Morgunblaðið - 14.08.2007, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.08.2007, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HÖFUÐSTÓLL lána í erlendri mynt, sem nokkuð er um að fólk hafi tekið til að fjármagna fasteignakaup, hefur hækkað undanfarið vegna veikingar íslensku krónunnar en hún hefur veikst um 9% síðastliðinn mán- uð. Hjá þeim, sem taka lán í erlendri mynt, hafa japanskt jen og sviss- neskur franki verið vinsælustu gjaldmiðlarnir, en töluverðar sveifl- ur hafa verið á gengi jensins und- anfarið vegna styrkingar dollara. „Við höfum almennt sagt fólki að forðast gengistryggð lán í bili. Þegar krónan er svona sterk, ráðum við frekar fólki að doka við,“ segir Frið- rik Halldórsson, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs hjá Kaupþingi. 10% taka lán til fasteigna- kaupa í erlendri mynt „Okkar ráðlegging síðasta hálfa árið hefur verið að taka ekki gjaldeyrislán vegna sterkrar stöðu krónunnar og hættu á, að hún veikist innan tíðar.“ Friðrik segir að undir 10% þeirra sem undanfarið hafi tekið lán hjá bankanum til fasteignakaupa hafi tekið þau í erlendri mynt. Þessi lán séu ekki ný af nálinni en bankinn hafi kosið að auglýsa þau ekki eða hvetja fólk til þess að taka þau „því við höfum talið að það sé betra að vera í verðtryggingaráhættu en í gengisáhættu fyrir fólk sem fær launin sín greidd út í íslenskum krónum. Það er áhættuminna að taka innlend lán en erlend“. Friðrik segir Kaupþing ekki hafa fundið fyr- ir því síðustu daga og vikur að fólk vilji greiða upp lán sem það hefur tekið í erlendri mynt. Erlend lán „flökta“ alltaf Í sama streng tekur Hans Hjart- arson, ráðgjafi hjá Frjálsa fjárfest- ingarbankanum, en hann segir ekki mikið um að fólk hafi reynt að losa sig við lánin undanfarið vegna óhag- stæðra gengisbreytinga. „Við erum í húsnæðislánum og þau eru yfirleitt tekin til 25-40 ára. Svona mun alltaf gerast þegar fólk er með erlent lán, það mun alltaf flökta,“ segir hann. Hann segir að um 70-80% útlána bankans séu myntkörfulán en flestir þeirra, sem taka lán í erlendri mynt, velji að taka ekki allt lánið í sömu myntinni. Vinsælast sé að taka lán sem er 70% í svissneskum frönkum og 30% í japönsku jeni. Hans segir að undan- farið, er krónan var sem sterkust, hafi ekki verið mikið um lántökur í erlendri mynt. „Þá heldur fólk frek- ar að sér höndum,“ segir Hans. Hans segir bankann hafa ráðlagt fólki að taka lán í erlendri mynt, sé lánið tekið til langs tíma. „Við ráðleggjum fólki að skoða málið vel og leggjum fyrir það gögn. Ef þetta er skoðað frá ýmsum for- sendum virðist það alltaf vera hag- kvæmara,“ segir Hans. Fólk sem hyggist taka erlend lán sé upplýst um það að sveiflur muni verða á greiðslubyrði. Höfuðstóll lána í erlendri mynt hefur hækkað snarpt Hafa ráðlagt fólki að taka ekki gjaldeyrislán vegna hættu á að krónan veiktist                            !   " #   !$  %# &  '  ()* +,- ./0 +,- 1# &  2 3!##    #  455 5 4    5  5  6  #     , 4 5, 7!!"8       &# ## 9  #  :#  '9% #3 "'3 '  ' %#       '$3 &$;3 <    #<    / = 2 3! #        Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is ÞAÐ sem af er þessu ári hafa þrír einstaklingar greinst með berkla á Íslandi. Í tveimur tilvikum þótti ástæða til að gangast fyrir allum- fangsmikilli rannsókn til að rekja hugsanlegt smit. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum. Í maí greindust smitandi berklar hjá 84 ára gömlum vistmanni á elliheimili norður í landi. Í kjölfarið voru 157 manns, sem höfðu haft samskipti við sjúklinginn, rannsakaðir með tilliti til smits. Nið- urstöður benda til að enginn þeirra hafi smitast af berklum. Hitt atvikið snerti erlendan starfs- mann við Kárahnjúkavirkjun. Í kjölfarið hófst rannsókn á 159 starfsmönnum á svæðinu sem höfðu haft samskipti við sjúklinginn. Rann- sóknin stendur enn yfir og er lokið rannsókn á 68 starfsmönnum, en enginn þeirra er talinn hafa smitast. Þó reyndust fimm þeirra með já- kvætt berklapróf en voru ekki með lungnaberkla. Starfsmaðurinn sem greindist með berkla kemur frá EES-ríki og þurfti því ekki að leggja fram heil- brigðisvottorð vegna tímabundins