Morgunblaðið - 14.08.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2007 31
Atvinnuauglýsingar
Finnst þér gaman að
leika þér?
Hefur þú gaman af börnum?
Í Lágafellsskóla eru lausar stöður í Frístundaseli.
Um er að ræða 30-40% stöðuhlutfall.
Vinnutími getur verið sveigjanlegur á milli kl. 14-17
og getur starfið því hentað skólafólki vel.
Óskað er eftir áhugasömum, jákvæðum og
samviskusömum einstaklingum, 17 ára og eldri.
Kostur er ef viðkomandi hefur einhverja reynslu af
listum, íþróttum eða öðru starfi tengdu frístundum.
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst og gott er ef
viðkomandi getur hafið störf sem fyrst eftir það.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
Starfsmannafélags Mosfellsbæjar.
Upplýsingar veita Elísabet Jónsdóttir, deildarstjóri
yngsta stigs og Sigríður Sigurðardóttir
forstöðumaður frístundastarfs Lágafellsskóla í síma
525 9200, 699 3131 eða á netfangið
frístund@lagafellsskoli.is.
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Frá Salaskóla
Okkur vantar eftirfarandi starfsfólk:
• Umsjónarkennara á yngsta stig - 100% starf
• Textílkennara - 50% starf
• Starfsfólk í dægradvöl - hlutastarf
Laun samkv. kjarasamningi Launanefndar sveitar-
félaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar gefur skólastjóri í s. 570 4600,
netfang hafsteinn@salaskoli.is.
Hvetjum konur jafnt sem
karla til að sækja
um störfin.
Varmalandsskóli í
Borgarfirði auglýsir
Okkur bráðvantar umsjónakennara á miðstigi
fyrir komandi skólaár. Húsnæði í boði.
Upplýsingar gefa: Ingibjörg Inga
Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847 9262
eða 430 1502, inga@varmaland.is og
Guðmundur Þorsteinsson aðstoðarskólastjóri
í síma 435 0172 eða 695 1925,
marflo@varmaland.is.
Vanan háseta
vantar á beitningarvélabát.
Upplýsingar í síma 896 1844.
Sendibílstjóri
J.B. Byggingafélag óskar eftir að ráða
sendibílstjóra með meirapróf eða bílpróf
tekið fyrir júní 1993.
Upplýsingar gefa Ingvar Kárason í síma
693 7008.
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu
félagsins www.jbb.is.
Hjá JB Byggingafélagi er boðið er upp á
góða starfsaðstöðu og líflegt starfsmanna-
félag.
JB Byggingafélag, Bæjarlind 4, s. 544 5333.
Ertu skapandi?
Langar þig að læra
hárgreiðslu?
Okkur vantar nema á Salon Reykjavík. Hringdu
og hafðu samband í síma 568 5305 eða
skilaðu inn umsókn á Grandagarða 5 eða á
arnar@salon.is.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
VELKOMIN TIL HAFNARFJARÐAR!
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar um
Hafnarfjörð og margvíslega starfsemi á vegum sveit-
arfélagsins hjá þjónustuveri bæjarins í síma 585 5500
eða skoðaðu heimasíðuna, www.hafnarfjordur.is.
Kynningarfundur
vegna Strandgötu 26-30
Ath. breytta dagsetningu
Kynningarfundur varðandi tillögu að breyttu
miðbæjarskipulagi fyrir lóðina Strandgötu 26-30 í
Hafnarfirði verður haldinn fimmtudaginn 16. ágúst
2007 í Hafnarborg í Hafnarfirði, milli kl. 17-19.
Skipulags- og byggingarsvið Hafnarfjarðar.
Kennsla
Fjarkennsla - innritun
Fjarkennsla VMA býður nám með
tölvusamskiptum til meðal annars
stúdentsprófs, sjúkraliðanáms og meistara-
stigs. Boðið er upp á tæplega 200 áfanga á
framhaldsskólastigi. Innritun er hafin og nánari
upplýsingar eru á vefsíðum skólans.
Vefslóð: http:// www.vma.is/fjarkennsla.
Innritun lýkur 15. ágúst.
Kennslustjóri fjarkennslu.
Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú
getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem
þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag.
Besta aukavinna sem þú getur fundið
og góð hreyfing í þokkabót!
Hringdu núna og sæktu um
í síma 569 1440 eða á mbl.is!
Sæktu um blaðberastarf
– alvörupeningar í boði!
