst. akstur frá höfuðborgarsvæðinu.
Lóð í brekku, m. miklum trjágróðri og útsýni.
Innbú fylgir. VERÐ 16,0 millj.
Auður og Sæmundur taka á móti þér og
þínum með heitt á könnunni milli kl. 14 - 16 í
dag. Keyrt að Laugarvatni og þaðan áfram ca
12 km, beygt inn hjá skilti sem á stendur
Efsti-Dalur / Efsta-Dals skógur. Bústaðurinn
stendur uppi í hlíðinni og er nr. 36.
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG
EFSTI-DALUR, 801 SELFOSS
smáauglýsingar
mbl.is