dvalar- og atvinnuleyfis við komu sína hingað til lands. Þrír menn greinst með berkla AUKNING hefur orðið á raftækja- viðgerðum eftir rafmagnsleysið sem varð víða um land 7. ágúst síðastlið- inn, þegar skammhlaup varð í spennistöð Landsnets í Hvalfirði og rafmagn fór af víðast hvar á landinu. Að sögn Gunnars Andréssonar hjá Hljómsýn á Akranesi hafa margir verið að skipta um spennubreyta fyrir sjónvörp og loftnet frá því fyrir helgi. Þar að auki hafa jafnmargir Akurnesingar komið með sjónvörp sín til viðgerðar hjá fyrirtækinu og síðustu tvo mánuði þar á undan, en raftæki geta farið illa þegar þau eru í sambandi á sama tíma og bilanir sem þessi verða. Bilanir á Landsnetinu geta valdið spennusveiflum inni á heimilum, en þær geta verið venju- legum raftækjum ofviða. Orkuveitu Reykjavíkur hefur ver- ið tilkynnt um sjö tilvik þar sem tjón varð vegna bilunarinnar, þar af sex á Akranesi. Að sögn Eiríks Hjálmars- sonar, upplýsingafulltrúa Orkuveit- unnar, hefur verið staðfest að spennusveiflur í afhendingu raf- magns frá Landsneti fóru út fyrir mörk staðla. Orkuveitan mun fara yfir það með fulltrúum Landsnets hver beri á endanum bótaábyrgð vegna þessa. Bilanir á raftækjum ♦♦♦ Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is ORLOFSFERÐIR á skemmti- ferðaskipum hafa löngum verið tengdar við eldri borgara og efn- að fólk á eftirlaunum sem vill njóta langra frídaga á siglingu um heimsins höf. Það þótti því nokkuð óvenju- legt þegar skrautlega málað skip lagðist að bakka í Sundahöfn í Reykjavík í gær með um 200 börn innanborðs. 30% farþeganna koma frá Þýskalandi Að sögn Ágústs Ágústssonar framkvæmdastjóra Faxaflóahafna eru rúm 30% þeirra 56 þúsund farþega sem hingað koma með skipum frá Þýskalandi þar sem fjölskyldusiglingar hafa verið að sækja í sig veðrið. Meðalaldur farþega sé nú kom- inn niður fyrir 50 ár og skemmti- dagskrá skipanna breyst í sam- ræmi við það. „Það eru fimm stúlkur um borð sem sinna börn- unum, sem eru alveg frá eins árs og upp í 14 ára,“ segir Ágúst. „Síðasta kvöldið fá börnin svo leikhúsið í skipinu fyrir eigin skemmtun sem þau hafa æft og koma þar sjálf fram.“ Fjölskylduvænni ferðir Það er breytt fyrirkomulag ferðanna sem gerir þær fjöl- skylduvænni því þær eru nú styttri en áður, til dæmis er ekki farið norðar en til Akureyrar lengur í stað þess að sigla áfram til Svalbarða, og að sama skapi ódýrari. Ætla má að hegðunarmunstur farþeganna í landi breytist nokk- uð með lægri meðalaldri og fjöl- skylduskipin því varla jafn feitur biti fyrir íslenska verslunarmenn eins og svo gjarnan hefur verið. Á hinn bóginn segir Ágúst mikla aðsókn í skoðunarferðirnar með- al bæði barna og fullorðinna, ekki síst í Bláa lónið sívinsæla sem sé mjög fjölskylduvænt þó það höfði vitanlega til allra ald- urshópa. Hann segir meðal annars vin- sælt meðal þessara ferðalanga að geta ráðið ferðum sínum sjálfir, enda höfðu farþegum í gær verið útvegaðir tugir reiðhjóla til að fara með börnin í hjólatúr um Reykjavík. Fjölskylduvænar siglingar laða barnafólk til landsins Ævintýri Heilu fjölskyldurnar nýta sumarfríið með siglingu frá meginland- inu og norður á bóginn með barnvæna skemmtiferðaskipinu Aida. Stóru skemmtiferðaskipin eru ekki bara fyrir eldri borgara Morgunblaðið/Frikki Skemmtun Börn þurfa aðra afþreyingu en eldri borgarar og fengu þau reiðhjól til að skoða sig um í Reykjavík. TVEIR bílar lentu saman á Reykja- nesbraut rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöld. Ökumaður annars bílsins var fluttur á sjúkrahús en fékk að fara heim að lokinni skoðun. Að sögn lögreglunnar í Keflavík er talið að annar ökumaðurinn hafi sofnað und- ir stýri og bíll hans farið yfir á öfug- an vegarhelming í veg fyrir hinn bíl- inn. Þá var lögregla höfuðborgarsvæð- isins kölluð út um kl. 15 í gær þar sem ökumaður bifhjóls féll af hjóli sínu á Reykjanesbraut, við Vífils- staðaafleggjarann. Maðurinn liggur á gjörgæsludeild LSH þar sem hann gekkst undir aðgerð en hann hlaut innvortis meiðsl. Maðurinn er með meðvitund og líðan eftir atvikum. Sofnaði undir stýri ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.