HEIMSMEISTARAMÓT lands-
liða 16 ára og yngri fór fram í Singa-
púr dagana 4.-12. ágúst sl. og tóku 34
sveitir þátt í mótinu. Lið frá Íslandi
var á meðal keppenda í fyrsta skipti í
um áratug. Tefldar voru tíu umferðir
og var gengi íslenska liðsins prýðilegt
framan af móti þó að það hefði tapað
4-0 í þriðju umferð gegn tilvonandi
heimsmeisturum Indverja. Í níundu
umferð lagði liðið Víetnama að velli
2½-1½ og með góðum sigri í lokaum-
ferðinni hefði liðið lent í einu af tíu
efstu sætunum. Það varð ekki raunin
þar sem lið Úsbeka reyndist of sterkt
fyrir liðsmenn sögueyjunnar góðu úr
norðri og ½-3½ tap varð staðreynd.
Íslenska liðið fékk samtals 20½
vinning af 40 mögulegum og lenti í
16.-18. sæti. Frammistaða einstakra
liðsmanna varð eftirfarandi:
1. borð: Sverrir Þorgeirsson
(2.064) 4½ v. af 9 mögulegum.
2. borð: Ingvar Ásbjörnsson
(2.028) 3 v. af 9.
3. borð: Daði Ómarsson (1.951) 5½
v. af 8.
4. borð: Helgi Brynjarsson (1.881)
4 v. af 7.
vm.: Matthías Pétursson (1.919)
3½ v. af 7.
Daði Ómarsson hóf mótið með því
að tapa tveimur fyrstu leikjunum en
vann svo fimm skákir í röð áður en
hann gerði jafntefli í lokaumferðinni
gegn Úsbeka með 2.203 stig. Ef mið
er tekið af skákstigum var frammi-
staða Daða verulega umfram það
sem mátti búast við fyrirfram. Ólíkt
Daða hófu bæði Sverrir og Ingvar
keppni með tveimur sigrum en létu
svo undan síga um miðbik mótsins. Í
lokin tók Sverrir góðan sprett en
ólánið hélt áfram að elta Ingvar.
Frammistaða Sverris, Helga og
Matthíasar var nokkurn veginn í
samræmi við stig þeirra en Ingvar
mun tapa þó nokkrum stigum.
Skáksamband Íslands fjármagnaði
ferð drengjanna að mestu leyti og
Skákskóli Íslands sá um þjálfun
þeirra. Torfi Leósson var liðsstjóri
sveitarinnar og ritaði hann áhuga-
verða pistla um mótið á nýju skák-
fréttasíðunni, http://
www.skak.blog.is, sem hefur komið í
stað www.skak.is. Nánari upplýsing-
ar um keppnina er að finna á þessari
síðu sem og á heimasíðu mótshald-
ara, http://www.singaporec-
hess.org.sg/.
Róbert í Olomouc
FIDE-meistarinn Róbert Lag-
erman (2.315) tefldi í lokuðum flokki
á alþjóðlegri skákhátíð sem fór fram í
Olomoc í Tékklandi fyrir skömmu. Að
loknum fjórum umferðum hafði hann
einn og hálfan vinning en þá tók hann
sig rögg og vann þrjár skákir í röð. Í
síðustu fjórum umferðunum fékk
hann helming vinninga svo að hann
endaði keppni með 6½ vinning af 11
mögulegum og deildi hann fjórða
sætinu með tékkneska alþjóðlega
meistaranum Vladimir Talla (2.430).
Árangur Róberts samsvarar 2.360
stigum svo að hann græddi 11 stig á
mótinu. Maxat Alaguzov (2.200) frá
Kasakstan og Marcin Tazbir (2.428)
frá Póllandi deildu efsta sæti mótsins
með 8 vinninga. Nánari upplýsingar
um keppnina er m.a. að finna á
www.skak.blog.is.
Borgarskákmótið í Ráðhúsinu –
fimmtudaginn 16. ágúst
Hið árlega Borgarskákmót fer
fram í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtu-
daginn 16. ágúst nk. og hefst það kl.
15. Að mótinu standa Taflfélag
Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir og
gera mótshaldarar ráð fyrir að marg-
ir af sterkustu skákmönnum landsins
taki þátt í því. Mótið er öllum opið og
er þátttaka ókeypis. Þeir sem hafa
hug á að taka þátt eru hvattir til að
skrá sig sem fyrst en skráning fer
fram á heimasíðu Hellis, www.hellir-
.com, á netfanginu hellir@hellir.com
eða í síma 866 0116. Tefldar verða 7
umferðir með 7 mínútna umhugsun-
artíma.
Íslenska ungmennaliðið í miðjum hóp
daggi@internet.is
Helgi Áss Grétarsson
Íslenska liðið á HM Sverrir Þorgeirsson, Ingvar Ásbjörnsson, Daði Óm-
arsson og Helgi Brynjarsson við upphaf umferðar gegn liði S-Afríku.
SKÁK
Singapúr
4.-12. ágúst 2007
HM 16 ÁRA OG YNGRI