Morgunblaðið - 01.07.2007, Qupperneq 44
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
44 SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
stjörnuspá júlí
Samskipti eru lykilorðið fyrir hrútinn þennan mánuðinn. Það
eru einhvern mál sem ekki hafa verið leyst sem tengjast vini
eða kunningja. Nú er rétti tíminn til að bæta úr því. Þú ert
mögulega að skipuleggja ferð á framandi slóðir til að hitta ást-
vini, og það muntu gera á þinn einstaka og hvatvísa máta. Það
mun allt ganga mjög vel upp. Liðleg samskipti eiga einnig eftir
að koma sér vel þegar þú rennir hýru auga til arðbærrar fjár-
festingar og þarft líklega að taka ákvörðun mjög skjótt og án
mikillar umhugsunar. Hins vegar verður einhver hindrun á
veginum í þessu ævintýri, en að lokum ætti allt að ganga upp.
Mundu að bjartsýni og bros koma alltaf að gagni.
Hrútur 21. mars - 20.apríl
Þennan mánuðinn verður þú upptekinn af launamálum þínum
og hinum ýmsu gildum í lífinu. Þú ferð yfir markmiðin þín og
reynir einnig af fremsta megni að breyta hlutum sem þú gerðir
í fortíðinni. Þér er mjög umhugað um hvernig þú getur best
haft almennilega stjórn á og nýtt sem best framfærslufé fjöl-
skyldunnar. Þér mun finnast þú tilbúinn til að gera eitthvað í
þeim málum og einnig þeim sem snúa að eignum ykkar. Sú
ákvörðun mun laga fjárhaginn til muna og gera ykkur öll kátari
fyrir vikið. Ekki búast við að hlutirnir gerist einmitt á því
augnabliki sem þú þarfnast þess. Bíddu rólegur og þolinmóður,
og góðu hlutirnir gerast.
Naut 20. apríl - 21. maí
Það eru margar hindranir í framtíðinni í því sem snýr að hjóna-
bandi og samböndum. Sumar hindranir koma úr óvæntri átt en
mundu að það er mikinn styrk að finna í vinum og vandamönn-
um í leitinni að hamingjunni. Þú gerir þér grein fyrir að á sviði
ástarinnar gerast hlutirnir hægt hjá þér. Það þýðir hins vegar
ekki að kyrrstaðan sé algjör! Reyndu líka að taka málin í þínar
hendur og hafa áhrif á líf þitt og framtíð. Þú ert einnig að læra
ýmsar lexíur í peningamálum sem geta valdið streitu hjá þér en
það er bara tímabundið og þú verður mun sterkari eftir á. Það
er alltaf gott að leita ráða hjá góðu fólki, og þá er mikilvægt að
hlusta vel.
Tvíburi 21. maí - 20. j́úní
Þennan mánuðinn mun mikið af þínum tíma fara í að laga vit-
leysur sem þú hefur gert varðandi fjármál. Hjálp kemur úr
óvæntri átt og það mun breyta miklu. Einhvern vandræði verða
líka á vinnustað þar sem fólk er ekki sammála þér. Mundu samt
að standa á þínu. Þú leggur einnig mikið á þig til að fá viður-
kenningu á vinnustað til að fá það sem þú vilt út úr lífinu og það
mun ganga mjög vel. Þar skiptir samvinna öllu máli og í henni
skalt þú bera af. Þú munt fá mikið hrós og hvatningu þegar þú
sýnir fólki hvað í þér býr og hvað þú hefur fram að færa. Nú
skiptir máli að halda ekki aftur af sér, láta ekki hindra sig, held-
ur blómstra til fullnustu.
Krabbi 21. júní - 22. júlí
Í júlí sýnir þú vinum og vandamönnum sérstaka athygli. Þú og
maki þinn munuð njóta þess að eiga góða vini sem hjálpa mikið
til við viss verkefni þennan mánuðinn. Þau gætu snúið að sam-
bandinu ykkar og einhverjum hlutum þess sem eru á huldu. Nú
þarf að bíta á jaxlinn og þora að horfast í augu við sannleikann.
kannski er hann alls ekki svo slæmur. Þú ert einnig að horfa á
alla þá ábyrgð sem þú berð, þar sem þér finnst þú hafa full-
mikið að gera. Það er góð hugmynd og mun hjálpa þér að takast
á við mörg verkefni í einu og standa þig vel. Ástvinur mun sýna
þér mikinn skilning og reynast traustari vinur en þú hafði álitið
hann hingað til.
Ljón 23. júlí - 23. ágúst
Frami þinn og öll viðskipti eru umlukin einhverri fallegri orku
sem mun veita þér mikla hamingju. Allt er á betri leið í
vinnunni og hlutir sem þér líkuðu ekki eru að breytast. Mikil
gleði ríkir einnig á heimilinu þar sem peningamálin fara alltaf
batnandi og ekki síst vegna þess hversu vel þú stendur þig í
vinnunni. Samt gæti einhver spenna tengst maka þínum eða
kringumstæðum hans. Einnig er vinur þinn ekki að gera heilla-
vænlega hluti og það tekur á taugarnir hjá þér. Nú gæti reynt á
vináttuna. Þú verður að gera upp við þig hvernig vini þú vilt
eiga og umgangast, því vinir hafa svo sannarlega áhrif á líf
manns og fjölskyldu.
Meyja 23. ágúst - 23. september